Réttlætið í USA
Haldið á lífi svo hægt sé að taka hann af lífi
Stundum er lífið sjálft - eða ætti ég kannski frekar að segja dauðinn, í þessu tilfelli - fáránlegri er bjánalegasti skáldskapur. Svo ekki sé nú talað um eðal bókmenntir.
Blessaður maðurinn sem þeir þarna í Ohio höfðu dæmt til dauða ætlaði sjálfur að grípa fram fyrir hendurnar á dauðanum, en lukkaðist ekki betur en svo að hann lifir enn. “Þökk” sé læknum og líknurum sem í krafti siðferðis “björguðu” lífi hans.
Og nú vonat þeir eftir því, þarna vestur í Ohio, að maðurinn hjarni við svo þeir geti drepið hann bráðhressann.
Fært undir Fréttir, Heimspeki þann 9. mars 2010 af gb | 0 ummæli
Tvöþúsundvandinn
Eða var það kannski skrifað 2000 vandinn? Ég man það ekki.
Svo var það Friður 2000 - sem kom reyndar ekki 2000 vandanum beint við. Og fíkniefnalaust Ísland fyrir árið 2000 - sem kom heldur ekki 2000 vandanum við en var bein afleiðing fíkniefnavandans sem hafði ekkert að gera með Frið 2000. Svo var það rifrildið um aldamótin - sem allir beturvitringar höfðu á skoðun og hafa enn og hafa gengið í endurnýjun þvarglífdaganna nú þegar þrátta má um það hvort áratugur sé líðinn af nýrri öld.
Og svo var það tvöþúsundkallinn sem maður sér nánast aldrei. Þessi með Kjarval.
Þetta er tvöþúsundasta blogfærslan mín.
Fært undir Alþjóðamál, Bókmenntir, Dýrahald, Efnahagur, Ekki mín fjölskylda, Ekki mínir vinir, Ferðalög, Fjölmiðlar, Fréttir, Heilbrigði, Heimspeki, Kvikmyndir, Leiklist, Lögfræði, Matur og drykkur, Menning og listir, Minningar, Nám, Rasismi, Saga, Samfélag, Slúður, Spilling, Stjórnmál, Trúarbrögð, Tækni og vísindi, Tíska, Tónlist, Umhverfi, Umræðan, Vinir og fjölskylda, Áróður, Íslenska, Íþróttir þann 7. febrúar 2010 af gb | 2 ummæli
Beint lýðræði, betra lýðræði?
Er beint lýðræði betra lýðræði
Stórt er spurt.
Ég spyr: Er lýðræði? - og - Er lýðræði hér á landi? - og - Hefur það einhverntíma verið, einhverstaðar?
Fært undir Heimspeki, Lögfræði, Samfélag, Umræðan þann 14. janúar 2010 af gb | 4 ummæli
Allt hefur þetta verið boðað
Einstök björgun: Fórnaði sér svo tengdasonur gæti lifað
Trúið mér að ég er í föðurnum og faðirinn í mér. Ef þér trúið ekki orðum mínum trúið þá vegna sjálfra verkanna. Sannlega, sannlega segi ég yður: Sá sem trúir á mig mun einnig gera þau verk sem ég geri. Og hann mun gera meiri verk en þau því ég fer til föðurins. (Jóh. 14:11-12)
http://tru.is/postilla/2009/12/brotnir-geislabaugar
Fært undir Fréttir, Heilbrigði, Heimspeki, Saga, Samfélag, Trúarbrögð, Umhverfi, Umræðan þann 27. desember 2009 af gb | 2 ummæli
Að lána sjálfum sér
Lánaði sér sjálfum sama dag og eignir voru kyrrsettar
Það er mikil kúnst að lána sjálfum sér, svo vel fari. Þetta er í raun hálfgerður galdur, óþarfa gjörningur sem er heillandi í tilgangsleysi sínu.
Ef maður á pening. Þá getur maður lánað - ef maður vill. En, ef maður á pening - þarf maður þá að taka aur að láni? Kannski? Ef maður vill meira en maður hefur handa á milli þegar maður óskar eftir láninu.
En nú ber svo við að maður fær það lánað hjá sjálfum sér sem upp á vantar. Sem merkir: að maður átti þá þegar það sem mann vantaði! Með öðrum orðum: mann vantaði ekki það sem maður fékk að láni hjá sjálfum sér af því maður átti það þá þegar - enda lánaði maður sér það.
Því er von að spurt sé: Til hvers að taka þetta að láni?
Því er auðsvarað: Þetta er kúnst, galdur. Hefur ekki neinn tilgang í sjálfu sér - en á sér engu að síður stað af því að maður átti pening akkúrat þegar mann vantaði þá upphæð sem maður var aflögufær með. Sniðugt?
Fært undir Efnahagur, Heimspeki, Tækni og vísindi, Íþróttir þann 16. desember 2009 af gb | 2 ummæli
Það er von að Ögmundur spyrji
http://ogmundur.is/annad/nr/4924/
Ögmundur Jónasson, einn af þessum fimm til tíu alþingismönnum sem hafa samvisku, smekk og getu til að sinna því starfi af heilindum, skrifar á heimasíðu sína og veltir því fyrir sér af hverju allt þetta fjaðrafok er risið í netheimum út af því að hann skrifaði ritdóm um nýja bók Styrmis Gunnarssonar; og þóttist sjá þar eitthvað þolanlegt.
Niðurstaða Ögmundar í þessum vangaveltum er auðvitað sú að samfélagsleg umræða í landinu er svo vanþroska og röklega bágborin að henni veitist erfitt að rísa upp úr hjólförum flokkadrátta og skítmennsku. Mönnum er nánast bannað að sjá hvítan blett á andstæðingum sínum, andstæðingar eiga að vera með þeim ósköpum að þeir eiga að vera með öllu, algjörlega og alltaf óalandi og óferjandi. Ögmundur vill ekki hafa þetta svona, enda hefur hann reynt að hefja sig upp yfir slíka þröngsýni - og fengið bágt fyrir - hann á reyndar erfitt með að skilja þessi ósköp; enda með þokkalega samvisku.
Samfélagsleg umræða hér er oft með hreinum ólíkindum, pólitískur dilkadráttur og það hvar þú kaupir þér dilkakjöt skipar þér svo rækilega í fylkingu að þér á að vera með öllu ómögulegt annað en að vera allaf sammála þínum mönnum, þó þú sért það ekki, og þú ert talin hafa gefið út stórpólitíska yfirlýsingu í hvert skipti sem þú kaupir þér lærisneiðar, með því einu að kaupa þær hér en ekki þar. Múgæsing og handahófskennd upphlaup eru einkennismerki á tjáningu fólks - rök skipta sjaldnast neinu - veröldin getur ekki verið í lit, menn dæma sig úr leik reyni þeir að vega hvert mál og málavexti fyrir sig af yfirvegun og með það að leiðarljósi að kannski geti leynst sannleikur þar sem síst er von á honum. Þú átt að fylja FLOKKNUM eða búðinni, eða samsteypunni eða fjölmiðlinum - eða vera á móti FLOKKNUM eða búðinni, eða samsteypunni eða fjölmiðlinum. Þessu hafnar Ögmundur. Þessu hafna ég líka.
Ég treð sjálfum mér hér að því oftlega verð ég var við það í viðbrögðum við skrifum mínum hér á þessari síðu að ég “á” að hafa þessar og þessar skoðanir, ég “á” að hugsa svona en ekki svona. Ég hef reynt að færast undan svona “stimplunum” en það gengur illa að fá fólk til að skilja það að ég hef frjálsa hugsun, eigin skoðanir og ég tek afstöðu til mála eftir að hafa kynnt mér þau - á eign forsendum. Ég tek ekki við fyrirmælum frá FLOKKI, kjörbúð, samsteypu, fjölmiðli eða banka um það hvaða skoðanir ég “eigi” að hafa. Ég hef MÍNAR skoðanir og ég held því fram að þær séu um flest óvitlausar enda samrýmast þær ekki neinni stefnuskrá sem samin er af illa fúnkerandi vinnuhópum með takmarkaðan tíma á sjálfhverfum landsfundi - skoðanir sem ekki samrýmast slíku sulli hljóta að vera þokkalega heilbrigaðar.
Ég hef ekki lesið bók Styrmis en ég tek fullt mark á Ögmundi þar til ég hef gert það - Strymir er örugglega ekki kolsvartur né heldur snjóhvítur, Styrmir hlýtur að vera í lit. Þó margir hafi eflaust efast um það um stund - einnig ég.
Fært undir Fjölmiðlar, Fréttir, Heilbrigði, Heimspeki, Saga, Samfélag, Stjórnmál, Umhverfi, Umræðan, Áróður þann 9. desember 2009 af gb | 4 ummæli
Að koma vitinu fyrir
Reynum að koma vitinu fyrir þau
. . . aðra.
Þannig telur Steingrímur J. Sigfússon að maður semji við menn; nái samningum. Ef ekki takist að “koma vitinu fyrir” þá verði ekki neitt af samningum.
Þetta er sjónarmið. Nokkkuð sérstakt að vísu. Nokkuð hrokafullt - eins og við var að búast. En, sjónarmið.
Fært undir Fréttir, Heimspeki, Stjórnmál þann 6. desember 2009 af gb | 5 ummæli
Loddari afhjúpaður í beinni
Bara að prófa.
Sá að færsla með þessari yfirskrift hefur loks vikið úr toppsæti þeirra færslna sem mest eru lesnar hér á blogginu.
Vildi leggja mitt af mörkum til þess að hún kæmist þangað aftur. Þessi breyting brenglar tilveru mína.
Fært undir Alþjóðamál, Bókmenntir, Dýrahald, Efnahagur, Ekki mín fjölskylda, Ekki mínir vinir, Ferðalög, Fjölmiðlar, Fréttir, Heilbrigði, Heimspeki, Kvikmyndir, Leiklist, Lögfræði, Matur og drykkur, Menning og listir, Minningar, Nám, Rasismi, Saga, Samfélag, Slúður, Spilling, Stjórnmál, Trúarbrögð, Tækni og vísindi, Tíska, Tónlist, Umhverfi, Umræðan, Vinir og fjölskylda, Áróður, Íslenska, Íþróttir, Óflokkað þann 2. desember 2009 af gb | 6 ummæli
Svo var ekki neinn hestur!
Í síðustu færslu nefni ég Ilíonskviðu. Fyrstu kynni mín af því bókmenntaverki voru í gegnum teiknimyndasöguflokkinn Sígildar sögur. Ágætur flokkur sem færði manni heimsbókmenntirnar, myndskreyttar, snöggsoðnar - og því miður stundum falsaðar.
Ég keypti mér Macbeth í þessari útgáfu ekki alls fyrir löngu, þar er stuðst við þýðingu Matthíasar Jochumssonar - sem er góð.
En, aftur að Ilíonskviðu í teiknimyndasögunni er hesturinn, hinn frægi Trójuhestur, hvítur á lit og tignarlegur, kynntur til sögunnar undir blá lokin. Mér fannst þetta fjandi flott og einsetti mér að lesa Ilíonskviðu þó síðar yrði - þó ekki væri nema til að fá nánari útlistingar á hrossinu.
Svo var það mörgum árum síðar og einhverjum bíómyndum að ég settist í tíma í Háskóla Íslands og hóf skipulagðan lestur á þessu öndvegisverki undir handleiðslu meistara Kristjáns Árnasonar. Ég keypti Ilionskviðu og Óddyseifskviðu í grænu, ljótu, bandi hjá Bókaútgáfu Menningarsjóðs - á útsölu því þá voru fasistarnir að leggja það batterí niður.
Ég hafði ekki lesið lengi þegar einhver vitringur - betur lesinn (þá) en ég í heimsbókmenntunum - færði þetta í tal við Kristján að Ilionskviða væri hestlaus (í þeim skilningi). Mér þótti illt að heyra þessi tíðindi en slaufaði þó ekki náminu og klárði kviðuna mér til mestu ánægju - og bý enn að.
Fyrir þá sem ekki nenna að lesa Ilíonskviðu af því að ekki er þar neinn tréhesturinn er rétt að benda þeim á að hann kemur við sögu, í framhjáhlaupi, í Óddyseifskviðu og einnig í Eneasarkviðu Virgils (2. bók). Hinsvegar mæli ég með því við hvern mann að hann lesi Ilíonskviðu og persónulega finnst mér hún miklu skemmtilegri en Oddyseifskviða sem gjarna er haldið meira á lofti.
Hómer höfundur Ilíonskviðu og Óddyseifskviðu.
Fært undir Bókmenntir, Heimspeki, Menning og listir, Nám, Saga þann 26. nóvember 2009 af gb | 0 ummæli
Stöðugleikasáttmálinn ógnar fjárlagafrumvarpinu
Fjárlagafrumvarpið ógnar stöðugleikasáttmálanum
Og fjárlagafrumvarpið ógnar landsmönnum.
Landsmenn ógna ríkisstjórninni.
Ríkisstjórnin ógnar heimilunum.
Heimilin ógna bönkunum.
Bankarnir ógna fólkinu.
Fólkið ógnar stöðugleikasáttmálanum.
Stöðugleikasáttmálinn ógnar sauðfjárbændum.
Sauðfjárbændur ógna neytendum.
Neytendur ógna Baugi.
Baugur ógnar Davíð.
Davíð ógnar ríkisstjórninni.
Ríkisstjórnin ógnar þjóðinni.
Þjóðin ógnar Icesave.
Icesave ógnar ríkisstjórninni.
Ríkisstjórnin ógnar þingmönnum.
Útrýmum vargfugli, villimink og tófu!
Sauðfjárverndin.
Fært undir Efnahagur, Fréttir, Heilbrigði, Heimspeki, Saga, Samfélag, Spilling, Stjórnmál, Tíska, Umhverfi, Umræðan, Áróður þann 1. október 2009 af gb | 0 ummæli
Næsta síða »
Guðmundur Sveinbjörn Brynjólfsson.