Ábending um lesefni!
Nú hefur dagskrá leikhúsa landsins legið fyrir um hríð og var auðvitað full smíðuð þegar efnahagskollsteypan varð. Því er ekki að undra að fólki á þeim bæjum hafi yfirsést að hafa Volpone eftir Ben Jonson (1572-1627) á verkefnaskrá leikársins!
Þetta er verk, sem var frumsýnt í The Globe Theatre árið 1606, er svartur gamanleikur um græðgi. Í leikritinu má segja að frekar séu manngerðir en persónur, lögfræðingurinn í Volpone heitir Voltore! Þarf ég að segja meira?
Leikrit eru með þeim ágætum að það er líka hægt að lesa þau og njóta þeirra þannig. Volpone er skemmtilesning í því efnahagsárferði sem nú er.
Fært undir Bókmenntir, Efnahagur, Leiklist, Menning og listir, Samfélag, Stjórnmál þann 31. október 2008 af gb | 0 ummæli
Og?
Ólafur Teitur hættir hjá Straumi
Eða ætti ég frekar að segja: So?
Fært undir Fjölmiðlar þann 31. október 2008 af gb | 2 ummæli
Þessi hlýtur að vera af Íslenskum ættum!
Og ekki bara af Íslenskum ættum - hann hlýtur að vera af ættum Íslenskra stjórnmálamanna. Og ekki nóg með það hann hlýtur að eiga frændur og frænkur sem nú sitja á Alþingi.
Annars er þetta ekkert “hlýtur” - þetta “er bara svona” eins og rukkarinn sagði.
Fært undir Fréttir, Stjórnmál, Umræðan þann 31. október 2008 af gb | 2 ummæli
Hrægammarnir fitna!
Í góðærinu spruttu upp innheimtufyrirtæki svokölluð - þau virðast hafa sjálfdæmi hvað varðar innheimtuaðferðir. Það er í takti við hið marg dásamaða viðskipta”frelsi” sem eins og kunnugt er virkar bara í aðra áttina.
Nú bjóðast þeir til að “stytta í” innheimtuferlinu. Nær væri að segja: Stytta í hengingarólunum. Hver á þessi hrægamma kompaní? Hefur jafnaðamannaflokkurinn Samfylkingin eitthvað við þessa starfshætti að athuga? Ég spyr vegna þess að ég býst ekki við neinu frá þeim flokki sem situr nú í ríkisstjórn og hefur svo margt við svo margt að athuga en gerir ekki neitt!
Flest er það í uppnámi og rugli sem lofað hefur verið. Allt er á huldu með úrlausnir Íbúðarlánasjóðs og færslu lána þangað frá bönkunum. Um það er talað - ekkert gerist!
Stýrivextir hækka - mikið hefur verið talað um að þeir eigi skilyrðislaust að lækka (eða, það var um það talað allt til þess að þeir hækkuðu). Ekkert gerist!
Fyrirtæki segja upp fólki - sem þýðir á mannamáli að fólk verður atvinnulaust! Ekkert gerist!
Þetta er af vef RUV:
Aukin innheimtuharka

Meiri harka hefur færst í innheimtuaðgerðir síðustu vikurnar. Dæmi eru um að innheimtufyrirtæki bjóði að “stytta í ferlinu”, það er að kröfur, sem ekki eru greiddar á eindaga fari umsvifalaust til innheimtufyrirtækis og lokaviðvörun sé gefin eftir fjóra daga.
Matthildur Helga- og Jónudóttir, framkvæmdastjóri tölvufyrirtækisins Snerpu á Ísafirði, hafnaði slíku boði, segir það siðlaust á tímum þegar allir þurfi að standa saman.
Matthildur segir fyrirtækið um árabil hafa leitað til innheimtuþjónustu Intrum þegar á hefur þurft að halda og gengið ágætlega. Nokkrum dögum eftir að kröfur hafi fallið í eindaga hafi viðskiptavinur fengið bréf frá innheimtubankanum og hafi kröfurnar ekki verið greiddar 20 dögum eftir eindaga hafi þær farið í innheimtu hjá Intrum.
Nú virðist þetta vera að breytast, þessi slaki að hverfa, ef marka megi símtal sem hún fékk í gær. Þjónustufulltrúi hjá Intrum hringdi og bauð að stytta í öllum innheimtuferlum, eins og það var kallað.
Ég fæ ekki séð að það sé á neinum vígstöðvum verið að létta fólki lífið - það er töluvert hugsað um það að rífast við Brown og Darling og skammast yfir þeim. Allt er það hjóm og pólitískur sandkassaleikur til þess ætlaður að draga athygli almennings frá lygavefnum og siðleysinu sem hér ríkir.
Hefur einhverjum dottið í hug lagasetning til þess að stöðva vaxtapíninguna? Eða hefur einhverjum dottið í hug lagasetning sem myndi banna aðfarir og gjaldþrotabeiðnir? Hefur einhverjum dottið það í hug að lífeyrissjóðirnir komi til bjargar fólki sem á í greiðsluerfiðleikum með létt-lánum, ófasteignatryggðum, í stað þess að sáldra fé sjóðsfélaga inní brunarústir bankanna? Til alls þessa þarf lagabreytingar - hefur einhverjum dottið í hug að gera nú einu sinni lagabreytingar, með hraði, til þess að koma til móts við Jón og Gunnu? Hraðinn á lagabreytingaferlinu nær oft hljóðhraða þegar peningar hinna efnameiri eru í húfi - nú er komið að því að sinna “hinu” fólkinu í landinu. Hinum hógværa meirihluta sem svínað hefur verið á með tólum óheftrar markaðshyggju allt of lengi! Nú er komið að því að ráðamenn fari að sinna “hinni” þjóðinni í landi þar sem tvær þjóðir hafa búið um nokkurt skeið en bara önnur þeira í skjóli stjórnvalda. Kannski ekki að undra - stjórnvöld hafa setið í skjóli þeirrar þjóðar.
Fært undir Efnahagur, Fjölmiðlar, Fréttir, Heilbrigði, Lögfræði, Samfélag, Stjórnmál, Umhverfi, Umræðan þann 30. október 2008 af gb | 0 ummæli
Fína- og fræga fólkið og ÉG!
Heimsfrumsýning James Bond - myndir
Það er gott að vinir mínir Harry og Vilhjálmur hafa náð því að komast í bíó. Ég var farin að hafa áhyggjur af því að allir mínir gömlu félagar í Englandi væru svo uppteknir við að lesa kreppufréttir frá Íslandi að allt félagslíf lægi niðri. Á þessari frumsýningu var líka gömul vinkona; Judi Dench sem endalaust stóð til að ég hitti fyrir 15 árum - en hitti aldrei. En það er samt gott að frétta af kellu í bíó - en ekki heima að lesa Daily Mail og bölva Icesave (og mér) yfir tebollanum. Ég verð að játa að ég hef nokkrar áhyggjur af henni Söru minni Ferguson, hún virðist ekki hafa verið þarna - maður heyrir ekkert af henni en ég vonast samt til að hún sé enn í Virginia Water; mæti á spilavistina og svona…
Til þess að þessi færsla virðist ekki um of hrokafull og þið haldið ekki að ég sé bara að segja frá kynnum mínum af þessu fólki til að sýnast, skal ég fúslega viðurkenna að ég þekki þessa Gemmu Arterton ekki neitt. Og Daniel Craig man ég ekki til að hafa spjallað við - að ráði - nema hann sé gestaleikarinn sem lék Cloucester og ég barði of fast í hlutverki Cornwalls rétt áður en ég plokkaði úr honum augun í uppfærslu á King Lear á vordögum ´94. Ég man illa hvernig sá náungi leit út en hann reiddist höggþunganum - og mér. Bretar eru kvartsárir.
Fært undir Efnahagur, Fjölmiðlar, Fréttir, Kvikmyndir, Leiklist, Menning og listir, Minningar, Slúður, Umræðan, Vinir og fjölskylda þann 30. október 2008 af gb | 0 ummæli
Allt er það vegna orðsporsins - segja þeir.
Pálmi: Ólýsanlega sárt að sjá Sterling verða gjaldþrota
Ég man líka þá tíð þegar að allt, sem vantaði og vanhagaði um og ekki var til í landi hér, hafði sokkið með Berglindinni. Flutningaskipið Berglind sökk eftir árekstur að mig minnir ´81, þá vann ég í hermanginu og allt sem vanhagaði um hjá IAV var sagt hafa sokkið með Berglindinni. Sama hvaðan það átti að hafa verið að koma - og hvernig. “Það sökk með Berglindinni.” var svarið! Það skýrði allt!
Nú er það orðsporið. Öll óáran er orðsporinu að kenna - hvernig orðsporið varð til skiptir engu. Sárasaklausir framkvæmdamenn og stálheiðarlegir peningapúkar eru nú ærulausir orðnir. Út af orðsporinu.
Helvítis orðsporið að láta svona.
Fært undir Efnahagur, Fréttir, Minningar, Saga, Samfélag, Stjórnmál, Umhverfi, Umræðan þann 29. október 2008 af gb | 5 ummæli
Láttu þetta ekki framhjá þér fara
GRAL kynnir:
http://midi.is/leikhus/1/5340/
Fært undir Leiklist, Menning og listir þann 29. október 2008 af gb | 0 ummæli
Ég veit ekki… ???
Bretar treysta enn þá Íþróttaálfinum
ER ÞAÐ GOTT EÐA SLÆMT?
Fært undir Alþjóðamál, Efnahagur, Ekki mín fjölskylda, Fjölmiðlar, Fréttir, Heilbrigði, Samfélag, Umræðan þann 29. október 2008 af gb | 0 ummæli
Ljós í myrkrinu!
Það er gott að ekki eru allar fréttir alslæmar og það er ljúft til þess að vita að menn eru að hressast! Stýrivextir eru hjóm eitt þegar heilsa manna er annars vegar! Um það geta allir verið sammála!
Fært undir Alþjóðamál, Efnahagur, Fréttir, Heilbrigði, Stjórnmál, Umræðan þann 28. október 2008 af gb | 2 ummæli
“Ríkið á ekki að vera að vasast í því sem…”
Vilhjálmur: Þetta er hræðilegt
Þið kunnið rulluna - Vilhjálmur Egilsson er einn þeirra sem hefur farið reglulega með hana allt frá því að elstu menn, um miðjan aldur, muna.
Af kórdrengjum má nefna: Sigurð Kára, Birgi Ármannsson, Guðlaug Þór og svo mætti lengi telja. Einhverjir þeirra eru enn að tísta þetta - vilja selja áfengi í kjörbúðum, enda þjóðarhagsmunir í húfi þessa dagana.
En viti menn, ríkið á nú allt í einu að fara að “vasast í” öllu heila klabbinu. Ríkið - lesist skattgreiðendur - á að vasast í því að gera upp við umheiminn. Gera upp reikninga sem stofnað til undir því kjörorði, og af mönnum úr hinum sönglandi frjálshyggjukór, að ríkið ætti ekki að að vera vasast í því sem einstaklingarnir gætu sinnt betur. Ríkið átti ekki að reka banka, einstaklingarnir gátu gert það betur - OG SJÁ! Einstaklingarnir sem fengu að reka banka eftir að hafa fengið þá nánast gefins hafa gert betur en að reka banka þeir hafa líka rekið fjölda fólks út á Guð og gaddinn.
Nú er mál að hver spyrji sjálfan sig: Ætla ég að fara að vasast í því sem…?
Ef að það gengur illa að finna svar þá hljóta þeir að vera í símaskránni frjálshyggju mennirnir.
Fært undir Efnahagur, Fréttir, Saga, Samfélag, Stjórnmál, Trúarbrögð, Umhverfi, Umræðan þann 28. október 2008 af gb | 8 ummæli
Næsta síða »
Guðmundur Sveinbjörn Brynjólfsson.