Hugsanlega?
Hugsanlega komin lausn á Icesavedeilunni
Það var þá “lausn”.
Fært undir Fréttir þann 31. maí 2009 af gb | 0 ummæli
Gríman 2009 - Grindavík skelfur
Tilnefningar til Grímunnar 2009
Maður skilur vel að það sé spenna á svæðinu:
LEIKSKÁLD ÁRSINS Tilnefningar:
Bergur Þór Ingólfsson, Guðmundur Brynjólfsson og Víðir Guðmundsson fyrir 21 manns saknað.
GRAL - Grindvíska atvinnuleikhússins
Hallur Ingólfsson, Jón Páll Eyjólfsson og Jón Atli Jónasson fyrir Þú ert hér.
Leikfélag Reykjavíkur
Rafael Bianciotto og leikhópurinn Dauðasyndirnar
Leikfélag Reykjavíkur
Rúnar Guðbrandsson fyrir Steina í djúpinu.
Lab Loki
Sigurður Pálsson
fyrir Utan gátta
Þjóðleikhúsið.
Fært undir Fréttir, Leiklist, Menning og listir, Umhverfi, Umræðan, Vinir og fjölskylda þann 30. maí 2009 af gb | 0 ummæli
Má þá ekki
Skattahækkanirnar stoppa lítið upp í fjárlagagatið
. . . athuga með að skerða yfirvinnu hjá sjúkraliðum? Og kannski kíkja á hvort að skólaliðar þoli ekki tilfærslu um einn til tvo launaflokka niður á við?
Það verða jú allir að leggjast á eitt. Og ekki má skerða grunnþjónustuna. Og það verður að standa vörð um velferðarkerfið og hag þeirra sem verst eru settir í þjóðfélaginu.
Ég gleymdi ófaglærðum á leikskólum - þar eru nú matarholurnar. Er eitthvað vit í að svoleiðis fólk eigi bíl? Ef það á bíl?
Fært undir Dýrahald, Efnahagur þann 29. maí 2009 af gb | 5 ummæli
Það þarf ekki gott veður til
Laugavegurinn er að lokast hvort eð er. Verslun þar fer hrakandi og hefur farið lengi. Bensínokrið verður þess valdandi að fólk keyrir ekki í bæinn. Fólki fer fækkandi í landinu því að ráðmenn sjá þann kost bestan að flæma borgarana úr landi í viðleitni sinni við að greiða skuldir glæpamanna en stjórnvöld telja sig, einhverra hluta vegna, vera fjárhagslega umboðs- og ábyrgðarmenn ræningjahyskis og landráðamanna. Þau umboð og sú ábyrgð nær þó ekki lengra en að veskjum lýðsins.
Það er því hjóm eitt að spekúlera í því hvort Laugavegurinn sé opinn eða lokaður í sólskini.
Fært undir Efnahagur, Fréttir, Samfélag, Spilling, Stjórnmál, Umhverfi, Umræðan þann 29. maí 2009 af gb | 0 ummæli
Bensínskattar?
Hækka á skatta á áfengi og eldsneyti
Mér finnst nú alveg nóg um gengdarlausar hækkanir á bensíni að undanförnu sem farið hafa í gegn “hægt og hljót” eins og segir í textanum.
Fjöldi fólks þarf að keyra langt til vinnu sinnar og er þá hvorki spurt um efnahag eða laun. En þá munar sjálfsagt minna um bensín- og olíuhækkanir sem eru keyrðir um á bílum sem eru í ríkiseign. Og fá greidda ferðapeninga bakki þeir sjálfir út úr stæðinu heima hjá sér.
Ég gef henni 11. mánuði max.
Fært undir Efnahagur, Fréttir, Samfélag, Stjórnmál, Umræðan þann 28. maí 2009 af gb | 4 ummæli
Hallgrímur Ólafsson og Lionel Messi
Barcelona vann Meistaradeildina
Var að horfa á úrslitaleikinn. Þetta varð aldrei sá leikur sem maður vænti. Það sem mér fannst athyglisverðast var að mér fannst ég sjá líkindi með Hallgrími Ólafssyni leikara og Lionel Messi.
Þá er ég ekki að tala um leikræn tilþrif hjá Messi og heldur ekki um fótboltalega getu Hallgríms (sem þó er víðfræg) heldur einfaldlega útlitið:
Fært undir Leiklist, Vinir og fjölskylda, Íþróttir þann 27. maí 2009 af gb | 6 ummæli
Þjóðminjasafnið?
Sameiginlegur þingflokksfundur stjórnaflokkanna í Þjóðminjasafninu
Hum? ? ? ? ?
Jú - kannski.
Líklega er verið að svipast um eftir hentugum stað fyrir þingflokk Framsóknarflokksins.
Fært undir Saga, Samfélag, Stjórnmál, Umræðan þann 27. maí 2009 af gb | 0 ummæli
Ég hef trú á þér, Pétur minn
Þjálfarinn hefur ekki trú á mér
En þú ert bara í vitlausu (röngu) liði. Hefur reyndar alltaf verið það.
Þú veist hvað á að gera við trúleysi - biðja.
Bara biðja, Pétur minn. Biðja!
Fært undir Trúarbrögð, Íþróttir þann 27. maí 2009 af gb | 0 ummæli
Lufsugangur og popúlismi
Deilan um þingflokksherbergi framsóknarmanna sett í salt
Forseti Alþingis er ekki mikill skörungur. Forsætisnefndin er slök.
Aðstoðarmannakerfið var aflagt. Ekki vegna þess að það sé óþarft heldur vegna þess að þeir sem nú stjórna telja að það sé vænlegt til vinsælda að slá það af. Það sé sérstakt merki um ráðdeild og sparnað.
En svo er auðvitað ekki.
Hitt er annað, að það fyrirkomulag sem hefur verið á þessu astoðarmannakerfi er arfavitlaust. Það sem hefði átt að gera nú var að afleggja það fyrirkomulag að þingmenn gætu fengið sér aðstoðarmann “að eigin vali” - ef svo má að orði komast. Kerfið ætti auðvitað að vera þannig að skrifstofa þingsins réði til hvers þingflokks ákveðna hausatölu fólks með þá sérfræðiþekkingu sem helst vantaði í viðkomandi þingflokk. Hefði t.d. mátt hugsa sér að 10 manna þingflokkur fengi 5 full stöðugildi, 20 manna þingflokkur 10 stöðugildi og svo framv. Auðvitað þurfa þingmenn aðstoð sérfræðinga og það er ekkert að því að viðurkenna það og koma til móts við þá þörf.
Forsætisnefndin með þingforsetann í broddi fylkingar er sem kunnugt er skipuð stjórnmálamönnum, en þær sem þar sitja nú geta ekki stjórnað einföldustu hlutum; það á að leyfa Framsókanrflokknum að frekjast í þessu herbergi “sínu” enn um stund. Auðvitað átti forsætisnefndin að - úr því venjuleg tilmæli dugðu ekki - reka flokkinn út með harðri hendi. Fólk sem getur ekki - vegna linkindar eða lufsugangs eða gengdarlausrar meðvirkni - skipað nokkrum hræðum út úr einu herbergi er ófært um að stjórna í stærri málum.
Fært undir Fréttir, Samfélag, Stjórnmál, Umræðan, Óflokkað þann 26. maí 2009 af gb | 0 ummæli
Til hamingju með afmælið!!!
Sjálfstæðisflokkurinn 80 ára í dag
Megi afmælisbarnið vaxa og eflast þjakaðri þjóð til gæfu og heilla um ókomna tíð! Megi flokkurinn vaxa og eflast við hverja raun!
ps. Ég var bara að prófa þetta.
ps2. Ég er búinn að þvo mér og biðja um fyrirgefningu.
Fært undir Fréttir, Saga, Samfélag, Stjórnmál þann 25. maí 2009 af gb | 0 ummæli
Næsta síða »



Guðmundur Sveinbjörn Brynjólfsson.