Lufsa ársins!

Nú er sá leiði siður í hávegum að líta um öxl og þvæla fram og aftur um það sem gerðist og ekki gerðíst á árinu. Þetta er árviss vaðall sem segir ekkert og skilar engu, leiðindi.

Ég get þó ekki látið hjá líða að taka þátt, þó vissulega segi það ekki neitt né skili nokkru. Ég hef ákveðið að útnefna Lufsu ársins, dugleysingja þessa árs. Kannski er þetta ljótt af mér því viðkomandi virðist kjáni, í besta falli er hann hafður að fífli og veit af því.

Aðeins einn kemur til greina og er nú sjálfsagt mörgum ljóst nú þegar hvern er um að ræða. Auðvitað er það þingmaðurinn ungi Ásmundur Einar Daðason sem nafnbót þessa hlýtur.

Ásmundur Einar afrekaði það á árinu að styðja ríkisstjórn þá sem sótt hefur um aðild að Evrópusambandinu - þrátt fyrir að hann í orði kveðnu segist vera á móti því að ganga í Evrópusambandið.

Ásmundur Einar afrekaði það í gær að mæla með því að Icesave frumvarpið yrði lagt fyrir þjóðina svo hún fengi að skera úr um það álitamál í þjóðaratkvæðagreiðslu. Hann þóttist hafa svo mikla sannfæringu fyrir þessu máli að hann hét því að fara - ef vilji hans gengi ekki fram - afsíðis í þinghúsinu til þess að skora á Dr. Ólaf Ragnar Grímsson forseta lýðveldisins að synja Icesave lögunum staðfestingar á Indefence undirskriftarlistanum fræga.

Nokkrum mínútum síðar gafst sama Ásmundi Einari tækifæri til að synja því sjálfur að þetta frumvarp yrði að lögum - en þá hafði nú heldur betur snúist í honum vindurinn. Það sem hann vildi að Dr. Ólafur Ragnar synjaði, vildi nú Ásmundur Einar endilega gera að lögum frá Alþingi.

Til hvers? Til þess að forsetinn synjaði þeim? Hefur Ásmundur Einar svona mikla trú á því að Dr. Ólafur Ragnar Grímsson hafni lögunum að hann gerir það að leik sínum að halda lífi í farsanum? Eða, telur Ásmundur Einar að það sé sitt hlutverk að sjá forseta lýðveldisins fyrir afþreygingu yfir áramótin?

Ásmundur Einar Daðason er, auk þess að vera alþingismaður, formaður Heimssýnar. Heimsýn er sá félagsskapur sem hefur það að markmiði að standa vörð um sjálfstæði þjóðarinnar, standa gegn þeim öflum sem vilja að Íslandi verði komið fyrir í Evrópusambandinu.

Ég sem félagsmaður í Heimssýn treysti Ásmundi Einari Daðasyni alþingismanni ekki til eins eða neins og alls ekki til þess að standa vörð um eitt eða neitt. Allra síst treysti ég honum til þess að hafa sömu skoðun í stórum málum klukkustundina út - því skora ég á hann að segja af sér bæði þingmennsku og formannsstörfum í Heimsýn! Líklega mun hann gera hvorugt.

Enda trúi ég að honum sé annt um að standa undir nafni sem Lufsa ársins!

Fært undir Fréttir, Samfélag, Spilling, Stjórnmál, Umræðan þann 31. desember 2009 af gb | 3 ummæli

Áfram greinir endalaust

www.visir.is Ásgeir Jónsson, forstöðumaður greiningardeildar Arion banka: Að líta á björtu hliðarnar

Hann heldur áfram að greina þessi. Hann greindi allt fram og til baka, í hæstu hæðir og til heitasta helvítis allt eftir behag og hann greindi líka frá - sumu.

Fært undir Efnahagur, Fréttir, Saga, Samfélag, Spilling, Umræðan þann 31. desember 2009 af gb | 5 ummæli

Verður boðað til félagsfundar í Heimsýn?

www.visir.is Ásmundur og Guðfríður vilja Icesave í þjóðaratkvæðagreiðslu - Ögmundur og Lilja á móti

Mér sýnist að ekki sé vanþörf á. Ég get ekki séð að formanninum sé treystandi. Hann tekur þátt í þessum hráskinnaleik - þessum auðvirðilega leikþætti sem VG hafði í frammi við atkvæðagreiðslur kvöldsins.

Því í ósköpunum lætur fullorðið fólk spila svona með sig og berja svona hrottalega á sannfæringu sinni?

Eða, var aldrei nein sannfæring fyrir neinu?

Atli Gíslason lætur sig hverfa. Hin sem maður vonaði að meintu eitthvað með því sem þau segðu - léku sér að atkvæðapúsluspili sem þannig var hannað að aldrei þyrfti að óttast um líf þessarar bölvuðu ríkisstjórnarnefnu.

Nú getur Samfylkingin hafið söngin um innreiðina til Brussel, nú er í hnakktöskunni nestið sem þeir hafa lengi verið að pakka niður: Það eina sem getur mildað skuldaklafann er Evrópusambandið! Munu þau segja - mótbárur verða litlar hjá VG - því blautar tuskur blakta lítt.

Fært undir Alþjóðamál, Fréttir, Samfélag, Spilling, Stjórnmál, Umhverfi, Umræðan þann 31. desember 2009 af gb | 2 ummæli

Og verður þá úti um sólarlandaskituna?

www.visir.is Prófa niðurgangslyf á sólarströndum

Mikill er máttur lyfjafræðinnar! Nú er verið að þróa plástur sem á að koma í veg fyrir drullu! Í fljótheitum dettur manni fyrst í hug að hann sé þá límdur fyrir rassgatið - en svo er ekki, lyfjafræðin er fullkomnari en svo.

Til að gera vísindalegar athuganir á mætti plástursins er hann prófaður á sólarlandaförum - þar fá menn víst helst skitu án þess að hafa til þess unnið sérstaklega. Ekki er ég viss um að allir væru reiðubúnir að taka þátt í þessari tilraun. Þar kemur til að margir hafa þann hátt á í sólarferðum að byrja dag hvern með gúlsopa af koníaki til þess að lækna magann. Oft eru viðkomandi frekar að lækna þynnku en tala um magann. Þekkja þeir sem í hafa komist.

Í annan stað þarf steinsmuga alls ekki að vera fylgifiskur sólarlandaferða, ég er aldrei betri í belgnum en í hitanum og stafar það helst af því að þá geri ég ekki neitt nema éta, ganga, sofa og sóla mig. Þessu venst maginn og lætur sér vel líka og dettur þess vegna ekki í hug að gera uppsteit. Svo lætur maður það líka eftir sér að éta níðþungan morgunverð, brasaðan, annað veifið í svona ferðum og slíkur matur læknar allt!

Ég gef ekkert þetta skituplásturs grúsk.

Fært undir Alþjóðamál, Ferðalög, Fréttir, Heilbrigði, Matur og drykkur, Tækni og vísindi þann 30. desember 2009 af gb | 0 ummæli

Og á bara að láta það gott heita?!

www.visir.is Svavar neitaði að mæta á fund fjárlaganefndar

Ég hélt í fáfræði minni og barnaskap að maður sem starfar fyrir ríkið að málum líkum þeim sem Svavar Gestsson átti að inna af hendi í þessu Icesave máli væri skyldugur að mætta fyrir þingnefnd sem óskaði eftir upplýsingum um þau störf. Svo er greinilega ekki.

Og ekki er þess þá heldur að vænta að í auðmýkt og af virðingu fyrir þingi og þjóð þá mæti Svavar Gestsson - svona af heilindunum einum - til þess að greiða úr málum. Nei, ekki Svavar Gestsson.

Ég horfði - ekki mér til skemmtunar - á þessa uppákomu í þinginu um miðnætti í gærkvöld þegar hver þingmaðurinn á fætur öðrum bað þingforseta um að fresta fundi vegna þess að allt væri í uppnámi með það hvað stæði í þessum skjölum sem væru að berast þinginu og hverju þau gætu breytt varðandi málið í heild. Auk þess vildu þeir fá útskýringar á hróplegu misræmi þess sem í þeim skjölum stóð og svo því sem ráðherrum sagðist frá - og Svavari. Þarna horfði maður upp á það einu sinni enn hvernig starf þingforseta er framlenging á framkvæmdavaldinu og ráðskast í krafti þess með þingið. Þessi vinnubrögð sem þarna mátti sjá eru auðvitað ólýðandi og eru enn ein staðfesting á því að Alþingi er í stöðugri gíslingu þeirrar ríkisstjórnar sem ríkir á hverjum tíma - sjálfstæði þess er nánast ekkert.

Þessu þarf að breyta, eins og því að embættismenn geti hunsað það að mæta fyrir þingnefnd sem óskar eftir því.

Fært undir Fréttir, Samfélag, Spilling, Stjórnmál, Umræðan þann 30. desember 2009 af gb | 2 ummæli

Maður ársins

Ég hef nú á tveim stöðum kosið mann ársins þ.e.a.s. á Pressunni og á Bylgjunni - á báðum stöðum hef ég kosið sjálfan mig. Það var auðvelt val!

Fært undir Fjölmiðlar, Umræðan þann 29. desember 2009 af gb | 1 ummæli

Bull fyrirsögn á visir.is

www.visir.is Icesave hentar ekki í þjóðaratkvæði

Sigurði Líndal eru gerðar upp skoðanir í fyrirsögn og byrjun þeirrar greinar sem ég vísa hér til. Reyndar er fyrsögnin svo bjöguð, sé tekið tillit til greinar Sigurðar, að forkastanlegt má teljast. Megin efni greinar Sigurðar er alls ekki það hvort Icesave henti eða henti ekki í þjóðaratkæði. Sigurður er að fjalla um þá klemmu sem forsetinn er í. Sigurður er að rekja hvernig forsetinn hefur komið sér í þá klípu sem hann auðsjáanlega mun finna sig í verði frumvarpið samþykkt. Sigurður veltir upp kostum og göllum á synjun. Sigurður gefur í skyn að vart sé að setja málið í þjóðaratkvæði en jafnframt gefur Sigurður undir fótinn með það að málið hafi slíka sérstöðu að e.t.v. væri best að það færi þá leið.

Nú fer maður að skilja af hverju sumar fréttir hér á Vísi.is eru illa skrifaðar, ástæðan er sú að sá sem skrifar er ekki lesandi. Eða eru það aðrar hvatir, pólitískar, sem liggja á bak við það þegar efni greinar er rangtúlkað í fyrirsögn og þar gefið í skyn eitthvað sem alls ekki er að finna í viðkomandi grein? Svo kveina fjölmiðlamenn undan því að dómstólar þröngvi að málfrelsi þeirra! Kannski fer best á því - a.m.k. á meðan þeir eru mannaðir svona vel skrifandi snillingum.

Hvað á maður að halda?

Fært undir Fjölmiðlar, Fréttir, Samfélag, Spilling, Stjórnmál, Umræðan, Áróður þann 29. desember 2009 af gb | 8 ummæli

Minnir á snúnar orðagátur fortíðar

www.visir.is Jón skipaði Árna sem tilnefndi Jón og sig sjálfan í bankastjórn

Árni Tómasson, formaður skilanefndar Glitnis, hefur tilnefnt sjálfan sig í stjórn Íslandsbanka. Jón Sigurðsson hefur verið tilnefndur sem formaður í stjórn bankans. Jón var stjórnarformaður Fjármálaeftirlitsins á síðasta ári þegar skilanefnd Glitnis var skipuð, en Árni Tómasson var einmitt skipaður af FME.

Það vantar bara frasann: “Hvernig gat það átt sér stað?” aftan við romsuna hér að framan.

Fært undir Fréttir, Minningar, Samfélag, Spilling, Umræðan þann 29. desember 2009 af gb | 0 ummæli

Ný úrræði í atvinnumálum

www.visir.is Ný atvinnutækifæri í Reykjavík

. . .  Glæsilegt framtak!

Jón Sigurðsson fv. stjórnarformaður FME hefur þegar fengið vinnu!

Fært undir Fréttir, Samfélag, Spilling þann 28. desember 2009 af gb | 0 ummæli

Allt hefur þetta verið boðað

www.visir.is Einstök björgun: Fórnaði sér svo tengdasonur gæti lifað

 

 

Trúið mér að ég er í föðurnum og faðirinn í mér. Ef þér trúið ekki orðum mínum trúið þá vegna sjálfra verkanna. Sannlega, sannlega segi ég yður: Sá sem trúir á mig mun einnig gera þau verk sem ég geri. Og hann mun gera meiri verk en þau því ég fer til föðurins. (Jóh. 14:11-12)

 

http://tru.is/postilla/2009/12/brotnir-geislabaugar

Fært undir Fréttir, Heilbrigði, Heimspeki, Saga, Samfélag, Trúarbrögð, Umhverfi, Umræðan þann 27. desember 2009 af gb | 2 ummæli

Næsta síða »
gb

Guðmundur Sveinbjörn Brynjólfsson.
Sannkristinn Sósíalisti!

Ég á eina dóttur - sem er nú allnokkuð!
Giftur yndislegri konu og á þrjú stjúpbörn.

Fjölmenntaður 19. aldar maður - ku samt lifa á þeirri 21.
Fullur af margvíslegum þverstæðum!

Hægt er að hafa samband: gummimux@simnet.is


Nýjustu færslur
Leit

Flokkar

Eldri færslur

Tenglar

  • WordPress.com
  • WordPress.org
  • Jens Guð
  • Sverrir Jakobsson
  • Kristján B. Jónasson
  • Bergur Þór Ingólfsson
  • Pétur Tyrfingsson
  • Stefán Pálsson
  • rcg
  • Davíð Þór Jónsson
  • Steindór Gunnar
  • Bestiflokkurinn
  • Stageplays
  • Britannica
  • Leikhús alfræði - Wiki
  • Sædís Ósk
  • TiggerTalk (Michael Eustice)
  • MorningStar
  • CPI
  • Guardian
  • Fylgjast með RSS-veitu
    Vísir Fréttir Lífið Íþróttir Viðskipti Vefmiðlar
    Blogg.Vísir.is Innskráning Nýskráning