Gleðilegt ár!
Ég óska lesendum þessarar síðu gleðilegs árs og vona að þeir haldi áfram að líta hér inn á nýju ári - en ég mun halda áfram að blogga þrátt fyrir að ég hafi verið óra langt frá því að selja 350 eintök!
Fært undir Ekki mín fjölskylda, Ekki mínir vinir, Samfélag, Vinir og fjölskylda þann 31. desember 2007 af gb | 3 ummæli
Ævintýrin og Framsóknarflokkurinn
Ég var öskubuska sem átti ekki að vera á ballinu
Er þá ekki líklegt að Björn Ingi komi fram og segi: “Ég var úlfurinn sem át ömmuna og kjagaði síðan um með allt grjótið í belgnum og geri enn”
Og kannski heyrist eitthvað í Jóni Sig., t.d. “Ég var ljóti andarunginn sem uppgötvaði seint og um síðir að ég var ekki eins og allir hinir í hópnum - altént vildu þeir ekki hafa mig með”
Fært undir Bókmenntir, Stjórnmál þann 31. desember 2007 af gb | 5 ummæli
Kreppan jafnar sig fljótt - en fólkið?
Tekur hálft ár fyrir kreppuna að jafna sig
Í sjálfu sér hef ég ekki stórar áhyggjur af því hvað kreppan sjálf er lengi að jafna sig - reyndar þekki ég ekki hvaða meðöl kreppa tekur, til þess að hjarna við, enda skiptir það sjálfsagt litlu. Héðan af. Er ekki allt að fara fljótandi til fjandans hvort eða er? Eða er það bara einhverjum hagstætt og þóknanlegt að flytja slíkan boðskap og hamra á honum?
En hvað verðum við - hinir sótsvörtu hverdagssauðir - lengi að jafna okkur á kreppunni sem nú er verið að kokka? Ég hef meiri áhyggjur af því. Ég hef áhyggjur af því hvernig þeir eiga að klára sig á komandi kreppu sem aldrei urðu varir við neitt góðæri - nema hvað þeir gátu lesið um það í blöðum og séð það á götunum segjandi: burr burr burr.
Fært undir Efnahagur, Samfélag, Umræðan þann 31. desember 2007 af gb | 0 ummæli
Kvennamál Tarantinos
Tarantino með íslenskri snót á Tapas
Ekki er ég nú svo forframaður að hafa séð í eigin persónu þann merka mann Tarantino né heldur félaga hans Roth. Þeir eru víst báðir suður í Reykjavík þessa dagana að gilja konur, sem eftir bestu fáanlegum upplýsingum eru margar hverjar viljugar til þessslags uppákoma (ferða) með þeim félögum - allnokkur fjöldi, ef marka má bloggsíður sem mark er á takandi. Í gær át Tarantino tapasmat með einni stúlkunni - fannst hann góður og stakk úr nokkrum glösum að því loknu. Nú vill vísir.is gjarna komast að því hvaða stúlka þetta var sem át og drakk með leikstjóranum í gær.
Ég tel víst að fréttagildi nafns hennar sé afar mikilsvert - kannski heitir hún Sigurlína og kannski heitir hún Helga - hvað um það; við verðum að fá nafn og mynd svo að við munum eitthvað annað frá þessu ári sem senn kveður en þetta REI mál og brotna borgarstjórn. Amen.
Fært undir Fjölmiðlar, Slúður þann 31. desember 2007 af gb | 18 ummæli
Ekki jafn bjartsýnir og áður
Jeppar fyrir 1,9 milljarða afhentir
Íslendingar ku ekki vera jafn bjartsýnir nú um áramót og undanfarin ár. Þessi frétt sýnir, svo ekki verður um villst, að það er rétt; menn eru ekki vissir um að komast leiðar sinnar og gera því ákveðnar ráðstafanir í því sambandi.
Fært undir Efnahagur, Ekki mín fjölskylda, Ferðalög, Heilbrigði, Leiklist, Samfélag, Umræðan þann 30. desember 2007 af gb | 0 ummæli
Fjárhagslegt heilsuleysi
Byr býður fólki að kanna fjárhagslega heilsu
Oft er það að slæmir þættir í umhverfi fólks valda heilsutjóni. Byr mun sjálfsagt ráðast hart gegn þeim þáttum; þegar að fjárhagslegt heilsuleysi landans rennur upp fyrir þeim sparisjóðsmönnum.
Fært undir Efnahagur, Heilbrigði þann 30. desember 2007 af gb | 0 ummæli
Það er þó samræmi í þessu öllu!
Það á að byggja eitthvað sem kallað er “hátæknisjúkrahús” - en það er á stundum ekki hægt að hafa fólk í vinnu á því sjúkrahúsi sem nú stendur vegna fjárskorts.
Það stendur til að byggja nýja lögreglustöð - en það er á mörkunum að lögreglumenn lafi í störfum sínum, vegna lágra launa.
Hér er sko samræmi í heiðri haft - og er það vel. Eða er eitthvað bogið við þetta - eða… ?
Fært undir Samfélag þann 29. desember 2007 af gb | 3 ummæli
Landsbankinn sniðgengur íslenskan iðnað
Bruggverksmiðju á Laugarveginum lokað
Á meðan að Landsbankinn sér sig knúin til að flytja inn rauðvín frá USA til að gefa ráðherrum í ríkisstjórninni (mér er reyndar ómögulegt að skilja afhverju Landsbankinn sem er prívat fyrirtæki stendur í því að gefa ákveðnum ríkisstarfsmönnum áfengi) er verið að farga innlendum miði frá prívat bruggara!
Er ekki alltaf verið að tala um að styðja beri við bakið á einkaframtakinu? Svo fer rjómi einkaframtaksins svona með undanrennu sama framtaks.
Össur, hefðir þú ekki frekar viljað gambrann - verandi “starfsmaður á plani”? - Eða það sem gambrinn hefði síðar getað orðið með hjálp hátækninnar - verandi iðnaðarráðherra?
Fært undir Matur og drykkur, Samfélag, Tækni og vísindi, Umræðan þann 29. desember 2007 af gb | 0 ummæli
Þroskaleysissaga
ÞÞ í fátæktarlandi heitir bók sem kom út nú fyrir jólin, sögð vera þroskassaga Þórbergs Þórðarsonar. Í mínum huga er þetta nú frekar þroskaleysissaga sama manns, sem þó - vissulega - er rétt tekin að þroskast þegar dregur að bókarlokum. Pétur Gunnarsson ritar bókina og styðst við efni Þórbergs og annarra, bréf og fleira. Ágætlega skemmtileg lesning, misgóð þó - eins og gengur.
Það er of margt í þessari bók sem ég hef lesið áður, of margt sem er löngu vitað og bætir litlu við. Hér er fátt nýrra tíðinda, ýmislegt þó sagt skýrar en áður, fabúlerað lengra um ýmsa þætti í lífi Þórbergs og er gaman að því. Þessi bók rís þó aldrei í þær hæðir sem ég vænti. Hún tollir ekki í þeim hæðum sem sumir ritdómarar lyftu henni í á aðventunni.
Fært undir Bókmenntir þann 29. desember 2007 af gb | 0 ummæli
Glæsilegur íþróttamaður ársins!
Margrét Lára íþróttamaður ársins
Ekki nóg með það að Margrét Lára sé frábær knattspyrnumaður, hún er einnig hógvær og kemur vel fyrir sig orði. Það skín af henni skynsemisljómi og hún virðist vera fyrirmyndar fyrirmynd;-)
Mér þykir því sárt og ljótt að sjá hvernig bloggarar (nokkrir) hafa farið hamförum gegn þessari kosningu (reyndar ekki hér á þessum miðli) aðeins örfáum mínútum eftir að ljóst er að Margrét Lára hefur orðið fyrir valinu. Sitt sýnist hverjum og allt það - en orðbragðið er í ósmekklegri kantinum. Og - nei, ég ætla ekki að setja tilvísun inná þessi bloggsvæði, mér dettur ekki í hug að teyma nokkurn mann þangað.
Til hamingju Margrét Lára - að mínu mati, og allflestra trúi ég, eru engin annarlegheit á bakvið það að þú ert Íþróttamaður ársins 2007!
Fært undir Íþróttir þann 28. desember 2007 af gb | 2 ummæli
Næsta síða »
Guðmundur Sveinbjörn Brynjólfsson.