Sæl ! Ég heiti Eggert Guðmundsson, og er búsettur í Kaupmannahöfn.
Ég hef verið hér í 15 ár, og er førtidpenjon eins og það er kallað hér. Ég hræri stundum dönsku og Íslensku saman, eða skrifa vitlaust. Ég vona það verði fyrirgefið.
Hér verða gamanefni, myndir og ýmislegt meira sem ég finn upp á.
Vonandi finnst ykkur bara gaman.
Kveðja Eggert
Gömul kona stóð fremst á stafni skemmtiferðarskipsins. Hún hélt fast í hatt sinn svo hann fyki ekki brott með vindinum. Herramaður gekk til hennar og sagði “Fyrirgefðu frú, en vissir þú að kjóll þinn blæs upp í þessum vindi? “Já ég veit það”, sagði konan,
“Ég þarf að nota báðar hendurnar til þess að halda hattinum á sínum stað.”
“En frú mín, þú hlýtur að átta þig á því að hið allra helgasta blasir við þeim fjölmörgu sem standa hér”, sagði herramaðurinn kurteislega. Gamla frúin leit niður, og síðan á herramanninn og svaraði;
“Góði minn, allt sem þú sérð þarna niðri er 85 ára gamalt. En ég keypti þennan hatt í gær.
Dagný litla var að heimsækja móður sína (Mæju) á fæðingardeildina: “Mamma, hvernig kom Jói bróðir minn í heiminn?”. Mamman: “Jæja, fyrst kom höfuðið, svo hendur og loks fætur …” Dagný: “Og vá mamma! settir þú svo hann sjálf saman?”
Munið eftir að smella á myndina til að fá fulla stærð.
- “Fórst þú ekki í 3 vikna sólarlandaferð sumar?” - “Neiiii. Ég get ekki verið svo lengi frá vinnu í einu.” - “Hvað!! geta þeir ekki verið án þín?” - “Jú það geta þeir. Enn ég vil ekki að þeir uppgötvi það, eða viti það.”
Nú er verið að sannprufa nýja tegund af ferju eða rútu, í fljótinu Glyde í Glasgow. (Glasgow er í Skotlandi, sem er á Stóra Bretlandi.) Ef það reynist eins og vonast eftir. Þá verður það aðal farartæki á fljótinu Glyde.
Nú vantar aðeins vængina, svo það verður fullkomið.
Það spáir og aftur spáir meiri snjó og kulda. Þétta tekur engan enda. Hvar sem við lítum, er snjór og aftur snjór. Enn í sæluríkinu í norðri, sem er Ísland, það er Spánar veður alla daga. Eða verðum við að kalla það Íslands-veður?
Eins og sést á meðfylgjandi myndum. Þá er gríðarlega mikill snjór. Vegna mikils fannfergis. Og ekki enn séð fyrir endann á því.
Þetta er að verða nóg. Eða hvað finnst ykkur kæru lesendur?
Það er nú frekar að maður geti kallað Danmark: Ísland núna. Hérna er allt á kafi ís og snjó og sér ekki fyrir endanum á þessu kulda kasti í Evrópu og hér í Danmörku. (Voru svo mörg orð frá Séra Petri Skagen Einarsyni Kletti.)
.
Já vonandi fer þetta nú að lagast, kanski fer að hlýna á næstu mánuðum.????????????? (Eða árum.) Sagði Gunnar Jóhannsson..
Maður nokkur, sem er úti að aka í sínum bíl. Og kona nokkur keyrir á sama vegi, en í gagnstæða átt.
Þegar þau mætast, hallar konan sér út um gluggann og hrópar mjög hátt: - “svín”. Maðurinn setur strax höfuðið út úr gluggann og hrópar reiður á móti: - “Kerlingaskratti!”.
Skömmu síðan ók maðurinn inn í skarpa beygju, og hann keyrir yfir risa svín, sem var á miðjum veginnum.
Maðurinn drepst á staðnum. (Sorgarsaga.) Hugsaðu nú vel um, það er eflaust betra að hlusta á konurnar stundum! Eða taka mark á þeim.
Von er á íslenska landsliðinu í handknattleik með flugvél Icelandair, sem kemur frá Kaupmannahöfn til Keflavíkurflugvallar klukkan 16 í dag. Áformað er, að vélinni verði síðan flogið til Reykjavíkurflugvallar með landsliðið innanborðs og lendi þar um klukkan 17.00
Bavíani nokkur í kínverskum dýrasirkus er orðinn alþýðuhetja í heimabæ sínum fyrir að aðstoða við að selja miða til gesta. Þetta kemur fram í frétt á vefnum ananova.org.
Bavíaninn heitir Chun Chun, sem útleggst sem Vor á kínversku. Hann leysir stundum mennska miðasalann af til að skemmta gestum.
Bavíaninn tekur við peningum og afhendir miða í staðinn – hann hefur jafnvel gefið til baka, að því er Ananova hefur eftir forsvarsmönnum dýragarðsins.
Temjari Chun Chuns segir að þrotlaus þjálfun sé að baki hæfileikum bavíanans til að vinna í miðasölunni, þar sem bavíanar séu ekki náttúrulega gáfaðir, eins og apakettir. Hann þarf mannlegan aðstoðarmann, þar sem hann á það til að ruglast í ríminu og neita að taka við öðrum seðlum en 100 yuan-seðlum. Þeir eru rauðir, sem er uppáhaldslitur Chun Chuns.
„Við ætlum að þjálfa hann frekar, til að hjálpa honum að telja og einnig til að lækna hann af fordómum gagnvart öðrum seðlum en rauðum,“ hefur Ananova eftir talsmanni sirkussins. ivarpall@mbl.is
Í dag byrjaði að snjóa og aftur snjóa. Það má seiga að það sé öfugt við okkar kæra Ísland. Á Íslandi er hiti, enn hjá okkar kæru baunum er frost og aftur frost. Janúar mældist met af kulda, frá því 1904.
Og öll fjármál um snjómokstur er kominn langt yfir allar áætlanir.
Snjór of aftur snjór. Her í Danmörku er ekki skylda að hafa vetradekk. Svo flestir er á sumardekkjum.
Allt gengur hægt. Umferð á tveim eða fjórum.
Það er um að gera að klæða sig vel og fara varlega.
Her er 2 litlir brandarar eða smá grín. Vonandi finnst ykkur bara gaman.
- Þjónninn: Heyrðu!, fyrirgefðu, Herra, enn þú hefur greitt einu glasi of lítið af bjór. - Herrann: Nei. Ástæðan er sjálfsagt, að ég hef fengið einu glasi of mikið.
.
Af hverju verða menn ástfangnir við fyrstu sýn? Það sparar þeim heilmikinn af tíma.
Mikið er talað um leikinn í gær. Hvað fór úrskeiðis. Voru menn þunnir eftir drykkju? Eða hvað, það er spurt og aftur spurt. Hvað fór úrskeiðis? Enn við Íslendingar vorum einfaldlega sterkari og betri.
Ísland vann fimm marka sigur á Dönum, 27-22, á EM í handbolta í kvöld og tryggðu sér þar með sigur í riðlinum og fara með þrjú stig með sér í milliriðlakeppnina í Vínarborg. Danir voru spældir, og kenna dómara um.
Já sæll!!! Sem fyrrverandi dómari í efstu deild þá verð ég að segja að þessir frændur okkar frá Svíþjóð voru flottir…. þeirra framtak í þessum leik hafði ekkert með sigurinn að gera…. Bara léleg fréttamennska hjá aumkunarverðum dönum….. (Þetta voru ummæli)
- Hvers vegna varstu svona reiður við fallegu stúlkuna sem þú varst með? - Hún spurði hvort ég gæti dansað. - Var það eitthvað til að vera svo reiður? - Við dönsuðum saman þegar hún spurði!
Bugatti Veyron er víst nokkuð röskur bíll. Eittþúsund hestafla vélin kemur honum upp í hundrað á tveimur og hálfri sekúndu. Þremeningarnir í Top Gear hafa allir prófað dolluna og líst nokkuð vel á hana.
Fjandi dýr dekk. Mynd/Bugatti
Framleiðendurnir segja að hámarkshraðinn sé yfir 400 kílómetrar á klukkuststund og James May hjá Top Gear sannreyndi það árið 2006 þegar hann keyrði Búggann upp í 407.9 kílómetra.
May sagði að á þeim hraða entust dekkin í fimmtán mínútur, en það væri allt í lagi því bensínið yrði búið eftir tólf mínútur.
May var ekki að grínast því í botni eyðir bíllinn 115 lítrum á hverja 100 kólómetra. En það var þetta með dekkin. Og rekstrarkostnaðinn.
Bugatti Veyron er víst dýrasti fólksbíll í heimi. Hann kostar um 220 milljónir íslenskra króna og inni í því er ekki þetta lítilræði sem íslenska ríkið leggur á bíla. Þeir sem kæra sig um geta reiknað dæmið áfram.
Og dekkin? Jú, nýr umgangur kostar um fjórar milljónir króna. Dálítið 2007 ekki satt?
Suður-kóreskir ríkisstarfsmenn hafa fengið fremur óvenjulegt verkefni. Klukkan sjö í kvöld voru ljósin slökkt í heilbrigðisráðuneytinu og starfsmenn hvattir til að fara heim og búa til börn.
Stefnt er að því að endurtaka leikinn í hverjum mánuði.
Suður-kóreskar fjölskyldur sjást hér fagna nýju ári.
Suður-Kóreumenn eru ekki að gera þetta að gamni sínu - kannski að einhverju leyti þó - því fæðingartíðnin í landinu er ein sú lægsta í heiminum. Hún er t.d. lægri en í nágrannaríkinu Japan.
Stjórnvöld hafa sett það í forgang að fjölga nýfæddum börnum, en eftirlaunaþegum fjölgar hratt í landinu. Það hefur í för með sér að fólki á vinnualdri fer fækkandi á meðan heilbrigðiskostnaður rýkur upp, að því er fram kemur á vef BBC.
Heilbrigðisráðuneytið, sem er stundum kallað í gríni hjúskaparmiðlunarráðuneytið, stýrir þessu verkefni. Heilbrigðisyfirvöld eru á greinilega á þeirri skoðun að starfsmenn ráðuneytisins eigi að sýna gott fordæmi.
Embættismenn sem eiga fleiri en eitt barn fá veglega gjafaúttekt. Þá hefur ráðuneytið skipulagt ýmsar uppákomur í þeim tilgangi að ástin muni blómstra meðal ríkisstarfsmanna.
Margir eru hins vegar á því að gera verði meiriháttar breytingar í fjölskyldumálum til að draga úr þeim mikla kostnaði sem fylgi því að eiga og mennta börn.
Maður nokkur var hjá lækni, til að finna út hvers vegna hann hafði alltaf ógleði. Læknirinn: “Ég get ekki raunverulega ekki fundið út hvað er að þér, en það getur auðvitað verið afleiðing af of mikilli drykkju.” Maðurinn: “Hmmm, ég held að ég koma þá aftur þegar þú verður edrú.”
—————————————————————————
Veistu hvers vegna konur sofa með opinn munninn? - Svo þær eru tilbúnir að seiga eitthvað, þegar þær loksins vakna upp ..
Umferðaröngþveiti varð í Moskvu í gærkvöldi þegar tölvuþrjótar brutust inn í tölvukerfi, sem stýrir myndum á auglýsingaskjáum meðfram einni af aðalgötum borgarinnar. Á auglýsingaskjánum birtist skyndilega klámmynd sem vakti mikla athygli bílstjóra.
Fyrirtækið, sem sér um efnið á auglýsingaskjánum, Panno.ru, sagði að tölvuþrjótar hefðu brotist inn í tölvukerfið og hlaðið myndinni inn á tvo skjái.
Sjónarvottar segja, að bílaumferð hafi nánast stöðvast þegar bílstjórar vildu fylgjast með klámmyndinni, sem sýnd var í um 20 mínútur á risastórum skjánum.
Interfax fréttastofan hefur eftir Alexander Mentsjúk, varaformanni auglýsinganefndar Moskvu, að þar á bæ hafi menn frétt af þessu eftir þrjár mínútur en 15 mínútur tók að slökkva á skjáunum.
- Fyrirgefðu, varst það þú sem bjargaðir syni mínum upp úr höfninni í gær? - Já jú, enn það var ekkert að minnast á. - Ekkert að minnast á, segir þú? Hvar í fjandanum er húfan hans?
Síðara Korintubréf 8:9
Þið þekkið náð Drottins vors Jesú Krists. Hann gerðist fátækur ykkar vegna, þótt ríkur væri, til þess að þið auðguðust af fátækt hans.
Jóhannesarguðspjall 20:31
En þetta er ritað til þess að þið trúið að Jesús sé Kristur, sonur Guðs, og að þið í trúnni eigið líf í hans nafni.
———————————————————————-
Hafið þið heyrt um google earth? Niður halið og prófið. Það kostar ekkert.
Leigubílstjóri frá Bangladess, sem ekur um götur New York borgar, lagði mikið á sig til að finna farþega sem gleymdi mörg þúsund dölum í aftursæti leigubifreiðarinnar.
Læknaneminn Mukul Asadujjaman fann heimilisfang með peningunum og ók um 80 km langa leið til að skila fénu. Enginn var hins vegar heima og því skildi Asadujjaman eftir símanúmer á staðnum. Fram kemur á fréttavef breska ríkisútvarpsins að ítölsk amma hafi átt féð, en hún var í heimsókn í Bandaríkjunum.
Síminn hringdi skömmu síðar og hann sneri við með peningana.
Asadujjaman var heitið fundarlaunum sem hann hafnaði. Hann segist vera strangtrúaður múslími og geti af þeim sökum ekki tekið við verðlaununum.
Gamla konan, Felicia Lettieri frá Pompei á Ítalíu, hafði ásamt fjölskyldu sinni tekið tvo leigubíla á jóladag. Hin 72 ára gamla Lettieri gleymdi veskinu hins vegar í bílnum, en í því voru 21.000 dalir (um 2,6 milljónir kr.), dýrir skartgripir og vegabréf.
Stóra systir Felicu, Francesca Lettieri sem býr á Long Island, segir að leigubílstjórinn hafi algjörlega bjargað fríi fjölskyldunnar.
Asadujjaman sagði í viðtali við dagblað að þrátt fyrir að hann væri fátækur þá væri hann einnig heiðarlegur. „I’m needy, but I’m not greedy,“ sagði hann.
Yfir 24 milljónir kínverskra karlmanna á giftingaraldi gætu þurft að sætta sig við einlífi árið 2020 að sögn kínversku félagsvísindastofnunarinnar. Stafar þetta af því að mun fleiri karlar en konur komast á legg í landinu.
Vegna eins barns stefnu kínverskra stjórnvalda og áherslu, sem lögð er á sveinbörn í kínverskum fjölmiðlum, er mjög algengt að konur, sem ganga með meybörn, láti eyða fóstrunum, að sögn stofnunarinnar.
Þetta er einkum tilfellið í sveitum en sónarskoðanir, sem urðu almennar á níunda áratug síðustu aldar í Kína, hafa ýtt undir þessa þróun.
Stofnunin segir, að vegna þessa kynjamisræmis hafi mansal og vændi orðið mikið vandamál í ýmsum hlutum landsins.
Sálmarnir 95:6-7
Komið, föllum fram og tilbiðjum, beygjum kné vor fyrir Drottni, skapara vorum. Því að hann er vor Guð og vér erum gæslulýður hans, hjörðin sem hann gætir. Ó, að þér í dag vilduð heyra raust hans:
Rómverjabréfið 10:12-13
Í þessu er enginn munur á Gyðingum og Grikkjum. Hinn sami er Drottinn allra, fullríkur fyrir alla sem ákalla hann því að „hver sem ákallar nafn Drottins verður hólpinn“.
Ýtið á myndirnar með músinni, svo þær verði stærri. Sjáið endilega þessar fallegu myndir. Og skoðið og hlustið á myndbandið hér fyrir neðan. þið verðið ekki fyrir vonbrigðum. Guð veri með ykkur allar stundir.
Kleifarvatn er um 34 km. frá Reykjavík.Auðvelt er að komast að vatninu, en aka þarf Krísuvíkuleið og liggur vatnið meðfram þjóðveginum.
Kleifarvatn er á Reykjanesskaga, staðsett á milli Sveifluhálsar og Vatnshlíðar.
Kleifarvatn er eitt af stærstu vötnum landsins, um 8 km2. að stærð og 136 m. yfir sjávarmáli.Mesta dýpi í vatninu er um 90 m. á móts við Syðri Stapa.Meðaldýpi í vatninu er um 29 m.Vatnið og landið umhverfis það er í eigu Hafnarfjarbæjar en Stangaveiðifélag Hafnarfjarðar hefur veiðiréttinn.Kleifarvatn er frægt fyrir stórfiska og mælingar sýna mikið af fiski í vatninu, einnig hafa kafarar séð mikið af vænum fiski þar. Stangaveiðifélag Hafnarfjarðar hefur hafið ræktunarátak í vatninu og sumarið 2006var sleppt um 10.000 ársgömlum urriðaseiðum í vatnið. Sleppingum verður haldið áfram næstu ár auk þess sem slóðar í kringum vatnið hafa verið lagfærðir.
Konan við manninn: Mamma hafði rétt - ég hefði átt að gifta mig með sjálfann djöfullinn! Maður við konunna: Nei, nei, það getur þú ekki, því að systkini geta ekki að gifst!
Verið ætið glaðir. Það hjálpar. Reynið alla vega. Sjáið kettlinganna.
Sálmarnir 29:11
Drottinn veitir lýð sínum styrk, Drottinn blessar lýð sinn með friði.
Sálmarnir 119:33
Kenn mér, Drottinn, veg laga þinna og ég mun fylgja honum allt til enda.
Ýtið á myndina með músinni, svo hún verði stærri. Sjáið endilega þessa fallegu mynd. Og skoðið og hlustið á myndbandið hér fyrir neðan. þið verðið ekki fyrir vonbrigðum. Guð veri með ykkur allar stundir.
Gömul og ný kirkja. Getur einhver frætt mig hvar þær eru?
Rómverjabréfið 10:9
Ef þú játar með munni þínum: Jesús er Drottinn, og trúir í hjarta þínu að Guð hafi upp vakið hann frá dauðum verður þú hólpinn.
Jeremía 31:3
Drottinn birtist honum úr fjarlægð: Með ævarandi elsku hef ég elskað þig, fyrir því hef ég látið náð mína haldast við þig.
Ýtið á myndina með músinni, svo hún verði stærri. Sjáið endilega þessa fallegu mynd. Og skoðið og hlustið á myndbandið hér fyrir neðan. þið verðið ekki fyrir vonbrigðum. Guð veri með ykkur allar stundir.
Ísraelskur sjónhverfingamaður dvaldi inni í stórum ísmola í 64 stundir í vikunni og sló þar með met Davids Blaines, sem hann setti á Times Square í New York árið 2000.
Khezi Dean lét sig síga niður í ísmolann í miðborg Tel Aviv á þriðjudag. Eins og Blaine var Dean nánast nakinn og neytti hvorki matar né drykkjar og hafði engin samskipti við aðra meðan á dvölinni í ísmolanum stóð.
Dean var á sérstöku fæði meðan hann undirbjó ísvistina og stundaði jóga til að styrkja sig. Sjúkrabíll var til taks og á miðvikudag óttuðust menn að grípa þyrfti til hans þegar Dean sást liggja í ísmolanum. En læknar sögðu að hann væri við góða heilsu.
Netveðbankinn betson býður notendum að veðja á hvort forseti Íslands staðfesti Icesave-lögin eða ekki. Telur bankinn 60% líkur á að lögin verði staðfest.
Stuðullinn er 1,55 fyrir þá sem veðja á að forsetinn staðfesti lögin en 2,45 fyrir þá sem telja að hann synji lögunum staðfestingu.
Sálmarnir 29:11
Drottinn veitir lýð sínum styrk, Drottinn blessar lýð sinn með friði.
Jóhannesarguðspjall 6:37
Allt sem faðirinn gefur mér mun koma til mín og þann sem til mín kemur mun ég alls eigi brott reka.
Ýtið á myndirnar með músinni, svo þær verði stærri. Sjáið endilega þessar fallegu myndir. Og skoðið og hlustið á myndbandið hér fyrir neðan. þið verðið ekki fyrir vonbrigðum. Guð veri með ykkur allar stundir.