Móakot

 Ég fæ ekki betur séð en að þetta sé Móakotið. Nú fallið um sjálft sig suður á Vatnsleysuströnd. Þetta er ljómandi mynd.

Þarna bjó um skeið ásamt fjölskyldu sinni Haraldur Adolfsson - man aðeins eftir honum í eldhúsi foreldra minna - mér þótti hann merkilegur maður. Þar kom aðallega tvennt til, þegar ég man hann var hann ný fluttur heim frá Ástralíu. Hitt var - sem mér þótti merkilegra - að hann var hárkollumeistari og hafði unnið við sjálft Þjóðleikhúsið. Þetta starfsheiti fannst mér magnað og finnst reyndar enn; nú heyrist það sjaldan.

Kannski var ég 8 ára eða þar um bil þegar þetta var - Haraldur var sköllóttur; mér fannst himinhrópandi misræmi í þeirri staðreynd og starfsheitinu. Svona man maður glefsur.

Fært undir Menning og listir, Minningar, Saga þann 30. apríl 2009 af gb | 7 ummæli

Þá er búið að toppa það

www.visir.is Ekið á tvö hross

Ég keyrði bara á eitt hross á sínum tíma. Svo var ég líka bara á Lödu 1600. Hrossið var aflífað daginn eftir, Ladan eyðilagðist og Binni bróðir gaf mér Polo rakspíra í afmælisgjöf nokkrum dögum seinna.

 Húmoristi hann Brynjólfur - á sinn hátt.

Fært undir Dýrahald, Fréttir, Minningar þann 30. apríl 2009 af gb | 7 ummæli

Stórt er spurt og óþarflega einfaldrar spurningar

www.visir.is Á hverjum bitnar niðurskurðurinn

 

 

SVAR: Á þeim sem sem síst skyldi.

Fært undir Umræðan þann 30. apríl 2009 af gb | 0 ummæli

Eða 1942

www.visir.is 1978 eða 1994

Þá fengu Sósíalistar 10 þingmenn og þótti, sem var, stórsigur. Þeir stóðu fast á kröfum sínum, sem flestar lutu að bættum hag alþýðu þessa lands, hopuðu hvergi og fóru EKKI í stjórn.

Ríkisstjóri skipaði þá vonda utanþingsstjórn. Þar var félagsmálaráðherra Jóhann Sæmundsson skástur - hann sagði af sér í apríl 1943.

Ég óska þess ekki að nú skipi forseti utanþingsríkisstjórn en ég óska þess ekki heldur að Sósíalistarnir sem enn finnast á þingi og eru nálægt því að vera 14 talsins hopi og gefi eftir málin sem urðu þess valdandi að þeir náðu þó nálægt því 14 talsins á þing.

Fært undir Saga, Samfélag, Stjórnmál, Umræðan þann 29. apríl 2009 af gb | 3 ummæli

Athyglisverð ummæli

www.visir.is Segir samningsstöðu Íslands gagnvart ESB vera erfiða

Sérstaklega þykir mér þetta áhugavert:

„Það er vissulega rétt hjá nýrri stjórn að horfa til Brussel. En landið gæti styrkt hendi sína með því að bíða og athuga aðra möguleika,” segir Maddox.

Og ekki síður þetta:

„Frá miðju Atlantshafsins hefur Íslandi ætíð gengið vel að spila Bandaríkin gegn Evrópu og bæði svæðin gegn Rússlandi. Slík hefur skapað trúnaðarbrest en er eftir sem áður besta spilið á hendi Íslands,” segir Maddox.

Þessi kona myndi væntalega ekki teljast “evrópusérfræðingur” hér á landi. Íslenska pressan sæmir einungis þá slíkari nafnbót sem eru fylgjandi ESB í einu og öllu og þá menn Íslenska sem vilja ganga í sambandið.

Fært undir Fjölmiðlar, Fréttir, Samfélag, Stjórnmál, Umræðan þann 29. apríl 2009 af gb | 0 ummæli

Fyrir hvað?

www.visir.is Tilkynnt á leiðinni á Besstaði að hún fengi ekki fálkaorðuna

Fyrir hvað átti hún svo sem fá Fálkaorðuna? Fyrir að hafa verið send af yfirvöldum í USA til að vinna á Íslandi? Er það talið stórkostlegt afrek?

Ekki veit ég af hverju Óli hætti við að hengja í hana, sjálfsagt hefur runnið upp fyrir honum að hún hafi ekki til neinna heiðursmerkja unnið hér á landi.

Þessar orðuveitingar eru fyrir löngu komnar út í tómt rugl.

Fært undir Fréttir, Samfélag, Umræðan, Óflokkað þann 28. apríl 2009 af gb | 1 ummæli

Ég stel frá Jónasi

Ekki þó Jónasi Hallgrímssyni. Ekki núna.

Ég stel frá Jónasi Kristjánssyni. Treysti því einlæglega að ég fái ekki í hausinn málaferli og djöfulgang - öðru eins hefur verið stolið hérlendis að undanförnu, óátalið.

Jónas skrifar:

 ”Þið trúið röngum spuna

Samfylkingin spinnur betur en aðrir flokkar, enda studd ágætum spunakörlum og ímyndunarfræðingum. Hún hefur fengið hálfa þjóðina til að trúa röngum niðurstöðum kosninganna. Fólk trúir, að Samfylkingin hafi unnið sigur. Hins vegar unnu Borgarahreyfingin og Vinstri græn kosningasigur, +7,2% og +7,4%. Framsókn og Samfylkingin bættu stöðu sína miklu minna, +3,1% og +3,0%. Fólk trúir, að Evrópuaðild hafi unnið sigur. Þar er ég alveg mát, sé engar tölur því til stuðnings. Hafi einhver ætlað að kjósa Evrópu, hefur hann kosið Samfylkinguna, mest 29,8%. Aðrir flokkar efast um gildi Evrópuaðildar.”

Ég nota gæsalappir þannig að þetta hlýtur að sleppa! Nú svo er ég að boða sannleikann svo þetta hlýtur að sleppa tvöfalt.

Fært undir Samfélag, Stjórnmál, Umræðan þann 28. apríl 2009 af gb | 3 ummæli

Hárrétt hjá Ragnari Arnalds

www.visir.is Miskunnarlaus misnotkun fjölmiðla í umfjöllun um ESB

Slagsíðan á flestum fjölmiðlunum er rosaleg. Gagnrýnisleysið algjört. ESB á að leysa öll okkar vandamál; umsóknarviðræður eiga að lyfta efnahagslífinu. En hvernig má það vera að umsóknarviðræður spili stóra rullu? Umsóknarviðræður sem enda með því að þjóðin fellir aðild að ESB geta nú ekki innifalið miklar hagsbætur fyrir landsmenn. Það gleymist - eða, því er viljandi gleymt. Áróðursmeistararnir ætla nefnilega ekki að láta staðar numið þegar þjóðin segir nei. Stærstur hluti þeirra sem nú hamra á nauðsyn aðildarviðræðna er nefnilega á þeirri skoðun að Ísland skuli inn í ESB og hirðir ekki um galla við inngöngu nema rétt í orði kveðnu. Þeir heilla pentudúkarnir í Brussel.

Fært undir Fjölmiðlar, Fréttir, Samfélag, Umræðan þann 27. apríl 2009 af gb | 3 ummæli

Svona er spurt:

“Viltu að ráðherrar verði skipaðir á faglegum forsendum eftir kosningar?”

Það er Íslandíbítiðsvonaeríslandídagsíðdegisútvarpiðbylgjanþátturinn sem spyr.

Hvað skyldi það svo vera að skipa ráðherra á “faglegum forsendum”? Ætli það sé verið að tala um að taka manneskju sem ekki er á þingi og gera að ráðherra? Verða menn faglegri við það að hafa ekki verið kosnir á þing? Affagast fólk við að setjast á þing?

Er verið að kalla eftir því - eða gefa í skyn - að t.d. ráðherra menntamála skuli vera kennari? Eða hvað? Eða er bara hugsað um “faglegar” forsendur þegar að efnahagsmál eru í húfi? Á dómsmálaráðherra að vera löglærður - er það nauðsyn? Á landbúnaðarráðherra að vera bóndi?

Auðvitað er þetta kall eftir ráðherrum sem skulu ráðnir á faglegum forsendum innantómt kjaftæði og lýðskrum.

Hvaða faglegu færni skyldi forsætisráðherra svo þurfa að hafa; þúsundþjalasmiður?

Fært undir Fjölmiðlar, Samfélag, Stjórnmál, Umræðan þann 27. apríl 2009 af gb | 7 ummæli

Arfleið Framsóknar

www.visir.is Ekkert stjórnarmynstur borðliggjandi

Þó svo Sigmundur Davíð sé “nýr” þá fellur hann vel inn í arfleið Framsóknar. Honum lætur vel að tala í hringi og það er stundum ógerlegt að skilja hvað hann er að fara. En hann gerir þetta vel, það er þó alltaf kostur. Eða hvað?

Fært undir Stjórnmál, Umræðan þann 27. apríl 2009 af gb | 0 ummæli

Næsta síða »
gb

Guðmundur Sveinbjörn Brynjólfsson.
Sannkristinn Sósíalisti!

Ég á eina dóttur - sem er nú allnokkuð!
Giftur yndislegri konu og á þrjú stjúpbörn.

Fjölmenntaður 19. aldar maður - ku samt lifa á þeirri 21.
Fullur af margvíslegum þverstæðum!

Hægt er að hafa samband: gummimux@simnet.is


Nýjustu færslur
Leit

Flokkar

Eldri færslur

Tenglar

  • WordPress.com
  • WordPress.org
  • Jens Guð
  • Sverrir Jakobsson
  • Kristján B. Jónasson
  • Bergur Þór Ingólfsson
  • Pétur Tyrfingsson
  • Stefán Pálsson
  • rcg
  • Davíð Þór Jónsson
  • Steindór Gunnar
  • Bestiflokkurinn
  • Stageplays
  • Britannica
  • Leikhús alfræði - Wiki
  • Sædís Ósk
  • TiggerTalk (Michael Eustice)
  • MorningStar
  • CPI
  • Guardian
  • Fylgjast með RSS-veitu
    Vísir Fréttir Lífið Íþróttir Viðskipti Vefmiðlar
    Blogg.Vísir.is Innskráning Nýskráning