Færslur ‘Menning og listir’ flokksins

Peningahagkerfið yfirgefið

4. febrúar 2008

Peningahagkerfið yfirgefið 
Erlend Loe: Maður og elgurÞýðandi Hjalti Rögnvaldsson
Útgefandi: Bjartur

Erlend Loe er meðal þekktari rithöfunda Norðmanna, hann sló í gegn með skáldsögunni  Naív super! sem kom út undir titlinum Ofurnæfur í þýðingu Þórarins Eldjárns árið 2000. Í þeirri bók er lýst tilveru ungs manns sem bindur ekki bagga sína sömu hnútum og samferðamenn sínir. Og það [...]

Umboðsmaður Íslands temur úfinn jaðarhund

7. janúar 2008

Viðtalsbækur, bækur skrifaðar af blaðamanni með segulbandstæki eða minniskubb sem síðan eru lagðar í munn viðmælandanum í fyrstu persónu, eru alls ekki íslenskt fyrirbæri. Ég held samt að á níunda og tíunda áratugnum hafi slíkar bækur tekið meira pláss í íslensku bókmenntalífi en víðast hvar annars staðar.  Enn koma slíkar bækur út og einstaka sinnum [...]

Jólabókaflóði lokið…

7. janúar 2008

… en gagnrýni í þeim ágæta þætti Íslandi í dag er ekki allri lokið. Víðsjá, Bókmenntavefurinn og Kistan halda líka áfram að dæma bækur eins og þeirra er von og vísa og Kiljan heldur áfram. Þá er bara að vona að dagblöðin geymi ekki dóma um útgáfu næstu níu mánaða fram á haustið eins og stundum [...]

Arfur og ávöxtun

17. desember 2007

Gerður Kristný: Höggstaður
Útgefandi: Mál og menning
Gerður Kristný hefur fyrir löngu sýnt að hún hefur betri tök á formi nútcímaljóðsins en flest önnur núlifandi skáld. Hún hefur ávaxtað arf atómskáldanna og sporgöngumanna þeirra vel: ljóð hennar eru fáguð og markviss og líkt og hjá sumum helstu forkólfum módernismans skiptir myndmálið öllu máli. Oft eru ljóðin borin [...]

Sköpunarsögur skálda

10. desember 2007

Pétur Blöndal: Sköpunarsögur
Útgefandi: Mál og menning
Kaffiborðabækur eru bækur sem fólk les sjaldnast, heldur flettir. Þær eru glæsilegar í útliti en textinn kallar  ekki of freklega á athygli þess sem les.  Við fyrstu sýn fannst mér Sköpunarsögur Péturs Blöndals líta út eins og dæmigerð kaffiborðabók. Ástæða þessarar fordómafullu tilfinningar andspænis bókinni var sú, þótt skömm sé [...]

Ný veisla í farángrinum

6. desember 2007

Sigurður Pálsson: Minnisbók
Útgefandi JPV
 
Sigurður Pálsson er eitt af meiriháttar ljóðskáldum tuttugustu aldar. Og ekki nóg með það – ég held að í hugum mjög margra sé Sigurður holdgervingur „skáldsins“ sjálfs. Sem slíkur er hann órjúfanlegur hluti af miðbæ Reykjavíkur ekki síður en íslensku menningarlífi og ætti eiginlega að setja hann á heimsminjaskrá. En þetta hefur [...]

Misheppnaðar tilnefningar

6. desember 2007

 Tilnefningar til Íslensku bókmenntaverðlaunanna liggja fyrir Fyrirsögnin er náttúrulega tómt blöff. Ég ætla ekki að tuða út af tilnefningum til bókmenntaverðlauna þótt mínir listar séu býsna ólíkir þeim sem kynntir voru í gær. Það verða aldrei allir sammála um þessa lista, ekki einu sinni þeir sem búa þá til. Þess vegna er ósanngjarnt að ráðast [...]

Skáldleg frásögn – hefðbundin fræði

3. desember 2007

Pétur Gunnarsson: ÞÞ í fátækralandi
Útgefandi: JPV
 
Ætli lífshlaup nokkurs Íslendings fyrr eða síðar sé jafn vel skrásett og líf Þórbergs Þórðarsonar? Sjálfur skrifaði hann mörg af merkustu sjálfsævisögulegu verkum tuttugustu aldarinnar, fyrst í Bréfi til Láru, Ofvitanum og Íslenskum aðli og síðar í Suðursveitarkrónikunni. Og það má vel halda því fram að allt sem Þórbergur skrifaði [...]

Karl í goðsögulegri kreppu

29. nóvember 2007

 
Valur Gunnarsson: Konungur norðursins.
Útgefandi: Mál og menning.
Karlar hafa verið í sífelldri kreppu í norrænum og íslenskum skáldsögum síðustu áratuga. Og hafi norrænir skáldsagnakarlar almennt verið í kreppu er ekki ofsagt að finnskir karlar hafi verið allra karla krepptastir.  Skemmst er að minnast skáldsögu Kari Hotakainen, Skotgrafarvegur sem hlaut Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs árið 2004. Konungur norðursins, fyrsta [...]

Harmrænt hjólhýsalíf

26. nóvember 2007

Gyrðir Elíasson: Sandárbókin
Útgefandi: Uppheimar
Í nýjustu skáldsögu Gyrðis Elíassonar, Sandárbókinni, gerast engir stóratburðir. Þar segir fullorðinn listmálari frá nokkrum mánuðum í lífi sínu. Hann hefur sest að í tveimur aflóga hjólhýsum, annað þjónar sem vinnustofa, en í hinu býr hann sér heimili. Hjólhýsin standa í hjólhýsahverfi innan um ný og glæsileg hjólhýsi annarra gesta. Málarinn er [...]


Vísir Fréttir Lífið Íþróttir Viðskipti Vefmiðlar
Blogg.Vísir.is Innskráning Nýskráning