“Klippt á lýðræðislega umræðu”
Tæknifólk Stöðvar 2 varð fyrir árásum
Svo segir Sigmundur Ernir.
Það er ekki burðugt ástandið ef að lýðræðisleg umræða á Íslandi stendur og fellur með því hvort að Rio Tinto Alcan tímir að borga fyrir hana eða ekki. Það er líka lýðræðislegur réttur fólks að mótmæla og það er kosturinn við mótmæli að þeim verður ekki stjórnað, hvorki af Sigmundi Erni, Stöð 2, Rauðsól (eða hvað það nú heitir) og allra síst af Ingibjörgu Sólrúnu en fram kom í þættinum að aðferðafræði þessara mótmælenda er henni ekki þóknanleg; og því “röng”.
Þar fyrir utan er afar fátt lýðræðislegt við að hlusta á fólk eins og Ingibjörgu Sólrúnu og Valgerði Sverrisdóttur reyna að falsa söguna í beinni útsendingu - jafnvel ekki á gamlársdag.
Hinsvegar er óþarfi að meiða starfsfólk Stöðvar 2 og ljótt ef satt reynist. En er ekki töff að vera stríðsfréttaritari?
Fært undir Fjölmiðlar, Fréttir, Samfélag, Spilling, Stjórnmál, Umhverfi, Umræðan þann 31. desember 2008 af gb | 5 ummæli
Hver á dótið?
Kryddsíldinni hætt vegna mótmæla - myndir
Voru ekki græjurnar sem Stöð 2 á nýlega að skipta um eigendur? Hver á þetta núna? Þetta sem verið var að skemma - eftir því sem fregnir herma - og hver átti það áður? Sorrý, það er bara erfitt að fylgjast með hver á hvað í þessu landi, hver kaupir hvað af hverjum og fyrir hvað mikla peninga. Og hvaðan peningarnir komu og hvaða leið þeir komu.
Leiðinlegt með græjurnar - eða þannig.
Fært undir Fjölmiðlar, Samfélag þann 31. desember 2008 af gb | 0 ummæli
Í boði Rio Tinto Alcan
Fært undir Fjölmiðlar þann 31. desember 2008 af gb | 0 ummæli
Að tala er ekki það sama og að meina það sem talað er:
Bankamálaráðherra mestu spillingarára lýðveldisins í bankamálum. Valgerður Sverrisdóttir hefur ekki neinn áhuga á því að öllum spurningum verði svarað! Svo mikið er víst.
En hún veit að það lítur þokkalega út að hún hafi þessa skoðun.
Fært undir Fréttir, Spilling, Stjórnmál þann 31. desember 2008 af gb | 0 ummæli
Er eftirspurn?
Ekki á þessu heimili a.m.k. Hér hefur fólk nefnilega ennþá eitthvað smáræði af óskertu minni.
Fært undir Fréttir, Heilbrigði, Saga, Stjórnmál þann 30. desember 2008 af gb | 0 ummæli
Gunnar I. Birgisson tekur vinnu frá atvinnulausum
Hann er reyndar ekki einn um það.
Nú er stöðugt klifað á því að atvinnuleysi fari vaxandi. Ég get svo sem ekki leyst þann vanda, í eitt skipti fyrir öll, sem atvinnuleysið er. En ég hef tillögur til úrbóta.
Fjöldamargir í toppstöðum, t.d. Gunnar I. Birgisson bæjarstjóri í Kópavogi, eru í ýmiskonar aukastörfum. Gunnar er formaður stjórnar LÍN. Þar situr og í stjórn Kristín Edwald hæstaréttarlögmaður hún er reyndar líka í stjórn Ríkisútvarpsins ohf. En annars sinnir hún lögmannsstörfum hjá virtri lögmannsstofu hér í bæ. Svona er hægt að skanna opinbera stjórn eftir stjórn, opinbert fyrirtæki eftir fyrirtæki. Við stjórnarborðin situr fólk sem telst vera í vellaunaðri fullri vinnu hér og þar í samfélaginu. En “þarf” það líka að taka önnur störf frá öðru fólki? Er það kannski vegna þess að það er miklu “hæfara” en “hinir”.
Ég efast ekkert um ágæti þessa fólks - en maður hlýtur að spyrja hvort ekki væri rétt að deila þessum störfum á fleiri; á einhverja sem ekki hafa vinnu? Eða eru t.d. ekki í fullri vinnu? Ég t.d. er ekki í 100% stöðugildi, ég treysti mér alveg til að taka stjórnarformanns djobbið hjá LÍN + setu í stjórn Ríkisútvarpsins ohf. Ég myndi ætla að ég hefði bærilega hæfni, menntun og reynslu til að sinna hvoru tveggja. Eða er þetta kannski ekkert spurning um slíkt?
Fært undir Efnahagur, Samfélag, Stjórnmál, Umræðan þann 30. desember 2008 af gb | 4 ummæli
Sannur snillingur fallinn frá
Hann hafði þá gáfu að skrifa leiktexta sem var eðlilegur.
Þetta hljómar ekki flókið - jafnvel barnalega einfalt. En svona er það nú samt og það er alls ekki eins auðvelt að skrifa “eðlilegan” talsmálstexta eins og ætla mætti. Hlustaðu næst þegar þú ferð í leikhús eða bíó.
Pinter hafði þessa gáfu. Samtöl fólks í verkum hans eru eins og fólk talar - eins og einhver sagði. Svo talar fólk stundum í kross - fólk talar reyndar mjög oft í kross. Pinter hafði tekið eftir því. Það er partur af þessu eðlilega í skrifum hans.
Lífið er oft og tíðum ekki flókið á yfirborðinu en undir niðri bærist eitthvað ofboðslega þungt og áhrifamikið sem skekur líf einstaklings og þá oft um leið fjölskyldu eða annars hóps. Pinter hafði líka veitt þessu athygli.
Stundum blása miklir stormar í fjölskyldum, fárviðri út af nánast engu. Eða kannski út af einhverju allt öðru en virðist í fyrstu. Harold Pinter sá þetta - og kom því til skila.
Með Pinter er gengið eitt mesta leikritaskáld seinni tíma.
Fært undir Bókmenntir, Fréttir, Leiklist, Menning og listir þann 30. desember 2008 af gb | 0 ummæli
Hið nýja keflaða Ísland
Vill afnema leynd á orkuverði til Norðuráls
Nýjar þagnir um sömu mál og venjulega! Allt upp á borðið og engin leyndarmál og fyrir opnum tjöldum frasarnir allir dauðir nú þegar!
Það er með ólíkindum hvað hún er lífseig þessi leynd sem er á raforkuverði og engin rök eru fyrir. Gott hjá Svandísi að opna þessa umræðu - best hefði þó verið ef hún hefði setið fundinn og svo brotið hinn meinta trúnað.
Stjórmálamennirnir eru okkar trúnaðarmenn! Það er mál að þeir fari að skilja það. Svandís er á réttri leið - hinir út í móa.
Fært undir Fréttir, Samfélag, Spilling, Stjórnmál, Umhverfi, Umræðan þann 29. desember 2008 af gb | 0 ummæli
Þeir fundu einn heiðarlegan
Rannveig Rist maður ársins hjá Frjálsri verslun
Það er vel.
Fært undir Fréttir þann 29. desember 2008 af gb | 8 ummæli
Kreppurusl
Auðveldara að flokka sorpið í framtíðinni
Það leiðir af sjálfu sér að flokkun á rusli verður einfaldari er fram líða stundir og árið í aldanna skaut og allt það. Umbúðir verða fábrotnari á komandi tímum. Sortir færri. Sumt og sjálfsagt margt verður étið umbúðalaust. Minna verður hent af mat, flest verður borðað. Allt frá fleski til 44″ dekkja. Já það verður eitt og annað tuggið þegar það fer að harðna í ári einhverjir verða auðir veggirnir, allt mun þrjóta og engin sorg verða til. Eða það skyldi maður ætla.
Nýhækkaðan persónuafslátt verður þó ekki hægt að éta því það er löngu búið að því - maður borðar ekki úr sér kúkinn. Jafnvel ekki í kreppunni. Ráðherrann sem var að boða þessa hækkun hefur ekki verið á lífi undanfarin ár svo honum er vorkun að vita ekki af því að hér hefur flest hækkað langt umfram áttaþúsund krónur. Tímabundið andlát hans, nýyfirstaðið, hefur og haft það í för með sér að hann veit ekkert um það að verðbólga er í kringum 20%. En nú er hann vaknaður, lifnaður, fæddur. Rétt í blá lokin á jólaguðspjallinu. En hann á þó samt erindi því asninn er enn með vöðvabólgu eftir móður okkar allra kasólétta.
Fært undir Alþjóðamál, Bókmenntir, Dýrahald, Efnahagur, Ferðalög, Fjölmiðlar, Fréttir, Heilbrigði, Matur og drykkur, Saga, Samfélag, Stjórnmál, Trúarbrögð, Umhverfi, Umræðan þann 29. desember 2008 af gb | 0 ummæli
Næsta síða »
Guðmundur Sveinbjörn Brynjólfsson.