Kastljos i kvold og pressan.is/elladis
Ja otruleg vidbrogd eru nu komin en enn er langt i land thar sem vid hofum einungis nad a safna 1.8milljon krona og fyrsta medferd er 7 milljonir(vegna lelegs gengis,annars 3.7 orugglega!!)en Ella tharf ad fara i 3 medferdir i allt.
Vid verdum i Kastljosi i kvold og pressan.is er komid med sidu til ad hjalpa okkur og Nuid.is og siminn og RUV.is hafa allir verid a fullu ad reyna finna leidir til ad hjalpa.vonandi kemur thetta i kvold eda a morgun thvi tha tharf eg ad fara borga.
Simanumer til ad hringja i og styrkja eru a www.pressan.is/elladis.
Einnig hef eg stofnad godgerdarfelag til hjalpar Ellu Dis og fleiri fjolsk i okkar stodu ,en thad heitir ‘Oskabrunnur og er med bankanr :0515-26-020106,kt430909-0290
Styrktarreikningur Ellu er her haegra megin efst a sidunni en annars aetla eg ad setja aftur inn styrktarbeidnina:0525-15-020106-3870,kt:020106-3870
Við erum enn að berjast fyrir að Ella komist i stofnfrumumeðferð og herna er beiðni sem ein yndisleg velunnari samdi og langaði mer að setja her inn:
Hjálparbeiðni til ykkar svo að Ella Dís komist í stofnfrumumeðferð
Sögu Ellu Dísar þekkja margir en hún fæddist þann 2. janúar 2006, ALHEILBRIGÐ. Þegar hún var 1 ½ árs fór að bera á lömun í höndum og í dag er svo komið að hún hefur nær eingöngu stjórn á augum sínum. Ella Dís hefur undirgengist margar rannsóknir en það hefur ekki leitt til niðurstöðu á því hvað það er sem hrjáir hana.
Ragna Erlendsdóttir móðir hennar hefur fundið læknismeðferð í Ísrael sem gefur góða von um lækningu fyrir Ellu Dís. Læknirinn sem um ræðir heitir Dr. Simon Slavin og hefur aðsetur í Tel Aviv í Ísrael.
Meðferðin sem um ræðir kallast stofnfrumumeðferð og er aðeins leyfð í nokkrum löndum sökum þess hve ný hún er og enn margt óvisst. Þessi meðferð hefur þó sýnt að hún getur hjálpað mörgu fólki sem þjáist að heilblóðfalli, MS, mænuskaða o.fl.
Sambærileg meðferð er stunduð á Indlandi og fór þangað íslensk kona fyrir skömmu. Sú kona heitir Þuríður Harpa, en hafði hún lamast eftir slys. Hefur sú meðferð gert kraftaverk fyrir Þuríði Hörpu og varð hún vitni að fleiri slíkum.
Það sem ólíkt er með stofnfrumumeðferðinni á Indlandi er að þar notaðar stofnfrumur úr fóstri en í Ísrael eru notaðar stofnfrumur úr beinmergi systur Ellu Dísar.
Ella Dís á 6 ára gamla systur, Jasmín og eru þær afar nánar og aðra litla 8 mánaða gamla systur, Miu.
Meðferðin
Fyrirhuguð læknismeðferð Ellu Dísar verður tekin í nokkrum áföngum.
1. skref:
Ragna og Mía þurfa að fara til Ísrael fyrst til að ná í stofnfrumur úr beinmerg Míu til að rækta handa Ellu Dís. Sú ræktun mun taka um 7 vikur.
2. skref
Ella Dís og Ragna og Marc (pabbi Ellu)fara til Ísrael og þá fær Ella gefnar stofnfrumurnar sem voru ræktaðar úr beinmergi systur hennar .
3. skref
Ella mun líklega þurfa endurtaka meðferðina allavega 2 sinnum á 6 mánaða fresti.
Ég, móðir Ellu Dísar hef ekki getað unnið frá því að hún veiktist þar sem að ég annast hana. Okkur vantar sárlega fjárhagsaðstoð til að komast í stofnfrumumeðferðina og leitum við því til eftir hjálp við fyrsta skrefið sem er í eftirfarandi liðum. Ef óskað er eftir frekari upplýsingum er hægt að hafa samband við mig í síma 865 2623. Með fyrirfram þakklæti, Ragna.
I fyrstu ferð munum við líklega þurfa nálægt 7 milljónum.
Kostnaður:
Flugmiði fyrir 3 er um 750.000 kr
Uppihald og gisting kostar I kringum 550.000 kr
Læknismeðferð mun kosta um 5.320.000 kr
Nafn: Ella Dís
Kennitala: 020106-3870
Reikningur: 0525-15-020106
Móðir: Ragna Erlendsdóttir
Netfang: eragna@hotmail.com
Vefsíða: http://blogg.visir.is/elladis/
Ég veit að þetta mun takast en þetta er að ganga svoldið erfiðlega og hægt en ég trúi að Ella fái sina hjálp!
Einnig hefur verið stofnuð Facebook siða fyrir okkur og heitir hun: http://www.facebook.com/group.php?gid=160911783591
Þannig það er fullt af yndislegu folki að aðstoða okkur og stöð 2 syndi viðtal fyrir okkur,sem við erum rosalega þakklat fyrir!! ![]()
Annars akkurat nuna er Ella i goðu formi og allir að koma til nema ég er komin með barkabólgu vegna bakflæði,sem eg held að se aðalega af miklu álagi og stressi en vonandi næ eg þessu úr mer fljotlega! ![]()
Ávallt ástarþakkir fyrir stuðninginn og erum við óendanlega þakklat fyrir allt sem þið gerið fyrir Ellu!xx
knus og kram
Ragna og co xoxox

4. nóvember 200920.11 at
Elsku Ragna mín.
Sá ykkur mæðgur í Kastljósinu og eins og oft áður hreyfði lífsreynsla ykkar mikið við mér. Með tárin í augunum lagði ég inn á þig litlar 5000kr sem ég veit að er nú bara dropi í hafið en ég mun halda áfram að fylgjast með ykkur og reyna að styrkja ykkur áfram.
Gangi ykkur sem allra best!
Baráttukveðjur
Heiður
4. nóvember 200920.51 at
Vá ég tárast bara við að heyra sögu ykkar og er búin að leggja inn á ykkur, ekki mikið en eitthvað þó:)
fynnst leiðinlegt hvað allir nota þessa blessuðu kreppu sem afsökun til þess að geta ekki styrkt. hvað fyrirtæki eins og össur, marel, CCP og þess vegna samhjeri, þetta eru öll fyrir tæki sem eiga ekkert að fynna fyrir þessari kreppu vilja þeir ekkert gera?
4. nóvember 200921.51 at
Sæl kæra fjölskylda
“Þar sem er líf er von” Þetta er eins og talað úr mínu hjarta. Ég dáist að kraftinum í ykkur og óska ykkur alls hins besta. Ég lagði inn á reikninginn hjá ykkur og vona að sem flestir geri það, því hver myndi ekki gera allt til að reyna að láta barninu sínu líða vel.
Kossar og knús á ykkur öll sem standið í þessari baráttu.
Bestu kveðjur Berta og fjölskylda
4. nóvember 200922.01 at
Frábært að sjá ykkur í Kastljósi í kvöld. Mig langaði að segja að ég bara skil ekki að fólk setji út á það að móðir berjist fyrir barninu sínu, allir ættu að setja sig í sömu spor! Þið eruð hetjur báðar tvær gangi ykkur vel, ég vona að peningarnir komi, margt smátt gerir eitt stórt!
Kær kveðja
4. nóvember 200922.37 at
Ég sá viðtalið við ykkur og verð að segja að það er ekkert fallegra en að sjá móðurást líka og þína og ég veit þetta á eftir að skila sér í bata Ellu Dísar. Ég er einstæð móðir með tvö börn og á ekki mikinn pening aflögu en ég lagði 1000 kr inná þig. Veit þetta er voða lítill peningur en ég vildi leggja mitt af mörkum til ykkar.
5. nóvember 20090.50 at
Gangi ykkur sem allra best, ég krossa fingurna! Vona svo innilega að þið komist út. Sá viðtalið í kvöld og var ekki lengi að taka upp símann. Vona að þetta hafi haft sem mestu áhrif á landsbúa. Baráttukveðjur frá mér og fjölskyldunni
5. nóvember 20090.53 at
Tárvot horfði ég á Kastljósið áðan. Í sorginni sá ég þá fallegu móðurást sem við viljum allar veita börnunum okkar.
Ég dáist að þér Ragna, ég skal hafa ykkur í bænum mínum og biðja fólk að hugsa til ykkar og leggja sitt af mörkum!
Gangi ykkur sem allra best!!
5. nóvember 20091.23 at
Ji minn elsku fjölskylda, ég vona að þetta gangi vel hjá ykkur enda búin að vinna svo inn fyrir því og gott betur en það, það er ótrúlegur vilji sem að þið hafið og fólk ætti að taka ykkur til fyrirmyndar, ég vona svo innilega að þetta takist og þetta mjakist allt saman þannig að þið komist út en maður á hreinilega að skora á þessi stóru fyrirtæki að hjálpa ykkur við þetta, en með baráttukveðju til ykkar og þetta hefst allt saman:) íslendingar eru sko svo sannarlega gjafmildir og standa saman þegar að svona ber að.
Gangi ykkur sem allra best!!!!
5. nóvember 200910.11 at
Hæ Ragna ég vildi bara segja þér frá stamselsmeðferð sem nylega hefur verið gerð i Sviþjóð i fyrst sinn af lækninum Jan Fagian á Salgrenskja held ég og var synt i sjonvarpinu hérna nuna í morgunsjónvarpinu þessi meðferð var gerð i fyrsta sinn fyrir 5 árum siðan og hun læknaðist af Ms sem var mjö slæmt og hun var næstum alveg lömuð, og er enn i lagi mér heyrðist þetta vera eitthvað svipuð meðferð og þú ert að tala um fyrir Ellu dis og liklega væri ekki vitlaust að athuga hvort þetta er sama og það er þá kanski ódyrara og léttara að fá þar hjálp Sjukrahusið heitir Huddinge sjukhus og eru þar fleiri læknar sem kanski geta hjálpað yfirlæknirinn þar heitir Jonas Mattson með baráttukveðju og oskum um bata Fríður i Sviþjóð
5. nóvember 200911.57 at
Sæl Ragna og fjölskylda. Mikið vona ég innilega að þetta takist hjá ykkur! Þar sem ég á son með SMA þá skil ég þessa tilfinningu sem nýstir í móðurhjartað og hverfur aldrei. Hann er samt að verða 10 ára. Ég dáist að ykkur fyrir eljuna og dugnaðinn. Það er ótrúlegt hvað maður fær stundum aukakraft þrátt fyrir að vera í raun örmagna. Gangi ykkur sem allra, allra best. Það eru margir sem hugsa til ykkar.
Kveðja, Gróa
5. nóvember 200912.05 at
Elsku krúttin mín
Knús á ykkur þetta hlýtur að ganga upp trúi ekki öðru.
Ekki gleyma að margt smátt gerir eitt stórt aðalmálið er að taka höndum saman og hjálpast að til að Ella Dís fái bata.
Þú ert hetja Ragna gangi ykkur vel.
kv.Gumma og Margrét Lóa
5. nóvember 200912.17 at
Vona að fleiri en ég hafi orðið snortnir af viðtalinu í gær, ég tók upp símann og gaf 5000 kr.
Ég segi sama og ein hér á undan - vona að fyrirtæki safni handa ykkur, sleppi jólagjöfunum og leggi góðu málefni lið.
Gangi ykkur vel.
5. nóvember 200913.18 at
Elsku fjölskylda
Ég vona svo sannarlega að þið náið að safna nægilegum peningum og það sem allra fyrst. Við horfðum á Kastljósið í gær og við urðum svo reið fyrir ykkar hönd. Við eigum 4 börn sjálf og að sjálfsögðu á maður að berjast fyrir þau, þau geta það ekki sjálf…”ég vona að börnin fái heilbrigða foreldra”…setning sem ég heyrði og gleymi aldrei!!
En maðurinn minn sem notar heimabankann sinn aldrei, millifærði á ykkur smá upphæð.
Fylgjumst með ykkur og biðjum að góðir vættir fylgi ykkur!!
5. nóvember 200920.06 at
Hæ hæ. Við hjónin lögðum inn 15þús, þó við þyrftum að hækka yfirdráttinn til þess. Við eigum 3 heilbrigð börn, og því skiptir 15þús til eða frá ENGU fyrir okkur. Vonandi hjálpar það ykkur.
Og ALDREI gefast upp.
5. nóvember 200922.15 at
Halló, við hjónaleysin horfðum á Kastljósið í gær héðan frá Bretlandi og vorum djúpt snortin. Við eigum lítinn dreng og fáum sting í hjartað við tilhugsunina um það sem þið eruð að ganga í gegnum. Við lögðum litlar 5000 krónur inn á reikninginn hennar Ellu Dísar og sendum ykkur baráttukveðjur.
6. nóvember 200918.04 at
Hæ,
Ég er búsettur í Svíþjóð síðan 1989… Horfi á kastljós reglulega. Sá þáttinn og var mjög djúpt snortinn.
Knúsakveðjur,
Gunnar Eysteinsson
7. nóvember 200918.06 at
Ástar þakkir allir fyrir þessiar yndislegu ummæli!!! Eins og Góa segir her fyrir ofan er otrulegt hvernig maður fær kraft þegar maður er svo gjorsamlega örmagna,en þannig liður mer en neita að gefast upp,örugglega eins og striðsmennirnir i gamla daga ,maður berst fram i siðasta bloðdropa þott að likaminn og salinn seu alveg að detta niður!!! við erum komin með helming fyrir fyrstu ferð og vantar enn svo mikið þannig ef þið getið enn hjalpað mer að bera um orðið þa væri eg mjog þakklat!!! avallt ‘astarþakkir fyrir stuðningin, Ragna og co xoxoxox
20. janúar 201022.00 at
piano music books…
[...] Good piano performance. Thanks heaps for this!… if anyone else has anything it would be much appreciated. Great website http://www.en.Grand-Pianos.org Enjoy!…