Hverjum datt það í hug?
Steingrímur og Jóhanna: Engan bilbug á okkur að finna
Að það yrði einhver bilbugur á Jóhönnu og Steingrími? Þessu æðrulausa fólki! Sem hefur gengið á undan með góðu fordæmi í því að leiða þjóð sína út úr hremmingum og nauð.
Þá sagði Steingrímur að kjörsóknin hefði verið bágborin en sjálfur kaus hann ekki líkt og Jóhanna.
Þetta var andinn í þeim!
Hvernig hefði nú farið ef fólk hefði farið að þeirra fordæmi? Allir sem einn?
Jú, lögin hefðu haldið gildi sínu. Hin skárri tilboð sem fregnir hafa borist af síðustu daga lægju dauð og ómerk.
Það er merkilegt par, Steingrímur og Jóhanna.
Fært undir Óflokkað þann 6. mars 2010 af gb | 0 ummæli
Ég bara þoli ekki svona veðurfar! ARG!!!
Held að það sé genetískt! Það er þessi suðræna taug í mér. Snjór, kuldi, ófærð! Ég bara þoli það ekki!
Ég gæti rænt banka - ég get ekki sagt: “Ég gæti rænt banka, aftur” eins og sumir - en ég gæti rænt banka til þess að komast í sólina:
Fært undir Óflokkað þann 27. febrúar 2010 af gb | 5 ummæli
Björn Valur er fjölhæfur
Þingmaður hjólar í Evu Joly - telur framlag hennar ofmetið
Hann ku vera skipstjórnarmaður ágætur. Nú, svo situr hann á Alþingi - án tilþrifa - en situr samt.
Hann hefur víst komið nálægt fyrirtækjarekstri, ef marka má, ekki gömul, blaðaskrif …
Nú svo er að koma í ljós að hann er liðtækur í skítmokstri. Hann hefur auðvitað dugnaðar verkstjóra við þá iðju - en samt - hann hefur þetta í sér, strákurinn.
Fært undir Fréttir, Samfélag, Spilling, Stjórnmál, Umræðan, Áróður, Óflokkað þann 18. febrúar 2010 af gb | 5 ummæli
Sniðugt sýstem!
Senda reikninga og samþykkja þá líka
Og mættu fleiri komast í þessa aðstöðu því hún gerir launagreiðslur skilvirkari og eins verður einfaldara að samræma laun og launaþarfir. Færri koma nálægt því að flækja málin og allt gengur fljótar fyrir sig.
Fært undir Efnahagur, Fréttir, Samfélag, Spilling, Umræðan, Óflokkað þann 14. febrúar 2010 af gb | 0 ummæli
Auðvitað eru þetta svona bréf
. . . þetta er kjarni málsins:
Þeir geingu í timburstofu júngkærans þar sem þilið var sprúngið og hafði fallið inn skriða úr veggnum á einum stað, mold, grjót og vatn, settust á kistu hans, en sumir á rúmfletið, drógu fram skjöl sín og sýndu honum, og mikið rétt, bréfið var í alla staði gott og gilt, gert á Eyrarbakka, undirskrifað og vottfest. Hann hafði selt höfuðbólið, áttatíu hundraða jörð, fyrir hundrað og sextíu ríxdali, fjörutíu voru greiddir, fjörutíu skyldu greiðast við afhendíng jarðarinnar, sem átti að fara fram í dag, afgángurinn á næstu tíu árum. Hús og áhöfn hafði Vatnsbóndinn rétt til að kaupa við virðíngarverði, og tóku nú að bera fram spurníngar um góðs þetta, en júngkærinn svaraði fáu til, sagðist ekki hafa lagt í vana sinn að telja kvikfé, skyldu þeir spyrja fjósakellínguna um nautgripi, en sauðfénað gætu þeir skygnt í högum ef vildu. Þeir spurðu hvort hann vildi brennivín, en hann afþakkaði.
Þetta eru bréf um sölur og svik í óráði gjörð.
Fært undir Bókmenntir, Fréttir, Saga, Samfélag, Spilling, Stjórnmál, Umræðan, Óflokkað þann 10. febrúar 2010 af gb | 0 ummæli
Ótrúlegt smekkleysi í orðavali
Markaðsstofa Suðurlands, Atvinnuþróunnarfélag Suðurlands og Ferðamálasamtök Suðurlands fagna góðu samstarfi og árangri á Suðurlandi og efna að því tilefni til “klasasprengju og hátíðahalda” í Hótel Selfoss þann 13. febrúar. Svo segir a.m.k. í fréttatilkynningu sem gaf að líta í Dagskránni á Selfossi þann 21. jan sl.
Þá segir í tilkynningunni: “Verkefni klasa verða kynnt og hvatt til frekara samstarfs og hugmyndavinnu.” Svo má skilja af niðurlaginu að þetta séu hátíðahöld og undir allt saman skrifar Ólafur Hilmarsson frá Markaðsstofu Suðurlands.
Það sem ég geri athugasemd við er þetta fádæma ósmekklega tal um “klasasprengju” í þessu samhengi. Ótrúlegt taktleysi má það heita að finna hátíðarhöldum eða uppskeruhátíð viðlíka nafn. Kannski á þetta að vera fyndið, kannski eru þetta markaðstrix? Vissulega vekur svona ósómi athygli - en pent er þetta ekki.
Klasasprengjur hafa limlest og drepið fólk í stórum stíl um víða veröld, hart hefur verið gengið fram í að gera “vopn” þessi útlæg úr hernaði. Notkun á klasasprengjum hefur verið fordæmd víða um heim og bönnuð. Það er óttalegt fíflska að slá orðinu klasasprengja fram með þessum hætti - þó orðaleikur sé - til þess að vekja athygli á einhverju sem maður myndi ætla að væri jákvætt og þyrfti því ekki að styðjast við svona bjánalega og ósmekklega auglýsingamennsku.
Hér má kynna sér umræðu um klasasprengjur - þær eiga ekkert skylt við skemmtilega viðburði á Suðurlandi:
http://www.utanrikisraduneyti.is/frettaefni/frettatilkynningar/nr/3437
http://www.lhg.is/starfsemi/adgerdasvid/sprengjusveit/libanon/
http://www.un.is/index.php?option=com_content&task=view&id=327&Itemid=52
Fært undir Alþjóðamál, Fjölmiðlar, Fréttir, Heilbrigði, Saga, Samfélag, Umræðan, Íslenska, Óflokkað þann 31. janúar 2010 af gb | 3 ummæli
Þorsteinn landlausi Pálsson
Ótækt að forsetinn sé með stæla við ríkisstjórnina
Þorsteinn Pálsson, fv. forsætisráðherra, fv. ritstjóri og fv. framkvæmdastjóri VSÍ og fv. formaður Sjálfstæðisflokksins svo fátt eitt “fv.” sé talið, finnur sig hvergi. Hann reynir að praktísera pólitískt svaml á milli Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks en það er þungur marvaði að troða - illt er að reyna að þjóna tveimur herrum og enn verra þegar engin vill hafa viðkomandi í vist.
Í anda gamalla skotárása ættaðra frá þeim dögum að Vísir var dagblað og Þorsteinn ritstjóri þess [les. ritstjórnarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins] reynir hann að útmála Ólaf Ragnar Grímsson tortryggilegan og illa áttaðan í stjórnskipun lýðveldisins - hvorugt tekst. Eins og öðrum sem vilja sjá Ísland í hópi ESB ríkja líður Þorsteini illa að sjá Ólaf Ragnar standa sig vel og tala máli Íslands af myndugleika - það þjónar ekki tilgangi þeirra sem vilja koma alslausir í húsmennsku til Brussel til að fá þá eina staðfestingu að þar séu menn aumingjagóðir. Að hér geti einn og einn maður sýnt reisn passar illa í þá mynd alla.
Af sama meiði eru brigsl Þorsteins um að forsetinn segi ósatt í útlendum fjölmiðlum - þau dæma sig sjálf. Þorsteinn Pálsson er landlaus maður í íslenskri samfélagsumræðu, hann er enn á sömu hrakhólum - og þó heldur verri - og eftir að Davíð Oddsson var tekin fram yfir hann á frægum landsfundi forðum tíð.
Fært undir Fréttir, Samfélag, Stjórnmál, Umræðan, Óflokkað þann 9. janúar 2010 af gb | 4 ummæli
Meira en fjórðungur kjósenda!
Ólafur Ragnar Grímsson getur ekki hunsað slíkan fjölda.
Sem betur fer er forsetinn greindur maður og víðsýnn. Hann veit að hræðsluáróðurinn sem dynur nú á landsmönnum, settur fram í pólitískum tilgangi þeirra sem vilja helst henda sjálfstæði þjóðarinnar út í hafsauga, er hlálegur en um leið siðlaus.
Fært undir Fréttir, Samfélag, Stjórnmál, Umræðan, Óflokkað þann 2. janúar 2010 af gb | 0 ummæli
Útþynning á eignarhlut Björgólfs Thors er í góðum höndum
Eignarhlutur Björgólfs Thors verði þynntur út
Ef einhver hefur efasemdir um að eignarhlutur Björgólfs Thors í gagnaverinu á Suðurnesjum verði þynntur út getur sá hinn sami andað léttar. Á meðan ríkisvaldið hefur eitthvað með þetta gagnaver að gera, skattaívilnanir og fl. geta menn verið öruggir um að við þetta verður staðið; útþynningin verður ósvikin.
Ríkisvaldið hefur á undanförum áratugum, og er ekkert lát á, útþynnt eignahlut venjulegs fólks í húsnæði þess, en húsnæði er jú stærst fjárfestinga hins venjulega manns. Útþynningu þessari er fylgt eftir af svo miklum fítons krafti að áður en yfir líkur er eignarhluturinn neikvæður. M.ö.o. það sem menn eiga í byrjun er af þeim tekið jafnt og þétt með sérhannaðri útþynningu sem við þekkjum öll.
Megi útþynningarkunnátta ríkisvaldsins nýtst sem best við væntanlega, boðaða, útþynningu á eignarhlut Björgólfs Thors.
Fært undir Efnahagur, Fréttir, Saga, Samfélag, Spilling, Stjórnmál, Umhverfi, Umræðan, Óflokkað þann 18. desember 2009 af gb | 0 ummæli
Erfið fæðing
Í kvöld vann Leeds góðan sigur á Kettering Town í 2. umferð bikarkeppninar í landi Elísabetar II. Sigurinn verður sannfærandi i sögubókunum, þegar menn líta bara á markatöluna, en hann var þó ekki eins auðveldur og markatalan 5-1 gefur til kynna.
Þetta fór sem sagt í framlengingu eftir að staðan var 1-1 að loknum venjulegum leiktíma. En á síðustu 12 mínútum framlengingarinnar komu 4 mörk hjá Leeds. Það má segja að skiptingarnar hjá Grayson hafi verið gulli betri í kvöld því það voru varamennirnir Grella (2) og Kandol sem skorðu mörk númer tvö, þrjú og fjögur. Að sjálfsögðu kom Beckford svo með eitt í lokin en Becchio skoraði það fyrsta snemma leiks.
Á morgun er svo athyglisverður grannaslagur en þá tekur Millwall á móti Staines Town. Staines er lítll bær í Middlesex á landamærum þeirrar sýslu og Surrey. Frægastur núlifandi Stainesverja - ekki þó fyrir fótbolta - er Ali G! Ég á margar góðar minningar frá Staines sem er snotur staður með ágætan miðbæ og fallegt er að horfa yfir Thames frá The Swan kránni. Því held ég með Staines Town á morgun - en geri mér þó ekki miklar vonir.
Fært undir Fréttir, Minningar, Íþróttir, Óflokkað þann 8. desember 2009 af gb | 5 ummæli
Næsta síða »

Guðmundur Sveinbjörn Brynjólfsson.