Hrökkbrauð

www.visir.is Björguðu lífi sínu með því að brjótast inn í fjallakofa

Hvað annað?

Stúlkurnar fundu hrökkbrauð í fjallakofanum! Yndislega norskt.

Fært undir Alþjóðamál, Fréttir, Heilbrigði, Matur og drykkur þann 17. febrúar 2010 af gb | 2 ummæli

Helgi Seljan dregur áfram upp úr pípuhatti spillingarinnar

http://www.dv.is/sandkorn/2010/2/11/helgi-med-lanabok-landsbankans/

Það er gott - en samt vont - að sjá hvernig já hvernig Helgi Seljan dregur kvöld eftir kvöld skít upp úr pípuhatti spillingarinnar; lánabók Landsbankans.

Það sem Helgi dregur fram í dagsljósið er ekki fallegt og veldur manni ógleði - í gær hefði ég ælt hefði ég bara tímt því, en það gerði ég ekki; ég át nefnilega hrossabjúgu í kvöldmat.

Fært undir Fjölmiðlar, Fréttir, Matur og drykkur, Samfélag, Spilling, Umræðan þann 12. febrúar 2010 af gb | 6 ummæli

Tvöþúsundvandinn

Eða var það kannski skrifað 2000 vandinn?  Ég man það ekki.

Svo var það Friður 2000 - sem kom reyndar ekki 2000 vandanum beint við. Og fíkniefnalaust Ísland fyrir árið 2000 - sem kom heldur ekki 2000 vandanum við en var bein afleiðing fíkniefnavandans sem hafði ekkert að gera með Frið 2000. Svo var það rifrildið um aldamótin - sem allir beturvitringar höfðu á skoðun og hafa enn og hafa gengið í endurnýjun þvarglífdaganna nú þegar þrátta má um það hvort áratugur sé líðinn af nýrri öld.

Og svo var það tvöþúsundkallinn sem maður sér nánast aldrei. Þessi með Kjarval.

Þetta er tvöþúsundasta blogfærslan mín.

Fært undir Alþjóðamál, Bókmenntir, Dýrahald, Efnahagur, Ekki mín fjölskylda, Ekki mínir vinir, Ferðalög, Fjölmiðlar, Fréttir, Heilbrigði, Heimspeki, Kvikmyndir, Leiklist, Lögfræði, Matur og drykkur, Menning og listir, Minningar, Nám, Rasismi, Saga, Samfélag, Slúður, Spilling, Stjórnmál, Trúarbrögð, Tækni og vísindi, Tíska, Tónlist, Umhverfi, Umræðan, Vinir og fjölskylda, Áróður, Íslenska, Íþróttir þann 7. febrúar 2010 af gb | 2 ummæli

Er syrgjandinn dauður?

www.visir.is Dularfulli aðdáandinn lét ekki sjá sig

Þessi heimsfrægi syrgjandi - en samt óþekkti - er kannski dauður? Það er ekki gott að segja.

Ég trúi því að einhver syrgi það að ekki barst hálf koníaksflaska á leiðið hans Poe þetta árið. Einhver hlýtur að hafa drukkið þetta á endanum? Hver?

Er það ekki bara efni í smásögu? Gotneska smásögu í anda Poe?

Fært undir Bókmenntir, Fréttir, Matur og drykkur, Menning og listir, Saga, Trúarbrögð þann 21. janúar 2010 af gb | 0 ummæli

Þær hefðu ekki slegið

www.visir.is 150 kýr komnar í graskögglaverksmiðju

. . .  klaufunum á móti því að komast þarna inn þegar graskögglaverksmiðjan var í fullum gangi!

Sem minnir mig á það þegar hænsnabúið Nesbú var stofnsett í minni sveit, mikið eggjabú sem enn lifir. Þá sagði hinn alkunni húmoristi Hafsteinn Snæland, þá sveitungi minn, að til stæði að reisa minkabú nokkurn spöl frá eggjabúinu og svo yrði hleypt á milli á matartímum!

Fært undir Dýrahald, Fréttir, Matur og drykkur, Minningar, Tækni og vísindi þann 15. janúar 2010 af gb | 2 ummæli

Hver er það sem talar við stjörnurnar?

www.visir.is Mín búin að hleypa villidýrinu út

Ég les stundum (skoða kannski meira myndirnar) “fréttir” sem er að finna í dálknum Lífið hér á Vísi.

Mér finnast fyrirsagnirnar stundum skrítnar, eins og einhver (sá/sú sem skrifar) sé að tala við stjörnurnar sem slúðrið fjallar um. Viðkomandi “talar” stundum í áminnandi tón við viðfangsefni slúðursins, eða gefur góð (móðurleg) ráð nú eða skammast.

Hver talar við stjörnurnar?

Hver sem það er, þá er eitt víst. Viðkomandi hefur mikla ábyrgðartilfinningu :)

http://visir.is/article/20100113/LIFID01/85819541

http://visir.is/article/20100113/LIFID01/306332975

Fært undir Alþjóðamál, Dýrahald, Fjölmiðlar, Fréttir, Kvikmyndir, Matur og drykkur, Slúður þann 14. janúar 2010 af gb | 0 ummæli

Og verður þá úti um sólarlandaskituna?

www.visir.is Prófa niðurgangslyf á sólarströndum

Mikill er máttur lyfjafræðinnar! Nú er verið að þróa plástur sem á að koma í veg fyrir drullu! Í fljótheitum dettur manni fyrst í hug að hann sé þá límdur fyrir rassgatið - en svo er ekki, lyfjafræðin er fullkomnari en svo.

Til að gera vísindalegar athuganir á mætti plástursins er hann prófaður á sólarlandaförum - þar fá menn víst helst skitu án þess að hafa til þess unnið sérstaklega. Ekki er ég viss um að allir væru reiðubúnir að taka þátt í þessari tilraun. Þar kemur til að margir hafa þann hátt á í sólarferðum að byrja dag hvern með gúlsopa af koníaki til þess að lækna magann. Oft eru viðkomandi frekar að lækna þynnku en tala um magann. Þekkja þeir sem í hafa komist.

Í annan stað þarf steinsmuga alls ekki að vera fylgifiskur sólarlandaferða, ég er aldrei betri í belgnum en í hitanum og stafar það helst af því að þá geri ég ekki neitt nema éta, ganga, sofa og sóla mig. Þessu venst maginn og lætur sér vel líka og dettur þess vegna ekki í hug að gera uppsteit. Svo lætur maður það líka eftir sér að éta níðþungan morgunverð, brasaðan, annað veifið í svona ferðum og slíkur matur læknar allt!

Ég gef ekkert þetta skituplásturs grúsk.

Fært undir Alþjóðamál, Ferðalög, Fréttir, Heilbrigði, Matur og drykkur, Tækni og vísindi þann 30. desember 2009 af gb | 0 ummæli

Það er gott að éta yfir sig af skötu

Það er nú einu sinni þannig að það er betra að éta yfir sig af skötu en öðrum mat. Ég veit ekki alveg af hverju þetta er, en þetta er staðreynd! Kannski er það vegna þessa fína jafnvægis sem ríkir í samsetningunni á þessum veislumat.

Skatan er kæst og söltuð og því hálf melt áður en maður byrjar að éta. Þannig reynir hún ekki mjög á kærulausar magasýrurnar í belgnum á manni. En svo magasýrurnar hafi eitthvað að gera baðar maður skötuna og þessar átta kartöflur sem maður étur með sjö svellþykkum skötustykkjum í snarkandi hamsatólg sem emjar af hita þegar hún skellur á herlegheitunum. Allt þetta gúmmelaði gæti svo farið að standa í þeirri meiningu að það ætti eftir að dvelja langdvölum í maganum á manni, en þá kemur maður aftan að því með því að éta fjórar seiddar rúgbrauðsneiðar með og þverhandarþykkt af sméri á hverja sneið þannig að allt hlýtur það að fara sinn gangveg til sjávar fljótt og vel. Því er það, að það er betra að éta yfir sig af skötu en af öðrum mat.

Verði ykkur að góðu!

Fært undir Heilbrigði, Matur og drykkur þann 23. desember 2009 af gb | 3 ummæli

Fjölnota krár

www.visir.is Dæmigerður Breti eyðir 13 milljónum og einu ári á kránni

Pöbbinn er fjölnota fyrirbæri eins og þessi könnun leiðir í ljós. Mér finnst þessi tölfræði sem þarna kemur fram alveg frábær - ég er ekki að leggja mat á heilbrigðið - sérstaklega finnst mér áhugavert allt snakkið sem þeir gúffa í sig.

Það er margt fleira í þessu sem gaman væri að skoða. T.d. hvað menn horfa á marga knattspyrnuleiki á kránni og hvað þeir sjá marga Formúluhringi ekna. Hvað ætli meðal Breti fari oft að pissa á kránni sinni? Hvað ætli hinn dæmigerði Breti lesi margar blaðsíður á kránni. Hvað skyldi hann stilla upp mörgum smápeningum fyrir framan sig á meðan hann bíður eftir drykkjum? Hvað ætli hann ákveði oft að fá sér “one more”?

 Holly Tree í Englefield Green - Hér kynntist ég m.a. garðyrkjumanni soldánsins af Brunei.

 Happy Man í Englefield Green - hér kynntist ég m.a. framtíðar (þá) lobbyistum breska Íhaldsflokksins.

Og á báðum stöðum hitti ég sjálfan mig fyrir en við kynntumst lítið þá - ég vildi ekki kannast við kauða; fannst hann óþægilegur.

“Hold Your Hour and Have Another.”

Fært undir Fréttir, Heilbrigði, Matur og drykkur, Minningar, Samfélag, Umhverfi, Umræðan, Vinir og fjölskylda þann 8. desember 2009 af gb | 0 ummæli

Loddari afhjúpaður í beinni

Bara að prófa.

Sá að færsla með þessari yfirskrift hefur loks vikið úr toppsæti þeirra færslna sem mest eru lesnar hér á blogginu.

Vildi leggja mitt af mörkum til þess að hún kæmist þangað aftur. Þessi breyting brenglar tilveru mína.

Fært undir Alþjóðamál, Bókmenntir, Dýrahald, Efnahagur, Ekki mín fjölskylda, Ekki mínir vinir, Ferðalög, Fjölmiðlar, Fréttir, Heilbrigði, Heimspeki, Kvikmyndir, Leiklist, Lögfræði, Matur og drykkur, Menning og listir, Minningar, Nám, Rasismi, Saga, Samfélag, Slúður, Spilling, Stjórnmál, Trúarbrögð, Tækni og vísindi, Tíska, Tónlist, Umhverfi, Umræðan, Vinir og fjölskylda, Áróður, Íslenska, Íþróttir, Óflokkað þann 2. desember 2009 af gb | 6 ummæli

Næsta síða »
gb

Guðmundur Sveinbjörn Brynjólfsson.
Sannkristinn Sósíalisti!

Ég á eina dóttur - sem er nú allnokkuð!
Giftur yndislegri konu og á þrjú stjúpbörn.

Fjölmenntaður 19. aldar maður - ku samt lifa á þeirri 21.
Fullur af margvíslegum þverstæðum!

Hægt er að hafa samband: gummimux@simnet.is


Nýjustu færslur
Leit

Flokkar

Eldri færslur

Tenglar

  • WordPress.com
  • WordPress.org
  • Jens Guð
  • Sverrir Jakobsson
  • Kristján B. Jónasson
  • Bergur Þór Ingólfsson
  • Pétur Tyrfingsson
  • Stefán Pálsson
  • rcg
  • Davíð Þór Jónsson
  • Steindór Gunnar
  • Bestiflokkurinn
  • Stageplays
  • Britannica
  • Leikhús alfræði - Wiki
  • Sædís Ósk
  • TiggerTalk (Michael Eustice)
  • MorningStar
  • CPI
  • Guardian
  • Fylgjast með RSS-veitu
    Vísir Fréttir Lífið Íþróttir Viðskipti Vefmiðlar
    Blogg.Vísir.is Innskráning Nýskráning