Til hamingju Sigurður - þetta kom mér ekki á óvart!
Bókmenntaverðlaunin afhent á Bessastöðum
Fyrir um það bil sólarhring sátu bókmenntaspekúlantar hjá Agli Helgasyni í þætti hans Kiljunni og höfðu ekki beint fögur orð uppi um bók Sigurðar Pálssonar Minnisbók. Sérstaklega fór Kolbrún Bergþórsdóttir óblíðum orðum um þetta meistaraverk og fann ýmislegt því til foráttu. Helst var þó á henni að skilja að aðalgalli verksins væri sá að það væri ekki eins og hún vildi hafa það. Sem betur fer, segi ég, er bókin ekki eins og Kolbrún vill hafa hana - þá hefði hún merkilegt nokk ekki verið að vinna til verðlauna. Bókin kemst sennilega einna næst því að vera eins og Sigurður Pálsson vildi hafa hana - lukkaðist það allt ágætlega.
http://blogg.visir.is/gb/2008/01/22/
Fært undir Bókmenntir, Fjölmiðlar, Heimspeki, Menning og listir, Samfélag, Umræðan þann 31. janúar 2008 af gb | 0 ummæli
Hvora geðveikina?
Ólafur F búinn að finna ástina?
“”Hann þarf að fara að láta verkin tala og hætta að hugsa um þessa geðveiki”, segir Ellý að lokum.”
Ég spyr: Hvora geðveikina? Þessa sem Ellý er að presentera í þessari “frétt”? Eða…?
Fært undir Fjölmiðlar, Fréttir, Heilbrigði, Slúður, Umræðan þann 31. janúar 2008 af gb | 2 ummæli
Egill komst ekki að - enda óþarfi, hafandi Zizek þarna
Kiljan í kvöld: Magnaður kjaftaskur þessi Zizek - auðheyrilega greindur kall en maður mátti hafa sig allan við að fylgjast með. Sérstaklega vegna þess að það var svo gaman að fylgjast með handa hreyfingunum; því hvernig hann greip aftur og aftur í nefið á sér og strauk hárið frá enninu með sömu sveiflunni. Eins klóraði hann sér svo kátlega í hausnum að annað eins hefur ekki sést í sjónvarpssal lengi. Málæðið rosalegt, handapatið frábært, svipurinn á Agli einstakur - barnslega glaður yfir því að vera í kompaníi við þennan málóða speking. Frábær skemmtun og upplýsing.
Fært undir Bókmenntir, Fjölmiðlar, Heimspeki, Menning og listir, Saga, Samfélag, Stjórnmál, Tækni og vísindi, Umhverfi, Umræðan þann 30. janúar 2008 af gb | 0 ummæli
Jóhanna Guðrún hefur breyst!!!
Þóra Tómasdóttir í Kastljósinu er ekki einn af mínum uppáhalds fjölmiðlungum. Þó á hún stundum góða spretti; í kvöld var hún að tala við Jóhönnu Guðrúnu sem eitt sinn var barnastjarna - fyrir ansi mörgum árum reyndar. Skarplega mælti Þóra og talaði til Jóhönnu: “Þú hefur breyst”.
Já mikið rétt, Jóhanna Guðrún hefur breyst - en það verður að teljast með nokkrum ólíkindum, eða hvað? Hvað um það - Þóra breytist lítið.
Fært undir Fjölmiðlar, Heimspeki, Menning og listir, Slúður, Tónlist, Umræðan þann 30. janúar 2008 af gb | 0 ummæli
Er það ekki bara öskur?
Er ekki kröftugra samtal bara öskur og garg? - var það fyrsta sem mér datt í hug þegar ég sá þessa fyrirsögn.
Er ekki ljóst, ekki bara vegna þessara húsafriðunarmála við Laugaveginn, heldur vegna margra álíka uppákoma á liðnum áratugum, að húsafriðunarmál hérlendis eru í skötulíki? Það er ekki hægt að gera sér grein fyrir því, með góðu móti, hjá hvaða stofnun, einstaklingi eða stjórn, vald eða ábyrgð liggur. Alltof oft eru þessi mál háð einskonar tískusveiflum, stundum ná pólitíkusar að gera þau að “sínum” en slíkt er ávísun á djöfulgang, sundrung og læti.
Ég sé ekki betur en að það sé þarft verk að haga svo málum að ein og aðeins ein stofnun stjórni því hvað skal friða og hvað skal ekki friða hvar sem er á landinu - úrskurðir þeirrar nefndar séu endanlegir að því marki a.m.k. að þeim verði ekki vísað til ráðherra (enda get ég ekki skilið hvað réttlætir það að ein einstök, misvitur, persóna þurfi að standa með slíkan kaleik í lúkunum - verandi jafnvel bindindismanneskja á byggingar). Að sjálfsögðu væri hægt að vísa úrskurðum þessarar nefndar til dómstóla - en ekki annað. Sveitarstjórnir eiga ekki að hafa aðra aðkomu að húsfriðurnarmálum en umsagnir eða ábendingar um friðun - enda er hver sveitarstjórn aðeins kosin til fjögurra ára í senn og reyndar alls ekki víst að hún endist einu sinni þann tíma - eins og dæmin sanna. Stjórnmálamenn hafa í fæstum tilfellum hundsvit á húsafriðun.
Fært undir Saga, Samfélag, Stjórnmál, Umhverfi, Umræðan þann 30. janúar 2008 af gb | 0 ummæli
100.000 heimsóknir!
Takk fyrir! - þið öll sem hafið heimsótt þessa síðu frá því 10. júní í fyrra (2007). Þá hóf ég skriftir í netheimum. Vonandi hafa þeir sem kíkja hingað inn reglulega og svo hinir sem koma einu sinni og hrökklast þá í burtu (kannski vegna yfirskriftar síðunnar) nokkuð gagn og eitthvað gaman af því sem ég hef fram að færa.
Fært undir Bókmenntir, Ekki mín fjölskylda, Ekki mínir vinir, Fjölmiðlar, Fréttir, Menning og listir, Minningar, Saga, Umræðan, Vinir og fjölskylda þann 29. janúar 2008 af gb | 6 ummæli
Ég hef alltaf verið flughræddur
Góðir farþegar nú má fækka fötum
Reyndar er ég helvítis skræfa í flestum efnum. Og flughræddur með afbrigðum! Ég hef þó aldrei verið það hræddur að ég tætti utan af mér garmana í háloftunum. Þó svo að maður hafi reynt að dreyfa huganum til þess að slá á óttann þá hefur það sjaldnast dugað langt - kannski það myndi duga að fljúga með alsb-air; kannski spéhræðslan myndi verða flughræðslunni yfirsterkari?
Fært undir Ferðalög, Fréttir, Heilbrigði, Heimspeki, Tækni og vísindi, Umhverfi þann 29. janúar 2008 af gb | 4 ummæli
Hefur hann fengið áfallahjálp?
Maðurinn á Madeleine-teikningunni fundinn
Ég hefði ekki viljað vera í sporum þess sem fann hann - ef hann er eitthvað í líkingu við það sem myndin gefur til kynna. En ef það er tilfellið þá hefur finnandinn að öllum líkindum þörf fyrir áfallahjálp.
Fært undir Ekki mín fjölskylda, Slúður, Umræðan þann 28. janúar 2008 af gb | 6 ummæli
Aldrei fær maður að hafa neitt í friði
Þetta er svo sem ekkert nýtt - auðvaldið hefur verið að klekkja á mér frá því að ég man eftir mér. Hérlendis sem erlendis.
Fært undir Alþjóðamál, Ekki mínir vinir, Saga, Íþróttir þann 28. janúar 2008 af gb | 0 ummæli
Silfur Egils - Ásta og Kjartan, ekki greiðist úr lygavefnum
“Ég segi alltaf satt” (Kjartan Magnússon). Svo tala menn um Spaugstofuna.
Fært undir Samfélag, Stjórnmál, Umræðan þann 27. janúar 2008 af gb | 4 ummæli
Næsta síða »
Guðmundur Sveinbjörn Brynjólfsson.