Joð dagur - gleðilega hátíð

8. nóvember 2008 kl. 16.36 | 5 ummæli

Í gær var hinn langþráði Joð dagur í Danmörku. Joðið stendur fyrir jól. Vel að merkja í orðinu jólabjór. Fyrsta föstudag í nóvember á hverju ári kemur jólabjórinn á markaðinn. Margir bíða spenntir eftir snjóbæjaranum, sem er einn af jólabjórunum frá Tuborg. En þeir eru ekki einir um það að setja bjórinn sinn í hendur þyrstra neytenda á þessum degi, mörg önnur brugghús hafa á seinni árum fylgt þeim eftir og standa klárir, með kúta sína, kl. 20:59. Stundvíslega.

Ég var nú reyndar ekki mættur á eitt af öldurhúsunu í gærkvöldi, en það var sýnt beint frá því sjónvarpinu, já það fer mikið fyrir jólabjórnum í Danmörku.

Hinsvegar fór ég í morgun og keypti mér sixpakk af snjóbjór. Keypti líka volgar frikadellur og rúgbrauð, svona til að hafa eitthvað með þessu.

Bjórinn var frábær (svipaður og í fyrra) og það var góð tilfinning að sjá hann svona rauðgullinn í glasinu. En þetta er náttúrulega pilsner, þannig lagað séð, verður tiltölulega fljótt flatur og froðan er lítil sem engin.

En nú er hann kominn, með einni prósentu meira alkóhóli en venjulegi pilsnerinn sem danir drekka, 5,6% eða 20% meira áfengismagn. Þessvegna eru þeir svona rólegir danirnir í desember.

Gleðileg jól
Þorvaldur Flemming

Um þessar mundir standa Íslendingar í stórræðum á alþjóðavetfangi og heima fyrir.

 

Allt byrjaði þetta með uppblæstri í fjármálaheiminum, uppblæstri, sem fáir skyldu og enn færri gátu fært sér í nyt. Þjóðin stóð í miðju moldarrokinu og sá ekki út úr augum fyrir bjartsýnishjali og gylliboðum.

 

Það segir sig sjálft að framgangurinn var aðdáunarverður og ljóst að þar standa klókir menn að baki. Menn mæta ekki sofandi á stríðsvöll mammons og sleppa vel frá því.

 

Einsog nú er komið, verður þó að huga að því að danir og reyndar fleiri hafa dregið stöðugleika velferðar okkar í efa um nokkra hríð.

 

Á ögurstundu sprakk svo sjálfur forsætisráðherra Breta, Gordon Brown, einsog flasskubbur inn í rauðbólgin augu okkar hér á Fróni, með ótuktarskap og svívirðyngar í okkar garð. Með hryðjuverkalögin í annari hendinni hraðfrysti Gordon eignir og umsvif okkar íslendinga, með hinni.

 

Maður hlítur að spyrja sig að því hvort þróunin nú síðustu vikur hafi eitthvað að gera með sögulegar staðreyndir? Er verið að gera upp gömul stríð þessara þriggja þjóða, eða eru það persónulegir ávinningar sem eru í aðahlutverki?

 

Fyrst er sú staðreynd að danir stóðu hér fyrir allri verslun fyrir um tveimur öldum, á kostnað íslenskra vinnuþjarka, sem höfðu ekki bolmagn til að losa takið á þeim heljargreipum sem danir héldu þeim í.

 

Það tókst þó að lokum með sigri Íslendinga, sem seinna meir, lýstu yfir sjáfstæði. Að sögn sumra dana á meðan þeir sjálfir voru undir hæl þjóðverja í seinni heimstyrjöldinni.

 

Hér er kannski ástæðan fyrir því að danir hafa verið svolítið á neikvæðu hliðinni síðustu misserin yfir framgangi íslensku þjóðarinnar á alþjóðavetfangi.

 

Dönum er íllmögulegt að deila verslun með íslendingum og gera það sem í þeirra valdi stendur til að tala þá niður, þó án þess beint að beita valdi við aðgerðirnar.

 

Íslendingar eru ennþá litla þjóðin með stóru draumana og dugnaðinn og þorið til að færa þá út í lífið, stundum án þess að hugsa dæmið til enda. Líkt og barnið með nammipokann, sem kann sér ekki hóf og endar með kveisu.

 

Á meðan íslenski mörbóndinn þrælaði og danski kaupmaðurinn varð feitari stóðu danir í stórræðum í Kaupmanahöfn. Bretarnir réðust, með nýhönnuðum sprengjum á borgina og sprengdu hana í loft upp. Þetta var í byrjun september 1807 og um þriðjungur Kaupmannahafnar brann til kaldra kola.

 

Ástæðan var sú að Bretar, sem voru á barmi stríðs við hinn franska Napoleon, höfðu haft af því fréttir að Danir ætluðu að lána Napoleon flotann sinn, en Danir áttu einn mesta skipaflota í norður evrópu á þeim árum. Að hluta fjármagnaðann með tekjum frá verslun á Íslandi.

 

Þegar Bretar voru búnir að sprengja Kaupmannahöfn, tóku þeir með sér nokkra fanga aftur til Englands. Þar á meðal danskann æfintýramann að nafni Jörundur Jörundsson.

 

Á meðan Jörundur sat í tukhúsinu í Englandi fóru að mótast hjá honum áætlanir um eigin upphefð og frama. Ef ekki heima fyrir þá á annars staðar. Þegar honum loks var slept lausum, úr hóteli vatns og brauðs, tókst honum að véla með sér skipstjóra úr enska sjóhernum til atlögu á Íslandi, þar sem hann gerði hernám og varð konungur í 100 daga. Jörundur Hundagakonungur.

 

Hann keypti sig inn í hug og hjörtu nauðbegðra íslendinga með veisluhöldum, ódýrum belgvettlingum og neftóbaki og varð einhver vinsælasti konungur íslensku þjóðarinnar fyrr og síðar. Vinsældir sem hann ekki hafði heima fyrir. Ekkert frekar en Gordon Brown, sem berst í bökkum fyrir tilveru sinni, sem forystusauður bresku þjóðarinnar.

 

Danir hafa, eins og áður segir, verið pirraðir á brölti Íslendinga í fjármálaheiminum. Einna súrastir eru þeir þó yfir framgangi Íslendinga í verslunargeiranum í Danmörku. Hér hefur hvert heilagt vígið á fætur öðru fallið í hendur Íslenskra auðmanna. „Og svo leyfa þeir sér, Íslendingarnir, að ganga vel með þetta allt saman“.

 

Sem betur fer fyrir dani, sem eru með eindæmum góðhjartaðir, þegar á reynir, fór um uppblásturi íslendinga, einsog þátttöku danska landsliðsins í handbollta á Ólympíuleikunum, hann fauk út um þúfur. Nú gátu Danir teygt sig upp úr minnimáttarkendinni og boðið litla bróður aðstoð, með röggsemi þar að auki. Way to go, Anders Fogh.

 

Semsé, það er ástæða fyrir þvermóðsku dana í garð íslendinga, þegar umsvif og velgengni er annarsvegar, þeim er mein ílla við það að sitja á öðrum bekk þegar íslendingar eru á þeim fyrsta.

 

Ódrengilegheit Breta gætu skýrst af þeirri staðreynd að íslendingar stóðu uppi í hárinu á bretum í þorskastríðinu víðfræga. Þar voru bretar að reyna að berjast á litlu þjóðinni til að ná í auðævi, sem voru í eign annara. Skifti engu að Íslendingar klipptu þá út úr landhelginni, með sjaldséðri kænsku og sigruðu þarmeð þorskastríðið.

 

En sjást ör í særðu stolti breta yfir ósigrinum í þorskastríðinu fyrrnefnda, þarmeð töldum Gordon Brown.

 

Óvinsældir Gordons Brown á heimaslóðum eru ótvíræðar og ekki loku fyrir það skotið að hann hugsi út fyrir landsteinana einsog Jörundur forðum.

 

Gordon Brown er sumsé á höttunum eftir vinsældum og sá sér leik á borði. Annaðhvort að auka vinsældirnar heima fyrir eða hvar sem þær er að sækja. Hann er þó ekki eins kænn og ástkær fyrrverandi konungur vor hann Jörundur.

 

Gordon missteig sig svo hrapalega í fyrstu atrenu að fótbrót Jónasar hér um árið verður lítilfjörlegt í samlíkingunni. Spurningin er nú hvort Gordon kemur til Íslands með skip og menn og fer að selja belgvettlinga og tóbak eða hvort Anders Fogh sendir sérstaka kaupsýslumenn til Íslands til að stjórna verslun slorbóndans.

 

Það er allsendis óvíst, það gæti legið fyrir Gordon, einsog Jörundi, að tékka inn á hótel vatn og brauð, þó ekki væri nema tímabundið.

 

Íslendingar eru aftur komnir í ham og aldrei að vita nema fundnar verði upp nýjar klippur, í þetta skiftið fyrir fjármalamenn og pólitíkusa.

 

Hitt er víst, við Íslendingar stöndum saman og klárum okkur af þessu sem öðru, svo lengi sem við höfum fiskinn og álið. Já og kannski smá pening í hlutabréfakaup.

 

Þorvaldur Flemming

Farfuglar og furðufuglar

17. júní 2008 kl. 19.55 | 6 ummæli

Nú er sumar, þá eru margir sem fljúga heim eða heiman. Þessu finnur maður fyrir þegar maður býr í útlöndum. Ég á marga góða vini í Danmörku, líka íslenska, en tvö þeirra fljúga heim um þetta leyti ár hvert.

Þau eiga fyrir höndum heilt sumar í sumarhúsi í Úthlíð, með veiðitúrum, golfhringjum og grillveislum ad-libitum. Það sem ég er mest öfundsjúkur út í er útsýnið yfir jökla og fjöll, ár og læki, lyktin af lynginu, birkinu, mosanum.

Það verður eitthvað svo lítið úr jarðarberjunum og eplatrjánum mínum hér. Matjurtagarðurinn með Timian, Rósmarín, basilikum og myntu (nota það í Mohitos drykkina) verður eitthvað svo lítilfjörlegur við hliðina á þessu öllu.

Ég er ekki beint með heimþrá, en þegar maður les um góðviðri á 17. júní, Hemma og Svansí á Bylgjunni á laugardögum og stórsigur Breiðabliks á FH þá getur maður ekki annað en saknað gömlu Ísafoldar.

 Ég vona að sumarið verði gott hér í Danmörku, við eigum það skilið eftir herfilegt sumar í fyrra. En það er auðvitað erfitt að spá um það eins og annað ;)

Gleðilega þjóðhátíð
Þorvaldur Flemming

Vorið á næsta leiti…

25. febrúar 2008 kl. 15.55 | 5 ummæli

Já, það er vinalegt að koma heim nú þessa síðustu daga í febrúar og sjá fyrstu blómin brosa. Ég vona að við sleppum við “hvellinn” alræmda, sem oft hefur komið í febrúar, en hefur enn ekki látið sjá sig.

-->

Vel gert og skemmtilegt

18. febrúar 2008 kl. 12.31 | 3 ummæli

Ég verð eiginlega að taka mig saman og blogga aðeins eftir frábæra kvöldstund á miðvikudaginn var.

Þá fór ég á svo skemmtilega tónleika með honum Jóni Ólafssyni, stundum nefndum Góða. Hann kallar mig reyndar Þ.B. ég veit ekki afhverju, en hann er eini maðurinn sem gerir það, þannig að það hlýtur að vera flott…

Jón var frábær, það er svo gaman að upplifa menn sem kunn handbragðið óaðfinnanlega einsog hann. Tónleikarnir voru meira svona blanda af léttum vangaveltum, sögum af söngum og svo náttúrulega flutningur á nokkrum af lögunum hans. Stemningin var góð og afslöppuð, svona einsog þetta væri heima í stofu, en húsið var fullt af fólki. Frábært kvöld og takk fyrir það elsku kallinn. Þú ert bæði góður og skemmtilegur ;)

Þorvaldur Flemming

24. desember - Bredlund Rudolfs Jul

26. desember 2007 kl. 1.32 | 42 ummæli

Bredlund Rudolfs JulSíðasti í kassanum, það er ekki laust við að það hafi verið eftirsjá í því að taka síðasta bjórinn úr jólabjórdagatalinu mínu. Ég var mjög skeptískur þegar ég sá að bjórinn var frá Slagelse. Hinn bjórinn sem kom þaðan fór í vaskinn, mér fannst hann svo vondur.

Þessi var hinsvegar góður, mjög “plein” en samt stemning í honum. Ég drakk hann reyndar eftir matinn á eftir mjög góðu rauðvíni sem heitir “Dead Letter Office” Shiraz frá Ástralíu sem er æðislegt, en það er allt önnur saga.

Bjórinn var dökkgullinn og lævís. Hann lét ekki mikið yfir sér og leit út fyrir að vera “slappur” en kom sterkur inn í eftirbragðinu og vann á þegar leið á glasið… ágætis jólabjór með því sem á að vera en svosem ekkert meira en það.

Slagelse er aftur komið á kortið og ég ánægður með strákana!

Gleðileg jól og gott nýtt ár…
Þorvaldur Flemming

23. desember - Nibe Styrbord

23. desember 2007 kl. 20.28 | 2 ummæli

Nibe StyrbordAhh… það er svo dejligt að fá Stout svona þegar róin er farin að færast yfir hverfið. Jólatréð skreytt og allt tilbúið. Á morgun verður hangikjötið soðið og sett í kæli. Ég sótti kalkúninn í dag, 5 kílo, það verður væntanlega nóg í okkur, 2 fullorðnir og 2 börn, þar af eitt brjóstabarn ;)

Stoutinn frá Nibe er mjög góður, ekki endilega sá besti sem ég hef fengið, en þeir hafa líka verið góðir. Þétt froða og hann er svona fastur fyrir þessi bjór. Mjög dökkur og þó að þeir í Nibe vilji kalla hann Ale/Stout, þá er þetta klárlega Stout bjór en þó með meira bragð af humlum en malti. Hann er undir skoskum áhrifum og bruggaður á münchener- og karamellumalti. Það er líka í honum “reykmalt” og tvö dökkristuð mölt sem gefa þennan góða keim af reyk, kaffi og súkkulaði. Það má, ef vel er kjamsað, finna smá keim af ferskju og sítrus, en það er ekki nóg til að gera hann súrann.

Góður bjór og vel þessi virði að tegja sig eftir honum ;)
Þorvaldur Flemming

22. desember - Brøckhouse Julebryg

23. desember 2007 kl. 20.16 | 6 ummæli

Brøckhouse JulebrygFrábær, ég verða bara að slá því föstu strax. Þetta er einn af bestu bjórunum og er sennilega í topp 5.

Ég fékk bjór frá Brøckhouse þann 9. desember, það var ansi góður pilsner, en þessi er í allt öðrum klassa. Bruggaður á belgísku geri og fjórum tegundum af malti og hrásikri. Möltin eru pilsnermalt, hveitimalt, aromamalt og súkkulaðimalt. Djúpur og glæðandi fylltur með keim af súkkulaði.

Þetta er svona klausturbjór með öllu því sem tilheyrir jólunum, það má finna ilm af fíkjum, döðlum, negul og apríkosum í hinum.

Humlarnir eru Northern Brewer og East Kent Goldings sem gefur ilminn. Bjórinn er á tunnu í 3 mánuði en það má geyma hann í allt að 10 ár.

Skál
Þorvaldur Flemming

21. desember - Thisted Limfjordsporter

21. desember 2007 kl. 18.19 | 5 ummæli

Thisted LimfjordsporterVáá, talandi um malbik. Hér er mættur í öllu sínu veldi, Limfjordsporter frá Thisted. Það var einu sinni einn sem bauð mér upp á whiskey og sagði mér að það væri frábært, það bragðaðist svona einsog blanda af saltaðri síld og ösku. Það var rétt hjá honum, en ég var ekki nógu þroskaður þá til að kunna að meta það.

Bjórinn sem ég er að drekka núna er í svipaðri deild, þótt öllu mildari sé að sjálfsögðu. Fyrst lyktin, hún er svona einsog lyktin af brenndum lakkrís og kaffi. Þar að auki er svona reyktur keimur, svipað og var á Rauðarárstignum hjá reykhúsi sambandsins hér fyrir nokkrum árum, eða nokkuð mörgum árum öllu heldur.

Liturinn er bikasvartur, einsog malbik og froðan dökk og þétt einsog skýjin á snæfellsjökli þegar verst veðrar. Og á svipaðan hátt og hatturinn á jöklinum, hverfur froðan ekki heldur situr sem föstust og brosir með manni eftir fyrstu sopana.

Bragðið er blítt en samtímis kraftmikið. Byrjar einsog espresso kaffi, en það má finna greinilegt bragð af lakkrís og súkkulaði. Að síðustu, reykhúsið á Rauðarárstignum er ekki langt undan. Bragðið lifir lengi og breytist þá í “ristað og reyk”, sem passar mjög vel og kallar eiginlega á annan sopa.

Þessir er í topnum af þeim góðu og danirnir geta verið stoltir af honum… Way to go Thisted!

Ég reyndi að borða rúgbrauð með honum en það er einsog hann sé máltið bara einn og sér… ;) Ég læt nú samt fylgja hér létta uppskrift, þar sem “porterinn” spilar mikilvægt hlutverk og þetta passar kannski líka betur saman.

Heitar ostrur með Limfjordsporter (eða öðrum svipuðum)
20 ferskar ostrur
1 dl. porter
150 gr. smjör
150 gr. litlir vorlaukar og gulrætur
100 gr. spínat
Sítrónusafi, salt og pipar
Gott er að skreyta með laksahrognum og garðakerfli

Opnið ostrurnar og setjið þær í pott ásamt porternum. Hreinsið skeljarnar og geymið þær. Mýkið grænmetið (spínatið, laukana og gulræturnar) örlítið í sjóðandi vatni, bara örstutt.

Komið suðunni upp á ostrunum í porternum (þetta þarf að gerast hratt max ein mínúta, því ostrurnar meiga ekki sjóða í gegn). Takið ostrurnar úr pottinum gott er að síja safann og bjórinn sem eftir er áður en þetta er látið sjóða aðeins þangað til bætt er smjöri og bragðað til með sitrónusafanum, salti og pipar. Passið ykkur á saltinu!

Hitið ostrurskeljarnar og setjið spínat, lauk, gulrætur og ostrur í. Hellið sósunni yfir og berið fram á heitum diskum, skreytt með kerfli og laksahrognum.

Það er auðvitað engin spurning að það á að drekka Porter með þessu, en þeir sem eru á móti geta blandað honum 50/50 með kampavíni.

Velbekomme…
Þorvaldur Flemming

20. desember - Indslev Julehvede

20. desember 2007 kl. 21.57 | 3 ummæli

Indslev JulehvedeEinn en frá Indslev. Þeir glöggu muna að þann 4. desember var bjór frá Indslev sem var svona sítrónu og banana bjór. Þessi er hinsvegar mjög góður, jólabjór með stóru Joði. Þetta er ansi skemmtilegur bjór, sem fékk mörg fyrstu verðlaun á síðasta ári, sem Jólabjór ársins.

Bjórinn er mjög góður og er reyndar kallaður “Casanova jólabjóranna”, tælandim og fágaður. Þetta er bjór sem á upp á pallborðið hjá kvennfólkinu.

Bjórinn er svona rauðleytur og það er mikið maltbragð af honum. Það er bæði smá keimur af kanil og negul. Mikil fylling og gott jólabragð og lykt. Eiginlega bara góður jólabjór og hananú.

Þorvaldur Flemming

19. desember - Fanø Rav

20. desember 2007 kl. 11.57 | 1 ummæli

Fanø RavÞann 11. desember var líka bjór frá Fanø, ágætis bjór alveg og þessi er kannski heldur betri ef eitthvað er. Þetta er nýjasti bjórinn frá þeim á Fanø og er “undirgerjaður”, ekki sýjaður og því frekar mattur, en mikið og gott bragð. Ég var með smá julefrokost í gær og voru vinir og vandamenn í heimsókn. Bjórinn fór aldeilis vel með flæskesteg, frikadellum og leverpostej. Hérna er létt uppskrift að lambi, sem þeir mæla með Fanø menn.

1 léttsaltað lambalæri, úrbeinað og bundið
1,5 flaska af Fanø Rav bjór (eða öðrum góðum bjór)
4 dl. vatn
2 cm. kanilstöng
2 negulnaglar
3 hvítlauksgeirar
1 steinsejlubúnt
1 matskeið hvítur pipar

Piparrótarsósa
10 cm piparrót (fersk)
1/4 líter léttþeyttur rjómi
1/4 sítróna (safinn)
Hvítur pipar

Setjið lærið í pott, hyljið það með vatni og látið suðuna koma upp í rólegheitum, takið því næst lambið upp, hendið vatninu, þrífið pottin og setjið lambið í pottinn aftur. Nú setjið þið bjór, vatn, kanil, negulnagla, hvítlauk, steinselju og pipar í pottinn og sjóðið í u.þ.b. eina og hálfa klukkustund.

Rjómapiparrótarsósan
Blandið “heflaðri” piparrót í léttþeytta rjómann og bragðið til með sítrónusafanum og piparnum. Setjið sósuna í frysti og hrærið í öðru hvoru þangað til hún er svona létt frosin.

Gjöriði svo vel
Þorvaldur Flemming

18. desember - Clipper

18. desember 2007 kl. 18.43 | Rita ummæli

Clipper American Pale AleClipper American Pale Ale, já það er ekkert smá nafn. Þetta er enn einn Pale Ale bjórinn sem komið hefur úr silkipappírnum hér í desember. Mjög góður bjór, svon ljósgullinn en það er smá rauðleitur blær á honum, sem sennilega kemur frá teeinu sem sett er í hann. Hann er bragðbættur með Roibush tei sem hefur marga góða kosti og þykir með eindæmum heilsusamlegt.

Bjórinn er mjög góður einsog við er að búast af góðum Pale Ale. Bruggaður í Nibe og gera þeir þetta vel strákarnir ;)

Tea Time
Þorvaldur Flemming

17. desember - Merry Christmas

17. desember 2007 kl. 21.36 | Rita ummæli

Merry ChristmasNú fara að æsast leikar og hér er einn frá Hancock. 10. desember var líka frá þeim í Hancock brugghúsinu í Skive. Það einsog þeir séu aðalega að spá í þýskan markað, það er eitthvað svo mikið “Wunderbaum” yfir miðanum á flöskunum þeirra. Hinsvegar er ekkert að bjórnum og þessi er mjög góður. Ekki alveg jafn góður og Old Gambrinus, en góður. Hann er frekar ljósgullinn, freyðir ekki mikið en hefur góða fyllingu og gott bragð.

Þið munið að þeir nota bara SAAZ humla, sem eru ákveðin ávísun á góðan bjór, svona ef menn kunna að fara með þetta.

Skál
Þorvaldur Flemming

White ChristmasJá, nafnið er í sjálfu sér frábært. Það er ekki óalgengt að heita Fuglsang að eftirnafni hér í Danmörku. Það gerð gamall bjórhundur frá Haderslev í lok 19. aldar. Han hét Søren Christian Fuglsang og keypti gamlar byggingar til að setja á laggirnar bjórframleiðslu. Hann réði sér bruggmeistara en það kom svo í ljós að sá kunni ekki að brugga bjór.

Conrad, Sophus og Christian, synir þess gamla, redduðu málunum og fengu brugghúsið á réttan kjöl. Christian gamli dó árið 1905 en lét eftir sig brugghúsið og þennan hvíta snjó sem danir með vissu geta gengið að á hverjum jólum.

Bjórinn er í raun venjulegur pilsner, en hefur háa hvíta froðu og dökkan lit (af pilsner að vera). Það er smá hnetukeimur í bragðinu sem gerir hann bara enn jólalegri. Það er einsog hann minni aðeins á Ale.

Happy “White Christmas”
Þorvaldur Flemming

15. desember - Thy Eksklusive

17. desember 2007 kl. 21.18 | Rita ummæli

Thy EksklusiveEnn einn góður frá Thisted.

Þeir glöggu muna að ég sagði frá bjór þann 7. desember sem heitir Steinöl. Þessi er gerður eftir sömu aðferð og þeir fara vel með það. Þetta er nýr bjór sem var settur á markað í júní 2007. Snilldar bjór sem er svona rauðgullinn í glasinu en ekki mikil froða. Leikur við bragðlaukana án þess þó að vera sérstaklega krefjandi. Ég borðaði pizzu með þessum, en hann vill frekar eitthvað annað fannst mér.

Góður og um að gera að prófa hann
Þorvaldur Flemming

Bredlund Classic PilsnerÞessi bjór er frá Slagelse, brugghús sem var stofnað hér fyrir nokkrum árum síðan. Bjórinn er bruggaður á hina frægu Hallentauer humla.

Mér fannst hann ekki góður, það er mjög sterk og að sama skapi sérstök lykt af bjórnum.

Eftir 2 sopa hellti ég honum í vaskinn. Sorry Slagelse.

Þorvaldur Flemming 

13. desember - India Pale Ale

17. desember 2007 kl. 21.00 | Rita ummæli

India Pale AleÞetta var sérstakur dagur, ég drakk þennan öl með Heimi og Kollu í Bítið á Bylgjunni. Ég kom til Íslands þann 12. og það var einstaklega gaman að hitta fjöldskyldu og vini í góðu tómi, þótt marga hafi ég ekki náð að heimsækja. Börnin mín stóru, Hólmfríður og Guðmundur áttu nátturulega hug minn allan og það er gaman að sjá hvað þau dafna vel. Nú að bjórnum. Við smökkuðum hann í góðu tómi, Þráinn, sem er danskur innanhúsmeistari í tæknimálum var auðvitað með.

Þetta er góður bjór, gerður úr 5 mismunandi tegundum af humlum frá bæði Englandi og Ameríku. Biturleikinn sem er fágaður er settur í jafnvægi með 4 mismunandi malttegundum, þannig fara biturleiki, fylling og sætleiki saman hönd í hönd.

Frekar flókinn bjór, sem stendur einn og sér fyllilega fyrir sínu. En það gerir ekkert til að drekka hann með einhverjum sem manni þykir vænt um.

Þessi IPA kemur frá Skovlyst, sem er frábært brugghús í nágrenni Kaupmannahafnar, þeir tóku upp þessa bruggaðferð og unnu 1. verðlaun fyrir þenna bjór árið 2006. Það er vel þess virði að heimsækja þá ef þú ert á ferð hér í Danmörku.

Þorvaldur Flemming 

12. desember - Pale Ale

17. desember 2007 kl. 20.46 | Rita ummæli

Herslev Pale AleFölur, en góður. Þessi var drukkinn rétt eftir miðnætti aðfaranótt 12. desember, ég var á leiðinni til Íslands og þurfti auðvitað að fylgja jóladagatalinu.

Bjórinn er góður, svolítið í enskum stíl, enda bruggaður á enska byggi- og havramalti. Þótt hann sé kallaður pale, þá er hann gullinn á litinn og bragðast bara vel. Stendur vel einn og sér, en er líka góður með sterkum mat. Ekki drekka hann of kaldann, hann þarf að vera svona 10-12 gráður.

Þessi Pale Ale kemur fra Herslev, sem gerði líka kirsuberjabjórinn sem var þann 2. desember…

Skál
Þorvaldur Flemming

11. desember - Fanø Hvede

11. desember 2007 kl. 21.49 | Rita ummæli

Fanø HvedeHveiti bjór! Já, hann er næstum því mjólkurhvítur, ósíaður. Bruggaður á Fanø, aðalega úr hveitimalti gefur þennan skemtilega grugguga fíling.

Ég verð að segja fyrir mína parta að þetta er ágætis bjór, ekkert sérstakur og gleymist fljótt í hóp þeirra góðu sem undan hafa gengið.

Ég verð enfremur að byðjast velvirðingar á því að ég nú ætla að breggða undir mig betri fætinum og heimsækja vini og ættingja á Íslandi í nokkra daga, það þýðir að næstu bjórummæli verða ekki fyrr en á sunnudagskvöldið, hinsvegar verða þeir 5 þann góða dag ;) Við heyrumst.

Þorvaldur Flemming

Hancock Old Gambrinus DarkMmm… góður þessi. Mér finnst bjórarnir hafa verið svo góðir í bjórdagatalinu mínu, svona að mestu leyti allavega og þessvegna er maður alltaf viðbúinn því versta, en að sama skapi vona ég það besta.

Í dag var nálægt því að vera það besta, þó þessi bjór hafi nú ekki stokkið í 1. sætið. Bjórinn kom strax sterkur inn, dökkur bjór með svona hálfgerðri portvíns lykt. Bjórinn er mjög góður og er í toppnum af þeim 10 bjórum sem ég hef fengið hér í desember. Freyðir ekki mikið, en hann er rífandi sterkur, 9,5% og það þarf að passa sig. Ekki að skjótast í búðina á bílnum þegar maður er búinn með þennan.

Þeir í Skive, en þar er brugghúsið, segja að hægt sé að nota hann í staðinn fyrir rauðvín og ef hann er geymdur nógu lengi (nokkur ár) þá fari hann að líkjast portvíni.

Bjórinn er bruggaður á danskt malt og þeir nota aðeins eina tegund humla, hina heimsþekktu SAAZ humla frá Tékklandi.

Þetta gefur bjórnum dýpt og fyllingu, sem kemur brosi á vör jafnvel harðsvíraðra fílupúka.

Þetta byrjaði allt með A.P. Lorentzen í Nörregade 44 árið 1876 og hefur eiginlega gengið manna á milli þangað til að Friz E. Strange Nielsen Hancock keypti þetta allt saman. Hann lærði bruggkúnstina í Þýskalandi og hefur tekist vel til með þennan eðalbjór.

Danke schön,
Þorvaldur Flemming

9. desember - Brøckhouse Rød

9. desember 2007 kl. 19.46 | Rita ummæli

Brøckhouse RødRauður Brøckhouse, byrjaði eiginlega fyrir mörgum árum þegar verkfræðingurinn og it-sérfræðingurinn Allan Poulsen sat á bekk og horfði út yfir landslagið með venjulegan pilsner í hendinni. Hann hugsaði með sér að það ætti nú eiginlega að finnast bjór sem passaði við náttúru og fuglasöng, bjór sem gæti fengið hugann til að reyka í samlyndi við þetta allt saman.

Hann fór heim og byrjaði að þreifa fyrir sér með 40 lítra kút, útkoman er nú eitt af minnstu brugghúsum í Danmörku, sem framleiðir um hálfa milljón lítra af bjór á ári.

Bjórinn er góður, svona af pilsner að vera. Hann er mjög fallegur á litinn, rauðgyltur og fer einstaklega vel í glasi. Bragðið er heilsteypt eftirkeimurinn góður. Hann er bruggaður úr Münchener malti og hinum víðfræga Perlu humli frá suður Þýskalandi, gott samspil sem gefur bæði biturleika og sætan keim. Reglulega góður danskur pilsner.

Skál fyrir Allan,
Þorvaldur Flemming

8. desember - Ding Dong

8. desember 2007 kl. 19.50 | Rita ummæli

Ding DongÞað er sagt að hverju dönsku jólahlaðborði eigi að vera síld, snafs og Ding Dong. Ég hafði nú ekki heyrt um þennan bjór fyrr en í dag þegar ég opnaði þann 8. í röðinni. Kemur frá brugghúsi í Haderslev, sem var sett á laggirnar árið 1865. Bjórinn þótti í byrjun vera frekar slakur og brugghúsið var næstum farið á hausinn þarna á 19. öld. Svo tóku þeir sig saman í andlitinu og náðu sér á strik.

Fuglsang Julebryg, Ding Dong er sterkur, 7,7% en lætur nú samt ekki mikið yfir sér, hvorki í lit, froðu eða bragði. Mín fyrsta hugsun var Pilsner á sterum. Þetta er alveg ágætis bjór og fer örugglega vel í flesta. Ekkert voða bragðmikill, en hefur samt þennan jólakeim. Hann liggur á tunnum við 0 gráður í heilt ár sem gefur fyllinguna í bragðið. Sumir segja að hann sé bragðsterkur, en mér finnst það ekki. En það getur verið að ég sé litaður af hinum frábæra bjór gærdagsins eða kannski nafninu, getur klassa bjór heitið Ding Dong? Góður bjór, en ekki sá besti, langt frá því.

Þorvaldur Flemming

7. desember - Jule Stenøl

7. desember 2007 kl. 17.17 | 1 ummæli

Jule StenølJa hérna hér… lengi getur gott bestnað… það er alveg greinilegt. Ég er svolítið snemma í því með þennan en það er gott að þetta var byrjunin á góðu kvöldi (vonandi). Ég er nefnilega að fara í julefrokost, með heitri “liverpostej” með bacon og sveppum, flæskesteg og öllu tilheyrandi. Þegar ég opnaði þennan “pakka” þá var strax einsog taugar íslensku móður jarðar væru komnar í samband við mig. Bjór bruggaður og lagður á stein, hraunstein. Alger snilli.

Þessi bjór er frá einu af elstu brugghúsum Danmerkur, “Grand old man” einsog það stundum er kallað. Brugghúsið heitir Thisted Brugghús og var stofnað 1902. Bruggmeistarinn Peter Klemmesen, eða Klemmi einsog hann er kallaður á milli vina þykir snillingur í sínu fagi og fer ótroðnar slóðir. Bjórinn er yfirgerjaður og það tók Klemma 10 ár að finna rétta gerið í það. Svo er hann lagður á hraunsteina sem fyrst eru settir í hálfgerða jurtasúpu, sem er 800 gráðu heit. Við þetta myndast svona hálfgerð karamelluhúð á steinunum, sem svo eru settir í bjórtunnurnar og þar liggja þeir og bjórinn í 3 mánuði. Klemmi notar bresk ylmefni og bandaríska og evrópska humla.  Útkoman er með því besta sem ég hef smakkað í bjór. Hann er dökkur, en ekki eins svartur og bjórinn í gær. Það er klárlega smá karamellukeimur í honum og það er einsog votti fyrir negulkeim í honum. Bragðið er krefjandi og stendur vel og lengi fyrir sínu… einsog danirnir mundu segja, það á að njóta hans, ekki svolgra hann í sig. Mmmm….

Þorvaldur Flemming

6. desember - Blue Mountain Stout

6. desember 2007 kl. 20.52 | Rita ummæli

Jamaica Blue MountainSnilldarbjór, algert æði, en meira um það síðar. Ég fór nefnilega í Tívolí í dag, seinnipartinn. Maður verður að fara þangað í myrkri, það er svo mikið af fallegum jólaljósum og skreytingum. Ég ætlaði á skauta, en það var ekkert svell, sennilega of heitt þessa dagana í henni Köben. Ég fékk mér þó belgíska vöflu og heitt súkkulaði með rjóma.. mjög gott mál og í rauninni einstök upplifun, “because I’m worth it”

Svo kom ég heim og opnaði bjór númer 6 í bjórdagatalinu mínu. Það voru mikil gleðitíðindi, Stout, það er nú eitthvað fyrir mig. Þessi bjór er frá sama brugghúsi og bjórinn í gær, hann er kolsvartur, einsog kaffi enda gerður fyrir sælkera sem vilja aðeins það besta. Froðan er dökk og glæsileg og einstaklega bragðgóð, svona fyrir kaffikalla einsog mig. Bjórinn er bruggaður úr bestu hráefnum og svo er sett í hann 70% Callabaut súkkulaði frá Belgíu og rúsínan í pylsuendanum er Jamaica Blue Mountain kaffið, sem er eitt það fínasta (og að sama skapi dýrasta) í heimi. Fyrir menn sem kunna að meta Stout, þá er þetta með því besta sem ég hef prófað. Já, og þá er Guinnesinn á The Trafford In, meðtalinn. Takk fyrir það “min dejlige kvinde”.

Þorvaldur Flemming

5. desember - Frosty

5. desember 2007 kl. 23.30 | 2 ummæli

FrostyEftir leiðindaleik í Parken, þar sem FC Kaupmannahöfn tapaði 0-2 á móti Atletico Madrid, er gott að koma heim og opna bjór dagsins. Skemmtilegur bjór, já jólabjór. Bruggaður á því besta sem finnst í humlum í þýskalandi og svo bragðbætt með amerískum kryddhumlum. Sérstakt bragð og gott. Hann er léttur, ekki nema 5% en skilar sér vel og bragðið gott lengi á eftir. Góður danskur bjór frá Gourmet Bryggeriet. En 3. desember er nú samt bestur enn sem komið er. Skál.

Þorvaldur Flemming

4. desember - Svane Hvede

4. desember 2007 kl. 20.57 | Rita ummæli

Svane HvedeÞessi kom á óvart, og það ekkert sérstaklega skemmtilega. Svona í svipuðum stíl og þessi frá 2. des. Svane Hvede, gott nafn, en villir á sér. Alveg svakaleg froða og svona gullegur litur.. já ég veit hvað þú ert að hugsa en þetta kom nú svona beint úr flöskunni. Þetta er bjór með keim af cítrus og banönum. Kemur svona sterkur sýrður keimur og svo hverfur hann einsog dögg fyrir sólu. Ég var sem betur fer bara að borða spaghetti bolognes frá því í gær, þannig að það gerði svosem ekkert til, þannig lagað. Einhvernveginn hefur þeim tekist að koma 5,3% í þennan bjór án þess að ná almennilegri fyllingu í hann. En þetta er kannski bara spurning um smekk. Konunni minni fannst hann góður, en hún fékk nú bara einn sopa hjá mér, lítinn.

Nei, ég vona að þetta verði betra á morgun. Góða stundir

Þorvaldur Flemming

3. desember - Jule Bryg

4. desember 2007 kl. 20.49 | Rita ummæli

Jule Bryg frá Skovlyst3. desember og ég búinn með fyrstu 2 sem voru ekkert svakalegir, ef ég á að vera alveg hreinskilinn.

Þegar ég opnaði þann 3. þá brosti minn vel og lengi út í bæði. Hér var kominn Jule Bryg frá Bryggery Skovlyst. Þetta brugghús þekki ég vel, enda farið þangað nokkrum sinnum og sótt kút. Þeir eru úti í skógi, keyptu þetta hús fyrir nokkrum árum og eru nú á góðri leið með að “meika” það á danska bjórmarkaðnum.

Jule Bryg… já, hann leit vel út og ekki verri þegar hann kom í glasið. Svona líka ljómandi dökkgullinn, falleg froða og ylmurinn yndislegur. Þeir nota furugreinar þegar þeir brugga hann, til að fá svona skemmtilegan blæ á bragðið. Virkar vel. Það má finna keim af furu, jólakryddum og hnetum í honum. Þetta er í topnum af dönskum jólabjór, engin spurning. Skál.

Þorvaldur Flemming

2. desember - Høst bryg kirsebær

4. desember 2007 kl. 20.37 | Rita ummæli

Høst bryg kirsebærVá, þvílíkt. Þegar ég opnaði þennan, þá féllust mér alveg hendur. Kirsuberjabjór, ekki átti ég von á því. En það er nú kannski það sem er svo frábært við svona bjórjóladagatal, að maður á von á öllu og smakkar margt af því sem maður annars ekki “þorir” að kaupa.

Høst Bryg Kirsebær, frá Herslev Bryghus, var reyndar mjög góður, þannig lagað séð. Ég er nú mest fyrir dökku bjórana, þannig að þetta er ekki minn stíll, en engu að síður skemmtilegt innleg í jólabjóraflóruna, þótt þetta sé kannski ekki beint jólabjór.

Hann var mjög frískur, nálægt því að vera svona sýrður. Rauðleitur og flottur í glasinu og það er kannski það jólalegasta við hann.

Eftir að ég vandist honum, vann hann á, en ég held að mundi nú ekki kaupa hann oft, eða allavega ekki mikið af honum. Gæti verið flottur ís jökul kaldur á heitum sumardegi, ekki svona á myrku vetrarkvöldi… Hann er sterkur þessi, 7% og þessvegna varasamt að beisl’ann á miðjum degi. Allt er gott í hófi.

Þorvaldur Flemming

1. desember - Fanø Pilsner

4. desember 2007 kl. 20.27 | Rita ummæli

Fanø PilsnerÉg var orðinn verulega spenntur og hlakkaði til að opna fyrsta bjórinn. Honum var pakkað inn í silkipappír, engin smá flottheit.

Ég varð smá skúffaður, átti eiginlega von á einum af þessum stóru, kannski dökkum en allavega meira í jólabjórsdeildinni.

En þetta var þá Pilsner frá Fanø Bryghus. Fór vel í glasinu, léttur litur en góð froða og kom skemmtilega á óvart, svona af pilsner að vera. Skilur ekki eftir sig neitt sérstakt og gleymist næstum því jafn fljótt og maður drekkur hann. 4,6% alkóhól, þannig að þetta er ekki hættulegt, en þó nóg til þess.

Ég hlakka til á morgun, vona að það verði aðeins meira í það spunnið þá.

Þorvaldur Flemming

Kominn tími til að meta bjórinn

4. desember 2007 kl. 20.15 | Rita ummæli

Thorvldur FlemmingÉg fékk svo skemmtilegt jóladagatal í ár af konunni minni. Trékassi fullur af bjór. Já 24 stykki, pakkað inn hver í sínu lagi, svo fæ ég að opna einn á dag, en aðeins einn. Það skemmtilega er svo að það er nýr bjór á hverjum degi, ný tegund og mikill spenningur þegar ég sest við kvöldverðarborðið og opna pakkann.

Ég ákvað að deila þessu með ykkur elskurnar…

Þorvaldur Flemming


Vísir Fréttir Lífið Íþróttir Viðskipti Sjónvarp Útvarp Fréttablaðið
Blogg.Vísir.is Innskráning Nýskráning