Um þetta gildir almennt kjaftæði

www.visir.is Lánþegar krefjast aðgerða

Þegar kemur að því að leiðrétta skuldir almennra borgara í þessu landi; færa þær í rétt horf, þá gilda önnur lögmál og þá er um það brúkað annað tungumál en þegar milljarðar eru afskrifaðir hjá stórgrósserum og viðskiptafræðilegum kjánum.

Dæmi:

Friðrik Már Baldursson, prófessor í hagfræði, segir í Morgunblaðinu í dag: „Ég reikna með að menn hafi farið ofan í saumana á fjárhag stærstu lántakenda. Líklega var þó beitt heildstæðari aðferð á smærri lántakendur og meðaltalsafföll áætluð.“

Það er: Það gilda önnur lögmál um afskriftir er varða hinn almenna borgara en hina sem skulduðu djöfuldóm af, oftast illa fengnum, peningum.

Einhverja 80 milljarða afskrifaði Arion banki af skuldum Kjalars!

Einhverja 80 milljarða afskrifaði Landsbankinn af skulum Icelandic Group.

Því er spurt: Hvað má koma mörgum fyrirtækjum og mörgum heimilum í gott fjárhagslegt horf fyrir 160 milljarða?

Nú er að koma í ljós að þegar almenn lán - sem önnur - voru færð úr gömlu bönkunum yfir í þá nýju voru afskrifuð á milli 45-50% af þeim. Samt á að láta þig lesandi góður borga eins og aldrei hafi verið gert ráð fyrir neinum afskriftum þar. Það vill segja: Þú átt að borga svínaríið. Um það er þegjandi samkomulag á milli ráðamannana og kapítalistanna  (Rottubandalagið) um þetta er rætt fjálglega undir liðnum almennt kjaftæði á tungumáli sem vísast verður aldrei túlkað sökum vankunnáttu málnotenda.

Fært undir Efnahagur, Spilling þann 12. mars 2010 af gb | 0 ummæli

Allir vinir mínir

www.visir.is Borgarfulltrúar koma Sigrúnu Elsu til varnar

Góðir vinir eru gulls ígildi.

Góðir vinir verja mann - sérstaklega ef þeir þurfa sjálfir á vörn að halda, seinna. En - eru þeir þá vinir?

Vinir standa saman. Vinir ferðast oft saman.

Hitt er annað að það gera sér ekki allir grein fyrir því að: Vinur er sá er til vamms segir.

Fært undir Fréttir, Spilling þann 5. mars 2010 af gb | 0 ummæli

Ég er með lán þarna, í frystingu

www.visir.is Milljarða skuld Finns líklega afskrifuð

Væri ekki rétt að taka það með? Svona í leiðinni?

Svo á ég gamla stórviðarsög, en ég vonast til þess að ég fái að halda henni. Eins og Finnur fær að halda Frumherja.

Allir sáttir?

Fært undir Efnahagur, Spilling þann 1. mars 2010 af gb | 0 ummæli

Er hægt að komast lengra í hræsni og tvöfeldni?

www.visir.is Seðlabankastjóri verður með 400 þúsund í fasta yfirvinnu

Hallelúja! Engar tekjur verði hærri en tekjur forsættisráðherra! AMEN!

En, svo er hérna punktakerfi! Hallelúja! Hver punktur rúmar 5000 krónur! AMEN!

Og svo röðum við punktum á menn þannig að ekkert og nákvæmlega ekkert er að  marka þvaðrið um að engar tekjur skyldu vera hærri en tekjur forsætisráðherra!

Þetta lið er svo ofhlaðið af yfirdrepsskap og falsi að manni er hætt að verða flökurt! AMEN!

Fært undir Spilling, Stjórnmál þann 26. febrúar 2010 af gb | 2 ummæli

Það er rétt að láta þetta veljast eitthvað áfram

www.visir.is Engin ákvörðun tekin um forgang

Sjá hvað það lifir. Pakkið. Athuga hvað má finna upp - hvaða eftir á útskýringar má nota ef illa fer - þannig að það borgi nú samt. Pakkið.

Dómsmálaráðherra hefur nú boðað að enn verði dregið að bjóða upp ofan af pakkinu. Þar sem áhugi er fyrir slíku. Þannig að það geti eitthvað áfram klórað í veggina. Pakkið.

Ríkisstjórnin skiptir sér ekki af, pakkinu, því þá eru líkur á að það dofni. Pakkið. Verði sinnulaust, máttlausara og vondaufara. Þá líður úr því aflið, þá verður það meðfærilegra. Pakkið.

Meðfærilegra á uppboðum framtíðarinnar. Í kjörklefunum í vor. Í kirkjugörðunum þegar yfir lýkur. Pakkið.

Fært undir Spilling, Stjórnmál þann 23. febrúar 2010 af gb | 0 ummæli

Óttaðist um eigin hag

www.visir.is Óttaðist um líf ríkisstjórnarinnar

Þá loksins reif Össur sig upp á rassgatinu og gerði eitthvað; eða gerði tilraun til að gera eitthvað, að hann óttaðist um hag ríkisstjórnarinnar.

Það er merkilegt að stjórnmálamenn virðast ekki hafa tekið eftir því að ríkisstjórn per se er ekki til - eða á ekki að vera til - sjálfrar sín vegna.

Nei, íslenskir stjórnmálamenn - alltof margir - setja í fyrsta sæti eigin hag, veru á valdastól - en í annað eða kannski enn frekar átjánda sæti hag þjóðarinnar.

Þetta brölt á Össuri, ráðuneytisstjóranum og einum af heimilisköttum Samfylkingarinnar er enn eitt dæmið um akkúrat þetta!

Fært undir Fréttir, Samfélag, Spilling, Stjórnmál þann 19. febrúar 2010 af gb | 0 ummæli

Björn Valur er fjölhæfur

www.visir.is Þingmaður hjólar í Evu Joly - telur framlag hennar ofmetið

Hann ku vera skipstjórnarmaður ágætur. Nú, svo situr hann á Alþingi - án tilþrifa - en situr samt.

Hann hefur víst komið nálægt fyrirtækjarekstri, ef marka má, ekki gömul, blaðaskrif …

Nú svo er að koma í ljós að hann er liðtækur í skítmokstri. Hann hefur auðvitað dugnaðar verkstjóra við þá iðju - en samt - hann hefur þetta í sér, strákurinn.

Fært undir Fréttir, Samfélag, Spilling, Stjórnmál, Umræðan, Áróður, Óflokkað þann 18. febrúar 2010 af gb | 5 ummæli

Ég gæti gert það

www.visir.is Gylfi: Ríkið gæti mótmælt

. . .  en ég er ekkert viss um að ég geri það.

Það væri réttast. En þó ekki víst.

Mér kemur það við. En þó ekki.

Afskaplega afdráttarlaus maður, Gylfi Magnússon.

Fært undir Fréttir, Samfélag, Spilling, Stjórnmál, Umræðan þann 18. febrúar 2010 af gb | 0 ummæli

0

www.visir.is Starfsmannalán Kaupþings færð á núlli yfir í Arion

Fært undir Efnahagur, Fréttir, Samfélag, Spilling, Umræðan þann 18. febrúar 2010 af gb | 0 ummæli

Stjórnmálamenn stýra bankakerfinu

www.visir.is Stjórnmálamenn stýri ekki fjármálakerfinu

Það er alveg sama hvað Jóhanna segir, stjórnmálmenn stýra einmitt bankakerfinu. Þeir gera það - eftir atvikum - með aðgerðum eða aðgerðaleysi.

Þeir velja - og hafna - hvenær þeir skipta sér af og hvenær ekki. Af hverjum þeir skipta sér og af hverjum ekki.

Stjórnmálmenn eru stikkfrí - þegar þeim hentar en foringjar ella (með árherslu á for). Stjórnmálamenn selja vald af höndum sér í prófkjörum og kosningum. Án þess að hafa það vald sem þeir selja. Þetta gera þeir, hafa gert og munu gera af því að þeir komast upp með það.

Þeir tala tungum tveim allt efir því við hverja þeir tala - nú gapir Jóhanna um afskiptaleysi yfir bissnessmönnunum. Á morgun talar hún um afskipti yfir lýðnum, hinn daginn um fullveldi yfir bændunum þann næsta um ESB yfir samflokksmönnum sínum. Viðlögin eru jafn mörg og lagboðarnir.

Stjórnmálamenn stýra því sem þeir ættu ekki að stýra, láta hitt vera sem þeim bera að stjórna. Því er komið sem komið er.

Fært undir Efnahagur, Fréttir, Saga, Samfélag, Spilling, Stjórnmál, Umhverfi, Umræðan þann 17. febrúar 2010 af gb | 0 ummæli

Næsta síða »
gb

Guðmundur Sveinbjörn Brynjólfsson.
Sannkristinn Sósíalisti!

Ég á eina dóttur - sem er nú allnokkuð!
Giftur yndislegri konu og á þrjú stjúpbörn.

Fjölmenntaður 19. aldar maður - ku samt lifa á þeirri 21.
Fullur af margvíslegum þverstæðum!

Hægt er að hafa samband: gummimux@simnet.is


Nýjustu færslur
Leit

Flokkar

Eldri færslur

Tenglar

  • WordPress.com
  • WordPress.org
  • Jens Guð
  • Sverrir Jakobsson
  • Kristján B. Jónasson
  • Bergur Þór Ingólfsson
  • Pétur Tyrfingsson
  • Stefán Pálsson
  • rcg
  • Davíð Þór Jónsson
  • Steindór Gunnar
  • Bestiflokkurinn
  • Stageplays
  • Britannica
  • Leikhús alfræði - Wiki
  • Sædís Ósk
  • TiggerTalk (Michael Eustice)
  • MorningStar
  • CPI
  • Guardian
  • Fylgjast með RSS-veitu
    Vísir Fréttir Lífið Íþróttir Viðskipti Vefmiðlar
    Blogg.Vísir.is Innskráning Nýskráning