Ég hef mjög góðan tónlistarsmekk

Margrét Unnur getur vottað það!!! :)

Hér er eitt gott lag:

http://www.youtube.com/watch?v=X7oJAR4iYuw

Fært undir Menning og listir, Tónlist þann 16. mars 2010 af gb | 2 ummæli

Kvikmyndagerð í hremmingum!

Kvikmyndagerðarmenn lenda í ýmsu. Þessum finnst hann grátt leikinn:

Fært undir Kvikmyndir, Menning og listir, Umræðan, Vinir og fjölskylda þann 17. febrúar 2010 af gb | 0 ummæli

Væri ekki nær að þeir sem þola píslirnar

www.visir.is Ráðherrar lesa úr Passíusálmunum

. . .  læsu.

Í stað þess að kalla í kvalarana ár eftir ár!

Og þó? Ég sé að Guðlaugur Þór á að lesa 13. sálminn - Um falsvitnin.

Og í hlut Álfheiðar Ingadóttur kemur sá 24. en þar segir á einum stað:

Hræsnin mun sízt þér sóma.

Fært undir Bókmenntir, Fréttir, Menning og listir, Samfélag, Spilling, Stjórnmál, Trúarbrögð þann 15. febrúar 2010 af gb | 0 ummæli

Tvöþúsundvandinn

Eða var það kannski skrifað 2000 vandinn?  Ég man það ekki.

Svo var það Friður 2000 - sem kom reyndar ekki 2000 vandanum beint við. Og fíkniefnalaust Ísland fyrir árið 2000 - sem kom heldur ekki 2000 vandanum við en var bein afleiðing fíkniefnavandans sem hafði ekkert að gera með Frið 2000. Svo var það rifrildið um aldamótin - sem allir beturvitringar höfðu á skoðun og hafa enn og hafa gengið í endurnýjun þvarglífdaganna nú þegar þrátta má um það hvort áratugur sé líðinn af nýrri öld.

Og svo var það tvöþúsundkallinn sem maður sér nánast aldrei. Þessi með Kjarval.

Þetta er tvöþúsundasta blogfærslan mín.

Fært undir Alþjóðamál, Bókmenntir, Dýrahald, Efnahagur, Ekki mín fjölskylda, Ekki mínir vinir, Ferðalög, Fjölmiðlar, Fréttir, Heilbrigði, Heimspeki, Kvikmyndir, Leiklist, Lögfræði, Matur og drykkur, Menning og listir, Minningar, Nám, Rasismi, Saga, Samfélag, Slúður, Spilling, Stjórnmál, Trúarbrögð, Tækni og vísindi, Tíska, Tónlist, Umhverfi, Umræðan, Vinir og fjölskylda, Áróður, Íslenska, Íþróttir þann 7. febrúar 2010 af gb | 2 ummæli

Er syrgjandinn dauður?

www.visir.is Dularfulli aðdáandinn lét ekki sjá sig

Þessi heimsfrægi syrgjandi - en samt óþekkti - er kannski dauður? Það er ekki gott að segja.

Ég trúi því að einhver syrgi það að ekki barst hálf koníaksflaska á leiðið hans Poe þetta árið. Einhver hlýtur að hafa drukkið þetta á endanum? Hver?

Er það ekki bara efni í smásögu? Gotneska smásögu í anda Poe?

Fært undir Bókmenntir, Fréttir, Matur og drykkur, Menning og listir, Saga, Trúarbrögð þann 21. janúar 2010 af gb | 0 ummæli

Æ æ æ !

www.visir.is Krýsuvíkurkirkja brann

Þetta er illt að heyra. Þetta er menningarsögulegt tjón, þessi kirkjubygging lét yfirleitt ekki þann ósnortinn sem þangað kom. Í smæð kirkjunnar var einstök helgi, í látleysi hennar var tign. Í fábreytileika sínum prýddi hún staðinn. Einnig þótti mér enn vænna um þessa kirkju vegna þess að í þessari sveit á ég rætur. Langalang afi minn Einar Einarsson í Stóra-Nýjabæ, en hann var síðasti formaður sem reri frá Selatöngum, átti þarna kirkjusókn. Ég fann mig alltaf á þessum stað.

Fært undir Fjölmiðlar, Fréttir, Menning og listir, Minningar, Saga, Trúarbrögð, Umhverfi, Vinir og fjölskylda þann 2. janúar 2010 af gb | 0 ummæli

Gleðilegt ár!

Takk fyrir innlit og ummæli hér á síðuna á liðnum árum.

Að sjálfsögðu hef ég skoðun á áramótaskaupinu eins og allir aðrir og minn dómur er þessi:

FRÁBÆRT ÁRAMÓTASKAUP SEM HLÝFÐI ENGUM. STJARNA SKAUPSINS MINN GAMLI SKÓLABRÓÐIR ÚR BÓKMENNTAFRÆÐINNI SÆVAR SIGURGEIRSSON Í HLUTVERKI SIGMUNDAR ERNIS :) ANNNARS ALLT FULLT AF GÓÐUM ATRIÐUM, STUTTUM OG HNITMIÐUÐUM, UNDIRTEXTINN FRÁBÆR OG HÖRÐ SKOT Í ALLAR ÁTTIR.

Fært undir Ekki mín fjölskylda, Ekki mínir vinir, Fjölmiðlar, Leiklist, Menning og listir, Saga, Samfélag, Slúður, Spilling, Stjórnmál, Umhverfi, Umræðan, Vinir og fjölskylda þann 1. janúar 2010 af gb | 0 ummæli

Ave Maria - Schubert - Bocelli

http://www.youtube.com/watch?v=YvdX5Ht3U9w

Fært undir Menning og listir, Tónlist þann 26. desember 2009 af gb | 0 ummæli

Álfur út úr hól!

Hún Magga mín er frábær ljósmyndari. Hér hefur hún náð mynd af hinum margumtalaða álf út út hól og ekki nóg með það - álfurinn hefur verið grafinn út út hólnum með stórvirkri vinnuvél!

(Mynd: Margrét Unnur Guðmundsdóttir)

Fært undir Menning og listir, Samfélag, Tækni og vísindi, Tíska, Umhverfi, Vinir og fjölskylda þann 10. desember 2009 af gb | 2 ummæli

Lestrartörn

Nú er mikil lestrartörn hjá mér. Og bætist sá lestur við hefðbundinn lestur sem fer fram í rúminu eða á öðrum góðum stöðum heima hjá mér. Þá er ég reyndar að lesa annað.

Ég verð ekki var við annað en að fólki líki vel bókin mín, Þvílík vika, þar sem ég kem og les upp. Í gærkvöldi var ég í Bókakaffinu hjá Bjarna Harðar á Selfossi. Í morgun var ég á æskuslóðum og las fyrir unglinga og kennara í Stóru-Vogaskóla á vegum bókasafnsins þar. Á sunnudaginn verð ég í Keflavík í listasal Duushúsa á vegum bókasafnsins í Reykjanesbæ og síðar þann sama dag eða um kvöldið á Rósenberg í höfuðborginni á vegum Forlagsins. Í næstu viku bætast svo við nokkrir skólar hér og þar.

Fært undir Bókmenntir, Menning og listir, Samfélag, Íslenska þann 4. desember 2009 af gb | 1 ummæli

Næsta síða »
gb

Guðmundur Sveinbjörn Brynjólfsson.
Sannkristinn Sósíalisti!

Ég á eina dóttur - sem er nú allnokkuð!
Giftur yndislegri konu og á þrjú stjúpbörn.

Fjölmenntaður 19. aldar maður - ku samt lifa á þeirri 21.
Fullur af margvíslegum þverstæðum!

Hægt er að hafa samband: gummimux@simnet.is


Nýjustu færslur
Leit

Flokkar

Eldri færslur

Tenglar

  • WordPress.com
  • WordPress.org
  • Jens Guð
  • Sverrir Jakobsson
  • Kristján B. Jónasson
  • Bergur Þór Ingólfsson
  • Pétur Tyrfingsson
  • Stefán Pálsson
  • rcg
  • Davíð Þór Jónsson
  • Steindór Gunnar
  • Bestiflokkurinn
  • Stageplays
  • Britannica
  • Leikhús alfræði - Wiki
  • Sædís Ósk
  • TiggerTalk (Michael Eustice)
  • MorningStar
  • CPI
  • Guardian
  • Fylgjast með RSS-veitu
    Vísir Fréttir Lífið Íþróttir Viðskipti Vefmiðlar
    Blogg.Vísir.is Innskráning Nýskráning