Þess vegna er ráð að

. . .  kroppa af þeim SJÓMANNAAFSLÁTTINN:

http://www.youtube.com/watch?v=H8U8ctOZZ9U

Fært undir Samfélag, Stjórnmál þann 9. mars 2010 af gb | 5 ummæli

Ég fagna því að til séu þingmenn sem eru sjálfum sér samkvæmir

www.visir.is Steingrímur endurskoði vinnubrögðin gagnvart þingflokki VG

En, það hefur verið fáséð sort.

Margir hafa verið til þess að hnýta í Lilju Mósesdóttur af því að hún hefur ekki dansað eftir flokkslínunni. Það hefur - að mínu mati - verið óverðskulduð gagnrýni. Lilja þorir að segja það sem hún meinar - slíkir þingmenn hafa líka verið fáséð sort - og hún hefur hugsjónir sem hún stendur vörð um.

Ég hjó eftir því sem sagt var í Silfrinu um að “þétta raðirnar” - það er von að Lilju brygði við að heyra þann tón. Jóhanna hefur oftlega verið staðin að því að vera með pólitískar hótanir, stilla fólki upp við vegg. Nú segir Lilja að Steingrímur þurfi að taka upp aðra samskiptahætti við þingflokkinn. Hvað skyldi það þýða?

Jú, einræðistilburðum hans verður að linna. Reykjavíkurklíkan Árni Þór, Svandís, Álfheiður og Steingrímsarmurinn sígeltandi þurfa að læra - það sem kennt er í leikskólum; “að taka tillit til” - ég hef reyndar ekki  mikla trú á námshæfileikunum þar á bæ.

Stattu þig Lilja Mósesdóttir!

Fært undir Fréttir, Stjórnmál þann 8. mars 2010 af gb | 19 ummæli

Ég er ekkert viss um

www.visir.is Hugnast hugmyndir um þjóðaratkvæði varðandi sjávarútveginn

. . .  að hún væri jafn hrifin af þessum hugmyndum ef hún væri á kosningafundi í Eyjum.

Maður hefur mjög oft á tilfinningunni að Eygló Harðardóttur huggnist eitt í dag og annað á morgun og fari það mjög eftir því hver er að hlusta hvað henni huggnast helst.

Fært undir Stjórnmál, Umræðan þann 8. mars 2010 af gb | 1 ummæli

Ólafur Ragnar Grímsson vinnur vinnuna sína

www.visir.is Allir sammála um ósanngirni laganna

Það er annað en hægt er að segja um talsmenn ríkisstjórnarinnar sem ekki bara sitja með hendur í skauti - nema þegar draga þarf einhverja meinta auðkýfinga að landi - heldur vinna gagngert gegn almannahag með blaðri sínu og geðvonskuköstum, svo ekki sé nú talað um hrokann.

Með oflátungsskap tala Jóhanna og Steingrímur niður til þjóðarinnar, fjalla um þjóðaratkvæðagreiðsluna sem marklausa og tilgangslausa. M.ö.o. það sem þjóðin er, í þeirra augum, að sýsla í dag er fánýtt dund hins vitgranna fjölda.

Á einum stað í íslandssögunni  var sagt: Þið eruð ekki þjóðin. Þetta hefur nú verið tekið enn lengra af núverandi ráðamönnum sem með gjörðum sínum og framgöngu eru í raun að segja: Þið eruð kannski þjóðin en það sem þið gerið sem þjóð skiptir ekki neinu máli.

Ég fer nú til þess að kjósa. Forseti minn hefur kallað mig til þess að segja álit mitt á gjörðum þess fólks sem í valdhroka sínum ætlaði að leggja á mig og mína óréttláta skuldabagga, bundna af glæpamönnum, ég hlýði kalli forsetans.

Ég segi NEI!

Fært undir Stjórnmál, Umræðan þann 6. mars 2010 af gb | 0 ummæli

Vel mælt hjá Þór Saari

www.visir.is Ný ríkisstjórn skrifuð í skýin

Þá er ég ekki að tala um hugleiðingar hans um það hvað sé skrifað í þungskýjaðan himininn. Heldur hitt, það sem hann segir um Jóhönnu og Steingrím og framferði þeirra í þessu blessaða Icesave máli öllu svo ekki sé nú talað um málatilbúnaðinn nú þegar þörf er á samstöðu þjóðarinnar.

Þór segir m.a.:

Það sem mest hefur komið mér á óvart í þessu máli er hversu langt ríkisstjórnin var tilbúin að ganga í óheilindum, ósannindum og hræðsluáróðri. Á öllum stigum þess var varað við hörmungum ef þingmenn gerðu ekki eins og Jóhanna og Steingrímur sögðu, þau höguðu sér ítrekað eins og litlir krakkar eða frústreraðir makar og sögðust bara hætt ef þau fengu ekki sitt fram. Stór hluti embættismannakerfisins og hluti fræðasamfélagsins spilaði með þeim alla leið og valdir fjölmiðlar hafa linnulítið líka unnið gegn hagsmunum almennings í málinu.

Og hann heldur áfram:

Nú stöndum við frammi fyrir því að kjósa um Icesave II í þjóðaratkvæðagreiðslu. Enn á ný reyna Jóhanna og Steingrímur að eyðileggja málið með linnulausum áróðri og blekkingum og kalla atkvæðagreiðsluna marklausa vegna “nýs og betra tilboðs” frá bretum og hollendingum. Þess ber að geta að þetta blessaða tilboð er þó þrælvont og litlu skárra en lögin sjálf og færi aldrei gagnrýnislaust gegnum þingið. Engu að síður nota þau það sem áróðurstæki til að reyna að bjarga sínu pólitíska lífi, sem þau virðast ætíð tilbúin að setja ofar sannleikanum og ofar almannahagsmunum.

Að endingu hvetur Þór fólk til þess að fara á kjörstað á morgun og segja NEI! Undir það má svo sannarlega taka - líkt og annað það sem ég hef vitnað til hér að ofan.

Förum á kjörstað og segjum: NEI

Fært undir Samfélag, Stjórnmál þann 5. mars 2010 af gb | 0 ummæli

Menn uppskera eins og þeir sá

www.visir.is Pólitískt líf Steingríms hangir á bláþræði

Steingrímur hefur verið með stóryrði og farið með staðlausa stafi. Hann ætlaði sér að koma samningi upp á þessa þjóð sem var vondur samningur. Þá sagði hann að: ekkert fengist betra. Hver drög að samningi voru þau bestu, sagði Steingrímur - þó hann vissi vel að ekki væri fullreynt.

En það var aldrei málið - hvort samningurinn  var góður eða vondur. Steingrímur hafði einkavinavætt samninganefndina, því var erfitt fyrir hann að kyngja því að sú nefnd hafi verið slök samninganefnd sem komið hafi heim með lélegan samning.

Í marga mánuði hefur Steingrímur hugsað Icesave samningaferlið út frá sjálfum sér - sem er svo sem ekki nýlunda þegar valdagráðugur stjórnmálamaður á í hlut - hann hugsaði um þessar viðræður út frá eigin hag. Það var hann og ekki nokkur annar maður en hann sem tengdi pólitíska framtíð sína við þetta mál. Menn uppskera eins og þeir sá.

Ég hef svo sem enga trú á því að Steingrímur pilli sig út úr fjármálaráðuneytinu sama hvernig þetta mál veltist. Þó það væri óskandi. Ég hef enga trú á því að Steingrímur standi við stóru orðin í þessu máli frekar en í þeim hinum sem hann gólaði hvað hæst um í kosningabaráttunni. Því er nú ver.

Hitt er svo annað, en jafn nauðaómerkilegt og loforð Steingríms J. Sigfússonar, að ég fæ ekki betur séð en að pólitískur ferill Jóhönnu Sigurðardóttur sé á sama leiðarenda af sömu orsökum og ferill Steingríms. En, af því að Jóhanna er líka stjórnmálamaður þá getur hún unað sér lengi í rústunum - líkt og Steingrímur.

Fært undir Stjórnmál, Umræðan þann 4. mars 2010 af gb | 5 ummæli

Frá Skáksambandinu:

www.visir.is Einar Karl í iðnaðarráðuneytið tímabundið

Staðan er flókin. Einar Karl hefur verið færður - það er biðleikur. Drottningin er illa stödd. Við sjáum hvað setur.

Fært undir Stjórnmál, Íþróttir þann 2. mars 2010 af gb | 0 ummæli

Sjálfstæðisflokkurinn í Reykjanesbæ fékk það sem hann vantaði

www.visir.is Árni sigraði í Reykjanesbæ - Gunnar í öðru sæti

Ég sé að Sjálfstæðiflokkurinn í Reykjanesbæ fékk það sem hann vantaði. Gunnar Þórarinsson er sérfræðingur í bókfærslu - hann kenndi slíkt í FS í gamla daga.  Ég lærði lítið í þeim fræðum enda stóð hugur minn ekki til handavinnu. Gunnari kynntist ég þó og veit að hann er drengur góður og óska ég honum til hamingju með 2. sætið.

Í 3. sæti sé ég að hafnaði sá ágæti maður Böðvar Jónsson, Jóns Böðvarssonar, mér skilst að hann hafi sigið niður um eitt sæti á kostnað bókfærslukennarans. Böðvar er gamall skólafélagi minn, hann er góður ræðumaður, rökfastur og snjall.

Fært undir Minningar, Stjórnmál þann 28. febrúar 2010 af gb | 8 ummæli

Þorsteinn Pálsson vill gjarna halda nýfenginni vinnu

www.visir.is Stjórnin felli Icesave lögin úr gildi

Hann rær því öllum árum að því að kippa lýðræðinu (leifunum af því) úr sambandi. Hann veit sem er að ef að, og þegar að, þjóðinn hefur vísað þessum svokallaða samningi á bug þá er viðbúið að kvein heyrist frá Rama [les. Brussel].
Hann veit sem er að nýfengið starf hans sem eftirgjafarerindreki ríkisstjórnar Jóhönnu Sigurðardóttur og Steingríms J. Sigfússonar væri þá í uppnámi. Því að, öllum er ljóst að Icesave og ESB hanga saman og söngur evrópusinna, sem hljómar óaflátanlega um að svo sé ekki, er falskur.
Allt tal Þorsteins Pálssonar um að ríkisstjórnin eigi að fella úr gildi lögin sem Ólafur Ragnar vísaði til þjóðarinnar er marklaust hjal hlutdrægs manns.
Það liggur í loftinu og hefur legið lengi að Vinstri grænir og Samfylking, það vill segja elíta þessara flokka, vill enga þjóðaratkvæðagreiðslu, slík atkvæðagreiðsla sem birta mun samhljóm kúgaðrar þjóðar gegn ofurvaldi alþjóðakapítalismans er ekki þóknanleg umboðslausum stjórnvöldum sem sitja í skjóli Alþjóða gjaldeyrissjóðsins og látast stjórna; þykjast af því að kaupið er gott og vegtyllurnar sætar.

Fært undir Stjórnmál, Áróður þann 27. febrúar 2010 af gb | 3 ummæli

Er hægt að komast lengra í hræsni og tvöfeldni?

www.visir.is Seðlabankastjóri verður með 400 þúsund í fasta yfirvinnu

Hallelúja! Engar tekjur verði hærri en tekjur forsættisráðherra! AMEN!

En, svo er hérna punktakerfi! Hallelúja! Hver punktur rúmar 5000 krónur! AMEN!

Og svo röðum við punktum á menn þannig að ekkert og nákvæmlega ekkert er að  marka þvaðrið um að engar tekjur skyldu vera hærri en tekjur forsætisráðherra!

Þetta lið er svo ofhlaðið af yfirdrepsskap og falsi að manni er hætt að verða flökurt! AMEN!

Fært undir Spilling, Stjórnmál þann 26. febrúar 2010 af gb | 2 ummæli

Næsta síða »
gb

Guðmundur Sveinbjörn Brynjólfsson.
Sannkristinn Sósíalisti!

Ég á eina dóttur - sem er nú allnokkuð!
Giftur yndislegri konu og á þrjú stjúpbörn.

Fjölmenntaður 19. aldar maður - ku samt lifa á þeirri 21.
Fullur af margvíslegum þverstæðum!

Hægt er að hafa samband: gummimux@simnet.is


Nýjustu færslur
Leit

Flokkar

Eldri færslur

Tenglar

  • WordPress.com
  • WordPress.org
  • Jens Guð
  • Sverrir Jakobsson
  • Kristján B. Jónasson
  • Bergur Þór Ingólfsson
  • Pétur Tyrfingsson
  • Stefán Pálsson
  • rcg
  • Davíð Þór Jónsson
  • Steindór Gunnar
  • Bestiflokkurinn
  • Stageplays
  • Britannica
  • Leikhús alfræði - Wiki
  • Sædís Ósk
  • TiggerTalk (Michael Eustice)
  • MorningStar
  • CPI
  • Guardian
  • Fylgjast með RSS-veitu
    Vísir Fréttir Lífið Íþróttir Viðskipti Vefmiðlar
    Blogg.Vísir.is Innskráning Nýskráning