Hver er rollan á myndinni?
Sumarhús Bakkabróður vekur athygli víða

Eða er þetta kannski ekki rolla?
Eða hvað? Ég heimta að fá að vita hvaða rolla er á myndinni sem ku tekin í sumarhúsi Lýðs Guðmundssonar! Hver er þáttur þessarar rollu í hruninu? Voru mörg dæmi um það að rollum væri boðið í prívatsumarhús auðmanna? Var það með vilja eða samþykki Bændasamtakanna? -Sauðfjárbænda? -Framsóknarflokksins eða Finns Ingólfssonar?
Eiga þessir skandalar engan enda að taka? Fyrst var það skíðaskáli Jóns Ásgeirs! Nú þetta!
Eða er þetta kannski ekki rolla?
Fært undir Dýrahald, Fréttir þann 4. mars 2010 af gb | 2 ummæli
Oft hef ég verið nálægt því að elda köttinn
Kattauppskrift kemur sjónvarpskokki í koll
En þó hefur aldrei hvarflað að mér að gera það fyrir framan alþjóð.
Hitt er svo önnur saga að ég hef aldrei verið eins langt frá því að steikja kattarafmánina eins og nú í dag. Það er af því að blessunin veiddi mús sem hafði ákveðið að við hjónin hefðum gert ráð fyrir henni í framtíðaráformum okkar og taldi sig eiga hér kost á fríu húsnæði og öðrum viðurgjörningi. Kötturinn leit í íbúaskrána og sá að þetta var ekki rétt og tók í því framhaldi til sinna ráða.
Fært undir Dýrahald, Vinir og fjölskylda þann 25. febrúar 2010 af gb | 5 ummæli
Eins gott að þeir ná ekki Guðmundi Óla!
Sá fengi að finna fyrir því; þá væri fyrst farið að tala um alvöru upphæðir!
Fært undir Dýrahald, Fréttir, Heilbrigði, Umhverfi, Vinir og fjölskylda þann 8. febrúar 2010 af gb | 8 ummæli
Tvöþúsundvandinn
Eða var það kannski skrifað 2000 vandinn? Ég man það ekki.
Svo var það Friður 2000 - sem kom reyndar ekki 2000 vandanum beint við. Og fíkniefnalaust Ísland fyrir árið 2000 - sem kom heldur ekki 2000 vandanum við en var bein afleiðing fíkniefnavandans sem hafði ekkert að gera með Frið 2000. Svo var það rifrildið um aldamótin - sem allir beturvitringar höfðu á skoðun og hafa enn og hafa gengið í endurnýjun þvarglífdaganna nú þegar þrátta má um það hvort áratugur sé líðinn af nýrri öld.
Og svo var það tvöþúsundkallinn sem maður sér nánast aldrei. Þessi með Kjarval.
Þetta er tvöþúsundasta blogfærslan mín.
Fært undir Alþjóðamál, Bókmenntir, Dýrahald, Efnahagur, Ekki mín fjölskylda, Ekki mínir vinir, Ferðalög, Fjölmiðlar, Fréttir, Heilbrigði, Heimspeki, Kvikmyndir, Leiklist, Lögfræði, Matur og drykkur, Menning og listir, Minningar, Nám, Rasismi, Saga, Samfélag, Slúður, Spilling, Stjórnmál, Trúarbrögð, Tækni og vísindi, Tíska, Tónlist, Umhverfi, Umræðan, Vinir og fjölskylda, Áróður, Íslenska, Íþróttir þann 7. febrúar 2010 af gb | 2 ummæli
Það gerir Guðmundur
Aldrei fleiri heimsótt Fjölskyldu- og húsdýragarðinn í janúarmánuði
Fært undir Dýrahald, Fréttir, Samfélag, Umhverfi þann 3. febrúar 2010 af gb | 2 ummæli
Væntanlega
Gæslan fylgist með gasflutningaskipi
. . . út af ísbirninum sáluga?
Fært undir Alþjóðamál, Dýrahald, Umhverfi þann 27. janúar 2010 af gb | 3 ummæli
Þær hefðu ekki slegið
150 kýr komnar í graskögglaverksmiðju
. . . klaufunum á móti því að komast þarna inn þegar graskögglaverksmiðjan var í fullum gangi!
Sem minnir mig á það þegar hænsnabúið Nesbú var stofnsett í minni sveit, mikið eggjabú sem enn lifir. Þá sagði hinn alkunni húmoristi Hafsteinn Snæland, þá sveitungi minn, að til stæði að reisa minkabú nokkurn spöl frá eggjabúinu og svo yrði hleypt á milli á matartímum!
Fært undir Dýrahald, Fréttir, Matur og drykkur, Minningar, Tækni og vísindi þann 15. janúar 2010 af gb | 2 ummæli
Hver er það sem talar við stjörnurnar?
Mín búin að hleypa villidýrinu út
Ég les stundum (skoða kannski meira myndirnar) “fréttir” sem er að finna í dálknum Lífið hér á Vísi.
Mér finnast fyrirsagnirnar stundum skrítnar, eins og einhver (sá/sú sem skrifar) sé að tala við stjörnurnar sem slúðrið fjallar um. Viðkomandi “talar” stundum í áminnandi tón við viðfangsefni slúðursins, eða gefur góð (móðurleg) ráð nú eða skammast.
Hver talar við stjörnurnar?
Hver sem það er, þá er eitt víst. Viðkomandi hefur mikla ábyrgðartilfinningu
http://visir.is/article/20100113/LIFID01/85819541
http://visir.is/article/20100113/LIFID01/306332975
Fært undir Alþjóðamál, Dýrahald, Fjölmiðlar, Fréttir, Kvikmyndir, Matur og drykkur, Slúður þann 14. janúar 2010 af gb | 0 ummæli
Rekin upp úr og beint í dauðann!
Sundlaugarálftin drapst í morgun
Það er nánast alveg sama hvað að manni er: gigtveiki, klemmdar taugar, áfengissýki, tannholdsbólga, þunglyndi, offita, hárlos og júgurbólga eða þorsti. Alltaf jarma læknarnir: Þú ættir að fara í sund! Ellegar þeir spyrja (því læknar vita oft ekkert hvað maður gerir þegar maður er ekki hjá lækni): Hefurðu farið í sund? - Sú spurning er þá ekki sett fram af félagsfræðilegri forvitni né með þeim undirtóni að það sé vont að fara í sund - heldur er verið að ýja að því hvað sund sé bráðhollt og læknisfræðilega fullkomið.
Nú hefur þessi speki sannast - einu sinni enn - álftin sem gerði sig heimakomna í Sundlaug Kópavogs af heilsufarslegum ástæðum en var þaðan fjarlægð af sömu ástæðum, annarra sundlaugaresta, er nú dauð. Álftin sem ætlaði að fá bata í Sundlaug Kópavogs af því að það var eitthvað að henni, eins og fram kemur í fréttinni, en var þaðan fjarlægð og hún flutt í Húsdýragarðinn! Þetta er auðvitað glórulaus ákvörðun frá læknisfræðilegu sjónarmiði. Eða, hvaða læknar ráðleggja manni svo sem að fara í Húsdýragarðinn þegar eitthvað bjátar á?
Fært undir Dýrahald, Fréttir, Heilbrigði, Tækni og vísindi, Umhverfi, Umræðan þann 22. desember 2009 af gb | 4 ummæli
Það er ekki flóafriður
Innbrotsþjófar höfðu starra á brott með sér
. . . sagði starrinn þegar honum var stolið.
Lúsiðnir þjófar stálu starra úr gæludýrabúð. En hann var þar gæludýr (surprise!), hið eina sinnar tegundar í gæludýrabúðinni. Merkilegt má heita að það hefur ekki borið neinn árangur að auglýsa eftir starranum. En þar kemur sennilega tvennt til: 1. Honum svipar til annarra starra. 2. Hann hefur ekki heyrt auglýsingarnar.
Þjófarnir munu hafa leitað að skiptimynt í búðinni en fundu ekki. Þeir hafa ekki náðst. Því liggur ekki ljóst fyrir hvaða líkindi þeir sáu með starrranum og smápeningum - nema það hafi verið hvoru tveggja verður að teljast nokkuð algengt.
Fært undir Dýrahald, Fréttir, Samfélag þann 9. desember 2009 af gb | 3 ummæli
Næsta síða »
Guðmundur Sveinbjörn Brynjólfsson.