Svona gara menn ekki - nema einu sinni
- Fært af fridabjarna þann 20. mars 2010. Flokkað undir Óflokkað
- Rita ummæli »
Dæmi Íslands má ekki endurtaka Mikið er ég sammála Dominique Strauss-Kahn að svona bankakreppa megi ekki eiga sér stað aftur. Siðferði í stjórnmálum eða öllu heldur skortur á því, einkahagsmunir fárra teknir fram yfir heildina og geðþótta ákvarðanir varðandi regluverk um og stjórnun á peningamálum, eru aðferðir í stjórnun landa sem ber að varast öðru fremur. Því miður er Ísland ekki eina dæmið þar sem gallaðir stjórnarhættir skaða þegnana. Á vesturlöndum eru dæmin orðin fá nú til dags og það má örðu fremur þakka mikilli vinnu margra við að koma í regluverki um áðurnefnda stjórnarhætti. Margir kalla þetta bákn og finna því allt til foráttu. Þarna er ég að tala um ESB og það er viðurkennt að ef við hefðum verið komin þar inn, þá hefðu mál ekki náð að þróast ofan í það fen sem við sitjum nú í.
Leikfrelsi valdafólks er dýrt og við Íslendingar erum búin að fá nóg af slíkum reikningum undanfarna áratungi, þó nú hafi tekið steininn úr og það rækilega
Staðsetning og viðhald flugvéla ekki sama og her
- Fært af fridabjarna þann 18. mars 2010. Flokkað undir Óflokkað
- Rita ummæli »
Þingmenn Samfylkingarinnar vilja ECA Programs til Íslands Þegar fréttir eru sagðar er afar nauðsynlegt að rétt sé sagt frá og hlutir/tilgangur ekki túlkað up á nýtt. Fréttir undanfarið af einkaher á Íslandi haf fengið marga ti að klóra sér í höfðinu og jafnvel stökkva upp á nef sér. Það sanna í málinu er að einhver tiltekinn fjöldi flugvéla ætlaður í útleigu tilheræfinga víða um heim, mun ef af verður vera staðsettur á Miðnesheiði. Þar verður þær geymdar og þær munu fá þar viðhald. Sem sagt, störf fyrir fólk á Suðurnesjum sem er frábært. Engar heræfingar, engir hermenn eða neitt í þá veru. Stundum er tvískinnungurinn svo yfirþyrmandi, afsakið VG að það er bara hlæjilegt. Þetta eru atvinnutækifæri, og látið þau ekki sleppa.
Gott að eiga vini
- Fært af fridabjarna þann 18. mars 2010. Flokkað undir Stjórnmál
- Rita ummæli »
Litháar bjóðast til þess að deila ESB reynslu með Íslendingum Fagnaðarefni að lesa um Litháa og þeirra góða boð. Þeir eru svo sannarlega ekki búnir að gleyma stuðningsyfirlýsingunni frá okkar litlu þjóð, þegar mest á reyð fyrir þá. Sendi þeim hugheilar þakkir.
Íþróttaálfurinn mörgum hugleikinn
- Fært af fridabjarna þann 16. mars 2010. Flokkað undir Umræðan
- Rita ummæli »
Slapp frá mannræningjum og spurði um íþróttaálfinn Magnús Scheving hefur afar gott lag á því að ná til fólks, Hann var um tíma í skólanum hér á Hvammstanga og hann er eftirminnilegur fyrir ljúfa og jákvæða framkomu, brosið heillar fólk hvar sem er í heiminum, kurteysi heillar fólk hvar sem er í heiminum og það gerir virðing líka. Honum hefur tekist að nýta sína persónulegu hæfileika og áhugamál, tengja það vel saman og nær afar vel til barna. Allt of mikið af barnaefni snýst um hluti sem ekki eru uppbyggilegir, en þarna fer saman fróðleikur og einfalda hluti, endalaust fjör og skemmtun sem gerir börnin glöð. Þegar litli drengurinn slapp vildi hann hugsa um eitthvað sem gerði henn glaðann og það var Íþróttaálfurinn af öllu í veröldinnu, Íþróttaálfurinn sem eitt sinn bjó í litla þorpinu mínu Hvammstanga.
Selaskoðun af sjó var fyrst prófuð á Hvammstanga 2005
- Fært af fridabjarna þann 16. mars 2010. Flokkað undir Ferðalög
- Rita ummæli »
Bjóða ferðamönnum upp á selaskoðun Ég og maðurinn minn byrjuðum með svona rekstur 2005 og þá strax var ljóst að þetta virkaði fínt. Tjón og rekastarvandi í kjölfarið var til þess að okkar rekstur lagðist af 2007. Við keyptum þennan bát til Hvammstanga 2008 en fengum ekki þá fyrirgreiðslu sem þurft hefði. Nú taka þeir félagarnir Eðvald og Kjartan við keflinu og vonandi gengur þeim vel. Þessi viðskiptahugmynd er afburða góð og mun væntanlega ganga vel ef einhvert vit verður í rekstrarumhverfi á Íslandi á komandi árum.
Enn um ICESAVE
- Fært af fridabjarna þann 15. mars 2010. Flokkað undir Stjórnmál
- Rita ummæli »
Bretar og Hollendingar bíða eftir gagntilboði Íslendinga Bretar og Hollendingar biða eftir gagntilboði frá Íslendingum sem taki tillit til hagsmuna allra landanna. Nú er ekki minnst á hagsmuni stjórnarandstöðunar, hún búin að fá sína þjóðaratkvæðagreiðslu og ekki miklar líkur á meira verði hlaupið eftir þeirra dyntum. Nú er bara að klára pakkann og fara svo af fullum krafti í endurreysnina. Tími blaðurs og bulls er liðinn. Munið www.thjodareign.is
Klíkusamfélagið Ísland
- Fært af fridabjarna þann 12. mars 2010. Flokkað undir Stjórnmál
- 1 ummæli »
Danmarks Radio segir Indefence pólitísk samtök Glöggt er gestsaugað eins og vant er. Þarna segir Danskurinn nákvæmlega það sem við vitum sjálf, margir tala um en fáir viðurkenna að eigi við um þá sjálfa. Auðvitað eru Indefence pólitísk samtök og ekkert annað. Svo er sagt að Sigmundur Davíð hafi þvælst fyrir eins og hann hafi getað og það erum við búin að horfa á undanfarna mánuði. Þeir hafa reyndar gleymt að geta þess í Danaveldi að ráðherravaldið á Íslandi er viðlíka og var hjá þeim á 19. öld. Hefði það fylgt með þá hefði það skýrt einræðisvald Davíðs Oddssonar og annara ráðherra mjög vel.
Forsetinn skýtur sig í fótinn.
- Fært af fridabjarna þann 9. mars 2010. Flokkað undir Stjórnmál
- Rita ummæli »
Aðalhagfræðingur: Forseti Íslands skýtur sig í fótinn Það hefur sannast enn og aftur að það sem gengur vel í landann, þykir ekki lystugt í útlöndum. ÓRG talaði um að Norðurlandaþjóðirnar hafi brugðist og ekki komið okkur til aðstoðar eftir hrunið. Þetta var sagt í sigurvímunni eftir ICESAVE kosningarna um helgina. Nágrönnum okkar líkar ekki þessi gagnrýni og það er mjög skiljanlegt. Sannleikurinn er oft harður undir tönn, sérstaklega ef ekki er neitt smjör með honum. Norski hagfræðingurinn ber okkur sannleikann á köldu stálfati, þar liggur sannleikurinn harður og þurr, ósköp ólystugur en það er bara ekkert annað í boði og ekki einu sinni alvaldarnir í móunum eða á nesinu geta lengur breytt yrir hann, hvorki bræðing eða makarín. Smjör er ekki lengur í boði.
Edduverðlaunahátíðin beytt ádeila um leið og frábært efni er verðlaunað
- Fært af fridabjarna þann 27. febrúar 2010. Flokkað undir Menning og listir
- Rita ummæli »
Bjarnfreðarson kvikmynd ársins Edduverðlaunahátíðin í ár er haldin í skugga mikils niðurskurðar til greinarinnar bæði vegna minni framlaga til kvikmyndasjóðs og ekki síður vegna ákvarðana útvarpsstjóra að skera íslenska dagskrárgerð niður við trog. Baltasar Kormákur var frábær sem stjórnandi og sendi margar harðar athugasemdir til yfirvalda, án þess að vera með ókurteysi á nokkurn hátt.
Var að mestu sátt við veitingu verðlauna, utan þess að heimildarmynd ársins hefði á mínum dómi átt að vera Sólkskinsdrengurinn. Viðtökur myndarinnar erlendis eru með þeim hætti að þarna er afar athyglisverð mynd á ferðinni. Með fullri virðinu fyrir náttúru Íslands og öllu því, þá eru efnistök í Sólskinsdrengnum með þeim hætti að vakið hefur heimsathygli.
Ljósið í myrkrinu
- Fært af fridabjarna þann 26. febrúar 2010. Flokkað undir Óflokkað
- Rita ummæli »
Fær fingurkossa fyrir ljós á göngugrindinni Frábært að setja ljósið á göngugrindina og líka frábært að fara út að ganga. Góð hugmynd sem vert er að kynna betur.
Kona fædd 1945 búsett nærri Hvammstanga - gift og á 4 uppkomin börn og 8 barnabörn. Er mikill áhugamaður um þjóðmálin og pólitíkina. Flokksbundin í Samfylkingunni og eindregin Evrópusinni. Er að hanna og prjóna ásamt bónda mínum, pils á konur á öllum aldri. Hráefnið er íslenska ullin, nánar tiltekið léttlopi. Er mikil félagsvera.