Íþróttamaður ársins 2008 - minn kjörseðill
Í gærkvöldi var kjöri íþróttamanns ársins lýst. Í þriðja skipti birti ég hér minn kjörseðil en ég er í Samtökum íþróttafréttamanna sem standa að kjörinu.
1. Ólafur Stefánsson
Þetta var ekki erfið ákvörðun enda hlaut hann fullt hús stiga. Það þarf ekkert að fjölyrða um hans afrek hér enda margoft verið tíunduð. Segi samt að það eina sem toppar þetta ár hjá Ólafi er Ólympíugull.
2. Guðjón Valur Sigurðsson
3. Snorri Steinn Guðjónsson
Ég var búinn að ákveða að setja handboltamenn í efstu þrjú sætin. Það var ekki auðvelt að ákveða á milli Guðjóns Vals og Snorra. Þeir voru báðir lykilmenn á Ólympíuleikunum en ætli það sem hafi ekki vegið meira hjá mér er gengi Guðjóns Vals með félagsliði sínu. Hann er sem fyrr einn mest áberandi leikmaður þýsku úrvalsdeildarinnar, hvort sem það var á fyrri hluta ársins með Gummersbach eða síðari hlutanum með Rhein-Neckar Löwen.
4. Margrét Lára Viðarsdóttir
Átti aftur frábært ár - jafnvel enn betra ár en í fyrra þegar hún var efst í kjörinu. Skoraði fjórtán mörk í ellefu landsleikjum sem er hreint ótrúleg tölfræði. Var líka markahæst í undankeppninni. Skoraði helling í Evrópukeppni félagsliða sem og Íslandsmótinu. Hún er besti leikmaður landsliðsins sem komst á EM 2009. No-brainer að hafa hana efsta fyrir utan topp þrjá handboltamennina.
5. Alexander Petersson
Frábær með landsliðinu, bæði í vörn og sókn. Þetta var árangur liðsheildarinnar, vissulega - en mér fannst þessir fjórir standa upp úr hópnum. Hann er kallaður vélmennið og ekki af ástæðulausu. Gaurinn hættir aldrei, sama hvernig gengur í leiknum.
6. Eiður Smári Guðjohnsen
Af hverju er Eiður yfirhöfuð á þessum lista? Þetta er spurning sem brennir á mörgum. Fólk virðist skiptast í tvo flokka varðandi þetta. Annað hvort er hann sá maður sem hefur náð hvað lengst í stærstu íþrótt heims (hann spilar jú með Barcelona) eða að hann spilar það lítið með félagsliði sínu að hann þykir ekki sýna neitt sem verðskuldi sæti á listanum.
Ég held að þetta sé spurning um hinn gullna meðalveg. Óneitanlega er hann búinn að ná óskaplega langt í heimi knattspyrnunnar. Hann er að spila með einu besta félagsliði heims sem þessa stundina er að slátra spænsku deildinni. En hann spilaði lítið sem ekkert á fyrri hluta ársins. Allir héldu að hann væri að fara annað. En þá gerist eitthvað sem í raun varð til þess að ég setti hann svo ofarlega á minn lista. Hann vann sér aftur sæti í liðinu og sýndi enn og aftur að þolinmæði og þrautsegja borga sig. Það var ótrúlegt afrek að vinna sér aftur sæti í þessu liði eftir að hafa verið í kuldanum svo lengi.
Hins vegar er ekki hjá því lítið að hann spilaði alls ekki marga leiki á árinu. Hann hefur líka oft verið betri með landsliðinu. Samt besti knattspyrnumaður landsins og þess vegna er hann fyrir ofan …
7. Hermann Hreiðarsson
Varð enskur bikarmeistari með Portsmouth. Lykilmaður í liðinu sem náði líka fínum árangri í deildinni. Átti líka fínt landsliðsár. Varð síðar fórnarlamb aðstæðna þegar að Redknapp fékk tvo unga vinstri bakverði til liðsins. Fór í frostið og er á leið til annars félags. En bikarmeistaratitillinn má ekki gleymast - það var frábært afrek hjá honum.
8. Þormóður Jónsson
Eini maðurinn í einstaklingsíþróttum sem náði eftirtektarverðum árangri á heimsvísu á árinu. Níunda sætið á Ólympíuleikunum er meiriháttar árangur. Hann náði einnig góðum árangri á öðrum mótum á árinu.
9. Katrín Jónsdóttir
Fyrirliði landsliðsins sem komst á EM 2009. Frábær árangur. Það er augljóst að hún er andlegur leiðtogi liðsins inn á vellinum og hún hefur ekki síður staðið sig vel utan vallar en innan - sem við eigum einnig að hafa í huga þegar við greiðum okkar atkvæði. Kvennalandsliðið í fótbolta hefur verið ómetanleg fyrirmynd fyrir unga íslenska íþróttamenn á árinu og því má ekki líta fram hjá.
10. Veigar Páll Gunnarsson
Sá eini af þeim sem ég kaus sem komst ekki á topp tíu listann. Það var í raun erfiðast að velja hver ætti að fá þetta sæti á listanum mínum. Valið stóð á milli Helenu Sverrisdóttur, Jón Arnórs Stefánssonar og Veigars. Á endanum fékk Veigar sætið út á frammistöðu sína með Stabæk í Noregi. Algjör lykilmaður í meistaraliðinu þar. Var svo seldur til Nancy í Frakklandi. Gott ár hjá honum.
11.-12. sæti
Sem fyrr segir þá var hrikalega erfitt að vera ekki með Jón Arnór og Helenu á listanum. En svona er þetta og ég er sáttur við minn lista. Ótrúlegt samt að Helena varð í ellefta sæti kjörsins, þriðja árið í röð.
Næstir inn á listann:
Dóra María Stefánsdóttir
Grétar Rafn Steinsson
Áttu mjög gott ár og hefðu oft komist inn á listann. Fórnarlömb þess að þetta var sérstaklega gott íþróttaár.
Aðrir sem komu til greina hjá mér:
Hólmfríður Magnúsdóttir
Bergur Ingi Pétursson
Ásdís Hjálmsdóttir
Birgir Leifur Hafþórsson
Ragna Ingólfsdóttir
Svona er listinn minn í ár. Hérna er svo niðurstaða kjörsins:
Ólafur Stefánsson, handbolti 480 stig
Snorri Steinn Guðjónsson, handbolti 287
Margrét Lára Viðarsdóttir, fótbolti 210
Guðjón Valur Sigurðsson, handbolti 194
Eiður Smári Guðjohnsen, fótbolti 124
Hermann Hreiðarsson, fótbolti 97
Katrín Jónsdóttir, fótbolti 61
Alexander Petersson, handbolti 56
Þormóður Jónsson, júdó 51
Jón Arnór Stefánsson, körfubolti 39
Helena Sverrisdóttir, körfubolti 33
Veigar Páll Gunnarsson, fótbolti 26
Dóra María Lárusdóttir, fótbolti 25
Bergur Ingi Pétursson, frjálsar íþróttir 10
Grétar Rafn Steinsson, fótbolti 10
Björgvin Páll Gústavsson, handbolti 10
Hólmfríður Magnúsdóttir, fótbolti 9
Viktor Kristmannsson, fimleikar 7
Róbert Gunnarsson, handbolti 6
Arnór Atlason, handbolti 5
Ragna Ingólfsdóttir, badminton 4
Örn Arnarson, sund 4
Ásdís Hjálmsdóttir, frjálsar íþróttir 2
Ólöf María Jónsdóttir, golf 1
Eyþór Þrastarson, sund fatlaðra 1
Og hérna eru færslur mínar frá síðustu tveimur árum.
Íþróttafréttamaður og fjölskyldufaðir í Grafarvoginum.