Tvöþúsundvandinn

Eða var það kannski skrifað 2000 vandinn?  Ég man það ekki.

Svo var það Friður 2000 - sem kom reyndar ekki 2000 vandanum beint við. Og fíkniefnalaust Ísland fyrir árið 2000 - sem kom heldur ekki 2000 vandanum við en var bein afleiðing fíkniefnavandans sem hafði ekkert að gera með Frið 2000. Svo var það rifrildið um aldamótin - sem allir beturvitringar höfðu á skoðun og hafa enn og hafa gengið í endurnýjun þvarglífdaganna nú þegar þrátta má um það hvort áratugur sé líðinn af nýrri öld.

Og svo var það tvöþúsundkallinn sem maður sér nánast aldrei. Þessi með Kjarval.

Þetta er tvöþúsundasta blogfærslan mín.

Fært undir Alþjóðamál, Bókmenntir, Dýrahald, Efnahagur, Ekki mín fjölskylda, Ekki mínir vinir, Ferðalög, Fjölmiðlar, Fréttir, Heilbrigði, Heimspeki, Kvikmyndir, Leiklist, Lögfræði, Matur og drykkur, Menning og listir, Minningar, Nám, Rasismi, Saga, Samfélag, Slúður, Spilling, Stjórnmál, Trúarbrögð, Tækni og vísindi, Tíska, Tónlist, Umhverfi, Umræðan, Vinir og fjölskylda, Áróður, Íslenska, Íþróttir þann 7. febrúar 2010 af gb | 2 ummæli

Það er von að hann gapi þessi

www.visir.is Björn Valur: Þjóðin þarf ekki Friðrik Sophusson

Þjóðin þurfti heldur ekkert á því að halda að Vinstri grænir og Samfylking einkavæddu bankana aftur!

En það er létt verk fyrir Björn Val að gaspra núna - því núna getur hann, ef gengið væri á hann, borið því við að það sé úr höndum ríkisstjórnarinnar að hafa afskipti af stjórnum bankanna.

Þjóðin þarf ekki Friðrik Sophusson í þetta embætti, satt er það, en þjóðin hefur bara ekkert með það að gera - þökk sé Birni Val og félögum hans í ríkisstjórninni.

Hitt er svo jafn ljóst að þjóðin þarf ekki Björn Val Gíslason, ekki frekar en önnur löðurmenni sem lugu sig inn á þjóðina í aðdraganda síðustu kosninga.

Fært undir Ekki mínir vinir, Fréttir, Samfélag, Spilling, Stjórnmál, Umræðan þann 25. janúar 2010 af gb | 7 ummæli

Gleðilegt ár!

Takk fyrir innlit og ummæli hér á síðuna á liðnum árum.

Að sjálfsögðu hef ég skoðun á áramótaskaupinu eins og allir aðrir og minn dómur er þessi:

FRÁBÆRT ÁRAMÓTASKAUP SEM HLÝFÐI ENGUM. STJARNA SKAUPSINS MINN GAMLI SKÓLABRÓÐIR ÚR BÓKMENNTAFRÆÐINNI SÆVAR SIGURGEIRSSON Í HLUTVERKI SIGMUNDAR ERNIS :) ANNNARS ALLT FULLT AF GÓÐUM ATRIÐUM, STUTTUM OG HNITMIÐUÐUM, UNDIRTEXTINN FRÁBÆR OG HÖRÐ SKOT Í ALLAR ÁTTIR.

Fært undir Ekki mín fjölskylda, Ekki mínir vinir, Fjölmiðlar, Leiklist, Menning og listir, Saga, Samfélag, Slúður, Spilling, Stjórnmál, Umhverfi, Umræðan, Vinir og fjölskylda þann 1. janúar 2010 af gb | 0 ummæli

Loddari afhjúpaður í beinni

Bara að prófa.

Sá að færsla með þessari yfirskrift hefur loks vikið úr toppsæti þeirra færslna sem mest eru lesnar hér á blogginu.

Vildi leggja mitt af mörkum til þess að hún kæmist þangað aftur. Þessi breyting brenglar tilveru mína.

Fært undir Alþjóðamál, Bókmenntir, Dýrahald, Efnahagur, Ekki mín fjölskylda, Ekki mínir vinir, Ferðalög, Fjölmiðlar, Fréttir, Heilbrigði, Heimspeki, Kvikmyndir, Leiklist, Lögfræði, Matur og drykkur, Menning og listir, Minningar, Nám, Rasismi, Saga, Samfélag, Slúður, Spilling, Stjórnmál, Trúarbrögð, Tækni og vísindi, Tíska, Tónlist, Umhverfi, Umræðan, Vinir og fjölskylda, Áróður, Íslenska, Íþróttir, Óflokkað þann 2. desember 2009 af gb | 6 ummæli

Rétt hjá Einari K.

www.visir.is Þýðir ekkert fyrir Steingrím að skæla

Auðvitað eru Samfylking og VG jafn ábyrg fyrir því að Ísland hefur nú sótt um aðild að ESB.

Steingrímur Sigfússon þarf ekki að leika neinn píslarvott í því máli. HANN SJÁLFUR og öll hans helsta hirð hefur “afrekað” það að knýja dyra hjá ESB fyrir Íslands hönd - án þess að hafa haft nokkuð umboð til þess að fara upp á stétt hjá Evrópubandalaginu; hvað þá banka.

Fært undir Alþjóðamál, Ekki mínir vinir, Fréttir, Samfélag, Stjórnmál, Umræðan þann 7. september 2009 af gb | 0 ummæli

Þetta er fallegt ævintýri

www.visir.is Skilur eftir sig fjórtán milljarða skuldaslóð

Fullt af glimmrandi hugmyndum og heiðarleika.. Þetta er nánast eins og Öskubuska - endurskrifuð út frá sjónarhorni stjúpunnar!

Og enn ganga menn erinda Finns Ingólfssonar í þjóðlífinu; eru sérstakir erindrekar hans á þingi og víðar. Þetta er ævintýrið um stjórnmálamanninn sem hafði svo mikið viðskiptavit að það var honum ekki samboðið að vera viðskiptaráðherra og of smátt að vera seðlabankastjóri. Hann þurfti að hafa meira umleikis! Svona fór það.

Nú er rétt að landsmenn taki sig saman og borgi fyrir manninn - sú veisla verður í boði VG og Samfylkingar. Heiðarlegi hluti Framsóknarflokksins horfir á - nota bene sá þarf ekki stórt herbergi - Sjáflstæðisflokkurinn er saklaus. Borgarhreyfingin ekki til.

Hreint land fagur land!

Guð blessi Ísland!

Fært undir Efnahagur, Ekki mínir vinir, Fréttir, Spilling þann 20. ágúst 2009 af gb | 4 ummæli

Ég veit ekki hvar þetta fólk býr

www.visir.is Vill frekar sértækar aðgerðir fyrir skuldara en almennar

. . . hverja það hittir, eða hvaða fjölmiðla það les. Ég veit ekki hver kom þeirri fyrru inn hjá Sigríði Ingibjörgu Ingadóttur að hún væri jafnaðarmaður. Oft hefur maður séð fólk vaða áfram í sjálfsblekkingu - en aldrei hefur maður séð fólk berjast áfram í jafn harðvítugri lífslygi og þá þingmenn sem styðja þessa ríkisstjórn haldandi því fram að hún sé velferðarstjórn.

Og þó - þetta velferðar hefur ekkert verið skilgreint. Hvers velferð það er hefur ekki verið útskýrt. En það er öðru hvoru látið í veðri vaka að sauðsvartur almenningur hérlendis hafi kosið þetta yfir sig. En þá eru menn að gleyma því að margt bendir til þess að orðheldni sé óþekkt hugtak hjá stjórnmálamönnum. Óþekkt fyrirbæri og því ekki brúkuð af þeirri stétt - nema fyrir tilviljun eina.

Ég skil núna af hverju það þurfti að lesa um það erindi í þingsal að orðheldni hefði ekkert með heilabilun að gera.

Fært undir Efnahagur, Ekki mínir vinir, Fréttir, Heilbrigði, Samfélag, Spilling, Stjórnmál, Umræðan þann 18. ágúst 2009 af gb | 7 ummæli

Jóhanna segist vera Olaf Palme sem dó í Stokkhólmi árið 1986

www.visir.is Maður segist vera barn sem hvarf árið 1955

FBI og Valtýr Sigurðsson kanna málið! Og komast vafalaust að hinu sanna. Sem sagt því að þetta er ekki rétt. Enda getur það ekki verið satt því Steingrímur J. Sigfússon segist líka vera Olaf Palme sem var drepinn í Stokkhólmi árið 1986.

Þetta er ekki flókið mál. Fólk reynir að komast upp með ýmislegt. Hins vegar getur reynst erfitt fyrir bæði Jóhönnu og Steingrím að sverja það af sér að þau séu ekki Arne Treholt og er hann þó ekki dauður enn.

Fært undir Alþjóðamál, Ekki mínir vinir, Fréttir, Saga, Samfélag, Spilling, Stjórnmál, Umræðan þann 19. júní 2009 af gb | 2 ummæli

Bindisleysi

www.visir.is Þingmenn þurfa ekki að hafa bindi

Það er frábært að þingið skuli strax rata á stóru málin - jafnvel áður en það byrjar formlega. “Formlega”, já, vel á minnst. Má þingið byrja formlega - er það ekki of formlegt? Það hefur vafist fyrir mörgum þverhausnum að þurfa að vera með bindi í þinginu - hefði kannski farið betur ef bindið hefði vafist fastar um hálsinn á einhverjum kverúlantinum.

Hæstvirtur og háttvirtur er víst líka stéttskipt tímaskekkja, en eins og allir vita þá er sá tími sem við nú lifum öllum öðrum tímum merkilegri og því forgangsmál að ýta allri afdankaðri forneskju fyrri tíma á braut. Mikið held ég að það verði betra að lifa í þessu landi ef ávarpið háttvirtur þarf ekki að koma á undan því að ákveðið er að skerða ellilífeyri eða örorku. Því auðvitað verður slíkt ástundað áfram hvað sem líður bindislausu titlatogi og niðuráviðsnobbi kverúlanta sem nú hafa fundið sér viðráðanleg skotmörk sínum pólitísku burðum.

Fært undir Ekki mínir vinir, Fréttir, Saga, Samfélag, Stjórnmál, Tíska, Umræðan þann 13. maí 2009 af gb | 3 ummæli

Hélt einhver að þessi

www.visir.is Bankaráð samþykkti ekki 25 milljóna styrk

. . . bankaráð hafi verið til einhvers?

Skárri er það nú barnaskapurinn. Það voru þarna bankaSTJÓRAR sem réðu og drottnuðu og deildu. Ekki síst það - deildu.

Fært undir Efnahagur, Ekki mín fjölskylda, Ekki mínir vinir, Fréttir, Samfélag, Spilling, Stjórnmál, Umræðan þann 8. apríl 2009 af gb | 0 ummæli

Næsta síða »
gb

Guðmundur Sveinbjörn Brynjólfsson.
Sannkristinn Sósíalisti!

Ég á eina dóttur - sem er nú allnokkuð!
Giftur yndislegri konu og á þrjú stjúpbörn.

Fjölmenntaður 19. aldar maður - ku samt lifa á þeirri 21.
Fullur af margvíslegum þverstæðum!

Hægt er að hafa samband: gummimux@simnet.is


Nýjustu færslur
Leit

Flokkar

Eldri færslur

Tenglar

  • WordPress.com
  • WordPress.org
  • Jens Guð
  • Sverrir Jakobsson
  • Kristján B. Jónasson
  • Bergur Þór Ingólfsson
  • Pétur Tyrfingsson
  • Stefán Pálsson
  • rcg
  • Davíð Þór Jónsson
  • Steindór Gunnar
  • Bestiflokkurinn
  • Stageplays
  • Britannica
  • Leikhús alfræði - Wiki
  • Sædís Ósk
  • TiggerTalk (Michael Eustice)
  • MorningStar
  • CPI
  • Guardian
  • Fylgjast með RSS-veitu
    Vísir Fréttir Lífið Íþróttir Viðskipti Vefmiðlar
    Blogg.Vísir.is Innskráning Nýskráning