Jón og ég
Þarna erum við félagarnir! Jón og ég.
Fært undir Alþjóðamál, Saga, Samfélag, Umræðan þann 31. ágúst 2009 af gb | 2 ummæli
Nú á það við sem aldrei fyrr
Steingrímur fór fram á lengri frest en fékk ekki
Sem skáldið, Tómas, sagði:
“Þá verður oss ljóst að framar ei frestur gefst
né færi á að ráðstafa nokkru betur”
Fært undir Bókmenntir, Fréttir, Samfélag, Stjórnmál, Umhverfi, Umræðan þann 31. ágúst 2009 af gb | 0 ummæli
Að taka fögin í sínar hendur
Þarna voru iðnaðarmenn, er sagt, að skuldjafna! Þeir fjarlægðu því gluggana úr bústaðnum - að skuldaranum forspurðum. Ekki legg ég neitt mat á það hvort þeir voru að gera rétt - enda hef ég ekkert vit á smíðum.
En þetta kalla ég að taka fögin í sínar hendur. Jú, og lögin líka.
Fært undir Efnahagur, Fréttir, Samfélag, Tækni og vísindi þann 31. ágúst 2009 af gb | 0 ummæli
Unnar Gíslason les úr verkum sínum
Þessi mynd var tekin við það hátíðlega tækifæri er Unnar Gíslason las úr verkum sínum á Aldamótahátíðinni á Eyrarbakka fyrir nokkrum dögum síðan - og fáeinum betur:
Myndin er ekki tekin á Kúbu þó svo bílakosturinn í baksýn gæti gefið það til kynna. Vert er að gefa því gaum hvað bók Unnars heitir. Föðurland sýnist mér standa á kápunni. Og kemur það ekki á óvart því engir menn hugsa eins vel um föðurland sitt og Framsóknarmenn þessa daganna.
Byltingarsinnaður horfi ég á lestur skáldsins og mér sýnist jafnvel að Che lifni allur við flutninginn; eða hvort að það er bara vömbin á mér sem bærist í Eyrarbakkablænum?
Fært undir Bókmenntir, Menning og listir, Vinir og fjölskylda, Áróður þann 30. ágúst 2009 af gb | 0 ummæli
Fásinna!
Birgitta vill að forseti skjóti Icesave málinu til þjóðarinnar
Þjóðin er svo vitlaus! Þar fyrir utan er alls ekki víst hverjir eru þjóðin sbr. orð Ingibjargar Sólrúnar! Þetta yrði bara kaos! Vitleysa!
Þjóðin á ekki að vera skipta sér af því sem hana varðar ekkert um. Reyndar á forsetinn ekki að vera að því heldur! Og þaðan af síður Alþingi!
Það kemur þetta engum við! Icesave er ekki til! Var aldrei til. Það var blekking!
Fært undir Fréttir, Samfélag, Spilling, Stjórnmál þann 30. ágúst 2009 af gb | 3 ummæli
Og að því loknu
Ríkisábyrgð á Icesave samþykkt
. . . var samþykkt að leysa upp þingið þangað til 1. október. Almennt gerðu þingmenn ekki athugasemd við það nema Tryggvi Þór Herbertsson - honum fannst að þingið ætti að sitja áfram og halda áfram að vinna til hagsældar fyrir land og þjóð. Hann stóð þó ekki fastar á sinni sannfæringu í þessu en að hann féllst á að senda þingið heim með “semingi”!
Svo á maður að trúa því að mönnum hafi leiðst Icesave þvargið af því að sú ummræða hafi tekið upp annars dýrmætan tíma Alþingis og varnað mönnum þess að þeir gætu lagt á það gjörva hönd að “bjarga heimilunum” - ja, svei því!
Fært undir Samfélag, Stjórnmál, Umræðan þann 28. ágúst 2009 af gb | 6 ummæli
Ég myndi ekki sverja fyrir að þau séu öll edrú
Það stendur yfir útsending frá Alþingi.
Ég sit hér við vinnu mína og hef opið fyrir sjónvarpið og heyri sóninn í misvitrum leiðtogum og skotra auganu á skjáinn annað veifið.
Það eru ekki allir mættir, flestir virðast edrú. Ég myndi þó ekki sverja fyrir það síðarnefnda.
Fært undir Stjórnmál, Umræðan þann 28. ágúst 2009 af gb | 2 ummæli
Michael Jackson er lifandi
Ég sá hann áðan. Hann var stopp (en samt lifandi - bara svona eðlilega stopp) á ljósunum á mótum Háaleitisbrautar og Kringlumýrarbrautar. Hann var á Toyota Yaris merktum Dominos Pizzum, Magnús Kristinsson sat aftur í. Jackson var ekki með grímuna. Magnús var með hana. En ég þekkti hann samt af því að hann hefur verið svo mikið í fréttum - og af flugmannshúfunni, ég er að tala um Magnús ekki Jackson.
Ég bíð í ofvæni eftir því að það verði auglýstir tónleikar með Elvis Prestley og svo því atriði að - eftir að Elvis hefur sungið nokkur lög - Michael Jackson komi með þyrlu úr háloftunum og syngi Bad. Það er þarna sem Magnús kemur inn í dæmið. Ekki með Bad - heldur með þyrlunni. ÞVÍLÍK ENDURKOMA! Þegar þessi stórkostlegi atburður mun eiga sér stað verður það óræk sönnun þess að ég sá Michael og Magnús í Toyota Yaris í dag!
Bíðiði bara!
Fært undir Alþjóðamál, Ekki mín fjölskylda, Fréttir, Samfélag, Slúður, Tækni og vísindi, Tónlist þann 27. ágúst 2009 af gb | 0 ummæli
Ég blogga undir nafni
Fyrirtækið Exista hefur bara einu sinni, sýnist mér, verið nefnt á nafn af mér á þessari bloggsíðu, það var svona:
http://blogg.visir.is/gb/index.php?s=exista
Þessvegna verður því ekki haldið fram að ég beri ábyrgð á hremmingum Lýðs Guðmundssonar og félaga. Einnig hef ég gert mitt besta til að borga af bílaláninu hjá Lýsingu, enda tekur Lýsing bílinn “minn” - og væntanlega allt annað veraldlegt jukk sem ég á ef ég ekki borga. Það er helst þar sem skilur á milli viðskiptalegrar stöðu minnar, sem bloggara undir nafni, og Lýðs Guðmundssonar. Hans stassjón virðist ekkert endilega þurfa að borga það sem hún kaupir!
Fært undir Efnahagur, Fréttir, Samfélag, Spilling, Umræðan þann 27. ágúst 2009 af gb | 3 ummæli
Þetta er nú ekki svona mikið mál!
Almannatengill: Sigmundur átti að biðjast afsökunar strax
Nú draga menn fram almannatengil sem ku vera sérfræðingur í krísum. Hvort þær krísur eru sjálfskapaðar kemur ekki fram í fréttinni en almannatengillinn kemst að sömu niðurstöðu og allt sæmilega vel gert fólk og þokkalega upp alið. Þannig að þær krísuleiðbeiningar eru meira svona a la amma - þ.e.a.s. maður á ekki að haga sér eins og fífl!
Sigmundur Ernir gerði þau mistök að fara fullur í þingsal. OG UPP UM HANN KOMST! Þar skilur á milli Sigmundar Ernis og fjölda annarra þingmanna allt frá landmámi! Reyndar hefur komist upp um ýmsa fram að þessu en þá voru landmenn bara ekki með það á heilanum að þeir væru siðaðri í dag en í gær. Heldur voru þeir haldnir þeirri meinloku að þingmenn væru svona eins og fólk er flest - það var þá. Nú telja kverúlantarnir að upp sé runnið eitthvað nýtt Ísland af því að þeir skrópuðu í vinnunni í haust og fórnuðu ónýtum pottum og sleifum og hengdu á sig afdankaða appelsínugula stórissa. Það stefndi að vísu í að það myndi skila einhverju - allt þangað til að sú von brást; strax.
Sigmundur hefur beðist afsökunar. Ég tek það gott og gilt og erfi það ekki við hann, ég var aldrei hrifin af Sigmundi sem fréttalesara og enn minna hef ég álit á honum sem þingmanni. Hann er hinsvegar bærilegt ljóðskáld þegar hann nær sér á strik.
Þetta er orðið ágætt. Það hefur verið athyglisvert að fylgjast með því hvaða fínlega innréttuðu persónur hafa viljað stökkva á snemmbúinn pólitískann líkvagn Sigmundar Ernis - það er lítið fólk. Sem betur fer held ég að Sigmundur hafi manndóm í sér til að sitja áfram á þingi. Það eina sem ég geri athugasemd við er að menn séu í golfi í vinnutímanum!
Fært undir Fjölmiðlar, Fréttir, Heilbrigði, Saga, Samfélag, Slúður, Stjórnmál, Umræðan, Áróður þann 26. ágúst 2009 af gb | 2 ummæli
Næsta síða »
Guðmundur Sveinbjörn Brynjólfsson.