Mér líkar það vel

www.visir.is Banna útflutningsviðskipti í krónum

Mér sýnist allt stefna í að hér verði farið að stjórna með tilskipunum. Mér líkar það bærilega. Nú hafa einhverjir guttar verið staðnir að því að braska með gjaldeyri með þeim afleiðingum að blessuð krónan fellur, þá skulu þeir braskmöguleikar af þeim teknir með lögum! Helst hefði ég viljað sjá tilskipun, reglugerð og fylgjandi henni ákvæði um mögulega betrunarhúsvist. En þetta verður að duga í bili.

Fært undir Efnahagur, Fréttir, Samfélag, Spilling, Stjórnmál, Umræðan þann 31. mars 2009 af gb | 0 ummæli

Það þurfti ekki að bíða lengi

www.visir.is Framtíð Afganistan rædd í Haag

… eftir því að goðið (sumra) Obama færi að moka amerískum dátum í þúsundavís til útlanda. 4ooo stykki til Afganistan - auðvitað undir formerkjum fallegara fyrirheita og farsældar á komandi árum, eins og segir á jólakortunum.

Fært undir Ferðalög, Fréttir, Stjórnmál þann 31. mars 2009 af gb | 2 ummæli

Játningar?

www.visir.is Bjarni: Við erum ekki frjálshyggjuflokkur

Eða kannski lygar? Eða bæði?

Fært undir Fréttir, Stjórnmál þann 30. mars 2009 af gb | 7 ummæli

“Aðrir fengu 10 atkvæði eða færri.”

Ég var að reyna að komast að því hvað aðrir hefðu fengið mörg atkvæði þegar formaður Sjálfstæðisflokksins var kjörin um helgina. Maður stóð lengi vel í þeirri meiningu að frambjóðendurnir væru fjórir - kannski breytist það eitthvað í lokin?

En, þessar upplýsingar fengust sem sagt á heimasíðu flokksins þar sem fjallað er um formannskjörðið:

“Aðrir fengu 10 atkvæði eða færri.”

Fært undir Dýrahald þann 30. mars 2009 af gb | 2 ummæli

Að gera eitthvað úr einhverju sem aldrei var neitt

http://vf.is/Mannlif/40092/default.aspx

Hún er hláleg þessi uppvakning á Offíseraklúbbnum á gamla varnarsvæðinu á Keflavíkurflugvelli. Allt í einu er fólk sem ekkert man eftir þessum stað og kom þar aldrei að reyna að framleiða einhverja nostalgíu í kringum eitthvað sem aldrei var neitt. Rifja upp “móment” sem aldrei voru. Dásama stað sem ekkert var nema bara drykkjubúlla með þungum húsgögnum og tekki og plasti.

Getur lágkúran tekið á sig tærari mynd?

Fært undir Fjölmiðlar, Fréttir, Minningar, Saga, Samfélag, Spilling þann 29. mars 2009 af gb | 0 ummæli

Mér lýst ógeðslega vel á þetta allt

www.visir.is Bjarni Ben kosinn formaður Sjálfstæðisflokksins

Þetta er allt svo æðislegt og allt svo nýtt og svona. Og allir svo flottir og svo er búið að biðjast alveg gekkt mikið afsökunar og fyrirgefningar og svona. Og hann er svo sætur og ferskur og ríkur og góður og ég meina - og Davíð! Og koma svo og kjósa því það eru svo miklir möguleikar og tækifæri í atvinnuleysinu og streðinu og Mæðarastyrksnefnd! Og þetta er allt svo mikið nýtt blóð og svo er bara engum treystandi hjá hinum því þetta lið hækkar bara skattana og ég veit ekki hvað - og Davíð!

Mér finnst Bjarni æðislegur og Þorgerður - og Davíð!

Fært undir Efnahagur, Fjölmiðlar, Fréttir, Saga, Samfélag, Spilling, Stjórnmál, Trúarbrögð, Tíska, Umræðan þann 29. mars 2009 af gb | 2 ummæli

Fyrstu brestirnir

www.visir.is Vilja ekki afnema verðtrygginguna

Í gær töluðu þeir fjálglega Árni Páll og Dagur um að það væri nánast formsatriði að kjafta VG inn á það að sækja um aðild að Evrópusambandinu. Það er RANGT.

Nú kemur í ljós að Samfylkingin vill ekki afnema verðtrygginguna, ólíkt því sem talað var fyrir á fundi VG um síðustu helgi.

Ef þetta stjórnarmynstur sem nú er, á að halda sér eftir kosningar þá þarf að koma þessum málum á hreint. Mér sýnist að fyrstu brestirnir séu að koma í ljós. Mér sýnist það vera Samfylkingin sem gerir sér það að leik að hoppa á ótraustu svellinu.

Fært undir Fréttir, Samfélag, Stjórnmál þann 29. mars 2009 af gb | 0 ummæli

Já! : Stuttur einleikur um mann sem fregnar tíðindi

www.visir.is Líkti starfslokum sínum við krossfestingu Krists

MAÐURINN:

Það er nefnilega það já - (Hóst). Það er margt í mörgu. (Þögn) Já. Jæja. (Dvöl) Ég skal segja ykkur það! (Hóst og ræskingar, maðurinn gengur að bókahillu og tekur fram Bókina um manninn og aðrar bækur tiltækar um heilbrigðismál, flettir þeim um stund) Jæja. Já. Ég skal segja ykkur það. (Þögn) Kristur? Jú, já. Jæja. Það er nefnilega það. Já. (Dvöl) Ég skal segja ykkur það. Altso ég hef heyrt talað um… Já. Jú. Það er ekkert nýtt undir sólinni. Maður hefur svo sem heyrt af þessu áður, einhverju svipuðu. Mikil ósköp. (Gengur aftur að bókahillunni. Tekur fram sálmabók) Ég hélt ég hefði átt hérna Biblíu? Ha? Það er nefnilega það! Já! (Leitar í hillunni og finnur Biblíuna) Ég hélt það. (Þögn) Hann heldur það. Já! Ég… Já… Það er líklega bara þannig. Já. Þetta endaði þá svona.

Tjaldið

Fært undir Bókmenntir, Fréttir, Heilbrigði, Leiklist, Saga, Samfélag, Stjórnmál, Trúarbrögð, Umræðan þann 28. mars 2009 af gb | 2 ummæli

Niður-fellingar/fall/gangur - niðurstöður: Núll

www.visir.is Fjögurra milljóna niðurfelling dýrari

Maður heyrir um það nánast í viku hverri að svo og svo mikið hafi verið fellt niður af skuldum. Oftast eiga í hlut stórfyrirtæki. Maður heyrir aldrei neitt um það - áður en þetta er gert - að það standi til og því ekki hvað það muni kosta.

Ef orðaðar eru niðurfellingar skulda einstaklinga fer heil reiknimaskína í gang - fyrirfram (sem í sjálfu sér er gott). Er þá allt reiknað í drep og fólki svo “leitt það fyrir sjónir” af föðurlegri en strangri hlýju að þetta sé of dýrt og með öllu ómögulegt.

Daginn eftir les maður svo um frekari niðurfellingu skulda hinna efnamestu - eða fyrirtækja í þeirra eigu - sem þó þeir ekki eiga því að það eru auðvitað fyrirtæki í þeirra eigu sem eiga þessi fyrirtæki sem eru í þeirra eigu. Afskrifaðar eru hundruðir og þúsundir milljóna; aftur og aftur.

En - hafa ber í huga að fjögurra milljóna króna niðurfelling er dýrari.

Fært undir Efnahagur, Fréttir, Samfélag, Spilling, Stjórnmál, Umhverfi, Umræðan þann 28. mars 2009 af gb | 0 ummæli

Ég held að það hafi aldrei gerst

www.visir.is Ekki verið að skerða grunnþjónustu

… að það hafi verið skorið niður í grunnþjónustu; hún skerðist aldrei.

Grunnþjónusta er eitthvað voða merkilegt óskilgreint fyrirbæri sem stendur alltaf og endalaust af sér allar niðurskurðaraðgerðir stjórnmálamanna - ef marka má stjórnmálamenn.

Fært undir Efnahagur, Fréttir, Saga, Samfélag, Stjórnmál þann 27. mars 2009 af gb | 0 ummæli

Næsta síða »
gb

Guðmundur Sveinbjörn Brynjólfsson.
Sannkristinn Sósíalisti!

Ég á eina dóttur - sem er nú allnokkuð!
Giftur yndislegri konu og á þrjú stjúpbörn.

Fjölmenntaður 19. aldar maður - ku samt lifa á þeirri 21.
Fullur af margvíslegum þverstæðum!

Hægt er að hafa samband: gummimux@simnet.is


Nýjustu færslur
Leit

Flokkar

Eldri færslur

Tenglar

  • WordPress.com
  • WordPress.org
  • Jens Guð
  • Sverrir Jakobsson
  • Kristján B. Jónasson
  • Bergur Þór Ingólfsson
  • Pétur Tyrfingsson
  • Stefán Pálsson
  • rcg
  • Davíð Þór Jónsson
  • Steindór Gunnar
  • Bestiflokkurinn
  • Stageplays
  • Britannica
  • Leikhús alfræði - Wiki
  • Sædís Ósk
  • TiggerTalk (Michael Eustice)
  • MorningStar
  • CPI
  • Guardian
  • Fylgjast með RSS-veitu
    Vísir Fréttir Lífið Íþróttir Viðskipti Vefmiðlar
    Blogg.Vísir.is Innskráning Nýskráning