Þegar Díana dó
Ég man hvar ég var fyrir sléttum tíu árum þegar ég frétti að Díana hefði lent í þessu hroðalega slysi. Ég var heima hjá mér, bjó þá í Engihjallanum í Kópavogi!!! Er hægt að hugsa sér meira “kontrast” - ég bjó í gettóINU í Kóp. Þaðan fylgdist ég með myndum á Sky fram eftir nóttu - þetta var svakalegt drama.
Díana fluttist til feðra sinna - ég flutti skömmu seinna úr Engihjallanum í Funalindina - við fórum bæði á betri stað. Eða hvað - ég er ekki viss.
Fært undir Minningar þann 31. ágúst 2007 af gb | 1 ummæli
Ég og landsliðið í körfu
Mér finnst að ég hljóti að hafa eitthvað með velgengni landsliðsins í körfubolta að gera, og það er ekki bara að mér finnist það; ég er viss um að mín áhrif svífa þar yfir vötnum.
Af hverju er ég svona viss? Maður sem hefur marg oft sagt að hann sé aldrei viss um neitt! Jú, þegar ég var að horfa á leikinn í gærkvöldi sá ég á bekknum þrjá fyrrum skólafélaga. Enginn þeirra að spila vel að merkja:)
Skal þar fyrstan frægan telja Sigga Ingimundar - einu sinni fórum við Siggi saman í Kaupfélag Suðurnesja og keyptum okkur samskonar nærboli! (Þá er það afgreitt) Þarna mátti líka sjá Matta O. Stefánsson, hann sat einu sinni við hliðina á mér í Líf 103 og vorum við ámóta fálkalegir í faginu þegar Dr. (reyndar ekki þá Dr.) Björn Örvar útskýrði ljóstillífun; ég náði aldrei hvað það var - veit ekki með Matta. (Þá er það afgreitt) Svo var þarna Frikki Rúnars - hann er Njarðvíkingur (ef maður má nota það orð án þess að á skelli borgarastríð þar syðra) og stundum fengu hinir og þessir Njarðvíkingar (úpps þarna kom það aftur) að sitja í með okkur aristókrötunum af Vatnsleysuströndinni sem áttum bíla á leið okkar heim úr ósómanum þar sem nú er kallað Reykjanesbær. Ég sé að við Frikki eigum það sammerkt að hafa þyngst frá þessum árum - pínulítið. (Þá er það afgreitt)
ERGO: Það liggur ljóst fyrir að góður sigur Íslands á Georgíu er að stórum hluta mér að þakka!!!
Fært undir Minningar, Íþróttir þann 30. ágúst 2007 af gb | 1 ummæli
Sigurður í limaleit, lausnin fundin?
Reðursafnið leitar að safngrip undan manni
Nei - þetta er ekki upphaf á stöku, allavega ekki af minni hálfu. Það er heldur ekki svo að ég geti hjálpað Sigurði neitt í þessum efnum persónulega. En - mér fyndist ekki vitlaust af honum að tala við þýsku mannætuna sem át sambýling sinn - sá gæti átt einhverja afganga.
Fært undir Matur og drykkur, Menning og listir þann 30. ágúst 2007 af gb | 3 ummæli
“Og þeir eru komnir af stað!!!”
Ég hef aldrei skilið hversvegna íþróttafréttamenn sjónvarps garga af öllum lífs og sálar kröftum við upphaf hvers einasta hlaups sem fram fer á frjálsíþróttamóti: “Og þeir eru komnir af stað!!!” Verst er þetta þegar Samúel Örn missir sig í þessu og hvæsir þetta með sinni skerandi framsóknarröddu.
Nú er það svo að miðillinn sjónvarp hefur það helst til síns ágætis að maður getur séð í því það sem fram fer - í þessu tilfelli fylgist maður með hlaupinu myndrænt! Ég skal svo sem fyrirgefa þegar menn öskra þetta í byrjun 100 metra hlaups vegna þess að menn fara það á svo miklum ógnarhraða að það er ágætt að láta mann vita að þetta sé byrjað áður en því líkur. En að æpa þetta upp við upphaf 3000 metra hindrunarhlaups eða 5000 eða 10.000 metra hlaupa er ekki eins nauðsynlegt þar eð maður hefur ágætan tíma á meðan að maður horfir á hlaupið til þess að átta sig á því að það sé hafið.
Ekki getur skýringin á þessari stöðluðu upphafsetningu - sem breytist að vísu lítillega þegar um hlaup kvenna er að ræða og hljómar þá svona: “Og þær eru komnar af stað!!!” - verið sú að skyggni sé lélegt á svona íþróttamótum. M.ö.o. að það sé rökkvað og því sjáist þeir/þær illa sem eitthvað geta hlaupið að ráði en yfirleitt er það hörundsdekkra fólk en innfæddir Hvergerðingar. Nei - á öllum íþróttamótum sem fara fram að kvöldlagi eða Lundúnaþoku er ágæt raflýsing, þá er það og algengt að keppt sé í björtu.
Þetta start-garg fréttamanna er líklega einfaldlega komið þannig til að þeir hafa þjálfast upp til starfans hjá mönnum sem byrjuðu ferilinn í útvarpi.
Fært undir Ferðalög, Íþróttir þann 29. ágúst 2007 af gb | 0 ummæli
Jólatré!!! Salan hafin!
Nú er byrjað að selja jólatré og fleira tengt jólunum í…
Nei ég segi nú bara svona - varð bara að vera á undan hinum í að toppa jólaspennuna. Þetta var auðvitað ekki fallega gert - að vera á undan IKEA og þessum snillingum öllum sem byrja að auglýsa jólavörur rétt í því augnabliki þegar maður er að éta ferskt af nýslátruðu og línur byrja að skýrast í enska boltanum.
Ég var bara - þið fyrirgefið - að setja mig í spor þeirra sem leika fyrsta leikinn ár hvert í kaupæðisbrjálæðinu! Ykkur að segja datt mér þetta í hug af því að ég vaknaði illa upp eftir aðeins þriggja tíma svefn - þá er maður hálfbrjálaður.
Svo - það er illa sofið lið sem startar jólunum ykkar of snemma ár hvert!!!
Fært undir Samfélag þann 29. ágúst 2007 af gb | 0 ummæli
Það er lengi von á einum
Það hefur ekki verið torsótt eða grýtt fyrir Hermann hérna í den - en afleiðingarnar urðu þessar og torfærar hliðargötur hefur Lúðvík mátt fara í leit sinni að réttlætinu og sannleikanum.
Fært undir Saga, Samfélag þann 28. ágúst 2007 af gb | 2 ummæli
Ritstjórahringekja
Það vekur nokkra athygli að nú á Reynir Traustason að verða með-ritstjóri á DV. Sú ráðstöfun ku vera til þess gerð að DV styrkist enn. Þarna er fyrir í ritstjórastóli Sigurjón M. Egilsson.
Ég hef svo sem ekkert kannað þetta til hlýtar en mér finnst að það sé alltaf verið að skipta um ritstjóra á öllum blöðum og tímaritum nema Mbl. Og mér finnst líka að þetta séu alltaf sömu mennirnir sem hrókerað er fram og til baka, ýmist langt eða stutt. Mér finnst einnig að þegar hrókfæringarnar eru gerðar sé það alltaf undir sama forspjallinu um nýja vinda og ferska, nýja vendi sem sópa best ellegar að það eigi að slá með einhverjum sérstökum hætti í klárinn. Það minnir mann á að þangað sækir klárinn sem hann er kvaldastur - hefur það og átt við margan ritstjórann.
Ekki ætla ég að lasta þessa menn - hafa allir sýnt ágæt tilþrif sem ritstjórar. En það væri ekkert leiðinlegt að sjá nýtt fólk í þessum stólum endrum og sinnum. Ég verð t.d. laus frá og með næstu helgi;)
Fært undir Fjölmiðlar, Samfélag þann 27. ágúst 2007 af gb | 0 ummæli
Hvað með KR-heimilið?
Eldur í öskutunnum við Framheimilið
Væri ekki skiljanlegra að eldar loguðu í öskutunnum við KR-heimilið? Og er ekki líklegra að þar megi finna logandi öskutunnur frekar en annarsstaðar í borginni, hvar flestir notast við sorptunnur. Eða hverjir hafa nú greinilega - með þjálfaraskiptum - farið úr öskunni í eldinn?
Fært undir Íþróttir þann 26. ágúst 2007 af gb | 0 ummæli
Heimsborgarar
Áðan hitti ég sannkallaða heimsborgara!
Þeir sátu ekki á neinu kaffihúsi, gónandi út í loftið skrifandi í vasabækur eða á fartölvur! Nei, þau komu inn í Hóladómkirkju og fengu sér sæti - og hugsuðu! Fóru kannski einhver með bænir. Tóku mig svo tali.
Höfðu farið víða - höfðu skoðað hundrað höfuðkirkjur (og sjálfsagt meir) hér og þar í veröldinni! Gerðu þó ekki á smáborgaralegan hátt upp á milli guðshúsa; reyndu ekkert að þóknast mér með því að segja að “mín” kirkja væri fallegust! Þetta voru ítalskir-austurríkismenn (eða öfugt). Þau þurftu ekkert að látast. Þau kunnu sögurnar af hinum helgu mönnum og konum sem prýða Hólabríkina. Sögðu þær af látleysi.
Komu með kenningu um óvissan uppruna hennar - ég mun liggja á þeirri kenningu eitthvað áfram. Af því mér finnst hún trúverðug!
Fært undir Umhverfi þann 26. ágúst 2007 af gb | 0 ummæli
Fleiri með hausinn í sandinum
Það er magnað hvernig ýtt er undir veruleikafirringu valdamesta manns heims. Ef blessaður karlinn sér ekki mótmælendur þá eru þeir væntanlega ekki til! Eða hvað?
Hún er mörg “handbókin” sem skrifuð hefur verið í Washington og þar í grendinni - yfirleitt til prívatnota útvalinna! Ég hef svo sem fjallað um slíkt fyrr.
Fært undir Alþjóðamál, Stjórnmál þann 25. ágúst 2007 af gb | 0 ummæli
Næsta síða »
Guðmundur Sveinbjörn Brynjólfsson.