Prufa

Jæja þá er ég að prufa forrit sem ég var að ná mér í og heitir “Windows Live Writer”, ákvað að prufa þetta hér því mér fannst vera komin tími á að bæta einhverju við á þessa síðu.  Annars fór ég í gærkvöldi á djammið með frændum mínum og var það mjög gaman enda langt síðan ég djammaði með þeim.  Enduðum samt á að vera bara klukkutíma ég og annar bróðirinn enda var hann orðin það drukkin að hann var svo til hættur að skemmta sér.  Erum með næturgest þessa helgina, frænka Ellýjar er hjá okkur, en annars er fátt að frétta fyrir utan það.  Ég er mest inni og reyni að gera eitthvað nýtt í tölvunni, en Ellý sér aftur um að gera eitthvað með frænku sinni.

Jæja hef þetta ekki lengra í bili enda er þetta bara prufa.

kalogo

Slúður | 15.12.2007 17:05 | Engin ummæli

Hvað er að? Er þetta eðlilegt?

Já hef velt þessu fyrir mér í nokkurn tíma, en ætli það sé eitthvað að manni ef maður vill helst vaka á næturnar?  Hef alla tíð fundið fyrir meiri þörf til að vaka á kvöldin eða næturnar en eftir því sem maður eldist hefur þetta þróast út í það að maður vill vaka lengur fram eftir nóttu með hækkandi aldri og sofa frekar fram undir hádegi.  Sumir tala um að fólk sé kvöldsvæft og aðrir morgunsvæfir en þar sem í mínu tilfelli er þetta að þróast út í að snúa sólarhringnum alveg við velti ég því fyrir mér hvort þetta sé eðlileg þróun þar sem mér er farið að standa á sama um hvort ég missi af einhverju sem gerist á morgnana til að ég geti sofið.

Heilbrigði | 13.12.2007 2:37 | 20 ummæli

Skiptir máli til framtíðar, eða hvað

www.visir.is Slæm mistök hjá Kristni

Einhvern vegin mun ég efast um að Kristinn Jakobsson fái mörg tækifæri í þessari keppni miðað við frammistöpuna á þessum leik en gleymum því ekki að hann er almennt talin mjög góður dómari og einn leikur ætti ekki að skemma fyrir honum ef það er horft á feril hans sem dómara.

Íþróttir | 5.12.2007 21:16 | Engin ummæli

Til hvers ætla þeir að fljúga þaðan

www.visir.is Flug til Húsavíkur að hefjast á ný?

Já þetta er spurning sem ég velti fyrir mér þegar ekki er um klukkustundarakstur á flugvöllinn á Akureyri, er þetta ekki gott innlegg í umfjöllumnina um fluttnig innanlandsflugs úr Vatnsmýrinni, því lengir ferðatími sem sem er á eða frá flugvelli nýta færri sér þjónustuna og hún verður óhagkvæmari.

Efnahagur, Ferðalög, Fyrirtæki, Stjórnmál, Viðskipti | 13.04.2007 13:58 | 1 ummæli

SBA og Hópbílar/Hagavagnar í eina sæng?

www.visir.is FL Group selur Kynnisferðir

Rosalega er ég feginn að Kynnisferðir séu að fara útaf markaðnum í þessum rútubuisnes, hef aldrei líkað við þetta fyrirtæki.  En nú er spurning hvernig SBA og Hópbílar/Hagavagnar ætla að skipta þessari sneið milli sín, sem þau eru að kaupa?  Vona bara að þetta sé ekki upphafið að sameiningu þessara fyrirtækja SBA og Hópbíla/Hagavagna.

Ferðalög, Fyrirtæki, Viðskipti | 6.03.2007 18:15 | Engin ummæli

www.visir.is Elgur stangaði þyrlu til jarðar

Þetta hef nú aldrei heyrt heldur um áður en rosalega hefur elgurinn verið öflugur að hafa kraft til að ráðast á þyrluna eftir að hafa fengið skammt af deyfilyfjum, maður bara veltir upp spurningunni um hvort þau hafi nokkuð verið gölluð?

Tækni og vísindi, Umhverfi | 6.03.2007 17:59 | Engin ummæli

Vetrarveður, við viljum meira vetraveður

www.visir.is Veður og færð að versna á Vestfjörðum

Vildi ég óska þess að gamla vetrarveðrið gerði vart við sig með ofankomu og ófærð hér sem ég á heima á Akureyri, líkt og nú er á vestfjörðum

Umhverfi | 6.03.2007 17:53 | Engin ummæli

Loksins búinn að finna sig

www.visir.is Shevchenko: Ég er búinn að finna mig á Englandi

Vonum að dvöl þessa mans verði stutt í Englandi fyrst hann segist vera búin að finna sitt rétta form, allavegna vona ég að hann yfirgefi Chelsea sem fyrst.

Íþróttir | 5.03.2007 23:52 | Engin ummæli

X-factor = Keppni sem enginn vill vinna

Það er greinilegt að þáturinn X-factor sníst ekki um að finna góða söngvara heldur vinsældir, t.d.  þá hefur söngflokkurinn Hara eða hvað þær vilja kalla sig, bara stöðnað og getur ekki sungið ennþá, nema einhver gömul þungarokkslög sem voru góð á sýnum tíma, og “Gun´s and roses” flytja best.

Fjölmiðlar, Tónlist | 5.03.2007 10:02 | Engin ummæli

Velkominn

Jæja hér ætla ég mér að tjá mig um frétir og málefni sem ég hef áhuga á þegar ég gef mér tíma til þess, sem verður að vísu ekki í kvöld en verður á næstunni þar sem ég verð að einbeita mér núna að því að læra á næstunni.

Óflokkað | 4.03.2007 23:14 | 22 ummæli

Vísir Fréttir Lífið Íþróttir Viðskipti Sjónvarp Útvarp Fréttablaðið
Blogg.Vísir.is Innskráning Nýskráning