Sæl ! Ég heiti Eggert Guðmundsson, og er búsettur í Kaupmannahöfn.
Ég hef verið hér í 15 ár, og er førtidspensionist eins og það er kallað hér. Ég hræri stundum dönsku og Íslensku saman, eða skrifa vitlaust. Ég vona það verði fyrirgefið.
Hér verða gamanefni, myndir og ýmislegt meira sem ég finn upp á.
Vonandi finnst ykkur bara gaman.
Kveðja Eggert
Ég komst að raun um að allt sem Guð gerir stendur að eilífu, við það er engu að bæta og af því verður ekkert tekið. Guð hefur hagað því svo til þess að menn virtu hann.
Sálmarnir 71:8
Munnur minn er fullur lofgjörðar um þig, af lofsöng um dýrð þína allan daginn.
Klikkið á myndina til að stækka. Og endilega skoðið og hlustið á myndbandið hér fyrir neðan, þið verðið ekki fyrir vonbrigðum.
Vík í Mýrdal. Myndasmiður er Þórir N. Kjartansson.
Geimvísindamenn á vegum NASA hafa fundið vatn á tunglinu og telja að það muni gera þeim kleyft að opna geimstöð þar. Það var Anthony Colaprete, sérfræðingur í geimvísindum, sem tilkynnti þetta í dag, eftir því sem fram kemur á vef CNN.
“Ég er hérna í dag til að tilkynna ykkur að við höfum fundið vatn,” sagði Colaprete á fjölmiðlafundi í dag. Hann bætti því við að talsvert magn af vatni hefði fundist. Enn hvað skyldi Karllinn á tunglinu seiga við því?!!!!
Kallinn á tunglinu hefur allavega haft nóg vatn til að drekka af í gegnum söguna og ost hefur hann haft líka. Er ekki líka hægt að finna aldingarð á tunglinu!!!!