50 Cent ætlar aldrei að hætta í músíkinni
/ / FM957
Rapparinn sem étur byssukúlur í morgunmat, 50 Cent, segist aldrei ætla að hætta í músíkinni og að hann muni alltaf vera viðriðinn hip-hop senuna, þrátt fyrir að hún breytist með hverju árinu sem líður.
,,Ég held að ég muni aldrei hætta. Ég reikna miklu frekar með því að ég dragi mig út úr sviðsljósinu og að ég verði aðal maðurinn bakvið tjöldin,” sagði rapparinn yfirlýsingaglaði. Rapparinn, sem heitir réttu nafni Curtis Jackson, hefur áhuga á að reyna fyrir sér á nýjum slóðum. Hann hefur áhuga á að leika í fleiri kvikmyndum og jafnvel reyna fyrir sér að skrifa heila kvikmynd.
SVIÐSLJÓSIÐ Á FM957. Í BOÐI ÓB BENSÍN.