Færslur október 2007

„Ég er ritdómur“ - Um háttatal Eiríks Arnar

29. október 2007

 
Eiríkur Örn Norðdahl:Þjónn það er fönix í öskubakkanum mínum!
Útgefandi: Nýhil
 
Ég velti því oft fyrir mér upphátt  hvað sé ljóð. Þetta finnst mér skemmtileg æfing og nauðsynleg, en fæ stundum á tilfinninguna að þeir sem þurfa að hlusta á mig – yfirleitt háskólastúdentar sem ekkert hafa til saka unnið, hafi takmarkað gaman af, eða finnist spurningin [...]

Kynslóðavillt aðalpersóna

22. október 2007

Árni Þórarinsson: Dauði trúðsins
Útgefandi: JPV
Dauði trúðsins er fimmta glæpasaga Árna Þórarinssonar um blaðamanninn Einar, sem hefur einstakt nef fyrir því að þefa uppi glæpi og flækjast í þá með einum eða öðrum hætti. Í síðustu bók, Tíma nornarinnar, flutti Einar til Akureyrar. Þar starfar hann enn í útibúi „Síðdegisblaðsins“ ásamt tveimur öðrum. Rétt [...]

Of lítill feminismi

15. október 2007

Jón Björnsson: Fyrsti vestur-íslenski  feministinn. Þættir úr baráttusögu Margrétar J. Benedictsson.
Útgefandi : Hólar
Titillinn, Fyrsti vestur-íslenski feministinn, vekur óneitanlega forvitni.  Bæði vegna þess að saga Íslendinga í vesturheimi vekur alltaf forvitni manns, en ekki síður vegna þess að hér eru tengdir saman hlutir sem margir halda kannski að séu lítt skyldir, Vestur-Íslendingar og femínismi. Oft og [...]

Fjöllin hafa vakað

8. október 2007

Sigurlín Bjarney Gísladóttir: Fjallvegir í Reykjavík
Útgefandi: Nykur
 
 
Fyrsta bók Sigurlínar Bjarneyjar Gísladóttur, Fjallvegir í Reykjavík, lætur ekki mikið yfir sér. Þetta er lítið kver, 20 prósaljóð sem fæst ná einni síðu að lengd. Kápan er í svarthvítu, einföld samsett ljósmynda af húsum í Reykjavík með Keili í yfirstærð í baksýn. Þetta er ekki bók sem kemur [...]

Örlagadagur í Dómkirkjunni

1. október 2007

Nicola Lecca: Hótel Borg
Þýðandi: Paolo Maria Turchi
Útgefandi: Bjartur
 
Skáldsaga Nicola Lecca getur orkað nokkuð ruglandi á lesandann. Stíllinn er einfaldur og blátt áfram. Í upphafi er hann meira að segja svo einfaldur að hann minnir mest á barnabók. Samt er þetta saga sem reynir að takast á við stórar spurningar um lífið og listina, en hún [...]


Vísir Fréttir Lífið Íþróttir Viðskipti Vefmiðlar
Blogg.Vísir.is Innskráning Nýskráning