Jólabókaflóði lokið…

… en gagnrýni í þeim ágæta þætti Íslandi í dag er ekki allri lokið. Víðsjá, Bókmenntavefurinn og Kistan halda líka áfram að dæma bækur eins og þeirra er von og vísa og Kiljan heldur áfram. Þá er bara að vona að dagblöðin geymi ekki dóma um útgáfu næstu níu mánaða fram á haustið eins og stundum hefur borið við. Þá getum við öll hætt að nöldra yfir því hvað flóðið er stutt og hektískt og haldið áfram að tala um bækur.

Um sjöleytið í kvöld verður talað um Öll trixin í bókinni og Tilvistarstefnan er mannhyggja. Önnur bókin er eftir John Paul Sartre, hin eftir Arnar Eggert Thoroddsen. Önnur þeirra hefur orðið mér minnistæðari en hin.

Rita ummæli


Vísir Fréttir Lífið Íþróttir Viðskipti Vefmiðlar
Blogg.Vísir.is Innskráning Nýskráning