Sarpur fyrir september, 2007

Besta vörn landsins

Gríðarlega athyglisvert að skoða hvaða lið fékk fæst mörk á sig í deildinni í sumar. Það eru mínir menn í Fylki.

Leifur Garðarsson sagði í Fréttablaðinu í dag að vörnin væri búin að vera frábær í sumar og nú þyrfti bara að bæta sóknarleikinn. Það er alveg hárrétt hjá honum.

Það er líka margt jákvætt við þetta sumar. Aðeins Fylkir og ÍA unnu Val í deildinni í sumar. Reyndar mátti litlu muna að Fylkir ynni báða leikina gegn Val en þeir rauðklæddu skoruðu tvívegis á síðasta korterinu eftir að hafa verið undir lengst af í leiknum.

Ég held að ég muni það rétt að þetta var leikurinn þar sem það var hreinlega bandbrjálað veður. Þvílík rigning og rok með í þokkabót. Það var ansi spes að vera á þessum leik.

Svo vann Fylkir Val í Laugardalnum, 4-2, eftir að hafa verið undir, 2-1, í hálfleik. Seinni hálfleikurinn var ótrúlegur og þessi viðsnúningur einhver sá svakalegasti sem ég hef séð. Mínir menn gátu hreinlega ekki neitt í fyrri hálfleik en settu svo bara allt á full blast í seinni hálfleik.

Sóknarleikurinn er reyndar ekki það slæmur að Fylkir skoraði fjórðung allra þeirra marka sem Valur fékk á sig í deildinni í sumar. Gaman af því.

Ef marka má töflunna er Fylkisvörnin sú besta á landinu. Skoðum þetta nánar.

Kristján Valdimarsson
Jáh! Hvað er hægt að segja um Kristján? Hann fer frá Fylki 2005 eftir að hafa fengið fá tækifæri í stöðu hægri bakvarðar en þegar hann kom þar inn var hann ekkert að slá í gegn. Hann var svo sem ekkert lélegur en ekkert frábær heldur. Svo fer hann til Grindavíkur þar sem hann er í engu stórhlutverki. Kemur svo aftur í Fylki og bara stimplaði sig inn sem algjöran kóng í miðverðinum! Spilamennska hans í sumar er búin að vera frábær, svo ekki sé minna sagt. Klárlega einn af bestu mönnum sumarsins og þó hann hafi gert sín mistök hér og þar hefur hann staðið sig í heildina gríðarlega vel. Frábær arftaki Ragnars Sigurðssonar.

David Hannah
Skoti sem kom reyndar líka frá Grindavík. Hann er þessi dæmigerði skoski varnarmaður. Kolbrjálaður - og ég meina kolfokkingbrjálaður - í skapinu en algert ljúfmenni utan vallar skilst mér. Duglegur andskoti en auðvitað ekkert fullkominn. Reyndur gaur og alls ekki feiminn við að öskra á félaga sína. Það er svo sem ágætt að vera með þannig gaur.

Víðir Leifsson
Annað surprise í vörninni. Víðir kom frá Fram þar sem hann átti misjafna spretti í sókninni. Hann hefur hins vegar verið fastamaður í stöðu vinstri bakvarðar hjá Fylki og staðið sig bara með ágætum. Allavega bætt sig mikið eftir því sem liðið hefur á sumarið. Þessi fíni sókndjarfi bakvörður.

Hægri bakvörður
Andrés Már Jóhannsson
Skrifaði núna um daginn undir fimm ára samning við Fylki. Þeir binda greinilega miklar vonir við hann. Fínt efni en hann hefur svo sem ekki látið mikið fyrir sér fara í sumar. Þó þokkalega stöðugur og kemur bara þokkalega út.
Guðni Rúnar Helgason
Hefur líka spilað í hægri bakverðinum. Verð að viðurkenna að ég er ekkert Guðni Rúnar-fan númer eitt. Mér fannst hann til dæmis alls ekki góður á miðjunni í leiknum gegn KR. Kannski að hann sé ósammála mér þar. Þá finnst mér hann betri í bakverðinum. Guðni Rúnar er reyndur gaur og fínn sem sókndjarfur bakvörður gegn slakari liðunum. Gegn betri liðunum á hann erfiðar uppdráttar.

Fjalar Þorgeirsson
Frábær markvörður og þvílíkur fengur fyrir Fylki. Ég reyndar hugsaði mig tvisvar um þegar hann kom til félagsins þar sem Bjarni Þórður er alltaf í miklu uppáhaldi hjá mér. Sá gaur er svakalega góður en hrikalegur meiðslagaur. Nú kláraði hann tímabilið á bekknum hjá Víkingi og það lítur ekki út fyrir annað en að hann fái mikið fleiri tækifæri í Fylki. Þvílík synd og skömm. Drengurinn þarf að hrista þessi meiðsli af sér endanlega, spila almennilegt sumar og koma sér svo út í atvinnumennsku. Þá myndi hann blómstra og verða væntanlega einn besti markvörður sem Ísland hefur átt. Segi og skrifa.

En þetta átti að fjalla um Fjalar. Orðum það þannig. Hann virðist eiga ákveðinn kvóta af klúðrum og ég er afskaplega feginn því að hann tók út þann kvóta með landsliðinu í sumar :) Annars hrikalega stabíll og frábær markvörður.

Aðrir sem lögðu lið
Valur Fannar Gíslason spilaði á miðjunni í sumar og komst mjög vel frá því. Klárlega lykilmaður liðsins í sumar. Gaurinn sem vann mikla varnarvinnu og skoraði þar að auki mörg mikilvæg mörk. Valur Fannar hefur oft verið gagnrýndur fyrir að standa sig ekki nógu vel en í Fylki hefur hann alltaf verið góður.

Vörnin hefur líka grætt á því að allir í liðinu, alveg frá aftasta manni til þess fremsta, hafa barist eins og ljón í öllum leikjum. Það telur ansi drjúgt. Ég er ekki í vafa um að menn eins og Gravesen og Christiansen hafi stoppað ófáar sóknir í sumar bara með einskærum leiðinda- og tuddaskap út í andstæðinginn. Það er örugglega alveg hrútleiðinlegt að spila gegn svona mönnum en mikið hrikalega er gaman að styðja lið sem hefur svona leikmenn innanborðs.

Þannig var nú það. Fylkisvörnin sú besta í deildinni. I salute you.

Ummæli

Japanskt gamanmál í grenjandi rigningu

Horfði í morgun á upptöku af Formúlunni sem fór fram í Japan í nótt. Það var ótrúleg keppni. Hamilton kom í mark á rétt rúmum tveimur tímum. Öryggisbíllinn var úti fyrstu fimmtán hringina eða eitthvað álíka.

Þökk sé rigningunni stóð keppnin alls ekki undir væntingum. Það er yfirleitt mjög gaman af rigningakeppnum, en ekki þegar það mígrignir allan tímann. Það er gaman þegar það gengur á með skúrum og menn eru að skipta á milli rigninga- og þurrdekkja í sífellu.

Alonso hrundi úr keppni en engin af þeim 1.700 myndavélum sem voru á brautinni náðu því þegar hann skall á veggnum. Frábær árangur alveg.

Annars voru vonbrigði mótsins klárlega þegar Sebastian Vettell ákvað að þruma aftan á Mark Webber með þeim afleiðingum að báðir féllu þeir úr leik. Það var ekkert að gerast í keppninni því öryggisbíllinn var úti. Þarna var Webber í öðru sæti og Vettell í því þriðja.

Hefði verið frábært að sjá Webber á pallinum og ekki síður Vettell sem er á Toro Rosso - Fiat Punto Formúlunnar.

Hamilton vann og það er fínt. Skárra en Alonso-ógeðið. Sammála Hamilton, Alonso á að hypja sig og þá helst til Ferrari. Ég vil fá Kimi aftur.

Ummæli (4)

Gillz hleypur nakinn í Kringlunni

Spáin mín rættist. Garðar Örn dæmdi hjá Blikum í dag og dæmdi þeim víti.

Rifjum aðeins upp hvað Egill „Gillzenegger“ Einarsson sagði á blogginu sínu þann 4. september síðastliðinn.

„[...] daginn sem hann [Garðar Örn] gefur Blikum víti er dagurinn sem ég girði niðrum mig og hleyp í gegnum kringluna syngjandi Every Breath You Take með Sting.“

Deginum síðar skrifa ég að það væri nú forvitnilegt að sjá hvort að Garðar dæmi Blikum víti og hvort að Gillz standi þá við stóru orðin.

Ég trúi ekki öðru. Gillz er maður orða sinna. Ég býst því við að hann muni hlaupa nakinn í Kringlunni, syngjandi Every Breath You Take með The Police, áður en dagurinn er liðinn.

Eða hvað, Gillz?

Ummæli

Hrikalega skemmtileg lokaumferð framundan

Í dag fer fram lokaumferð Landsbankadeildarinnar og er útlit fyrir að það verði spenna í hverjum einasta leik.

Það er allavega sá möguleiki fyrir hendi að það verði boðið upp á spennu og sviptingar í dag.

En auðvitað er samt langlíklegast að þetta verði bara alls ekkert spennandi. Valsmenn vinni HK örugglega og FH geri slíkt hið sama í Víkinni. Þá er alveg ljóst hvað verður, Valur verður meistari og Víkingur fellur. Aðrir leikir skipta minni máli.

Reyndar mun ég fylgast spenntur með baráttunni um þriðja sætið. ÍA mætir Keflavík og Fylkir fer í heimsókn til KR.

Fyrir þá sem ekki vita er ég uppalinn Árbæingur og með appelsínugult hjarta.

Ég mun því vonast eftir því að Keflvíkingar hefni ófaranna frá því fyrr í sumar og að við Fylkismenn tökum KR-inga og rassskellum þá.

Ég mun alla vega fara á KR-Fylkir og styðja mína menn áfram í stúkunni.

Það er kannski viðeigandi að opinbera spá mína sem ég gerði fyrir mótið í vor. Hún leit svona út:

10. Víkingur
Brotthvarf Viktors Bjarka var einfaldlega of stórt. Það er erfitt fyrir svona lið að halda sér uppi ár eftir ár og fannst mér að nú væri þeirra tími kominn. Ég stend við það enn í dag og þó svo að ég gæti vel trúað því að þeir gætu bitið frá sér í dag er ansi erfitt að ætla að sigra Íslandsmeistarana til að bjarga sér. Þeir hafa farið illa að ráði sínu fyrr í sumar og það er að verða þeim að falli nú.

9. HK
Nýliðar og skipaðir leikmönnum sem fáir þekktu í upphafi móts. En á móti kom að þarna var lið sem var skipað leikmönnum sem höfðu spilað lengi saman. Liðið er núna í efstu deild í fyrsta skipti og stemningin hefur fleytt þeim langt. Það sést best á heimavallarárangrinum. Liðið hefur ekkert getað á útivelli. Það segir sína sögu.

8. Fram
Framarar ollu vonbrigðum í upphafi móts en hafa verið að bíta meira frá sér nú í síðari hlutanum. Þetta er ágætt lið sem á góðum degi getur miklu meira en þeir hafa sýnt. En þetta er ekki besta liðið í deildinni og ég held að það sé á réttum stað miðað við mannskap.

7. ÍA
Í vor var ekki hægt með góðu móti að spá ÍA ofar en þetta. Í raun var það bara Guðjón Þórðarson sem hélt liðinu svo ofarlega í spánni. Hann er klókur kallinn og hefur svo sannarlega sýnt það í sumar. Króatarnir sem hann fékk eru frábærir knattspyrnumenn og varnarsinnaður leikstíll hefur skilað ótrúlega miklu. Það er mjög erfitt að gagnrýna Skagamenn fyrir þennan leikstíl þar sem skyndisóknir þeirra eru stórhættulegar. Þetta virkar einfaldlega, það er ekki hægt að gagnrýna eitthvað sem virkar.

6. Fylkir
Mér fannst Fylkir í vor vera í raun eina liðið í deildinni sem væri ekki nógu sterkt fyrir toppbaráttuna og of gott fyrir botnbaráttuna. Þeir hafa sýnt í sumar að með baráttu er hægt að ná langt. Persónulega finnst mér það afar gott mál. Stundum þarf maður bara að berjast. Fylkismenn hafa oft reynt að spila “fallegan” bolta en ekki fengið mörg stig fyrir það. Nú í sumar hafa þeir barist eins og ljón og fengið fullt af stigum. Leiðinlegt kannski, en svona er þetta bara.

5. Breiðablik
Fyrir utan ÍA hafa Blikar komið mest á óvart í sumar. Stigafjöldi er kannski eins og við var búist en spilamennskan hefur verið frábær. Þeir verða hrikalega sterkir næsta sumar. Allir útlendingarnir áfram og ef þeir verða ekki seldir til annarra liða verða Blikarnir einfaldlega ótrúlega sterkir á næsta ári. Þeir gera engin átta eða níu jafntefli þá. Það er alveg klárt.

4. Keflavík
Vonbrigði sumarsins. Í ljós hefur komið að peningastefna félagsins er að koma þeim í koll. Meiðsli hafa líka sett strik í reikninginn en þeir hafa nú selt marga af þeirra bestu leikmönnum til að bjarga rekstrinum. Þeir munu neita því en það er ekki hægt að velta öðru fyrir sér en að andlegt hrun hafi átt sér stað í liðinu eftir Skagaleikinn í sumar. Þeir hafa ekki unnið leik síðan þá.

3. Valur
Þeir stóðu undir væntingum og gott betur. Í ljós hefur komið að peningaeyðslan hefur virkað. En ólíkt “öðrum félögum” sýna þeir nú að þeir hafa keypt afar skynsamlega. Leikmenn sem hafa staðið sig mjög vel. Ekki endilega stærstu fiskana í tjörninni en leikmenn sem hafa staðið fyrir sínu og vel það. Þeir verða líka sterkir næsta sumar þegar þörfin fyrir breiðan leikmannahóp verður meiri en nú.

2 . KR
Miðað við leikmannahóp liðsins var erfitt að spá liðinu mikið neðar en þetta. En í ljós hefur komið að þessir leikmenn sem hafa komið til liðsins undanfarin ár (fyrir utan Gulla Jóns) eru bara alls ekkert að standa sig nógu vel. KR er skipað ellefu einstaklingum í hverjum einasta leik. Það er sjálfsagt ekki viljandi en þannig virðist það samt vera. Allir eru svo kappsamir um að bjarga félaginu úr þeim ógöngum sem það er í að þeir leggja ofurkapp á að gera allt sem í þeirra valdi stendur til að skora og vinna leiki. Þá hefur kannski gleymst á að liðsheildin skilar oft sigri og að þolinmæði er mikilvægari en flest annað.

1. FH
Það hefur sýnt sig í sumar að FH er að færast nær hinum liðunum í deildinni. Það er gott fyrir mótið eins og sýnir sig í áhorfendatölum. Ég er ekki í vafa um að meiri spenna skili sér í fleiri áhorfendum. En hvað getur maður sagt um FH-liðið. Það er afar vel skipað eins og síðustu ár. Margir hafa talað um að leikmenn séu árinu eldri og að það sé að koma þeim í koll. Ég gef lítið fyrir það. Önnur lið hafa einfaldlega bætt sig og eru að ná FH-ingum. Það er bara gott mál.

Svo verður spennandi að sjá hvernig lokastaðan verður eftir leiki dagsins. Ég vona að það verði einhver spenna og sviptingar.

Ummæli

Ný vinna

Jææææja. Kominn tími til að schkeina þessu bloggi. Ekkert skrifað í rúma viku og er það alls ekki nógu gott.

Þetta hefur líka eitthvað með það að gera að nú er maður að skrifa inn á Vísi allan daginn. Þá vaknar kannski minni löngun að sinna blogginu eftir vinnu en áður.

Það er mjög skemmtilegt í nýju vinnunni. Það hefur sína kosti og galla eins og allt annað og er þó nokkuð frábrugðið því að skrifa í prentmiðil.

Fyrir það fyrsta er maður ekki háður neinu ákveðnu plássi. Maður getur skrifað eins mikið eða eins lítið og maður vill. Það er klárlega kostur.

Í stað þess að hafa eitt deadline á dag er maður nú með deadline á hverri einustu mínútu, eða þannig sko. Það snýst allt um að koma fréttunum sem fyrst inn á vefinn.

En á móti kemur að maður saknar ýmislegs úr gamla starfinu. Þar gat maður leyft sér meiri tíma til að vinna í sínum greinum og safna fréttum.

Þessa tvær vikur hafa þó verið afar skemmtilegar og mér líst mjög vel á nýja starfið mitt. Ég hlakka mikið til vetrarins. Óneitanlega er netmiðill “nútímalegri” en prentmiðill og það er svolítið spennandi að taka þátt í því að þróa þetta áfram. Netmiðillinn er jú síbreytilegur.

Annars bið ég bara að heilsa …

Ummæli

Skerum starfsfólk Ríkisútvarpsins á háls!

Ég lenti í ótrúlegu atviki á leiðinni heim úr vinnunni í gær. Ég stoppaði á bensínstöð Orkunnar við Kringlunna þar sem blessuð nálin hreyfðist ekki.

Þegar ég er byrjaður að dæla kemur annar bíll við hliðina á mér. Það er þessi fíni LandCruiser jeppi. Ökumaðurinn stígur út úr bílnum og fer í kortasjálfsalann.

Svo heyri ég allt í einu: “Skerum starfsfólk Ríkisútvarpsins á háls!”

Mér auðvitað krossbregður og lít við. Þar stendur einhver maður, nýbúinn að öskra upp í eyrað á blessuðum manninum sem ætlaði sér bara að kaupa bensín.

Að því mæltu snýr maðurinn sér við og snýr sér að mér. Hann horfir á mig í smástund en labbar svo í burtu.

Ekki veit ég hvort að ég hafi ekki þótt nógu merkilegur pappír á mínum ‘94 Volkswagen Golf.

Kannski hélt að þarna væri mættur sjálfur Útvarpsstjórinn á jeppanum sínum fína.

En hann labbaði í burtu, beint í átt að Efstaleitinu. Ekki hef ég þó heyrt neinar sögur af brjáluðum hnífamanni í húsakynnum Rúv.

Ummæli (1)

Fleiri á Ghetto Ground í Breiðholtinu en á leik í Meistaradeildinni

Sá sýnt úr leik Olympiakos og Lazio í Meistaradeildinni í kvöld og fannst furðulegt hversu fáir áhorfendur voru á leiknum. Það var sama hvaða sjónarhorn var tekið, alls staðar var stúkan tóm.

Ég beið alltaf eftir því að Addi Björns færi eitthvað að tala um ástæðuna fyrir þessu. Hann talaði samt eins og að það hafi verið fullt af áhorfendum á leiknum. “Stuðningsmenn Olympiakos fagna þessu” og svo framvegis

En í ljós kom að þeim grísku var gert að spila fyrir luktum dyrum eftir ólætin sem voru eftir heimaleik liðsins gegn Roma á síðasta tímabili.

Það er því nokkuð víst að fleiri mættu á völlinn á Ghetto Ground í Breiðholti þar sem Leiknir vann dýrmætan sigur á Stjörnunni og bjargaði sér þannig endanlega frá falli.

Til hamingju með það, Leiknismenn til sjávar og sveita.

Ummæli (1)

Margt líkt með atriði Spaugstofunnar og Family Guy

Eins og örugglega margir aðrir horfði ég á Spaugstofuna á laugardaginn. Í ljós kom að Randver var í alvörunni rekinn en ég eins og svo margir aðrir vorum búnir að stóla á að þetta væri bara eitt risastórt grín.

Svo var nú ekki. Samt var örugglega metáhorf á þættinum á laugardaginn.

Karl Ágúst tók að sér að leika Osama Bin Laden sem var svona rauði þráðurinn í þættinum. Þórhallur átti að vera jafn slæmur og Bin Laden fyrir að reka Randver og allt það.

Allavega. Í þættinum var atriði þar sem velt var fyrir sér hvað færi fram á bakvið tjöldin hjá upptökum á ræðum Bin Laden. Mér þótti þetta minna óhemju mikið á samskonar atriði sem Family Guy gerði eitt sinni.

Menn geta svo skoðað þetta sjálfir.

Spaugstofuna má sjá hér.

Atriðið í Family Guy:

Ummæli

Fréttablaðið kvatt

Það er við hæfi að ég skrifi þessa færslu á vinnustöð minni á Fréttablaðinu, við lok síðustu vaktar minnar. Á morgun hef ég störf á íþróttavef Vísis.is. Það er nú ekki langt að fara fyrir mig enda er nýja vinnustöðin mín hérna á næstu hæð fyrir ofan, sirka tólf metra frá þeim stað sem ég er nú.

Engu að síður eru það alltaf ákveðin tímamót þegar maður skiptir um vinnu og á það líka við í mínu tilfelli nú. Ég get svo sannarlega sagt að ég kveð samstarfsfélaga mína með miklum söknuði, enda höfum við Henry og Óskar Ófeigur lengi unnið saman. Það er bót í máli að samstarfið milli Vísis.is og Fréttablaðsins er mikið og munum við félagarnir hittast oft.

Ekki skemmir fyrir að á mínum nýja vinnustað hitti ég fyrir tvo aðra gamla vinnufélaga, þá Óskar Hrafn og Baldur Beck. Ég met það að jöfnu hvað geðveikina varðar að fara frá hinum tveimur til þessara.

Ég vil nota tækifærið og þakka Henry, Óskari Ófeigi og öllum hinum á Fréttablaðinu fyrir gott samstarf og skemmtilega samveru.

Ummæli (4)

Hrikalegt klúður hjá dv.is

dvis.JPGÍ allan gærdag var ég með auglýsingu frá dv.is fyrir framan mig þar sem hún birtist á íþróttasíðum Fréttablaðsins í dag. Það er skemmst að segja frá því að auglýsingin er eitt risastórt klúður. Þeim tekst að gera tvær villur í einu og sama orðinu og klúðra svo sjálfu slagorði vefjarins!

“Komdu og skoðaðu nýjan og skemmtilegan frétta- og afþreygingavef.”

“dv.is - hvað er frétta?”

Ég veit manna best að ég hef gert mín mistök en ég hef reynt að læra af þeim. Kollegi minn á Fréttablaðinu gerði til að mynda slæm mistök um daginn og var auðvitað miður sín vegna þeirra. Svona lagað gerist.

En er þetta ekki alveg spes? dv.is er fjölmiðill sem kaupir auglýsingu í öðrum fjölmiðli og þetta er útkoman. Stórkostlegt.

Smelltu á auglýsinguna til að sjá stærri útgáfu af henni.

Ummæli (1)

« Fyrri færslur
Vísir Fréttir Lífið Íþróttir Viðskipti Vefmiðlar
Blogg.Vísir.is Innskráning Nýskráning