Glæsilegur vitnisburður um SKJALDBORGINA!
Mesti brottflutningur fólks frá landinu í sögunni
Ríkisstjórnin vegur skipulega að fyrirtækjunum og enn skipulegar að heimilunum. Fólk leggur á flótta en fyrirtæki leggja upp laupana. Hér ríkir meðvitað skipulagsleysi og tilbúið atvinnuleysi.
NIÐUR MEÐ ÞESSA VANHÆFU RÍKISSTJÓRN!
ÚT MEÐ VANHÆFA STJÓRNMÁLASTÉTT SKIPAÐA EIGINHAGSMUNASEGGJUM AÐ STÆRSTUM HLUTA!
KREFJUSMT STJÓRNLAGAÞINGSINS SEM LOFAÐ VAR!
Fært undir Efnahagur, Ferðalög, Fjölmiðlar, Fréttir, Heilbrigði, Saga, Samfélag, Spilling, Stjórnmál, Umhverfi, Umræðan þann 16. febrúar 2010 af gb | 4 ummæli
Ég er ekkert hissa á því
Norskur stjörnulögfræðingur í mál við Ísland
Það er undarlegt að hægt sé að handvelja menn sem virðast a.m.k. svo frjálsir ferða sinna að þeir ferðast óátalið frá hinu frjálsa konungsríki Noregi og gera þá afturræka á Keflavíkurflugvelli. Á sama tíma vaða inn og út (því miður ekki nógu mikið út) úr landinu útlendir glæpamenn sem jafnvel eru dæmdir menn hérlendis, eftirlýsir heima hjá sér og á ferðalögum sem illt er að útskýra. Þegar þessir svo nást virðast þeir hafa sjálfdæmi um það hvar þeir afplána dóma sína, og því, á hverra kostnað.
Mér koma þessi mótorhjólasamtök ekki við og hef ekki hagsmuna að gæta - en ég ber skynbragð á mismunun þegar ég sé hana.
Fært undir Ferðalög, Fréttir, Samfélag, Umræðan þann 9. febrúar 2010 af gb | 0 ummæli
Tvöþúsundvandinn
Eða var það kannski skrifað 2000 vandinn? Ég man það ekki.
Svo var það Friður 2000 - sem kom reyndar ekki 2000 vandanum beint við. Og fíkniefnalaust Ísland fyrir árið 2000 - sem kom heldur ekki 2000 vandanum við en var bein afleiðing fíkniefnavandans sem hafði ekkert að gera með Frið 2000. Svo var það rifrildið um aldamótin - sem allir beturvitringar höfðu á skoðun og hafa enn og hafa gengið í endurnýjun þvarglífdaganna nú þegar þrátta má um það hvort áratugur sé líðinn af nýrri öld.
Og svo var það tvöþúsundkallinn sem maður sér nánast aldrei. Þessi með Kjarval.
Þetta er tvöþúsundasta blogfærslan mín.
Fært undir Alþjóðamál, Bókmenntir, Dýrahald, Efnahagur, Ekki mín fjölskylda, Ekki mínir vinir, Ferðalög, Fjölmiðlar, Fréttir, Heilbrigði, Heimspeki, Kvikmyndir, Leiklist, Lögfræði, Matur og drykkur, Menning og listir, Minningar, Nám, Rasismi, Saga, Samfélag, Slúður, Spilling, Stjórnmál, Trúarbrögð, Tækni og vísindi, Tíska, Tónlist, Umhverfi, Umræðan, Vinir og fjölskylda, Áróður, Íslenska, Íþróttir þann 7. febrúar 2010 af gb | 2 ummæli
Steingrímur, Bjarni og Sigmundur fóru töskulausir úr landi
Forystumenn á fund við Breta og Hollendinga
Það er ljóst að hið undarlega þríeyki stökk með afar litlum fyrirvara úr landi. Svo litlum að ekki náðist að pakka neinu niður; þeir fóru töskulausir út. Þar er komin skýringin á því afhverju Össur Skarphéðinssin fór ekki með - hann hefði ekki haft neitt að gera. Reyndar er ekki víst að henn hefði ráðið við verkefnið hefðu vitringarnir þrír allir náð að pakka; það er flókið að bera þrjár töskur.
Verkefnaleysi hrjáir fleiri en Össur. Þannig fór að upplýsingafulltrúinn sem Steingrímur plantaði í fjármálaráðuneytið var færður þaðan enda hafa ekki borist upplýsingar úr því ráðuneyti frá því að tilkynnt var um ráðningu Elíasar Jóns Guðjónssonar í ráðuneytið fyrir nokkrum mánuðum - en nefndur Elías var einmitt umræddur upplýsingafulltrúi.
Fært undir Ferðalög, Fréttir, Samfélag, Stjórnmál, Umræðan þann 29. janúar 2010 af gb | 0 ummæli
Og verður þá úti um sólarlandaskituna?
Prófa niðurgangslyf á sólarströndum
Mikill er máttur lyfjafræðinnar! Nú er verið að þróa plástur sem á að koma í veg fyrir drullu! Í fljótheitum dettur manni fyrst í hug að hann sé þá límdur fyrir rassgatið - en svo er ekki, lyfjafræðin er fullkomnari en svo.
Til að gera vísindalegar athuganir á mætti plástursins er hann prófaður á sólarlandaförum - þar fá menn víst helst skitu án þess að hafa til þess unnið sérstaklega. Ekki er ég viss um að allir væru reiðubúnir að taka þátt í þessari tilraun. Þar kemur til að margir hafa þann hátt á í sólarferðum að byrja dag hvern með gúlsopa af koníaki til þess að lækna magann. Oft eru viðkomandi frekar að lækna þynnku en tala um magann. Þekkja þeir sem í hafa komist.
Í annan stað þarf steinsmuga alls ekki að vera fylgifiskur sólarlandaferða, ég er aldrei betri í belgnum en í hitanum og stafar það helst af því að þá geri ég ekki neitt nema éta, ganga, sofa og sóla mig. Þessu venst maginn og lætur sér vel líka og dettur þess vegna ekki í hug að gera uppsteit. Svo lætur maður það líka eftir sér að éta níðþungan morgunverð, brasaðan, annað veifið í svona ferðum og slíkur matur læknar allt!
Ég gef ekkert þetta skituplásturs grúsk.
Fært undir Alþjóðamál, Ferðalög, Fréttir, Heilbrigði, Matur og drykkur, Tækni og vísindi þann 30. desember 2009 af gb | 0 ummæli
Flogið frá Hofsósi?
http://ruv.is/heim/frettir/frett/store64/item318284/
Nú á að fara að rifja upp gamla góða takta í harðærinu, allt klárt. Flogið verður frá helstu kaupstöðum landsins, ef hafís leyfir.
Fært undir Efnahagur, Ferðalög, Fréttir, Saga, Samfélag þann 23. desember 2009 af gb | 0 ummæli
Þau berjast gegn óæskilegum loftslagsbreytingum!
Yfir 1.200 limmósínur pantaðar í Kaupmannahöfn
Þarna eru menn svo samkvæmir sjálfum sér að ekki verður betur gert. Ráðstefnugestir gera sér grein fyrir því að Kaupmannahöfn er stór borg og það þarf að komast á milli staða. Til þess þarf stóra bíla. Og margar flugvélar þarf til þess að komast til borgarinnar. Og frá henni aftur.
Þetta er sami andsk… tvískinnungurinn og þegar þeir sem aldrei stíga upp í strætó - nema rétt fyrir kosningar og þá til að láta mynda sig - gapa um það út í eitt að fólk eigi að nota almenningssamgöngur og fjölmenna í bíla. (Þetta sama fólk reynir reyndar stöðugt að gera út af við almenningssamgöngur en það er annar kafli í sömu sögu).
Maður fær nett ógeð þegar þetta lið opnar munninn.
Fært undir Alþjóðamál, Ferðalög, Fréttir, Heilbrigði, Samfélag, Spilling, Stjórnmál, Tækni og vísindi, Umhverfi, Umræðan, Áróður þann 7. desember 2009 af gb | 2 ummæli
Loddari afhjúpaður í beinni
Bara að prófa.
Sá að færsla með þessari yfirskrift hefur loks vikið úr toppsæti þeirra færslna sem mest eru lesnar hér á blogginu.
Vildi leggja mitt af mörkum til þess að hún kæmist þangað aftur. Þessi breyting brenglar tilveru mína.
Fært undir Alþjóðamál, Bókmenntir, Dýrahald, Efnahagur, Ekki mín fjölskylda, Ekki mínir vinir, Ferðalög, Fjölmiðlar, Fréttir, Heilbrigði, Heimspeki, Kvikmyndir, Leiklist, Lögfræði, Matur og drykkur, Menning og listir, Minningar, Nám, Rasismi, Saga, Samfélag, Slúður, Spilling, Stjórnmál, Trúarbrögð, Tækni og vísindi, Tíska, Tónlist, Umhverfi, Umræðan, Vinir og fjölskylda, Áróður, Íslenska, Íþróttir, Óflokkað þann 2. desember 2009 af gb | 6 ummæli
Undarleg Keflavíkurganga?
Katrín gengur til móts við Suðurnesjamenn
Mörgum kann að finnast undarlegt að gangan sem á að vekja athygli á bágbornu atvinnuástandi í Suðurnesjum (og víðar) skuli vera kölluð Keflavíkurganga. Nú herma fréttir að gangan fari fram eingöngu innan hreppamarka þess sveitarfélags sem lengst af hét Vatnsleysustrandarhreppur - þ.e. frá Vogaafleggjara að Kúagerði. Ekki er hægt, í fljótubragði, að sjá hvernig það kemur Keflavík við.
Þá er að huga að öðru, forsvarsmenn göngunnar eru líklegast að leika sér með sögulega vísun. Hér verið að benda aftur til þess þegar herstöðvarandstæðingar gengu sínar Keflavíkurgöngur. Og þar er kannski komin réttlæting fyrir nafngiftinni; að kenna þessa göngu við Keflavík þó eingöngu sé marsérað í Sveitarfélaginu Vogum (eins og Vatnsleysustrandarhreppur heitir nú og er dapurt nafn). -Því að Keflavíkurgöngurnar hér til forna komu heldur aldrei á Keflvíska grund, heldur fóru í gegnum Hafnarfjörð, Vatnsleysustrandarhrepp og svo loks um Njarðvíkurhrepp (sem síðar varð bær). Til Keflavíkur hafa menn sem sagt aldrei átt neitt erindi í Keflavíkurgöngum, hvorki nú né fyrrum.
Fært undir Ferðalög, Fréttir, Saga, Samfélag, Stjórnmál, Umhverfi, Umræðan þann 8. nóvember 2009 af gb | 11 ummæli
Akureyri vaknar
Í morgun hef ég horft á Akureyri vakna. Það hefur verið athyglisvert að fylgjast með höfuðstað norðlendinga rumska á fallegum vetrarmorgni. Mér sýnist að Akureyringar séu þokkalegir að pilla sig á lappir og ekki skemmir þetta fallega veður sem hér er.
Þessi mynd er þjófstolin frá Stefáni Friðrik sem er aðalbloggari Akureyringa. Ég varð að grípa til þessa glæps þar sem þessi ferð mín hingað útheimti ekki að ég væri að burðast með myndavél - ég vona að mér verði fyrirgefið.
Fært undir Ferðalög, Samfélag þann 6. nóvember 2009 af gb | 8 ummæli
Næsta síða »
Guðmundur Sveinbjörn Brynjólfsson.