Aðalfundur Eysteins
Fyrir ykkur sem ekki hafa séð auglýsingar á framsokn.is og suf.is þá tilkynnist hér með að:
Aðalfundur Eysteins - Félags ungra framsóknarmanna á Austurlandi verður haldinn fimmtudaginn 11. mars kl. 20:00 í Austrasalnum, Tjarnarbraut 19, Egilsstöðum.
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf.
Önnur mál.
Hér má nálgast auglýsingu um fundinn.
Nýir félagar velkomnir!
Stjórnin.
Kjördæmisþing í Norðausturkjördæmi
Kjördæmisþing í Norðausturkjördæmi verður haldið nú um helgina á Egilsstöðum hvort sem veðurguðirnir lofa eður ei. Spáin er ekkert sérstaklega hagkvæm en við Framsóknarfólk erum komin af harðjöxlum og köllum sko ekki allt ömmu okkar hvað veðurofsann varðar. Þingið verður haldið á Hótel Héraði og hefst klukkan 13:00 á morgunn, laugardag.
Dagskrá þingsins er eftirfarandi.
25.október
Kl. 13:00
1. Þingsetning
2. Skipaðir starfsmenn þingsins (2 þingforsetar og 2 þingritarar).
3. Skipun nefnda. (kjörbréfanefnd, nefndanefnd, uppstillingarnefnd)
4. Skýrsla stjórnar og reikningar
5. Álit kjörbréfanefndar
6. Umræður um skýrslu stjórnar og reikninga
7. Ávörp gesta
8. Ræða formanns Framsóknarflokksins
9. Ávörp þingmanna Norðausturkjördæmis
10. Umræður um stjórnmálaviðhorfið og flokksmál.
11. Mál lögð fyrir þingið og málefnanefndir skipaðar.
Kl. 18:00
12. Móttaka.
13. Kvöldverður og skemmtun.
26.október:
Kl. 09:00
14. Nefndarstörf.
Kl. 11:00
15. Nefndarálit lögð fyrir þingið.
Kl. 12:00
16. Hádegisverður.
Kl. 12:45
17. Framhald nefndarálita og stjórnmálaumræðu.
Kl. 14:00
18. Sveitarstjórnarkosningar 2010.
Kl. 15:00
19. Kosningar.
Kl. 15:40
20. Önnur mál.
Kl. 16:00
21. Þingslit.
Ný stjórn Eysteins
Eins og síðasta færsla gefur til kynna þá er aðalfundur Eysteins yfirstaðinn og var mæting á hann eftir atvikum góð. Mikil stemmning ríkti á fundinum og spreyttu fundargestir sig í SingStar við mikinn fögnuð annarra viðstaddra.
Ný stjórn var kosinn og er hún eftirfarandi:
Þórey Birna Jónsdóttir, formaður
Björg Eyþórsdóttir
Guðmundur Heiðar Eyþórsson
Hafþór Eide Hafþórsson
Margrét Freyja Viðarsdóttir
Til vara:
Gunnar Gunnarsson
Helgi Haukur Hauksson
Endurskoðendur félagsins:
Guðmunda Vala Jónasdóttir
Þorvaldur P. Hjarðar
Ný stjórn hefur ekki komið saman sökum landfræðilegra fjarlægða en stefnir á fund innan tveggja vikna og mun þá liggja fyrir hvernig stjórnskipan félagsins verður næsta árið.
Aðalfundur Eysteins
Aðalfundur Eysteins verður haldinn í kvöld að Lagarfell 2 í Fellabæ (Áður Svarthvíta hetjan).
Fundurinn hefst klukkan 20:30 og er dagskrá fundarins eftirfarandi:
1. Setning
2. Kosning starfsmanna fundarins
3. Skýrsla stjórnar og reikningar
4. Ávörp gesta
5. Lagabreytingar
6. Kosning til stjórnar
7. Kosning skoðunarmanna reikninga
8. Ákvörðun árgjalds
9. Tilnefning fulltrúa á kjördæmisþing
10. Önnur mál
Að fundi loknum verður glaumur og gleði fram að háttum. Vilji menn koma málum á dagskrá fundarins má senda ábendingar þar um á netfangið eysteinnungir@gmail.com.
Lagabreytingatillögur
Í grein 2.1 í lögum félagsins kemur eftirfarandi fram:
„Aðalfund skal halda eigi síðar en 31. júlí ár hvert…”
Eftir breytingu verði textin svo hljóðandi:
„Aðalfund skal halda eigi síðar en 31. ágúst ár hvert…”
Fjölmennum á aðalfund og eflum Framsóknarflokkinn hér á svæðinu.
Almennur félagsfundur Eysteins
Almennur félagsfundur Eysteins verður haldinn í Austrasalnum sunnudaginn 25. maí n.k. klukkan 20:30
Dagskrá fundarins er á þá leið:
Kosning fulltrúa á afmælisþing SUF helgina 7.-8. júní n.k.
Önnur mál
Fjölmennum öll!
Stjórnin
Hér fyrir neðan má sjá drög að dagskrá þingsins og fleiri upplýsingar varðandi það. Þeir félagar sem vilja fara sem fulltrúar Eysteins á þingið sendi upplýsingar þar um á netfangið eysteinnungir@gmail.com.
Eysteinn á fimm fulltrúa auk formanns og ef fleiri en fimm eru um hnossið verður dregið um hverjir fara sem aðalfulltrúar og eru þeir sem eftir sitja skipaðir varafulltrúar.
70 ára afmælisþing SUF 7.-8. júní á Hótel Heklu
Stjórn Sambands ungra framsóknarmanna boðar til 70 ára afmælisþings SUF sem haldið verður dagana 7.-8. júní á Hótel Heklu á Skeiðum. Búast má við glæsilegu og umfram allt skemmtilegu þingi í tilefni tímamótanna. Þjóðmálanefnd er nú að vinna víðtæk ályktanadrög og stefnt er á að halda opinn málefnafund til að leggja lokahönd á drögin fyrir þingið. Sá fundur verður auglýstur sérstaklega þegar nær dregur. Drög að dagskrá þingsins með fyrirvara á breytingum er meðfylgjandi.
Gisting og aðstaða
Hótel Hekla er eitt besta sveitahótel landsins, með þægileg og vel búin herbergi, öll með sér baðherbergi og sjónvarpi. Á hótelinu er jafnframt þráðlaust internetsamband. Fundarsalurinn er vel búinn tækjum og að auki eru smærri fundaherbergi fyrir hópastarf. Hátíðarkvöldverður og afmælisdagskrá verður í veislusal sem rúmar um 100 manns.
Afmælispakki 1 9.000 kr.
Þinggjöld, hádegisverður, kokteill, 3ja rétta hátíðarkvöldverður, skemmtun, gisting og morgunverður
Afmælispakki 2 5.000 kr.
Þinggjöld, kokteill, 3ja rétta hátíðarkvöldverður og skemmtun
Afmælispakki 3 2.000 kr.
Þinggjöld
Í boði eru 30 tveggja manna herbergi sem þýðir… fyrstur kemur… fyrstur fær! Við skráningu skal greiða staðfestingargjald 2.500 kr. sem er óendurkræft. Skráning hefst mánuði fyrir þing eða þann 7. maí. Mikilvægt er að þeir sem ætla að gista skrái sig sem fyrst eða í síðasta lagi fyrir miðvikudaginn 25. maí nk.
Allir félagsmenn í SUF hafa rétt til setu á sambandsþingi og hafa þar málfrelsi og tillögurétt.
Þeir félagar í SUF sem ekki eru félagar í FUF-félagi og eiga lögheimili þar sem ekki er starfandi FUF félag geta óskað þess að sitja sambandsþing með fullum atkvæðisrétti, með því að senda persónulega beiðni til skrifstofu Framsóknarflokksins a.m.k. viku fyrir sambandsþing.
Samkvæmt lögum SUF hefur hvert FUF félag rétt á að senda 1 fulltrúa með atkvæðisrétt fyrir hverja 10 félagsmenn eða brot úr þeirri tölu. Miðstjórnarmenn eiga í sæti á sambandsþingi.
Til að fá atkvæðisrétt í kosningum þarf að viðkomandi að vera miðstjórnarmaður eða á kjörbréfi félags og hafa greitt þinggjald fyrir viðkomandi kosningar eða í síðasta lagi kl. 13 á sunnudeginum.
Skv. 4.5 gr. laga skal framboðum til formanns skila til skrifstofu Framsóknarflokksins eigi síðar en sólarhring fyrir setningu sambandsþings. Skv. 7.4 gr. laga skal tillögum að lagabreytingum skila til stjórnar SUF 14 dögum fyrir sambandsþing. Þeir sem hafa áhuga á að bjóða sig fram í stjórn SUF er bent á að hafa samband skrifstofu Framsóknarflokksins.
Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu Framsóknarflokksins í síma 540 4300 eða á netfanginu framsokn@framsokn.is.
Fjölmennum á þingið!
Stjórn SUF
Drög að dagskrá
- með fyrirvara um breytingar
Föstudagur 6. júní
12:00 - 18:00 Skráning og afhending þinggagna á skrifstofu Framsóknarflokksins
Laugardagur 7. júní
09.00 Skráning og afhending þinggagna
10.00 Þingsetning
Kosning þingforseta (2)
Kosning þingritara (2)
Kosning kjörnefndar (3)
10:15 Skýrsla stjórnar og reikningar
11.00 Drög að ályktunum kynntar
11:30 Málefnahópar taka til starfa
Hópur 1 - Stjórnskipun, efnahagur og utanríkismál
Hópur 2 - Atvinna, samgöngur og umhverfi
Hópur 3 - Menntun, menning og íþróttir
Hópur 4 - Velferð, mannréttindi og lýðræði
12.30 Hádegismatur
13.30 Málefnahópar halda áfram
16.30 Kaffi
17:00 Út í óvissuna…
19.00 Kokteill
20.00 Hátíðarkvöldverður og skemmtun fram eftir kvöldi
Sunnudagur 8. júní
10.00 Málefnavinna kláruð
11.00 Síðbúinn morgunmatur (Brunch)
11:30 Afgreiðsla ályktana
13.00 Lagabreytingar
13:30 Kosningar
Formaður
Stjórn (12)
Varastjórn (12)
Miðstjórn (15)
Varamiðstjórn (15)
Skoðunarmenn reikninga (2)
Varaskoðunarmenn reikninga (2)
14:00 Þingslit
Eysteinn hvetur félagsmenn sína til að skrá sig á þingið á netfangið eysteinnungir@gmail.com
Stjórnmálaskóli Framsóknarflokksins
Stjórnmálaskóli Framsóknarflokksins verður haldinn á tveimur stöðum á landinu þann 5. apríl næstkomandi.
Skólinn verður annarsvegar í Reykjavík og hins vegar á Akureyri. Ekki liggur fyrir dagskrá varðandi fundinn í Reykjavík en hún mun birtast von bráðar á www.framsókn.is
SUF-ara standa fyrir fundinum á Akureyri í samstarfi við FUF-ara í Skagafirði, á Siglufirði og á Akureyri. Fundurinn er sem fyrr segir í Framsóknarhúsinu við Hólabraut og er dagskráin á þessa leið:
12:30 Mæting – Morgunkaffi og létt meðlæti.
12:50 Setning.
13:00 Saga og uppbygging Framsóknarflokksins,
Einar Gunnar Einarsson starfsmaður Framsóknarflokksins.
14:00 Fundarsköp,
Ásta Sigurðardóttir fv. bæjarfulltrúi á Akureyri.
15:00 KAFFI
15:20 Listin að hafa áhrif í fjölmiðlum,
Birgir Guðmundsson lektor í fjölmiðlafræði við HA.
16:00 Forustumenn og hlutverk þeirra,
Höskuldur Þór Þórhallsson alþingismaður Framsóknarflokksins.
17:00 Ræðumennska,
Sigfús Kalsson varaþingmaður Framsókarflokksins.
18:00 Skólaslit.
Verið með og skráið ykkur á framsokn@framsokn.is
Hvernig birtist miðjustefnan í íslenskum stjórnmálum?
Fyrsti hádegisfundur Samvinnufélagsins verður haldinn mánudaginn 17. mars kl. 12:15-13:00 í stofu 207 í Aðalbyggingu Háskóla Íslands.
Helga Sigrún Harðardóttir, framkvæmdastjóri þingflokks Framsóknarflokksins heldur erindi um miðjustefnu og hvernig hún birtist í íslenskum stjórmálum
nú um stundir. Helga Sigrún mun halda erindi sitt og síðan verður opnað fyrir spurningar og umræðu.
Allir velkomnir.
Um félagið:
Samvinnufélagið, félag áhugafólks um miðjustefnu við Háskóla Íslands, var stofnað þann 23. nóv. 2007 við athöfn í aðalbyggingu Háskólans. Tilgangur og markmið félagsins er að kynna og halda uppi umræðu um miðjustefnu í stjórnmálum og afla þeirri stefnu fylgis meðal háskólafólks. Tilgangi sínum hyggst félagið ná með almennu félagsstarfi, fundum, samkomum og útgáfu.
Sjá heimasíðu félagsins á slóðinni: http://www.internet.is/samvinnufelagid
Reykjavíkurborg kemur í veg fyrir samkeppni í flugi
Á fundi bæjarráðs Fljótsdalshéraðs lagði oddviti Framsóknarflokks, Björn Ármann Ólafsson, fram eftirfarandi bókun sem var samþykkt samhljóða:
Bæjarráð Fljótsdalshéraðs mótmælir því harðlega að Reykjavíkurborg komi í veg fyrir samkeppni í innanlandsflugi með því að heimila ekki uppbyggingu á aðstöðu fyrir Iceland Express við Reykjavíkurflugvöll sem og byggingu samgöngumiðstöðvar við flugvöllinn er þjóni öllu landinu í samgöngum. Reykjavíkurborg er höfuðborg Íslands og sem slík gegnir hún mikilvægu þjónustu og öryggishlutverki fyrir alla landsmenn. Með þessari afstöðu teljum við að höfuðborgin sé að taka afstöðu gegn þeim borgurum sem búa lengst frá Reykjavík og þurfa að nýta sér flugsamgöngur til að sækja þjónustu til Reykjavíkur. Staða borgarinnar sem höfuðborg allra landsmanna verður því dregin í efa með þessari afstöðu borgarstjórnar.
Við skorum á borgarstjórn að endurskoða afstöðu sína og leyfa uppbyggingu við Reykjavíkurflugvöll sem tryggir samkeppni í innanlandsflugi þannig að þeir sem þurfa að fljúga innanlands njóti alltaf hagkvæmasta flugfargjalds til og frá Reykjavík.
Ályktun FUF Austurlandi vegna afsagnar Björns Inga Hrafnssonar
„Stjórn Eysteins, félags ungra Framsóknarmanna á Austurlandi, harmar þá ákvörðun Björns Inga Hrafnssonar að segja af sér sem borgarfulltrúi Framsóknarflokksins í Reykjavík.
Eysteinn þakkar Birni Inga vel unnin störf í borginni og vonar að hann haldi áfram að vinna sitt góða starf í þágu flokksins.
Stjórnin vonast til að þeir einstaklingar sem harðast hafa gengið fram gegn Birni Inga geri sér grein fyrir og axli ábyrgð á þeim skaða sem þeir hafa unnið Framsóknarflokknum á landsvísu.“

