Sarpur fyrir desember, 2007

Íþróttamaður ársins 2007: ég kaus Ólaf Stefánsson

Nú er komið að minni árlegu færslu um mitt val á íþróttamanni ársins. Fyrir tæpu ári síðan stofnaði ég bloggsíðu á Moggablogginu þar sem fyrsta færslan fjallaði um val mitt í fyrra.

Þetta kjör er afskaplega umdeilt og er það auðvitað eðlilegt. Það voru afar skiptar skoðanir í bloggheimum um Margréti Láru sem var kjörin íþróttamaður ársins í ár.

Kjörið er leynilegt og ég veit ekki annað en að ég sé eini meðlimur Samtaka íþróttafréttamanna sem birtir sinn lista í heild sinni á opinberum vettvangi.

Við skulum því vinda okkur að mínum atkvæðisseðli.

1. Ólafur Stefánsson

Átti frábært ár með Ciudad Real sem varð Spánarmeistari og komst í undanúrslit Meistaradeildar Evrópu. Ólafur er gríðarlega mikilvægur hlekkur í þessu liði sem margir, ef ekki flestir, telja vera sterkasta félagslið heims um þessar mundir.

Ciudad Real er sem stendur á toppi spænsku úrvalsdeildarinnar og komið í 16-liða úrslit Meistaradeildarinna. Í riðlakeppninni í Meistaradeildinni vann Ciudad Real alla sína sex leiki.

Hann var sem fyrr alger lykilmaður í íslenska landsliðinu sem gerði góða hluti á HM í handbolta í Þýskalandi. Hann var einnig valinn í heimsliðið á árinu.

Ólafur er einfaldlega með betri handboltamönnum í heiminum og gegnir lykilhlutverki í einhverju allra sterkasta félagsliði heims í dag.

2. Margrét Lára Viðarsdóttir

Það þarf ekki að fjölyrða um hversu mörg mörk hún skoraði í sumar, bæði með Val og landsliðinu. Framganga hennar á knattspyrnuvellinum í sumar er einstakt afrek og sú staðreynd að 21 árs gömul er hún orðinn langmarkahæsti leikmaður landsliðsins frá upphafi segir ýmislegt.

Ég neita því samt ekki að ég varð fyrir vonbrigðum með það að hún spilaði ekki áfram í Þýskalandi eða fór þá til annars sterks liðs í Evrópu eða Bandaríkjunum. Valur er vissilega sterkt lið á alþjóðlegan mælikvarða en ég tel að hún eigi erindi í enn sterkari lið og þá sérstaklega sterkari deild.

3. Birgir Leifur Hafþórsson

Árið hans á Evróputúrnum var ágætt. Sú staðreynd að hann lék meðal þeirra bestu í Evrópu er ansi merkileg. Það var þó frammistaða hans á úrtökumótaröðinni nú í árslok sem stóð upp úr. Það er sannarlega stórkostlegur árangur að fara aftur í gegnum það ferli og vinna sér inn kortið eftirsótta annað árið í röð. Hann sýndi að hann getur verið frábær undir pressu.

4. Jón Arnór Stefánsson

Hefur átt afar gott ár með Lottomatica Roma á Ítalíu. Liðið hefur verið í toppbaráttunni í sinni deild og gert fína hluti í Meistaradeildinni (Euroleague). Hann mætti miklu mótlæti með Valencia á Spáni haustið 2006 en eftir að hann kom til Rómar hefur hann hægt og rólega unnið sér sæti í byrjunarliðinu og á nánast alltaf glimrandi góða leiki.

Það er meiriháttar afrek að komast svona langt í Evrópuboltanum.

5. Ragna Ingólfsdóttir

Ragna vann nokkur mót á árinu þrátt fyrir að hún er með slitin krossbönd í hné. Ekki síður var það frammistaða hennar með landsliðinu sem vann B-deild Evrópumótsins sem vakti athygli. Hún er með 50 bestu í heiminum í sinni íþrótt sem segir allt sem segja þarf.

6. Ragnar Sigurðsson

Frammistaða hans með IFK Gautaborg hefur vakið gríðarlega mikla athygli og var hann af mörgum valinn einn besti leikmaður sænsku deildarinnar síðastliðið tímabilið og jafnvel besti varnarmaður deildarinnar. Varð sænskur meistari með liði sínu og vann sér fast sæti í landsliðinu.

Landsliðið var eins og það var og hann átti bæði slæma leiki og góða. En því ber ekki að neita að árangur hans í Svíþjóð er gríðarlega góður.

7. Kristján Örn Sigurðsson

Varð norskur meistari með Brann og talinn einn allra besti leikmaður deildarinnar af flestum fjölmiðlum sem gefa öllum leikmönnum einkunn fyrir frammistöðu sína.

8. Snorri Steinn Guðjónsson

Var sennilega besti leikmaður íslenska landsliðsins á HM í Þýskalandi og er án efa besti leikstjórnandi landsins. Fór frá Þýskalandi til Danmerkur þar sem hann hefur staðið sig vel í haust.

Var valinn í heimsliðið, líkt og Ólafur, sem var mikill heiður fyrir Snorra. Hefur bætt sig með hverju árinu sem líður.

9. Eiður Smári Guðjohnsen

Lét lítið fyrir sér fara fyrri hluta ársins. En það er framganga hans í haust sem að mínu mati verðskuldar sæti á þessum lista mínum. Það er mikið afrek að vinna sér inn sæti í byrjunarliði Barcelona, einu stærsta og sterkasta félagsliði heims, eftir að hafa nánast verið útskúfaður eftir meiðsli sem háðu honum í allt sumar. Langflestir hefðu í hans sporum eflaust farið eitthvert annað þar sem þeir máttu vera vissir um sitt sæti í byrjunarliðinu.

En hann harkaði þetta af sér, var þolinmóður og fékk á endanum að spila. Hann fékk mikið lof fyrir frammistöðu sína og voru fjölmiðlamenn á Spáni afar undrandi á því að hann fékk ekki að spreyta sig í El clásico, leik Barcelona og Real Madrid á Þorláksmessu.

En það skal einnig tekið fram að ég skilaði inn mínum kjörseðli áður en sá leikur fór fram.

10. Helena Sverrisdóttir

Vann allt sem hægt var að vinna með Haukum á síðasta tímabili og var lykilmaður í íslenska landsliðinu sem vann nokkra góða sigra á árinu. Fór svo til Bandaríkjanna þar sem hún spilar með sterku háskólaliði og stimplaði sig strax inn í fyrsta leik. Hún hefur gegnt mikilvægu hlutverki í liðinu sem er afar óvenjulegt þar sem hún er á fyrsta ári í skólanum.

Þessir komust ekki í gegnum lokaniðurskurðinn hjá mér: Ívar Ingimarsson, Alexander Petersson, Hermann Hreiðarsson, Guðjón Valur Sigurðsson, Örn Arnarson og Ragnheiður Ragnarsdóttir.

Svona er listinn minn. Eins og þið sjáið hef ég mínar röksemdir og svo er það undir mér komið hvernig ég met frammistöðu íþróttafólksins og raða niður á listann. Þegar öllu er á botninn hvolft er þetta bara huglætt mat hvers og eins. Það er mjög erfitt að meta hvort að ákveðið afrek íþróttamanns í einstaklingsíþrótt sé meira og betra en ákveðið afrek íþróttamanns í hópíþrótt og fleira í þeim dúr.

En þótt að minn listi líti ekki nákvæmlega ekki eins út og úrslitin sjálf tel ég að heildarmyndin gefi bestu niðurstöðuna. Ég er mjög sáttur við niðurstöðuna og tel að sameiginleg niðurstaða allra í samtökunum sé sú eina sem gildir.

Niðurstaðan í kjörinu:

1. Margrét Lára Viðarsdóttir 496 stig
2. Ólafur Stefánsson 319
3. Ragna Ingólfsdóttir 225
4. Jón Arnór Stefánsson 218
5. Birgir Leifur Hafþórsson 214
6. Guðjón Valur Sigurðsson 159
7. Örn Arnarson 156
8. Eiður Smári Guðjohnsen 91
9. Snorri Steinn Guðjónsson 29
10. Ragnheiður Ragnarsdóttir 24

11. Helena Sverrisdóttir 23
12. Ragnar Sigurðsson 20
14. Hermann Hreiðarsson 18
17. Ívar Ingimarsson 15
18. Kristján Örn Sigurðsson 14
23. Alexander Petersson 3
Nokkrir punktar:

- Ég er með sömu fimm íþróttamenn í fimm efstu sætunum og voru í fimm efstu sætunum í kjörinu sjálfu - en í annarri röð.

- Ég kaus setti þrjá íþróttamenn á minn lista sem komust ekki í tíu efstu sætin í kjörinu sjálfu. Þetta eru Ragnar Sigurðsson, Kristján Örn Sigurðsson og Helena Sverrisdóttir.

- Þeir þrír sem ég kaus ekki en komust inn á topp tíu eru: Guðjón Valur Sigurðsson, Örn Arnarson og Ragnheiður Ragnarsdóttir.

- Fimm á listanum mínum voru einnig á listanum mínum í fyrra: Ólafur, Margrét Lára, Eiður Smári, Birgir Leifur og Helena.

- Annað árið í röð set ég Helenu í tíunda sætið á mínum lista og annað árið í röð lendir hún í ellefta sæti í kjörinu sjálfu.

- Ég var með átta boltaíþróttamenn á mínum lista, einn kylfing og einn badmintonspilara.

- Í efstu tíu sætunum í kjörinu sjálfu voru sjö boltaíþróttamenn, einn kylfingur, einn badmintonspilari og einn sundmaður.

Minn listi árið 2006

Ummæli (3)

Nýtt orð: Heimahafnarhögg

Skrifaði í kvöld frétt um hinn þræleðlilega Barry Bonds. Hann er út af fyrir sig efni í margar færslur en þessi snýst ekki um hann að miklu leyti.

Ég hef áður lent í vandræðum með að þýða orð og orðasambönd úr hafnabolta. Í kvöld lenti ég enn og aftur í vandræðum með frægasta orðatiltækið í þessari íþrótt - home run.

Wikipedia skýrir “home run” svona: “In baseball, a home run is a hit in which the batter is able to circle all the bases, ending at home plate and scoring a run himself.”

Barry Bonds bætti í haust metið yfir flest “home run” á ferlinum, 755 talsins. En hvernig er hægt að koma orðum að því á hinu ástkæra ylhýra.

“Barry Bonds bætti í haust metið yfir flest stig sem eru skoruð með því að slá boltann og hlaupa sjálfur í heimahöfn.”

Nei, þetta er ekki gott.

Það þarf góða þýðingu á orðasambandinu “home run”.

Einhverjir hafa notað “heimahlaup” sem er auðvitað bein þýðing. Mér finnst það ekki góð þýðing því það hljómar eins og viðkomandi sé að hlaupa heima hjá sér.

Hvað með “heimhlaup”? Að hlaupa heim. Það er í sjálfu sér það sem er að gerast. Viðkomandi er að hlaupa heim - í heimahöfn.

En það er þetta með hafnir. Fyrsta höfn, önnur höfn, þriðja höfn og svo heimahöfn - ekki satt? Er þá ekki “home run” sú aðgerð að hlaupa í heimahöfn eftir að hafa slegið boltann?

Af þessari ástæðu valdi ég að nota orðið “heimahafnarhögg” í fréttinni minni. Af því að Bonds sló sitt 755. högg sem skilaði honum “home run”-i. En aðgerðin sjálf má samkvæmt þessu heita “heimahafnarhlaup”.

Ég gúglaði þetta orð og samkvæmt leitinni er ég sá fyrsti sem ritar þetta orð á veraldarvefinn.

Mönnum er frjálst að tjá sig um þetta. Ég þigg allar tillögur.

Ummæli (3)

Leiðrétting

Venjulega vil ég nú ekki vera með einhver leiðindi út í kollega mína á hinum sportvefmiðlunum - sérstaklega þar sem ég geri mistök sjálfur og vil ekki vera þekktur fyrir að kasta grjóti úr glerhúsi.

En ég vil taka eitt fram, svona fyrst að allir voru með þessa frétt.

Bjarni Fritzson skoraði þrjú mörk fyrir St. Raphael í leik á móti Nimes í frönsku úrvalsdeildinni. Leikurinn fór hins vegar fram í fyrrakvöld - ekki í gær.

Hér er fréttin á Vísi frá því í fyrrakvöld.

Mbl.is var með fréttina í dag, handbolti.is líka en rúv.is í gærkvöldi.

Þetta skiptir auðvitað engu máli en ég vildi samt koma þessu frá mér.

Ummæli (1)

Frá Ásum í Gnúpverjahreppi

Eins og svo oft þegar ég er að vinna var ég með kveikt á Sýn í gærkvöldi eftir Tottenham leikinn. Undir miðnætti fer í gang pókerþáttur, einn af mörgum góðum sem hafa verið sýndir.

Ég veit ekkert hver þessi maður er sem lýsir því sem gerist í þessum þáttum en hann er gjörsamlega stórkostlegur. Hvet menn til að tékka á þessum þáttum, þó ekki nema bara hans vegna.

Í gær bauð hann upp á þennan gullmola:

“Hann er þó ekki ættaður frá Ásum í Gnúpverjahreppi eins og margur gæti haldið.”

Þvílík snilld.

Ummæli (1)

Now That’s a Spicy Meatball

Stysta færslan hingað til. Fréttin er hér og upprunalegu auglýsinguna má finna á youtube hér.

Ummæli

Vísir Fréttir Lífið Íþróttir Viðskipti Vefmiðlar
Blogg.Vísir.is Innskráning Nýskráning