Histon! Já já

Á maður að hlæja eða gráta?

Histon 1 - Leeds 0

Teamtalk segir mér, nokkuð sem ég vissi reyndar ekki og því sárara fyrir bragðið að frétta, að:

The result means Leeds have been knocked out of the FA Cup by a non-league side for the first time in their illustrious history.

Fært undir Alþjóðamál, Trúarbrögð, Íþróttir þann 30. nóvember 2008 af gb | 0 ummæli

Flott að fá jólatré!

www.visir.is Kveikt á jólatrénu á Austurvelli í dag

Þá er hægt að taka Göngum við í kringum á næsta laugardag - það eru margir í æfingu eftir að hafa verið á endalausum snúningi  í kringum gullkálfinn. Reyndar sjást þeir ekkert voða mikið í mótmælunum.

Er ekki rétt að Hörður Torfa fái að kveikja á þessu núna?

Fært undir Fréttir, Samfélag, Tækni og vísindi, Umhverfi, Umræðan þann 30. nóvember 2008 af gb | 0 ummæli

Gaflarar

www.visir.is Þingið upp við vegg

Samt er því haldið fram að IMF stjórni ekki landinu. Mér finnst nú annað vera að koma í ljós. T.d. er athyglisvert að formaður Viðskiptanefndar (Ágúst Ólafur) skuli samþykkja þessi lög og hleypa þessu nánast óskoðuðu í gegnum nefndina - því þessi aðgerð samræmist engu því sem hann stendur fyrir eða hefur staðið fyrir í stjórnmálum.

Fært undir Efnahagur, Fréttir, Stjórnmál, Umræðan þann 29. nóvember 2008 af gb | 0 ummæli

Dollaraveður

Dollaraveður er hugtak sem ekki hefur farið hátt í nokkur ár, en það rifjast upp fyrir mér nú, þökk sé efnahagsástandinu. Það er upprunnið á Keflavíkurflugvelli - frá því hermangið blómstraði og allir undu glaðir við sitt og kreppum var mætt með því að hóta því að reka herinn sem þá bætti heldur í framkvæmdir. Glöddust menn þá enn frekar.

Á þessum velmektardögum siðmenningarinnar á Íslandi og Kalda stríðsins í heiminum blómstruðu tvær leigubílastöðvar í Keflavík (þá var ekki búið að finna upp Reykjanesbæ - það gerðist síðar þegar hnignun var hafin) þetta voru Aðalstöðin og Ökuleiðir. Þá þótti gott að vera leigubílstjóri - sér í lagi á meðan að gjaldeyrir var svipað fágæti og Toblerone. Amerískir hermenn tóku gjarna leigubíla til að skjótast um á beisnum og var fast gjald fyrir túrinn, annað fast í stöðina í Grindavík, enn annað ættu menn leið út í Rockville og enn eitt vildu menn komast niður í Keflavík eða til Reykjavíkur. Fyrir allt þetta skutl var greitt með verðmætum dollurum - sem svo juku gildi sitt þegar þjakaðir Íslendingar búnir á verðbólgusál og fallítt líkama brugðu sér til Spánar með Útsýn eða Sunnu. Þá var gjarna byrjað á því að kaupa dollara á svörtu áður en lagt var af stað - svo menn ættu fyrir sínu Cuba Libre en gætu samt líka keypt dansandi seniorínu, eða öskubakka með nautabanamynd, til að gefa ömmu sinni.

Mest var að gera hjá leigubílstjórunum sem keyrðu á vellinum þegar veður var vont; sérstaklega var rigning gósentíð. Ameríkanar gengu helst ekki spönn frá rassi í rigningu - þeir tóku TAXI. Því var rigning kölluð dollaraveður.

En nú er hún Snorrabúð stekkur og allt það og helvítis herinn farinn og leigubílstjórar lepja dauðann úr skel, sprúttsala fátíð og allir landsins vesalingar akandi um á sínum “eigin” drossíum. Og svo á að fara að halda í gjaldeyrinn af svipuðum fítonskrafti og fyrrum. Er ekki ráð að fá smá Kalt stríð oní kreppuna - svo það megi ná einhverju jafnvægi í gjaldeyrisbúskapinn?

Fært undir Alþjóðamál, Efnahagur, Ferðalög, Minningar, Saga, Samfélag, Stjórnmál, Umhverfi, Umræðan þann 28. nóvember 2008 af gb | 0 ummæli

Bókmenntaleg vísun

www.visir.is Viðskiptablaðið selt til Mylluseturs

Er ekki nafnið á þessu útgáfufélagi bókmenntaleg vísun? Mér sýnist það. Það getur ekki vitað á nema gott eitt þegar heimsbókmenntirnar rata svona inn í nafngiftir íslenskra félaga.

Og svo er það stóra spurningin, smá samkvæmisleikur, í hvaða bókmenntir er verið að vísa?

Fært undir Bókmenntir, Fjölmiðlar, Fréttir, Samfélag þann 27. nóvember 2008 af gb | 4 ummæli

2+1

www.visir.is Vegagerðin vill 2 + 1 veg yfir Hellisheiði

Þetta virðist ekki flókið dæmi. Útkoman er 3.

Þó hefur þetta verið að vefjast fyrir mönnum og virðist ætla að gera svo enn um sinn.

Nú er enn á ný lagt af stað í umræður um hvort að betra sé að hafa veginn yfir Hellisheiði fjórar akreinar eða þrjár. Flókið? 

Segir það sig ekki sjálft? Er hægt að rausa um þetta þannig að menn fari að trúa því að lokum að það sé best að hafa þetta einbreiðan veg - ómalbikaðann?

Hvað á maður að halda?

Fært undir Fjölmiðlar, Fréttir, Samfélag, Tækni og vísindi, Umhverfi, Umræðan þann 27. nóvember 2008 af gb | 3 ummæli

Hefði samþykkt þessarar tillögu

www.visir.is Borgarráð felldi tillögu um ókeypis í strætó

… ekki verið gott innlegg á þessum síðustu og verstu?  En pólitíkin er söm við sig - af því að Ólafur F. Magnússon bar þetta upp þá er það ómögulegt. Eða hvað?

Hitt er svo annað að samanburðarfræðin sem Ólafur iðkar, og fram koma í fréttinni, eru ekki merkileg.

Fært undir Efnahagur, Fréttir, Samfélag, Stjórnmál, Umhverfi, Umræðan þann 27. nóvember 2008 af gb | 2 ummæli

Rúllukragabolir og leggings

www.visir.is Nær aldargömul saga Woolworths er á enda

Út úr Woolworths í Staines bar ég forðum rúllukragaboli og leggings með jöfnum reglubundnum hætti. Þetta var svo sem ekki nein eðalvara - en hæfði fjárhagnum; þetta var um það leiti að ég var heimagangur hjá drottningunni, en áður en ég var aðlaður.

Margrét Unnur frílistaði sig svo í þessum fötum og óx uppúr þeim á hraða hljóðsins. Það var þá, það var þegar ég skapaði mér gott orðspor á Englandi sem enn lifir; bæði hjá aðlinum (sem mér þykir vænna um) sem og hjá uppgjafa knöpum og starfsmönnum flugfélaga, garðyrkjumanni soldánsins af Brunei og öryggisvörðum hjá Tesco (sem mér þótti minna vænt um, en vænt um samt, af því það var alþýðufólk).

Den tid den sorg. Eða öllu heldur: Those were the days!

Ég læt þetta fylgja þó það sé ekki svona langt síðan:

http://www.youtube.com/watch?v=X5pkkAhETYg

Fært undir Fréttir, Minningar, Saga, Tónlist, Vinir og fjölskylda þann 27. nóvember 2008 af gb | 0 ummæli

Það er nú eins fallegt

www.visir.is Nemar í HR óánægðir með samnemanda sinn

… að þeir skríði allir í sama duftinu, í sama takti eftir sama laginu. Kjósi eins og hafi sömu skoðanir.

Það er vá fyrir dyrum: Katrín Oddsdóttir passar ekki í HR kassann.

Fært undir Fréttir, Lögfræði, Samfélag, Stjórnmál, Umræðan þann 27. nóvember 2008 af gb | 4 ummæli

Og þá hlaupa allir í Ríkið

www.visir.is Verð í vínbúðum hækkar líklegast á föstudaginn

En það er óþarfi að örvænta. Það er nóg til og Brendan Behan er dáinn:

 

Og svo eru aðrar leiðir færar af allt fer á versta veg:

 

Hvenær hefur ríkisstjórnin svo sem brugðist?

Fært undir Efnahagur, Fjölmiðlar, Fréttir, Heilbrigði, Matur og drykkur, Samfélag, Umhverfi, Umræðan, Vinir og fjölskylda þann 26. nóvember 2008 af gb | 0 ummæli

Næsta síða »
gb

Guðmundur Sveinbjörn Brynjólfsson.
Sannkristinn Sósíalisti!

Ég á eina dóttur - sem er nú allnokkuð!
Giftur yndislegri konu og á þrjú stjúpbörn.

Fjölmenntaður 19. aldar maður - ku samt lifa á þeirri 21.
Fullur af margvíslegum þverstæðum!

Hægt er að hafa samband: gummimux@simnet.is


Nýjustu færslur
Leit

Flokkar

Eldri færslur

Tenglar

  • WordPress.com
  • WordPress.org
  • Jens Guð
  • Sverrir Jakobsson
  • Kristján B. Jónasson
  • Bergur Þór Ingólfsson
  • Pétur Tyrfingsson
  • Stefán Pálsson
  • rcg
  • Davíð Þór Jónsson
  • Steindór Gunnar
  • Bestiflokkurinn
  • Stageplays
  • Britannica
  • Leikhús alfræði - Wiki
  • Sædís Ósk
  • TiggerTalk (Michael Eustice)
  • MorningStar
  • CPI
  • Guardian
  • Fylgjast með RSS-veitu
    Vísir Fréttir Lífið Íþróttir Viðskipti Vefmiðlar
    Blogg.Vísir.is Innskráning Nýskráning