Jón Baldvin hefur lög að mæla
Ótækt að bjóða fram óbreytta forystu
En hvort að hann sjálfur sé nákvæmlega það sem þjóðina vantar er svo önnur saga. Það sem blasir við er að Samfylkingin er alls ekki í lagi; þar eru flokkadrættir áberandi og klíkumyndanir greinilegar.
Þetta klagar svo sem ekkert sérstaklega uppá mig… ekki persónulega, en þjóðina vantar kannski eitthvað annað en sundrungu.
Fært undir Ekki mín fjölskylda, Fréttir, Samfélag, Stjórnmál þann 28. febrúar 2009 af gb | 4 ummæli
Sigur í 6 stiga leik hjá Crewe
Ég hef staðið mig að því að undanförnu að fylgjast náið með gengi Crewe Alexandra. Nú rétt áðan landaði liðið sigri gegn Brighton á útivelli 0-4. Gylfi Sigurðsson skoraði 4. mark liðsins. Þetta var sannkallaður 6 stiga leikur því Brighton er á svipuðu róli og Crewe í deildinni. Á sama tíma tapaði Leyton Orient fyrir Hereford, það má því segja að allt hafi orðið Crewe að vopni í dag. En með þessum úrslitum hefur lið Guðjóns Þórðarsonar í fyrsta sinn náð sér upp af fallsvæði 1. deildar í vetur.
Það er fínt að blogga svona um fótbolta - pólitík er svo þreytandi!
Fært undir Íþróttir þann 28. febrúar 2009 af gb | 1 ummæli
Rithöfundurinn spyr
Mér finnst rithöfundurinn Steinunn Sigurðardóttir setja fram stóra spurningu. Hér er færst mikið í fang. Ekki trúi ég eina einustu stund að hún hafi ætlað sér að svara henni í einni blaðagrein. En mér finnst framtakið virðingarvert; að reyna, a.m.k. að leita svara við því hvort að Norðmenn séu Jesú Kristur?
Ég trúi því að margir heimspekingar og skáld eigi eftir að takast á við þessa spurningu í framhaldinu - kannski er þetta stærsta tilvistarlega spursmálið sem Íslendingur hefur sett fram um aldir. En eins og löndum vorum hefur löngum verið tamt, í stórmennskulegri hugsun sinni, þá lítur Steinunn Sigurðardóttir upp úr eignin garðholu og lætur ekki svo lágt að spyrja hvort: Íslendingar séu Jesú Kristur. Þó ég trúi að það stæði okkur nær. Er þeirri spurningu því hér með komið á framfæri, af mér - ég hef ekki burði til að lyfta anda mínum landa á milli í leit að svörum eins og ”ástandið er í þjóðfélaginu”.
Fært undir Heimspeki, Umræðan þann 28. febrúar 2009 af gb | 2 ummæli
Það voru ekki allir jafn ánægðir með Óskarinn
Ég hef alltaf haldið sérstaklega upp á Sean Penn. En svo eru aðrir - já, eins og sjá má sem… :
Fært undir Kvikmyndir, Leiklist, Umræðan þann 27. febrúar 2009 af gb | 0 ummæli
Af svikahröppum
Svikahrappar maka krók sinn í kreppunni
Svikahrappar maka krókinn í kreppunni - segir af þeim í fréttinni sem hér er vísað til. En það er nú mitt mat - án þess að leggjast í viðamiklar rannsóknir - að svikahrappar hafi líka makað krókinn fyrir kreppuna. Jafnvel af svo miklum fítonskrafti að það varð kreppa.
Fært undir Efnahagur, Fréttir, Samfélag, Spilling, Umhverfi, Umræðan þann 27. febrúar 2009 af gb | 0 ummæli
Gaui Þórðar gerir það gott
Það er eitthvað við Guðjón Þórðarson - eitthvað DavíðsOddsonískt. Hann er hataður og dáður á víxl. Nær að rífa og hrífa fólk með sér. Kemur öllu á kaldan klakann en stígur svo upp sterkari en áður…
Þegar öllu er á botninn hvolft, flottir frekir kallar!
Fært undir Fréttir, Saga, Samfélag, Umræðan, Íþróttir þann 26. febrúar 2009 af gb | 2 ummæli
Að reikna sig lóðbeint til helvítis og aftur heim
Ríkisstjórnin hefur látið það boð út ganga að tillögur Framsóknarflokksins um 20% niðurfellingu skulda séu óraunhæfar og að slíkt myndi senda Íbúðarlánasjóð „lóðbeint“ á hausinn svo notað sé orðalag forsætisráðherra. Íbúðarlánasjóður styður að sjálfsögðu þessa greiningu á reikningsdæmi Framsóknar. Það lá að – loks náðu menn að reikna í fljótheitum. Bæði ríkisstjórn og Íbúðalánasjóður – en röskleiki við reikningskúnstir hefur hvorki verið aðalsmerki stjórnmálamanna, nema þegar þeim hentar, né Íbúðarlánsjóðs.
Í gærkvöld hlustaði ég á Sigmund Davíð útlista þessar aðgerðir – þær hljómuðu ekki heimskulegri en margt annað sem hefur verið borið fyrir mann á liðnum árum.
Ólíklegustu aðilar segja að þetta sé of dýrt; að þetta sé ekki framkvæmanlegt. Jón Steinsson hagfræðingur er dreginn á flot samkvæmt venju – það hefur almennt skapast sú trú hér á landi að hann kunni að reikna. Hann reiknaði þetta allt til helvítis.
En nú spyr ég. Hvað kostar að láta allt fara hér lóðbeint á hausinn – og þá gef ég mér sem er þó arfavitlaust að Íbúðarlánasjóður fari ekki á hausinn hvorki lóðbeint né á ská – m.ö.o. hvað kostar það að tugþúsundir landsmanna verði gjaldþrota? Ég ætla ekki að reikna mig neitt, ekki til helvítis og þá þarf ég heldur ekki að reikna mig aftur heim þaðan. En ég er nokkuð viss um það að það hefur ekki nokkur maður skoðað hvað slík fjöldagjaldþrot kosta.
Ég er ekki bara að tala um krónur og aura í bönkum og sparisjóðum í þessu sambandi, mér er skítt sama um bíl eða tvo sem Lýsing eða Avant gleypir til þess eins að gleypa, ég er ekki að tala um nauðungaruppboð, kröfur og veðköll, krónur eða evrur, ég er ekki að ræða akkorð við að telja peninga hvort heldur er í lífeyrissjóðum eða fjárfestingarsjóðum í því skyni að koma þeim í örugga höfn – svo foringjarnir geti haft þokkalegt kaup.
Ég er að tala um andlega heilsu landmanna. Ég er að tala um fjárútlátin sem vonleysið kallar á. Ég er að tala um renneríið inn og út af hjartadeildum, geðdeildum og afeitrunarstofnunum. Ég er að hugsa um álagið sem mun verða á stoðkerfi samfélagsins, á kirkjunni, á hjálparstofnunum, á lögreglu, á tollgæslu, á börnunum í skólunum.
Eða halda menn að gjaldþrotin muni bara halda sig sér, standa fyrst í út af fyrir sig í Lögbirtingarblaðinu en fikra sig svo í skjóli nætur til sýslumanns? Og svo verði allt harla gott? Telja menn að gjaldþrot snúist fyrst og síðast um peninga? Ef svo er þá eru þeir hinir sömu á villigötum. Ef menn halda að þessi kreppa sem hér er snúist fyrst og síðast um peninga – þá eru þeir hinir sömu líka á villigötum. Þetta snýst allt um fólk!
Sjái menn fyrir sér að Íbúðalánasjóður sé að fara lóðbeint á hausinn þá er rétt að setja í hann meiri peninga – eitthvað brot af þeim peningum sem annars þarf að setja í allt hitt sem ég nefndi hér að ofan.
Fært undir Efnahagur, Heilbrigði, Lögfræði, Samfélag, Stjórnmál, Umhverfi, Umræðan þann 26. febrúar 2009 af gb | 2 ummæli
Alveg fram í pólitískt andlátið
Árni Matt hættur - neitaði því í morgun
… lét Árni Matt sig hafa það að segja kvart sannleikann. Hann dró þannig á smekklegan hátt saman embættisfærslu sína í stóli fjármálaráðherra. Hafi hann þökk.
Fært undir Fréttir, Samfélag, Stjórnmál þann 26. febrúar 2009 af gb | 3 ummæli
Mætti nota þetta á stjórnmálamenn?
Krókódílar afvegaleiddir með segulstáli
Þá sérstaklega Framsóknarmenn? Mér dettur í hug Höskuldur - sem nú er gjarna kallaður Þröskuldur - vegna þess að yfir hann þarf ríkisstjórnin að stíga til að geta komist inn í Seðlabankann til þess að bera Davíð Oddsson út en þá lækka sem kunnugt er afborganirnar hjá landsmönnum strax um næstu mánaðarmót.
Fært undir Fréttir, Stjórnmál þann 26. febrúar 2009 af gb | 2 ummæli
Annar í baunasúpu
Öskudagurinn er góður dagur fyrir margt. Þó er hans helsti kostur auðvitað sá að þá er Annar í baunasúpu. Í kvöld át ég síðustu saltkjötsbitana kalda, þeir eru enn betri kaldir og jós í mig sjóðheitri baunasúpu. Meir að segja kreppan gleymist þegar svona fínheit eru viðhöfð í mat
Fært undir Matur og drykkur þann 25. febrúar 2009 af gb | 0 ummæli
Næsta síða »
Guðmundur Sveinbjörn Brynjólfsson.