Peningahagkerfið yfirgefið

Peningahagkerfið yfirgefið 

Erlend Loe: Maður og elgurÞýðandi Hjalti Rögnvaldsson

Útgefandi: Bjartur

Erlend Loe er meðal þekktari rithöfunda Norðmanna, hann sló í gegn með skáldsögunni  Naív super! sem kom út undir titlinum Ofurnæfur í þýðingu Þórarins Eldjárns árið 2000. Í þeirri bók er lýst tilveru ungs manns sem bindur ekki bagga sína sömu hnútum og samferðamenn sínir. Og það sama á við um aðrar sögur Loes, a.m.k. þær sem ég þekki til, söguhetjur hans skera sig úr, neita að falla á sjálfsagðan hátt í inn í það þjóðfélag, stétt og stöðu sem þeir tilheyra.

 Aðalpersóna Manns og Elgs, Doppler, er slíkur maður, en það hefur hann ekki alltaf verið. Fram undir frásagnartíma bókarinnar var hann virðulegur maður í virðulegu starfi, átti hús sem hann var að gera upp, góða konu og tvö efnileg börn. Hann var eins og hann segir margoft sjálfur, góður í öllu: góður í skóla, góður starfskraftur, góður eiginmaður, góður faðir. Hann var  norskur úthverfabúi eftir sömu uppskrift og úthverfabúar af millistétt hvar sem er í hinum vestræna heimi. En þegar faðir hans deyr snýr hann baki við þessu öllu og leggst út, sest að í tjaldi  í skógi skammt frá heimili sínu og gerist safnari og veiðimaður. Hann segir sig úr lögum við samfélagið, en þó kannski fyrst og fremst peningahagkerfið. Hann lifir á því sem landið gefur, snemma í sögunni veiðir hann elgskú og kjötið af henni heldur í honum lífinu.  Elgskjötið notar hann líka í vöruskipti við verslunina í hverfinu til að afla sér mjólkur, öðru sem hann þarf til að lifa af í skóginum stelur hann án minnsta samviskubits. Drápið á elgskúnni hefur raunar fleiri afleiðingar, því kálfurinn sem fylgir henni, og Doppler nefnir Bongo, verður mjög hændur að honum og fylgir honum sem félagi og burðardýr. Lengi una þeir tveir í skóginum, en seinna bætist fjögurra ára gamall sonur Dopplers í hópinn auk þess sem fleiri fara að dæmi hans og leggjast út í skóginum.

Það mætti segja margt um þessa bók og tengsl hennar við eldri og yngri bókmenntir, hún vísar opinskátt til höfunda sem boðað hafa afturhvarf til náttúrunnar allt frá því á 18. öld, en er líka hluti af norrænni hefð sem daninn Jens Anderson hefur kallað animalisma og má sjá í skáldverkum jafn ólíkra höfunda og Aksel Sandemose og Gunnars Gunnarssonar, Aðventa kom t.d.  nokkrum sinnum upp í hugann við lestur Manns og elgs. Freistandi er líka að lesa bókina í samhengi við maskúlínisma margskonar sem var í tísku á níunda áratugnum þar sem karlmenn fóru í hópum út í skóg innblásnir af ritum Robert Bly, föðmuðu tré og reyndu að finna villimanninn innra með sér sem siðmenningin hafði að sögn kúgað og bælt. Vísanir til barnaefnis, allt frá Stubbunum til Bróður míns ljónshjarta eru líka mýmargrar, en það hefði á köflum mátt vanda aðeins betur þýðinguna á setningum sem tengjast því.

 

Saga eins og Maður og elgur, um mann sem afneitar öllum skyldum sínum til að leita að raunverulegum gildum og sannleika úti í hinni villtu náttúru setur nútímalesanda í svolítið flókna stöðu. Á maður að taka Doppler á orðinu og líta svo á að gagnrýni hans á samtíma sinn og þau svör sem hann finnur í rómantíkinni séu einlæg skoðun hans og sögumanns? Augljóslega er svo um margt, og raunar fremur auðvelt að taka undir reiðilestur Dopplers um margt í norskri og evrópskri menningu. Eða á maður að lesa bókina írónískt og líta svo á að í Doppler birtist sjálfumgleði og eigingirni hins frelsaða sem gefur skít í fjölskyldu og umhverfi fyrir málstaðinn? Hvort tveggja er mögulegt þótt ég hallist að fyrri kostinum. En á næst síðustu síðu bókarinnar stendur „To be continued“ þannig að það er kannski of snemmt að segja af eða á. Á síðustu síðunni stendur síðan „Inshallah“. Ekki dregur það úr tvíræðninni.

 

 

Ein ummæli við “ Peningahagkerfið yfirgefið ”

  1. hugarfro.com:

    [...] Þessi bók sem hér er gagnrýnd hljómar alveg yndislega í eyrum mínum. Minnir óneitanlega mikð á bókina Ár hérans eftir Arto Paasilinna, sem er auðvitað snilldarverk út í eitt. Þessi bók verður allavega sett á listann yfir bækur sem ég stefni á að lesa. [...]

Rita ummæli


Vísir Fréttir Lífið Íþróttir Viðskipti Vefmiðlar
Blogg.Vísir.is Innskráning Nýskráning