Það sem kemur mest á óvart

www.visir.is Barmby og Bullard slógust í almenningsgarði

 . . .  í þessari frétt er það að Nick Barmby skuli enn leika fótbolta í efstu deild.

Hann var arfaslakur, þungur og útbrunninn fyrir einhverjum 10 árum síðan!!!

Fært undir Minningar, Íþróttir þann 12. mars 2010 af gb | 0 ummæli

Sjálfstæðisflokkurinn í Reykjanesbæ fékk það sem hann vantaði

www.visir.is Árni sigraði í Reykjanesbæ - Gunnar í öðru sæti

Ég sé að Sjálfstæðiflokkurinn í Reykjanesbæ fékk það sem hann vantaði. Gunnar Þórarinsson er sérfræðingur í bókfærslu - hann kenndi slíkt í FS í gamla daga.  Ég lærði lítið í þeim fræðum enda stóð hugur minn ekki til handavinnu. Gunnari kynntist ég þó og veit að hann er drengur góður og óska ég honum til hamingju með 2. sætið.

Í 3. sæti sé ég að hafnaði sá ágæti maður Böðvar Jónsson, Jóns Böðvarssonar, mér skilst að hann hafi sigið niður um eitt sæti á kostnað bókfærslukennarans. Böðvar er gamall skólafélagi minn, hann er góður ræðumaður, rökfastur og snjall.

Fært undir Minningar, Stjórnmál þann 28. febrúar 2010 af gb | 8 ummæli

Meinloka!

Ég var handviss um að þetta væri gamalt lag, helst amerískt, helst samið um 1970. Sungið af væmnu amerísku hippa tríói hvers nafn ég gæti ekki munað. Ég fékk þetta lag í heilann í dag:

http://www.youtube.com/watch?v=Vdd9rXSDdq0&feature=related

Fært undir Minningar, Tónlist þann 20. febrúar 2010 af gb | 3 ummæli

“Hann er ótukt þessi Haig”

http://frettir.ruv.is/frett/alexander-haig-latinn

Þegar fregnaðist að Alexander Haig væri allur hvarflaði hugurinn til ömmu í Knarrarnesi. Alexander Haig var einn þeirra manna sem henni varð tíðrætt um á tímabili. Hún talaði um hann eins og hann hefði búið í 40 ár í sömu sveit og hún; eins og hún  hefði gjörþekkt hann. Sem hún svo sem gerði af verkum hans.

“Helvítið hann Alexander Haig …” svona hefði dæmigerð setning getað hafist hjá henni - svo hefði komið stjórnmála analýsa um baktjaldamakkið í Pentagon. Pentagon var ekki fjær ömmu en Hrafnagjáin í heiðinni. Og álíka myrkra pyttur.

Nú er hann allur hann Alexander Haig, það held ég hann fái pistilinn hjá þeirri gömlu, ef hann þá nær því að verða hreppsbúi á sama stað og hún í eilífðinni. Sem er stórlega vafasamt.

Fært undir Alþjóðamál, Fréttir, Minningar, Saga, Samfélag, Stjórnmál þann 20. febrúar 2010 af gb | 0 ummæli

Tvöþúsundvandinn

Eða var það kannski skrifað 2000 vandinn?  Ég man það ekki.

Svo var það Friður 2000 - sem kom reyndar ekki 2000 vandanum beint við. Og fíkniefnalaust Ísland fyrir árið 2000 - sem kom heldur ekki 2000 vandanum við en var bein afleiðing fíkniefnavandans sem hafði ekkert að gera með Frið 2000. Svo var það rifrildið um aldamótin - sem allir beturvitringar höfðu á skoðun og hafa enn og hafa gengið í endurnýjun þvarglífdaganna nú þegar þrátta má um það hvort áratugur sé líðinn af nýrri öld.

Og svo var það tvöþúsundkallinn sem maður sér nánast aldrei. Þessi með Kjarval.

Þetta er tvöþúsundasta blogfærslan mín.

Fært undir Alþjóðamál, Bókmenntir, Dýrahald, Efnahagur, Ekki mín fjölskylda, Ekki mínir vinir, Ferðalög, Fjölmiðlar, Fréttir, Heilbrigði, Heimspeki, Kvikmyndir, Leiklist, Lögfræði, Matur og drykkur, Menning og listir, Minningar, Nám, Rasismi, Saga, Samfélag, Slúður, Spilling, Stjórnmál, Trúarbrögð, Tækni og vísindi, Tíska, Tónlist, Umhverfi, Umræðan, Vinir og fjölskylda, Áróður, Íslenska, Íþróttir þann 7. febrúar 2010 af gb | 2 ummæli

Þegar Steingrímur Hermannsson íhugaði að gera mig að ráðherra

Það var árið 1991 að Öfgasinnaðir jafnaðarmenn buðu fram til Alþingis með stórkostlegum árangri.

Flokkurinn bauð fram í Reykjaneskjördæmi eingöngu, til að takmarka líkurnar á því að sigur hans yrði stærri en þjóðarsálin myndi ráða við. Sá sem þetta ritar var í fyrsta sæti listans en í sama kjördæmi bauð Framsóknarflokkurinn fram Steingrím Hermannsson í fyrsta sæti - blessuð sé minning hans.

Að afloknum umræðum í sjónvarpssal rétt fyrir kosningar kvöddust frambjóðendur með virktum enda flestir ágætir menn og sýndar-kurteisir. Svo bar til um þessar mundir að Júlíus Sólnes var oddviti flokks sem kallaði sig Frjálslynda en Júlíus var þarna ráðherra umhverfismála. Fátt benti til þess að Júlíus fengi frekara umboð til þingsetu - en hann var samt hinn hressasti og bar sig mannalega. Þegar við kvöddumst kastaði Júlíus kveðju á menn og sagði sem svo: “Við sjáumst á þingi í haust.” Þá svaraði Steingrímur að bragði, sposkur á svip: “Ég veit ekki með þig, Júlíus. En ætli ég geri ekki þennan að ráðherra,” um leið og hann klappaði á öxlina á mér.

Þetta var sagan af því þegar ég komst næst ráðherradómi á litríkum stjórnmálaferli mínum.

Fært undir Minningar, Saga, Samfélag, Stjórnmál, Umræðan þann 3. febrúar 2010 af gb | 7 ummæli

Afi slær hafra

 Þetta er reyndar nokkru fyrir mitt minni. En þarna er afi einmitt á gráum Ferguson - eins og þeim sem Egill fjallaði um í Kiljunni á miðvikudagkvöldið.

Ég á margar minningar tengdar þessum Ferguson (og afa) - hér er ein: Þannig var að við Óli frændi stóðum í þeim stórræðum við að mála traktorsskúrinn að Minna Knarrarnesi fyrir margt löngu en máluðum sjálfa okkur ( í það minnsta hendurnar ) til jafns við skúrinn. Þá kallaði afi okkur að Fergusoninum og sagði okkur að þvo okkur í bensíninu sem hann hleypti niður af gruggkúlunni. 

Þetta var í þá tíð að mannsbragur var á öllu að Minna Knarrarnesi, gestrisni og góðvild annáluð og alltaf gott veður.

Fært undir Heilbrigði, Minningar, Saga, Samfélag, Tækni og vísindi, Umhverfi, Vinir og fjölskylda þann 29. janúar 2010 af gb | 2 ummæli

Salinger allur

www.visir.is Höfundur Bjargvættarins í grasinu er látinn

J.D. Salinger hefur nú kvatt heiminn, heim sem hann hafði kvatt fyrir löngu. Bjargvætturinn í grasinu mun halda nafni hans á lofti um ókomna tíð en svo heitir bók hans Catcher in the Rye í snilldarþýðingu Flosa Ólafssonar. Merkilegt hvað varð stutt á milli þeirra meistaranna.

Þessi saga var eitt að því sem manni var gert að lesa í FS - og af því að ég hafði alltaf góða enskukennara - þá voru þær bækur sem þannig bárust upp í fangið á manni oftast góðar bækur. Annað en bölvað jukkið sem ágætir þýskukennarar báru í mann.

Fært undir Bókmenntir, Fréttir, Minningar, Nám þann 28. janúar 2010 af gb | 0 ummæli

Brask!

www.visir.is Bankinn seldi eignina á 75 milljónir - nýr eigandi vill selja á 200 milljónir

“Þetta er braskara djöfull,” sagði Grivas alias Gunnar heitinn Björgvinsson þegar honum blöskraði framferði manna í viðskiptum. Eða, kannski höfðu viðkomandi ekki unnið sér annað til saka en að vera “heildsalar í Reykjavík”.

Eitthvað segði Gunnar í dag ef hans nyti enn við í mannheimum við þjóðfélagsgagnrýni og grjótmulning.

Fært undir Fréttir, Minningar, Samfélag, Spilling, Umræðan, Vinir og fjölskylda þann 24. janúar 2010 af gb | 0 ummæli

Það er nú ekki mikið

www.visir.is Samanlagðir dómar brotamanna námu 334 árum

Þetta er nú ekki árafjöldi sem talandi er um ef miðað er við dóma í landi tækifæra og frelsis USA! Þar þykir ekki mikið að einn maður sanki svo að sér ákærum og svo dómum að hann burðist með nokkur hundruð ára dóm á bakinu út úr dómssalnum. Ég hef reyndar aldrei skilið hvaða tilgangi það þjónar að dæma mann í 423 ára fangelsi - en ég hef heldur aldrei komið til USA, nema í þá mýflugumynd sem birtist manni í hermanginu í gamla daga. En, á Keflavíkurflugvelli voru menn ekki dæmdir svo hart. Þrátt fyrir einbeittan brotavilja.

Fært undir Fréttir, Lögfræði, Minningar, Samfélag, Umhverfi þann 21. janúar 2010 af gb | 0 ummæli

Næsta síða »
gb

Guðmundur Sveinbjörn Brynjólfsson.
Sannkristinn Sósíalisti!

Ég á eina dóttur - sem er nú allnokkuð!
Giftur yndislegri konu og á þrjú stjúpbörn.

Fjölmenntaður 19. aldar maður - ku samt lifa á þeirri 21.
Fullur af margvíslegum þverstæðum!

Hægt er að hafa samband: gummimux@simnet.is


Nýjustu færslur
Leit

Flokkar

Eldri færslur

Tenglar

  • WordPress.com
  • WordPress.org
  • Jens Guð
  • Sverrir Jakobsson
  • Kristján B. Jónasson
  • Bergur Þór Ingólfsson
  • Pétur Tyrfingsson
  • Stefán Pálsson
  • rcg
  • Davíð Þór Jónsson
  • Steindór Gunnar
  • Bestiflokkurinn
  • Stageplays
  • Britannica
  • Leikhús alfræði - Wiki
  • Sædís Ósk
  • TiggerTalk (Michael Eustice)
  • MorningStar
  • CPI
  • Guardian
  • Fylgjast með RSS-veitu
    Vísir Fréttir Lífið Íþróttir Viðskipti Vefmiðlar
    Blogg.Vísir.is Innskráning Nýskráning