Mia og ég komnar fra Israel!!

jæja sma frettir,ég,Mia og Laufey vinkona ferðuðumat til Tel aviv i Israel og Mia for i beinmergstoku og allt gekk vel og allir friskir.

Ella Dis liður mjog vel og er hin hressasta þessa dagana!:)

Það er allt að gerast og sagði læknirinn við okkur að ef sjalfsofnæmi vææri um að ræða sem sjukdomur Ellu ætti hun goðar likur að lagast með þessari stofnfrumumeðferð og mun hun gerast i byrjun januar vonandi!!

Enn vantar okkur fullt af pening eins og avallt en þar sem læknirinn var svo goður að leyfa okkur að borga helming nuna og helming þegar Ella kæmi vantar enn talsvert uppa,en vonandi reddast það ,eg bið jolasveininn um að vera extra goður við okkur i ar!!:)

jæja eg skrifa meira a morgun eg er svo þreytt eftir allt ferðalagið og segi betur fra smaatriðum þa!!

www.pressan.is/elladis  og er styrktarreikningurinn okkar her a hægri hlið ofarlega ,elsku jolasveinn!! ;)

Ástarþakkir til ykkar sem styðja okkur og styrkja.xxxx

knus og kram

Ragna og co xxxx

7 ummæli to “ Mia og ég komnar fra Israel!! ”

  1. Svandís Says:

    mig langaði bara að segja gangi þér og ykkur vel. vonandi næst að safna nóg fyrir öllu. Ragna þú ert ótrúlega hugrökk og sterk manneskja að ganga í gegnum þetta og Ella dís er sannkölluð hetja. haltu áfram að vera svona sterk og ég veit þetta mun takast, bara vera jákvæð og þá gengur þetta upp, þótt það sé erfitt þá skiptir hugafarið öllu :) ekki taka nærri þér það sem annað fólk er að segja því það veit bara ekki betur, það er fullt af fólki sem stendur með þér og þar á meðal ég. ég sendi þér kærleiksknús og jákvæða strauma og ég mun biðja fyrir ykkur .

    kær kv ein ókunnug

  2. Olga Says:

    Velkomin heim Ragna mín þú duglega kona. Ég hugsaði mikið til ykkar á meðan þið voruð úti. Nú er bara að halda áfram og safna meiri peningum. Ég tala við alla mína vini og set áskorun á Facebook um mánaðamótin. Ég borga líka aftur og dálítið meira inná reikninginn um mánaðamót og vona að margir, margir geri slíkt hið sama, því margt smátt gerir eitt stórt. Ef allir á Facebooksíðu Ellu Dísar setja þó ekki væri neme 1000 kr. í púkkið þá er takmarkinu náð. EKKI GEFAST UPP!!! Ég skal gera mitt til hjálpar. Vildi að ég hefði fengið hluta af stóra lottóvinningnum þá hefði ég gefið fullt af peningum. En við gerum öll eins og við getum. Ella Dís á skilið að þjóðin gefi henni jólagjöf.

  3. Ásdís Jenna Says:

    gangi ykkur vel elsku Vinkonur!

  4. elladis Says:

    TAKK fyrir yndislegu ummælin!!xx
    Eg ætla fara drifa mig að setja myndirnar inn svo eg geti bloggað um ferðina en fæ frekar takmarkaðan tima til þess þessa dagana, en við erum næstum komin með hinn helminginn til að geta klarað fyrstu meðferðina ,vantar bara pinu þannig að fyrsta meðferðinn er eiginlega komin,þa eru bara eftir hina 2,semsagt 14 milljonir,uff,ja þetta er dyrt þegar maður þar að standa undir lækniskostnaði og uppihaldi sjalfur,en með hjalp margra yndislegra velunnara sem vilja sja Ellu hrausta a ny höfum við nað svo langt og mun þetta takast ,eg trui þvi svo innilega!! Ja eg reyni að lata ekki fa a mig asakanir um að eg se að eyða peningunum hennar Ellu i eigin eyðslu og svoleiðis neikvæðar umræður,þvi truið mer Ella min kemur avallt fyrst og er allt sem viðkemur hennar þorfum og kostnaði borgað fyrst og hef eg meira segja þurft sjalf að taka yfir 5 milljona krona lan sem eg er enn með a bakinu!!
    Einnig langaði mer lika að benda a að þessi meðferð hefði kostað helmingi minna ef kronan okkar væri ekki verðlaus og onytur gjaldeyrir!
    knus og astarkveðjur heðan Ragna og co xxx

  5. Kolla Says:

    Ég dáist af kjark þínum og óska ykkur alls þess besta, ég ætla líka að setja meiri pening inn og vona innilega að fleiri geri það. Mig langar að sjá Ellu Dís fríska og svo er ég líka forvitin að vita hvort þessi meðferð virkar og þá geta fleiri nýtt sér hana:-))

    Kærleikskveðjur: Kolla

  6. Ragga ókunnug Says:

    Kæru, hugrökku foreldra og dætur.

    Ég sendi þér engil með sól í sinni
    þú munt elska hann við fyrstu kynni.
    Hann mun eftir þér ganga eins og skugginn
    og passa að þú verðir aldrei hnugginn.
    Hann mun depurð í bjartsýni breyta
    húsakynni með hamingju skreyta.
    Hann mun byrði þína á bak sér láta
    þerra tárin þeirra sem gráta.
    Er hann er búinn líf þitt að stilla
    láttu einhvern fáann sem nú líður illa.

    Þessi yndislegu orð sendi tengdadóttir mín mér í gær, til að lyfta mér upp vegna veikinda hjá mínum manni, en hann greindist með MND fyrir 1.1/2 ári síðan.
    Svo ég þekki þessa örvæntingu, hræðslu og reiði út í hvað lífið ætlar að láta okkur hafa mismikið fyrir því, og stuttan tíma saman.

    Mundu það bara Ragna, að svona erfiðleikar og lífshættulegir sjúkdómar eru lagðir á þá sem munu geta borið þá, og staðið undir því.

    Fólk sem á alltaf auka skammt af ósérhlýfni, hugrekki, og endalausa væntum þykju á börnum sínum, eða öðrum veikum fjölskyldumeðlimi..

    Söfnunin hefur farið vel af stað, og nú er bara að spýta í lófana og klára dæmið. Hvílið ykkur, safnið kröftum og vonum að jólasveinninn verði eins örlátur og kostur.

    Hlýjar kveðjur. Ragga

  7. kristjana Says:

    Sæl Ragna og fjölskylda
    Ég hef ekki skrifað áður inn á síðuna en skoða hana daglega og bíð alltaf spennt eftir fréttum af ykkur. Hvernig gengur núna eftir að þið fóruð í ferðina og hvernig er heilsan hjá Ellu Dís.? Mér finnst stundum líða of langt á milli þess sem einhverjar fréttir birtast á síðunni ykkar, en ég skil það samt vel að þú hafir nóg annað að gera en að skrifa fréttir inn á hana. Gangi ykkur allt í haginn
    Kveðja
    Kristjana

Rita ummæli


Vísir Fréttir Lífið Íþróttir Viðskipti Vefmiðlar
Blogg.Vísir.is Innskráning Nýskráning