Spámaður í krafti auðs
Fjárfestagoðsögn: Evran deyr og tvær bólur bresta
Eru svona kónar spámenn eða glæpamenn?
Ekki það að mér sé sérlega sárt um evruna en mér er ekkert illa við hana heldur. Hún er “bara” gjaldmiðill á ákveðnu svæði heimsins og auðvitað er best fyrir alla - á því svæði a.m.k. - að hún þjóni hlutverki sínu sem best.
Er peningakerfi heimsins meingallað? Ég hef ekki hugmynd um það í sjálfu sér en ég hef mínar hugmyndir um að hið svokallaða “frjálsa markaðshagkerfi” sé meira en gallað. Það sé bæði gallað og vont.
Á meðan kallar eins og þessi Jim Rogers geta vaðið um og hrært í Grýlupottum fjármagnsins víða um heim með þeim afleiðingum að afkoma fjölda fólks fer í rúst þá er eitthvað meira en mikið að.
Mín brenglaða réttlætiskennd og bjagaða siðgæðisvitund og þumalputta lögfræði segir mér að menn eins og hann þessi Jim Rogers ættu að vera í tugthúsinu.
Fært undir Alþjóðamál, Efnahagur þann 18. mars 2010 af gb | 0 ummæli
Ilkka Kajaste
Finnar ætla ekki að lána Íslandi fyrr en Icesave klárast
Þá vitum við það. Ilkka segir það og þá stendur það!
Fært undir Alþjóðamál, Fréttir þann 7. mars 2010 af gb | 2 ummæli
Þeir hafa nú ætlað að gera það áður
Bretar ætla sjálfir að sjá um Argentínu
. . . og það fór nú eins og það fór.
Kannski voru viðlíka tímar þá. Bretar sátu uppi með vanhæfa ríkisstjórn og forsætisráðherra sem þurfti að sækja sér vinsældir með bellibrögðum.
Fært undir Alþjóðamál, Saga þann 3. mars 2010 af gb | 0 ummæli
Kaus hann áður en hann fór?
Telja pólstjörnumanninn á leiðinni til Spánar
Mér leikur forvitni á að vita hvort að “Pólstjörnumaðurinn” hafi kosið utankjörstaðar áður en hann fór til Spánar. Það eru náttúrlega stór mistök að klikka á svoleiðs grundvallaratriði.
Úr því að hann var að hafa fyrir því að hafa samband við Frjálslyndaflokkinn þá hefði hann auðvitað átt að biðja þá að keyra sig á kjörstað. Þeir eru vanir - og þó ekki, því það er aldrei mikil traffík hjá þeim í svoleiðis akstri.
Hitt er annað að ég skil vel að hann tali við Frjálslynda - þar er nefnilega að finna mest umburðarlyndi meðal íslenskra stjórnmálaflokka. En það liggur í hlutarins eðli því þetta er minnsti flokkurinn.
Nú heimta ég svör frá sýslumanni! Kaus Guðbjarni Traustason áður en hann fór? Sýslumaður hlýtur að geta svarað því - hann hefur úttalað sig um annað eins. Eða, eru þeir ekki farinir að senda, óumbeðnir, frá sér fasteignamat nú á síðustu og verstu tímum, sýslumennirnir?
Hafðu það gott á Spáni, Guðbjarni Traustason, bið að heilsa Manuel!
Fært undir Alþjóðamál, Fréttir þann 1. mars 2010 af gb | 2 ummæli
Gott að einhver bréf gleðja mann!
|
Halló,
Góður dagur, ég sakna Sarah Thomas, from Abidjan Cote d’Ivoire, Ég óska eftir að beiðni um aðstoð þína í áætlunum fjárfestingu mína í grunn þinn, ÉG vilja til að fjárfesta í framleiðslu og fasteignir stjórnun í grunn þinn, þetta er vegna þess að ég arf mikilvægt er frá seint í föður mínum Höfðingi Steve Thmas. sem var eitur af félagi hans viðskipti í einni af outings þeirra til discuse um viðskipti. Fyrir dauða föður mínum, gaf hann mér öll nauðsynleg lagaleg skjöl um afhendingu sjóðsins í bankanum, sem hann hefur vistað alger summa ($ 3,5) þrír million fimm hundred thousand Bandaríkin dollari aðeins í einn af banki hér í Fílabeinsströndin, var þetta fé verið afhent fyrir félagslegu öryggi mínu og ber ávöxt erlenda, ábendingar þínar og hugmyndir munu vera mjög litið. Nú leyfi mér að spyrja þessa nokkurra spurninga: 1. Getið þið hjálpað heiðarlega mér af hjarta þínu? 2. Get ég treysti fullkomlega þér? 3. Hvaða hlutfall af heildarfjölda fé verður appreciateable fyrir þig? Vinsamlegast, íhuga þetta og koma aftur til mín eins fljótt og auðið er. Immedaitely Ég staðfesti vilja þínum, mun ég senda þér myndina mína og einnig gefa þér meiri upplýsingar um mig og bankinn þar seint á föður minn vörslu sjóðsins, þannig að þú getur náð í bankanum og staðfesta tilvist sjóðsins og því sjá er að trúa. Ég er að bíða strax svar þitt. Bestu kveðjur ungfrú Sarah Thomas Þetta fékk ég í tölvupósti í morgun!
|
Fært undir Alþjóðamál, Íslenska þann 26. febrúar 2010 af gb | 5 ummæli
“Hann er ótukt þessi Haig”
http://frettir.ruv.is/frett/alexander-haig-latinn
Þegar fregnaðist að Alexander Haig væri allur hvarflaði hugurinn til ömmu í Knarrarnesi. Alexander Haig var einn þeirra manna sem henni varð tíðrætt um á tímabili. Hún talaði um hann eins og hann hefði búið í 40 ár í sömu sveit og hún; eins og hún hefði gjörþekkt hann. Sem hún svo sem gerði af verkum hans.
“Helvítið hann Alexander Haig …” svona hefði dæmigerð setning getað hafist hjá henni - svo hefði komið stjórnmála analýsa um baktjaldamakkið í Pentagon. Pentagon var ekki fjær ömmu en Hrafnagjáin í heiðinni. Og álíka myrkra pyttur.
Nú er hann allur hann Alexander Haig, það held ég hann fái pistilinn hjá þeirri gömlu, ef hann þá nær því að verða hreppsbúi á sama stað og hún í eilífðinni. Sem er stórlega vafasamt.
Fært undir Alþjóðamál, Fréttir, Minningar, Saga, Samfélag, Stjórnmál þann 20. febrúar 2010 af gb | 0 ummæli
Því er ekki úr vegi að spyrja:
Gengi krónunnar styrkist því gjaldeyrishöfin halda vel
Er séns að fá myntkörfulán?
Fært undir Alþjóðamál, Efnahagur þann 19. febrúar 2010 af gb | 8 ummæli
Hrökkbrauð
Björguðu lífi sínu með því að brjótast inn í fjallakofa
Hvað annað?
Stúlkurnar fundu hrökkbrauð í fjallakofanum! Yndislega norskt.
Fært undir Alþjóðamál, Fréttir, Heilbrigði, Matur og drykkur þann 17. febrúar 2010 af gb | 2 ummæli
Stórmennskubrjálæði
Rappstríð í Reykjavík: Útvarpsmaður kom til bjargar
Hvað næst?
Flateyjar (á Skjálfanda) mafían drepur menn á Húsavík?
Það fylgdi því aumingjahrollur að lesa þessa frétt. Rapparastríð! í Reykjavík? Og rappararnir í Reykjavík eru hvað margir? Og þeir berjast um hvað? Athygli í Séð og heyrt?
Fært undir Alþjóðamál, Fjölmiðlar, Fréttir, Samfélag, Tónlist þann 15. febrúar 2010 af gb | 2 ummæli
Tvöþúsundvandinn
Eða var það kannski skrifað 2000 vandinn? Ég man það ekki.
Svo var það Friður 2000 - sem kom reyndar ekki 2000 vandanum beint við. Og fíkniefnalaust Ísland fyrir árið 2000 - sem kom heldur ekki 2000 vandanum við en var bein afleiðing fíkniefnavandans sem hafði ekkert að gera með Frið 2000. Svo var það rifrildið um aldamótin - sem allir beturvitringar höfðu á skoðun og hafa enn og hafa gengið í endurnýjun þvarglífdaganna nú þegar þrátta má um það hvort áratugur sé líðinn af nýrri öld.
Og svo var það tvöþúsundkallinn sem maður sér nánast aldrei. Þessi með Kjarval.
Þetta er tvöþúsundasta blogfærslan mín.
Fært undir Alþjóðamál, Bókmenntir, Dýrahald, Efnahagur, Ekki mín fjölskylda, Ekki mínir vinir, Ferðalög, Fjölmiðlar, Fréttir, Heilbrigði, Heimspeki, Kvikmyndir, Leiklist, Lögfræði, Matur og drykkur, Menning og listir, Minningar, Nám, Rasismi, Saga, Samfélag, Slúður, Spilling, Stjórnmál, Trúarbrögð, Tækni og vísindi, Tíska, Tónlist, Umhverfi, Umræðan, Vinir og fjölskylda, Áróður, Íslenska, Íþróttir þann 7. febrúar 2010 af gb | 2 ummæli
Næsta síða »
Guðmundur Sveinbjörn Brynjólfsson.