des
20
Jólaréttir Rikku
20. desember 2009 kl. 23.03 | 5 ummæli
Í kvöld fékk ég til mín þrjá bráðskemmtilega gesti sem sýndu skemmtilega takta í eldhúsinu og bjuggu til ómótstæðilega rétti, hér fyrir neðan eru uppskriftirnar.
Njótið vel og eigið gleðilega jólahátið kæru lesendur.
Gói:
Kjötbollur í hátíðarbúning
600 g nautahakk
1 pakki Toro púrrulaukssúpa
handfylli af Ritz kexi
1 egg
olía til steikingar
1 ½ dl Heinz chili-sósa
1 ½ dl Den gamle Fabrik sólberjasulta með rommi
1 poki Holt & gott klettasalatt
1 ferskur ananas, afhýddur og skorinn í bita
1 askja kirsuberjatómatar, skornir í tvennt
Hitið ofninn að 180C. Setjið nautahakk, súpuna, kexið og eggið í skál og blandið vel saman með höndunum. Búið til bollur úr hakkblöndunni, steikið þær á pönnu og raðið í eldfast mót. Blandið chili-sósunni og sultunni saman og hellið yfir bollurnar. Veltið bollunum upp úr sósunni og bakið í ofninum í 25-30 mínútur.
Blandið salatinu saman við ananasinn og tómatana og berið fram með kjötbollunum.
Alexander Þór:
Súkkulaðidöðlubitar
200 g smjör
500 g döðlur, saxaðar
120 g púðursykur
150 g Rice Krispies
200 g Siríus Konsum suðusúkkulaði
3 msk matarolía
Bræðið smjörið í potti og bætið döðlunum og púðursykrinum saman við og hrærið saman þar til að döðlurnar mýkjast. Hellið Rice Krispies saman við og setjið í form. Setjið formið í frysti í 10 mínútur. Bræðið súkkulaðið yfir vatnsbaði og hellið matarolíunni saman við. Hellið yfir Rice Krispies blönduna og frystið í u.þ.b 30 mínútur. Skerið í bita og berið fram.
Kristján Jóhannsson:
Sjávarréttapasta
3 msk Ítalía ólífuolía
5 cm langur púrrulauksbiti, sneiddur
5 hvítlauksrif, söxuð
½ grænmetisteningur
1/3 hluti af grænum chili-aldin
1 poki risarækjur
1 gul paprika, fræhreinsuð og skorin í bita
1 tsk karrý
1 ½ msk kotasæla
1-1½ dl hvítvín
1 dós túnfiskur í vatni
30 g rifinn parmesanostur
1 pakki Barilla Tagliatelle
2 msk söxuð steinselja
Steikið púrrulaukinn, hvítlaukinn, grænmetisteninginn og chili-aldininn þar til að laukarnir eru mjúkir í gegn. Sjóðið pastað skv.leiðbeiningum. Bætiðrisarækjunum út á pönnuna ásamt paprika, karrý og kotasælu. Hellið þá hvítvíninu út í og hrærið túnfisknum saman við. Látið malla í 3-5 mínútur. Sigtið vatnið frá pastanu og setjið pastað aftur í pottinn. Hellið sósunni yfir ásamt parmesanostinum og steinseljunni og blandið vel saman. Berið strax fram.
jún
25
Osta- og beikonfylltur Tex Mex hamborgari
25. júní 2009 kl. 11.47 | 5 ummæli
Svakalega girnilegur og bragðgóður hamborgari sem svíkur engan mmmm … Mér finnst skemmtileg tilbreyting að setja ostinn og beikonið inn í hamborgarann. Endilega prófiði þessa uppskrift og njótið vel.
Léttir réttir Rikku eru svo komnir í sumarfrí. Ég vona að þið eigið yndislegt sumar.
Osta- og beikonfylltir Tex Mex hamborgarar með Guacamole
fyrir 4
- 200 g beikonsneiðar
- 800 g nautahakk
- 1 krukka Santa Maria Yellow tomato & chili salsa
- 1/2 bréf Santa Maria Fajita krydd
- 4 ostsneiðar
- 4 hamborgarabrauð
- 1 dós Santa Maria Guacamole
Raðið beikoninu á smjörpappírsklædda ofnplötu og bakið i ofninum við 200 C í 10-15 mínútur. Blandið nautahakkinu, tómatsósunni og Fajita kryddinu saman í matvinnsluvél. Búið til 8 þunna hamborgara og setjið ost og beikon á 4 þeirra. Leggið hina 4 ofan á og lokið vel. Grillið í 3-4 mínútur á hvorri hlið og berið fram með Guacamole og grænmeti í grilluðu hamborgarabrauði.
Hrásalat
- 1 poki Hollt & Gott heimilisblanda
- 1/2 dós sýrður rjómi 10%
- 2 msk majónes
- safi af 1/2 límónu
- 2 msk hlynsíróp
Hrærið öllu saman og geymið í kæli þar til það er notað.
Fallegu diskana fékk ég í DUKA, Kringlunni
Þess má geta að Carlsberg bjórinn er berður úr íslensku vatni, ekki slæmt það
Myndskeiðið má svo sjá hér
jún
18
Steikarsamloka með Bernaisesósu og karamelliseruðum rauðlauk
18. júní 2009 kl. 9.48 | 4 ummæli
Ég vona að þið afsakið hvað uppskriftin kom seint inn en það var vegna tæknilega örðugleika. Uppskrifitna af þessari æðislegu steikarsamloku með öllu og einfaldri Bernaisesósu er hér með komin. Njótið vel!
Steikarsamloka með Bernaisesósu og karamelliseruðum lauk
- 400 g nautafillet
- ½ krukka The Hot Spot Mesquite Smoke chili marínering
Setjið saman í poka og látið liggja við stofuhita i 40 mínútur. Grillið kjötið í 10 mínútur á hvorri hlið eða eftir smekk.
Karamelluseraður rauðlaukur
- 2 msk Ítalía ólífuolía
- 2 rauðlaukar, sneiddir
- 1 msk Ítalía balsamgljái
Steikið laukinn upp úr olíunni þar til laukirinn er orðinn mjúkur. Bætið balsamgljáanum út í og látið malla nokkra stund eða þar til laukurinn er notaður.
Bernaisesósa með fáfnisgrasi
- 6 eggjarauður
- 100 g smjörvi
- 1 kjúklingakraftsteningur
- ½ tsk bernaise essence (má sleppa)
- 1-2 msk fáfnisgras (esdragon)
Bræðið smjörið í potti. Blandið saman eggjarauðurnar, kjúklingakraftinn og bernaise essence og hellið smjörinu varlega saman við. Setjið fáfnisgrasið út í og blandið í 30 sek.
- Maísbrauð
- ólífuolía
- Lambhagasalat
- maískorn
- Ítalía grillaðar paprikur, saxaðar
Grillið þykkar maísbrauðsneiðar. Hellið örlítilli ólífuolíu yfir þær. Leggið salatblöðin ofan á ásamt maís, papriku og rauðlauknum. Skerið steikina í sneiðar og raðið ofan á og hellið sósunni yfir. Gott er að setja örlítið Maldons-salt yfir.
Rauðvínið heitir Gnarly head og er frá Kaliforníu, kom virkilega skemmtilega á óvart.
Fallegu diskana fékk ég í DUKA, Kringlunni
Myndskeiðið sjáið þið hér
jún
11
Tandoori kjúklingalundir í tortilla vefju
11. júní 2009 kl. 8.36 | 5 ummæli
Fæ nú bara vatn í munninn þegar ég hugsa um þennan rétt mmmmm…. Bráðhollur og bragðgóður.
Tandoori kjúklingalundir
fyrir 4
- 2 hvítlauksrif, pressuð
- 1 msk Garam Masala krydd
- 1 msk kanill
- 2 1/2 msk Rajah tandoori mauk
- safi af 1 sítrónu
- 3 dl létt AB-mjólk
- 1 1/2 msk agavesíróp
- 600 g kjúklingalundir
- 25 g saxaður ferskur kóríander, saxaður
Blandið saman hvítlauknum, kryddunum,sítrónusafanum, maukinu, AB-mjólkinni og sírópinu. Setjið kjúklingalundirnar út í og látið marinerast í amk. klukkustund. Þræðið lundirnar upp á pinna og grillið í u.þ.b. 5 mínútur á hvorri hlið. Stráið fersku kóriander yfir grillaðan kjúklinginn.
Mintusósa
- 1 dl létt AB-mjólk
- 1 dós sýrður rjómi 10%
- ½ lítil dós ananas, saxaður
- handylli af ferskri mintu söxuð
- pínu salt
Blandið öllu saman og kælið.
Meðlæti:
- Santa Maria heilhveiti tortillur
- 1 dós hreinn fetaostur
- 1 askja kirsuberjatómatar, skornir í bita
- 1 askja Lambhaga eikarlauf
Vefjið grillaðri kjúklingalund ásamt sósu grænmeti og fetaosti inn í hverja tortillu fyrir sig og berið fram.
Kostaður á mann er 915 krónur.
Næringargildi:
- Kkal: 618
- Prótín: 58,1g eða 116% af RDA
- Fita: 25,3 g eða 38% af RDA
- Kolvetni: 43 g eða 14% af RDA
- Trefjar: 3,5 g eða 15% af RDA
- C-vítamín: 14,3 mg eða 19% af RDA
- Kalk: 683 mg eða 85% af RDA
- Fosfór: 900 mg eða 150% af RDA
- Kalíum: 1270 mg eða 41% af RDA
Með kjúklingnum vorum við svo með æðislega góðan drykk sem Ívar Guðmunds og Arnar Grant heilsugúru voru með. Hann inniheldur mikið af góðu prótíni, engan hvítan sykur, lítið kolvetni og enga fitu… er hægt að biðja um meira?
Hér er uppskriftin af honum:
Hámarksheilsa:
fyrir 4
- 1 l af vanillu Hámarki, má líka vera súkkulaði eða jarðarberja
- klakar
- 1 pera
- handfylli af ferskum jarðarberjum
- 1 banani
Blandið öllu vel saman í blandara og drekkið
jún
9
Suðrænn þorskur
9. júní 2009 kl. 18.03 | Rita ummæli
Mér finnst þorskur alveg frábært hráefni sé rétt farið með hann og oftar en ekki er hann miklu betri en ýsan góða. Hérna er einföld og holl uppskrift sem tilvalið er að setja á grillið líka. Njótið vel.
Suðrænn þorskur
fyrir 4
- 3 hvítlauksrif
- chili-flögur (krydd) á hnífsoddi
- 1 msk fersk steinselja
- 4 msk ólífuolía
- 5 sólþurrkaðir tómatar, saxaðir
- 1 rósmaríngrein, smátt söxuð (takið greinina frá)
- 800 g roðlaus þorskur, skorinn í bita
- 2 sítrónur, skornar í þunnar sneiðar
Búið til marineringu með því að setja hvítlaukinn, chili-flögurnar, steinseljuna og ólífuolíuna í matvinnsluvél og vinnið vel saman. Setjið yfir fiskinn ásamt tómötunum og rósmaríninu og látið liggja í a.m.k klukkustund, helst allt að 4 klukkustundum. Setjið þorskinn í eldfast mót og raðið sítrónusneiðunum yfir. Bakið við 200 C í 10 mínútur.

Matgæðingurinn Friðrika Hjördís Geirsdóttir lærði matreiðslu í London fyrir tíu árum. Hún hefur síðan unnið sem blaðamaður á Gestgjafanum verið einn af þáttastjórnendum Íslands í dag auk þess sem hún ritstýrði matartímaritinu Bistró.