Sómakærar klámmyndaleikkonur

www.visir.is Sigraði í fegurðarsamkeppni hjákvenna Tiger Woods

Það gleður mitt gamla hjarta að klámmyndaleikkonur geti reynst svona sómakærar og kærleiksríkar!

“Mundu það að dæma ei eftir útlitinu menn,” söng Gylfi Ægisson hérna um árið. Það hlýtur að virka í allar áttir, líka hvað varðar klámmyndaleikkonur!

Vestur í USA komu nýverið saman fyrrum hjákonur kylfingsins Tiger Woods og kepptu með sér í fegurð! Tvær af meintum hjákonum neituðu að mæta í fegurðarsamkeppni þessa - en það voru klámmyndaleikonur:

Klámmyndaleikkonurnar Holly Sampson og Jocelyn James, [...] neituðu hinsvegar að mæta á þeim forsendum að þær vildu ekki auka á niðurlægingu Tigers.

Sampson og James eru greinilega góðar konur :)

Fært undir Fjölmiðlar, Íþróttir þann 12. mars 2010 af gb | 2 ummæli

Það sem kemur mest á óvart

www.visir.is Barmby og Bullard slógust í almenningsgarði

 . . .  í þessari frétt er það að Nick Barmby skuli enn leika fótbolta í efstu deild.

Hann var arfaslakur, þungur og útbrunninn fyrir einhverjum 10 árum síðan!!!

Fært undir Minningar, Íþróttir þann 12. mars 2010 af gb | 0 ummæli

Um þetta gildir almennt kjaftæði

www.visir.is Lánþegar krefjast aðgerða

Þegar kemur að því að leiðrétta skuldir almennra borgara í þessu landi; færa þær í rétt horf, þá gilda önnur lögmál og þá er um það brúkað annað tungumál en þegar milljarðar eru afskrifaðir hjá stórgrósserum og viðskiptafræðilegum kjánum.

Dæmi:

Friðrik Már Baldursson, prófessor í hagfræði, segir í Morgunblaðinu í dag: „Ég reikna með að menn hafi farið ofan í saumana á fjárhag stærstu lántakenda. Líklega var þó beitt heildstæðari aðferð á smærri lántakendur og meðaltalsafföll áætluð.“

Það er: Það gilda önnur lögmál um afskriftir er varða hinn almenna borgara en hina sem skulduðu djöfuldóm af, oftast illa fengnum, peningum.

Einhverja 80 milljarða afskrifaði Arion banki af skuldum Kjalars!

Einhverja 80 milljarða afskrifaði Landsbankinn af skulum Icelandic Group.

Því er spurt: Hvað má koma mörgum fyrirtækjum og mörgum heimilum í gott fjárhagslegt horf fyrir 160 milljarða?

Nú er að koma í ljós að þegar almenn lán - sem önnur - voru færð úr gömlu bönkunum yfir í þá nýju voru afskrifuð á milli 45-50% af þeim. Samt á að láta þig lesandi góður borga eins og aldrei hafi verið gert ráð fyrir neinum afskriftum þar. Það vill segja: Þú átt að borga svínaríið. Um það er þegjandi samkomulag á milli ráðamannana og kapítalistanna  (Rottubandalagið) um þetta er rætt fjálglega undir liðnum almennt kjaftæði á tungumáli sem vísast verður aldrei túlkað sökum vankunnáttu málnotenda.

Fært undir Efnahagur, Spilling þann 12. mars 2010 af gb | 0 ummæli

“Vinstri”stjórnin kúgar menn til að láta af verkfallsrétti sínum: Þá loksins hún ætlaði að gera eitthvað var það níðingsverk!

www.visir.is Flugumferðarstjórar aflýstu verkfalli

Í kvöld voru flugumferðarstjórar kúgaðir til þess, af þeirri ríkisstjórn sem nú situr umboðslaus í landinu, að aflýsa verkfalli sem þeir höfðu löglega boðað.

Það skiptir engu máli hvað mér eða þér eða Pétri eða Páli finnst um kjör flugumferðarstjóra (sem við í flestum tilfellum vitum ekkert um) þeir hafa rétt til þess að grípa til þess að boða verkföll og það sem meira er þeir hafa rétt til þess að fara í verkföll! Þeir eiga og þeir mega berjast fyrir betri kjörum með þeim tækjum og tólum sem lögin heimila! Líkt og - Guði sé lof - flestar stéttir í landinu.

Það er ógeðslegt til þess að hugsa að þingmenn sem vilja kenna sig við réttlæti og bræðralag, við sósíalisma, við frelsi og við bætt samfélag yfrileitt, skuli jánka svona fyrirætlunum; telja það sjálfsagt að ráðist sé að réttindum fólks til að bæta stöðu sína í samfélaginu.

Þingmenn VG og Samfylkingar drógu vagninn sem í átti að setja flugumferðarstjórana - mér skilst að hinn helmingurinn af þingheimi hafi boðist til að leggja þeim lið við dráttinn -  svona fyrirætlanir sýna svo ekki verður um villst hverjir standa vörð um lýðréttindin þegar á hólminn er komið.

Flugumferðarstjórar skáru, hina verri en dauðu, ríkisstjórn úr snörunni að þessu sinni! Því fer það ekki í sögubækur, að sinni, hverslags níðingar það eru sem sitja í stjórnarráðinu! Þeir stimpla reyndar þá nafnbót ótt og títt inn í skræðurnar með aðgerðum á víxl við aðgerðaleysi dag hvern. Þarna sluppu þeir fyrir horn - þeir geta þakkað það þeim sem þeir kúguðu í kvöld!

Fært undir Samfélag, Stjórnmál þann 11. mars 2010 af gb | 4 ummæli

Ólafur Ragnar heldur sínu striki

www.visir.is Forsetinn þrýstir á Breta með Norðurskautsleiðinni

Það væri óskandi ef ráðherrar ríkisstjórnarinnar hefði snefil af hugrekki hans til að tala máli þjóðarinnar. En, það hafa þeir ekki.

Þegar menn mæla upp kjarkleysið í sjálfum sér grípa þeir gjarna til þess að hrópa upp um það að ekki megi menn falla í þjóðrembu og hroka. Þannig skilgreina þeir hinir sömu það sem “þjóðrembu” og “hroka” -það að standa í lappirnar og reyna að andmæla erlendri kúgun og ofríki.

Fært undir Samfélag, Stjórnmál þann 11. mars 2010 af gb | 2 ummæli

Björgólfur Thor og listinn

www.visir.is Björgólfur Thor fallinn af lista Forbes - Mexikani er ríkastur

Í eina tíð var Björgólfur Thor á þessum fræga lista Forbes. Þótti þá mörgum mikið til koma hérlendis og var mikið flaggað og blásið í ýmsa fjölmiðlalúðra! Reynt var að koma því inn hjá þjóðinni að nú væri hún í sérstöku andlegu fjármálasambandi við umheiminn. Klappað var í hverju horni, fjármálamenn og fjölmiðla migu sem aldrei fyrr utan í hálfguðinn úr brugghúsi auranna.

Þetta var á svipuðum tíma í mannkynssögunni og að Mannlíf - undir ritstjórn siðameistara samfélagsins Reynis Traustasonar - birti lýðnum til upplyftingar og sáluhjálpar úttekkt á því hversu mikil fjármálasnillingur og hæfileikamaður Hannes Smárason væri!

Fært undir Fjölmiðlar, Saga þann 11. mars 2010 af gb | 2 ummæli

Þetta hefur nú verið toppað og gott betur

www.visir.is Ók í öfuga átt á Skólavörðustíg

Á gullaldarárum sínum og Hallærisplansins og Gary Newman fór Binni bróðir upp Laugarveginn og niður Hverfisgötuna eins og drekka vatn. Kveikti í Hallærisplaninu og fékk lögreglufylgd úr bænum en skipti þá um bíl og var mættur aftur á rúntinn áður en löggan gat svo mikið sem sagt nafnið hans.

http://www.youtube.com/watch?v=Ldyx3KHOFXw

Fært undir Fréttir, Vinir og fjölskylda þann 11. mars 2010 af gb | 2 ummæli

Niðurskurður bitnar aldrei á neinum

www.visir.is Niðurskurðurinn bitnar ekki á öryggi sjúklinganna

Það hlýtur að teljast merkilegt. Og enn merkilegara til hvers var verið að koma öllu því upp sem nú er hægt að skera niður - úr því að það er svo nauða ómerkilegt að það má vel nema það á brott?  Það er eitthvað - í þessum málflutningi - sem ekki gengur upp!

Fært undir Fréttir, Heilbrigði þann 10. mars 2010 af gb | 0 ummæli

Bensínið komið í 208,20 !!!

Ég keypti bensín í morgun. 208,20 krónur borgaði ég fyrir, dældi sjálfur.

Ég sé hvergi neitt um þetta í fjölmiðlum, ekki það að ég hafi keypt bensín og heldur ekki um það að ég hafi dælt sjálfur, heldur eitthvað um þessa hækkun!

Er samfélagið orðið svona dofið? Eða, er það bara Olís á Selfossi sem selur bensín á þessu verði? Eða, hvað er í gangi?

Fært undir Samfélag, Umræðan þann 10. mars 2010 af gb | 4 ummæli

Sýkt orðræða

www.visir.is Ögmundur aftur ráðherra

Í þessari meinlausu frétt sem hér er vísað til kemur glöggt í ljós hvað hugmyndir okkar um eðlilega stjórnarhætti eru fársjúkar, hvað fólki finnst eðlilegt - sem er í raun fáránlega rangt og óeðlilegt - og hvað hrossakaup um völd þykja sjálfsögð og þeim slegið upp sem eðlilegum hlut, þrátt fyrir að vera skítamakk!

Það er ekkert eðlilegt við það Ögmundur Jónasson komi aftur í ríkisstjórn til þess að styrkja stjórnina - til þess að kaupa frið svo halda megi áfram sömu helstefnu gegn heimilum og fyrirtækjum, gegn fólki nú í dag og til framtíðar. Það væri gott ef rískisstjórnin ætlaði að skipta um kúrs - en það ætlar hún vitanlega ekki að gera - og fara að standa undir nafnbótinni sem vinstri stjórn. Nei, þessar hugmyndir ku fram komnar til þess að sætta órólegu deildina í VG. Skyldi það vera markmið og meginleiðarljós íslenskra stjórnmála? Að koma á friði í flokki sem er í raun tveir flokkar, svo að sá flokkur geti haft sig og sína í valdastólum?

Nú eru þetta svo sem bara fabúleringar sem koma fram í nefndri frétt og kannski ekki ástæða til að taka innihaldið alltof alvarlega - svo fráleit sem það nú er - en það er mjög alvarlegt að frétt sem þessi, í þessum anda skuli vera skrifuð gagnrýnislaust árið 2010 eftir allt sem á undan er gengið. Það er ljóst að orðræða fjölmiðlanna er sýkt ekkert síður en samviska og vinnubrögð stjórnmálamanna; um orðræðu þeirra þarf ekki að fjölyrða. Hún dæmir sig sjálf dag eftir dag.

Fært undir Fjölmiðlar, Stjórnmál þann 10. mars 2010 af gb | 0 ummæli

Næsta síða »
gb

Guðmundur Sveinbjörn Brynjólfsson.
Sannkristinn Sósíalisti!

Ég á eina dóttur - sem er nú allnokkuð!
Giftur yndislegri konu og á þrjú stjúpbörn.

Fjölmenntaður 19. aldar maður - ku samt lifa á þeirri 21.
Fullur af margvíslegum þverstæðum!

Hægt er að hafa samband: gummimux@simnet.is


Nýjustu færslur
Leit

Flokkar

Eldri færslur

Tenglar

  • WordPress.com
  • WordPress.org
  • Jens Guð
  • Sverrir Jakobsson
  • Kristján B. Jónasson
  • Bergur Þór Ingólfsson
  • Pétur Tyrfingsson
  • Stefán Pálsson
  • rcg
  • Davíð Þór Jónsson
  • Steindór Gunnar
  • Bestiflokkurinn
  • Stageplays
  • Britannica
  • Leikhús alfræði - Wiki
  • Sædís Ósk
  • TiggerTalk (Michael Eustice)
  • MorningStar
  • CPI
  • Guardian
  • Fylgjast með RSS-veitu
    Vísir Fréttir Lífið Íþróttir Viðskipti Vefmiðlar
    Blogg.Vísir.is Innskráning Nýskráning