Hver vill leiða inná leikinn FRAM - Selfoss mánudaginn 21.maí

16. maí 2012

Hæ hæ. Í næsta heimaleik FRAM í mfl. karla á móti Selfossi mánudaginn 21. maí klukkan 19.15 á Laugardalsvellinum býðst stelpunum í 7. flokki að leiða inná völlinn í byrjun leiks - ROSASKEMMTILEG UPPLIFUN :-)

Það eru alltaf 22 sem leiða inná í einu þannig að fyrstu 22 sem skrá sig hér á blogginu fá að leiða inná. Skrá endilega bæði ykkar nafn og stelpunnar ykkar sem vill fá að leiða inná.

Leikurinn hefst klukkan 19:15 og þær verða að vera komnar 30 mín fyrir leik í Frambúning, allavegana í hvítum stuttbuxum og bláum sokkum - þær sem ekki eiga FRAM treyju geta fengið lánaða. Nánari upplýsingar um hvar og hver tekur á móti verður síðan sent á foreldra í pósti / kynnt á blogginu.

kv. þjálfarar

Frí á æfingu á fimmtudaginn

15. maí 2012

Hæ hæ vegna frídags á fimmtudaginn verður frí á æfingu þann daginn.

kv. þjálfarar

Stelpufjör á sunnudaginn og foreldrafundur á mánudagskvöld

10. maí 2012

Hæ hæ. Við ætlum að vekja athygli á kvennafótboltanum í Grafarholtinu á sunnudaginn 13. maí í Ingunnarskóla - sama og gert var í Safamýri þann 1. maí síðastliðinn. Gaman er að segja frá því að afar vel var mætt þar og fjöldi stelpna hafa mætt á æfingar í Safamýri eftir það. Vonandi gerist það sama í Grafarholtinu :-)

Sjá kynningu:

Hengd verður upp auglýsing um skemmtunina í skólunum auk þess sem þar verður miðum dreift. Allir endilega að láta þetta berast um hverfið til foreldra og vinkvenna:-)    Þetta er hugsað fyrir 6., 7. og 8. fl kvk.

Hlökkum til að sjá ykkur sem flestar á sunnudaginn.

PS MINNUM SÍÐAN Á FORELDRAFUND Á MÁNUDAGSKVÖLDIÐ 14. MAÍ Í ÚLFARSÁRDAL FRÁ 20-21. VONANDI SJÁ SEM FLESTIR FORELDRAR SÉR FÆRT AÐ MÆTA. AÐ SJÁLFSÖGÐU FYRIR FORELDRA STELPNA Í GRAFARHOLTI OG NÝRRA STELPNA Í SAFAMÝRI :-)

Siggi, Biggi og Jóna

Um KFC mótið + foreldrafundur mánudaginn 14. maí

7. maí 2012

Hæ hæ snillingarnir okkar - þið stóðuð ykkur heldur betur frábærlega á mótinu á sunnudaginn :-)

Það var virkilega skemmtilegt að fá að fylgjast með ykkur í fyrsta mótinu þar sem þið voruð ykkur sjálfum, foreldrum og FRAM til mikils sóma. Nú er bara að halda áFRAM að mæta vel á æfingar og undirbúa sig frekar undir mót sumarsins. ÆFINGIN SKAPAR MEISTARANN :-)

Hér er að finna link á síðu með myndum frá mótinu - endilega kíkið á:
http://www.flickr.com/photos/kfc-fotbolti/sets/

Sjáumst spræk á æfingunni á morgun (þriðjudag 8. maí).

FORELDRAFUNDUR VERÐUR HALDINN Í FÉLAGSHEIMILI FRAM VIÐ NÝJA GERVIGRASIÐ Í ÚLFARSÁRDAL MÁNUDAGINN 14. MAÍ FRÁ KLUKKAN 20-21. VONANDI SJÁ SEM FLESTIR SÉR FÆRT AÐ MÆTA ÞVÍ UM MARGT SKEMMTILEGT VERÐUR AÐ RÆÐA S.S ÆFINGAR OG MÓT SUMARSINS OFL.

kv. Siggi og Jóna

KFC mót Víkings - liðin, leikjaplan ofl.

2. maí 2012

Hæ hæ. Þá erum við að fara í fyrsta mótið okkar á sunnudaginn og förum með B-lið og C-lið. Allar að mæta klæddar eftir veðri, með legghlífar og góða skó - þær sem eiga markmannshanska endilega að taka þá með sér. Gott að hafa með sér vatnbrúsa og kannski ávöxt á milli leikja og að sjálfsögðu verða FRAM treyjur fyrir þær sem þurfa. Mótsgjaldið er 2.000 kr á stelpu og skal greiðast við komu - liðsstjóri tekur við greiðslum ! Innifalið í mótsgjaldi er KFC verðlaunapeningur og að sjálfsögðu KFC kjúklingur ásamt gosdrykk eftir mótið. Að loknum síðasta leik skal liðið mæta til verðlaunaafhendingar og myndatöku við aðalinnganginn - og í beinu framhaldi að fara og fá sér KFC.

Við þurfum s.s. að fá 1 liðsstjóra fyrir hvort lið uppá að taka á móti greiðslum við komu, greiða á skrifstofunni og tryggja að stelpurnar séu á réttum stað á réttum tíma - bara gaman :-) Áhugasamir sendi okkur línu eða gefi sig fram við komu.

C-lið: Tanja, Elísa, Gabríella, Eydís, Guðrún Eva, Júlía, Viktoría, Guðrún Lilja.
Mæting er 11.15 fyrir framan aðalinnganginn í Víkina en fyrsti leikur er 11.45 og sá síðasti 13.45 (hver leikur er 12 mínútur).

Klukkan FRAM C-lið Völlur
11.45 - 11.57 Víkingur - FRAM 4
12.45 - 12.57 FRAM - Haukar 4
13.15 - 13.27 FH - FRAM 3
13.45 - 13.57 Fram - Selfoss 3

B-lið: Ísabella, Sara, Jóhanna, Andrea, Eva, Ronja, Sóldís og Matthildur.
Mæting er 13.30 fyrir framan aðalinnganginn í Víkina en fyrsti leikur er 14.00 og sá síðasti 16.00 (hver leikur er 12 mínútur).

Klukkan FRAM B-lið Völlur
14.00 - 14.12 FRAM - Fylkir 3
14.30 - 14.42 FH - FRAM 3
15.00 - 15.12 FRAM - Grótta 3
15.30 - 15.42 Víkingur - FRAM 3
16.00 - 16.12 FRAM - Keflavík 3

Ef það er einhver sem á eftir að ganga frá æfingagjöldum þarf að gera það fyrir sunnudaginn því eins og margoft hefur komið fram fá einungis þær stelpur sem greitt hafa æfingagjöld að taka þátt í mótum á vegum FRAM.

Bílastæða mál á sunnudaginn (frá forsvarsmönnum mótsins):
Bílastæði við Víkina eru því miður af skornum skammti en til þess að greiða fyrir umferð við mótssvæðið munum við stjórna umferðinni en bendum fólki einnig á að mæta tímanlega og leggja frekar á eftirtöldum stöðum:

Fossvogsskóli. Beygt niður Haðaland af Bústaðavegi, keyrt niður í botn þar sem beygt er til vinstri að Fossvogsskóla.
Fossvogsbrún. Beygt útaf í hringtorginu við Smiðjuveg.
Það tekur um 5 mínútur að ganga frá báðum þessum stöðum að Víkinni.

kv. Siggi og Jóna - sem hlakka mikið til sunnudagsins :-)

Varðandi næstu viku og um æfingaleikinn við Álftanes

29. apríl 2012

Hæ hæ.

1. Á þriðjudaginn verður frí á æfingu en það verður skemmtun í Safamýri frá kl 10-13 sem þið eruð allar velkomnar á - þetta er knattspyrnukynning FRAM fyrir stelpur fæddar 2002 - 2007. Vonast er til að stelpum fjölgi með þessu í fótboltanum hjá FRAM og svona skemmtun verður síðar haldin fyrir Grafarholtið (þá verður Safamýrastelpum að sjálfsögðu boðið uppeftir). Sjá kynningu:

2. Við Jóna vorum rosalega ánægð með ykkur í æfingaleiknum við Álftanes. Flestar ykkar voru þarna að spila sinn fyrsta æfingaleik og gaman var að fylgjast með ykkur. Nú styttist í KFC mótið hjá okkur (6. maí) og þessi var mjög góð æfing fyrir það mót - nauðsynlegt að kynnast spili og stöðum á vellinum. Nú er bara að halda áFRAM að mæta á allar æfingar, taka vel eftir og leggja sig ávallt alla FRAM :-)

kv. Siggi og Jóna

Liðin og mæting í æfingaleik við Álftanes á fimmtudagsæfingu 26.apríl

24. apríl 2012

Hæ hæ stelpur. Þá ætlum við að spila okkar fyrsta æfingaleik á gervigrasi og verður það góð æfing fyrir mót sumarsins auk þess sem þið fáið að kynnast stöðunum á vellinum betur. Við byrjum æfingaleikinn við Álftanes á slaginu 16.30 og er mæting hjá öllum stelpunum 16.10 á nýja gervigrasið okkar. Það verða FRAM treyjur á staðnum fyrir þær sem þurfa og viljum við biðja þær sem eiga markmannshanska endilega að taka þá með sér - að lokum að mæta klæddar eftir veðri :-)

lið 1 lið 2
Jóhanna Tanja
Sara Matthildur
María Guðrún Eva
Ronja Elísa
Sóldís Viktoría
Eva Kamilla
Andrea Guðrún Lilja
(Ísabella) Eydís

PS: þeir sem eiga eftir að greiða fyrir VÍS mótið endilega gerið það sem fyrst - sjá má reikningsupplýsingar neðar á blogginu !

kv. Siggi og Jóna

SKRÁNING í æfingaleik við Álftanes fimmtudaginn 26. apríl á æfingatíma

17. apríl 2012

Hæ hæ. Til stendur að spila æfingaleik við Álftanes á fimmtudagsæfingunni 26. apríl frá 16.30 - 17.30 á nýja gervigrasinu okkar. Viljum við biðja alla foreldra að láta vita SEM FYRST í athugasemdakerfinu hvort sína stelpa komist eða ekki svo við fáum fjöldann á hreint TÍMANLEGA. Við setjum síðan liðin hér inná bloggið er nær dregur og allir hafa látið vita.

PS. MINNUM SÍÐAN Á AÐ Í DAG ER SÍÐASTA INNIÆFINGIN, FRÍ ER Á SUMARDAGINN FYRSTA (FIMMTUDAGINN 19.APRÍL) OG SÍÐAN TAKA VIÐ ÚTIÆFINGAR Á GERVIGRASINU OKKAR NÝJA Á ÞRIÐJUDÖGUM (FYRST 24. APRÍL) KL 17.30 - 18.30 OG Á FIMMTUDÖGUM FRÁ 16.30 - 17.30.

AÐ LOKUM MINNUM VIÐ Á GREIÐSLU FYRIR VÍS MÓTIÐ - SJÁ BLOGGFÆRSLU HÉR FYRIR NEÐAN.

kv. þjálfarar

Mótsgjald á VÍS mótið (mót #2) - bankareikningur

12. apríl 2012

Komið þið sæl foreldrar,

sbr. afritið hér neðar úr pósti sem Siggi sendi í vikunni þarf að greiða staðfestingargjald vegna VÍS mótsins á næstu dögum (mótið verður þann 26. maí). Foreldraráðið er búið að stofna bankabók til að taka á móti mótsgjöldum sem greiða þarf vegna hverrar telpu.

Vinsamlegast millifærði 2.500 kr inn á 0535-14-400079 kt. 240279-4609 Í SÍÐASTA LAGI ÞANN 17. APRÍL. Til að hægt sé að halda utan um sjóðinn biðjum við ykkur um að passa að setja nafn stelpunnar og t.d. “mót2″ í skýringu og láta senda kvittun á netfangið: 0405fram@gmail.com

Bestu kveðjur frá foreldraráðinu,

Fríða, Óli og Stefán

3. Mótsgjöld. Greiða þarf mótsgjald í KFC mótið á staðnum en við þurfum að standa skil á staðfestingargjaldi fyrir VÍS mótið sem er 3.500 kr pr lið - við erum með 2 lið skráð til leiks svo þetta er samtals 7.000 (kemur ekki til frádráttar og þátttökugjald er síðan 2.000 kr á iðkanda). Eins og er eru eftirfarandi 16 stelpur skráðar í mótið: Ísabella, Sara, Jóhanna, Andrea, Eva, Ronja, Sóldís, Guðrún Lilja, Tanja, Elísa, Gabríella, Eydís, Guðrún Eva, Júlía, Matthildur og Viktoría. Því þarf hver um sig að greiða 450 kr í staðfestingargjald auk 2.000 kr í þátttökugjald. Ef einhver hefur gleymst eða á eftir að skrá látið mig endilega vita hér og á blogginu.

Óli (pabbi Elísu Öldu) í foreldrafélaginu ætlar að stofna reikning til að halda utanum greiðslur og munu reikningsupplýsingar verða sendar ykkur fljótlega og settar inná bloggið. Ég legg þá til að hver myndi greiða 2.500 kr samtals inná reikninginn því betra er að hafa smá afgang en að uppá vanti og þá gæti foreldrafélagið millifært í einu lagi. Ef einhver fór í fjáröflunina þá þarf að hafa samband við Daða uppá að ráðstafa hluta af þeim fjármunum.

Páskafrí !

28. mars 2012

Hæ hæ. Síðasta æfing fyrir páska er á morgun fimmtudag (29. mars) og verður frí frá æfingum 2. - 9. apríl. Fyrsta æfing eftir páska verður þriðjudaginn 10. apríl á sama tíma og vanalega.

Sendur verður póstur á foreldra og sett færsla hér á bloggið fljótlega um/eftir páska varðandi æfingar eftir að inniæfingum lýkur - síðasta inniæfingin verður þriðjudaginn 17. apríl.

Allar að borða vel af páskaeggjum yfir páskana - en endilega verið duglegar að æfa ykkur í fótbolta í fríinu. Þið getið t.d. fjölmennt saman útá fótboltavöll í skólunum :-)

Hafið það gott í páskafríinu.

kv. þjálfarar


Vísir Fréttir Lífið Íþróttir Viðskipti Sjónvarp Útvarp Fréttablaðið
Blogg.Vísir.is Innskráning Nýskráning