Enn á ný ber samhjálparstefna velferðarstjórnarinnar árangur!
Göngudeild SÁÁ á Akureyri lokað í vor
Þrátt fyrir að þúsundir manna hafi staðhæft og uppáskrifað það - enn og aftur - fyrir nokkrum vikum að SÁÁ sé þessari þjóð lífsnauðsynlegt tæki, þá hefur ekkert verið aðhafst í því skyni að tryggja gangverk þess apparats til fulls.
Ríkisstjórnarnefnan sem puntar sig með velferðarnafnbót á milli þess sem hún hlúir að auðkýfingum og svindlurum og þjófum (oft er þessi hópur ekki svona þrískiptur) lyftir ekki fingri til þess að koma til móts við þær þúsundir sem eiga þessu fyrirtæki líf sitt að launa og þá þaðan af síður til móts við þær þúsundir mannslífa sem það á eftir að bjarga. Kannski finnst stjórnarherrunum mannmergðin yfirþyrmandi og grafararnir verkefnalitlir? Hver veit?
Fært undir Fréttir, Heilbrigði, Samfélag, Stjórnmál, Umræðan þann 8. febrúar 2010 af gb |
Guðmundur Sveinbjörn Brynjólfsson.