Færslur september 2007

Stríðssaga úr samtímanum

24. september 2007

Sasa Stanisic: Hermaður gerir við grammófón
Þýðandi: Bjarni Jónsson
Útgefandi: Veröld  Hermaður gerir við grammófón er ein af þeim þýsku skáldsögum sem komu út í kringum Bókmenntahátíð. Það hefur minna borið á Stanisic en kollega hans Daniel Kehlmann sem ég talaði um í síðustu viku, en mig grunar að þessi skáldsaga verði mér minnisstæðari en Mæling heimsins. [...]

Siðmennt á hálum ís

21. september 2007

Mér brá illa við fréttir af því að Siðmennt ætli að gangast fyrir veraldlegri hjónavígslu í Fríkirkjunni. Það held ég sé afleit hugmynd. Ég kann varla við að skrifa um þetta blogg þar sem þetta snertir auðvitað fyrst og fremst tvo einstaklinga sem ég þekki ekki neitt. En gagnrýninni er ekki beint að þeim heldur [...]

Of andstæðir pólar?

17. september 2007

Daniel Kehlmann: Mæling heimsins.
Þýðandi: Elísa Björg Þorsteinsdóttir
Útgefandi: Bjartur
Ungir þýskir höfundar voru áberandi á nýafstaðinni Bókmenntahátíð og nú eru komnar út á íslensku skáldsögur eftir þrjá unga Þjóðverja;  Sasa Stanisic, Robert Löhr og Daniel Kehlmann. Skáldsaga þess síðastnefnda, Mæling heimsins, er víst mest selda þýska skáldsagan í mörg ár og næstmest selda skáldsaga í heiminum á [...]

Bloggað um bullið í Páli Baldvin

12. september 2007

 Tyllidagar og talið um tilgang textans Alveg er hún ótrúlega römm fýlan sem gýs upp af leiðara Fréttablaðsins í dag. Þar skrifar Páll Baldvin Baldvinsson undir fyrirsögninni „Tyllidagar og talið um tilgang textans“ (ofstuðlunin í titli þessarar færslu er auðvitað til höfuðs Páli).
Ef marka má Pál Baldvin er Bókmenntahátíð í Reykjavík annars vegar snobbsamkoma fyrir [...]

Ein af þessum fáu

10. september 2007

Morten Ramsland: Hundshaus
Þýðandi Kristín Eiríksdóttir
Útgefandi: Mál og menning

Danskar sagnabókmenntir eru í fínu formi þessa dagana.  Á síðustu árum hafa aftur farið að streyma frá Danmörku meiriháttar raunsæisskáldsögur og persónulega fannst mér alveg kominn tími til. Þetta tengist því auðvitað að á öllum Norðurlöndunum er í gangi einhverskonar endurreisn fjölskyldusögunnar – nýlega sá ég kollega minn [...]


Vísir Fréttir Lífið Íþróttir Viðskipti Vefmiðlar
Blogg.Vísir.is Innskráning Nýskráning