JÁ! púnktur is

www.visir.is Ja.is besti íslenski vefurinn

Ég er sammála þessu!

Já eða réttara sagt ja.is er alveg frábær vefur. T.a.m. er hægt að finna símanúmerið sitt á honum - sé maður alveg strand. Eins er hægt að senda frítt sms í gegnum ja.is og þar að auki er hægt að sjá húsið sitt - á kortinu. Ég hef reyndar ekki eins mikil not fyrir þá þjónustu og fyrrum.

ja.is er frábær vefur!

Fært undir Fjölmiðlar, Fréttir, Tækni og vísindi þann 12. febrúar 2010 af gb | 2 ummæli

Saknæm

www.visir.is Handtekin fyrir að stelast í þvottavél

. . .  snyrtimennska?

Auðvitað er ekki gott að fólk sé, án leyfis, að þvo í vélum hjá öðrum. Sér í lagi af því að stillingarnar á þessum vélum eru oft svo viðkvæmar.

Fært undir Fréttir, Heilbrigði, Samfélag, Tækni og vísindi þann 12. febrúar 2010 af gb | 0 ummæli

Hvernig þróast þeir öðruvísi en annað fólk?

www.visir.is Þróun opinberra starfsmanna hér á landi á sér tæpast hliðstæðu

Hér er greinilega á ferðinni stórkostleg vísindaleg uppgötvun. Búast má við því að þessi frétt tröllríði heimspressunni ekki seinna en eftir tvo eða þrjá klukkutíma.

Opinberir starfsmenn á Íslandi þróast með öðrum hætti en aðrir stofnar mannkyns. Merkilegt!

Fært undir Fréttir, Heilbrigði, Tækni og vísindi, Umhverfi þann 7. febrúar 2010 af gb | 2 ummæli

Tvöþúsundvandinn

Eða var það kannski skrifað 2000 vandinn?  Ég man það ekki.

Svo var það Friður 2000 - sem kom reyndar ekki 2000 vandanum beint við. Og fíkniefnalaust Ísland fyrir árið 2000 - sem kom heldur ekki 2000 vandanum við en var bein afleiðing fíkniefnavandans sem hafði ekkert að gera með Frið 2000. Svo var það rifrildið um aldamótin - sem allir beturvitringar höfðu á skoðun og hafa enn og hafa gengið í endurnýjun þvarglífdaganna nú þegar þrátta má um það hvort áratugur sé líðinn af nýrri öld.

Og svo var það tvöþúsundkallinn sem maður sér nánast aldrei. Þessi með Kjarval.

Þetta er tvöþúsundasta blogfærslan mín.

Fært undir Alþjóðamál, Bókmenntir, Dýrahald, Efnahagur, Ekki mín fjölskylda, Ekki mínir vinir, Ferðalög, Fjölmiðlar, Fréttir, Heilbrigði, Heimspeki, Kvikmyndir, Leiklist, Lögfræði, Matur og drykkur, Menning og listir, Minningar, Nám, Rasismi, Saga, Samfélag, Slúður, Spilling, Stjórnmál, Trúarbrögð, Tækni og vísindi, Tíska, Tónlist, Umhverfi, Umræðan, Vinir og fjölskylda, Áróður, Íslenska, Íþróttir þann 7. febrúar 2010 af gb | 2 ummæli

Afi slær hafra

 Þetta er reyndar nokkru fyrir mitt minni. En þarna er afi einmitt á gráum Ferguson - eins og þeim sem Egill fjallaði um í Kiljunni á miðvikudagkvöldið.

Ég á margar minningar tengdar þessum Ferguson (og afa) - hér er ein: Þannig var að við Óli frændi stóðum í þeim stórræðum við að mála traktorsskúrinn að Minna Knarrarnesi fyrir margt löngu en máluðum sjálfa okkur ( í það minnsta hendurnar ) til jafns við skúrinn. Þá kallaði afi okkur að Fergusoninum og sagði okkur að þvo okkur í bensíninu sem hann hleypti niður af gruggkúlunni. 

Þetta var í þá tíð að mannsbragur var á öllu að Minna Knarrarnesi, gestrisni og góðvild annáluð og alltaf gott veður.

Fært undir Heilbrigði, Minningar, Saga, Samfélag, Tækni og vísindi, Umhverfi, Vinir og fjölskylda þann 29. janúar 2010 af gb | 2 ummæli

Ekkert óeðlilegt við þetta

www.visir.is Las ekki samninga en gaf út bók um stjórnun Sjóvár

Það er ekki hægt að ætlast til þess að maðurinn skrifi og lesi samtímis.

Fært undir Fréttir, Heilbrigði, Tækni og vísindi, Umræðan þann 26. janúar 2010 af gb | 0 ummæli

Ætli allt tal um hlýnun

www.visir.is Bullspár um bráðnun jökla

. . .  sé í þessum dúr?

Mig grunar reyndar - og hefur grunað lengi - að allt sé það orðum aukið, svo vægt sé til orða tekið.

Fært undir Alþjóðamál, Fréttir, Spilling, Tækni og vísindi, Umhverfi, Áróður þann 18. janúar 2010 af gb | 1 ummæli

Þær hefðu ekki slegið

www.visir.is 150 kýr komnar í graskögglaverksmiðju

. . .  klaufunum á móti því að komast þarna inn þegar graskögglaverksmiðjan var í fullum gangi!

Sem minnir mig á það þegar hænsnabúið Nesbú var stofnsett í minni sveit, mikið eggjabú sem enn lifir. Þá sagði hinn alkunni húmoristi Hafsteinn Snæland, þá sveitungi minn, að til stæði að reisa minkabú nokkurn spöl frá eggjabúinu og svo yrði hleypt á milli á matartímum!

Fært undir Dýrahald, Fréttir, Matur og drykkur, Minningar, Tækni og vísindi þann 15. janúar 2010 af gb | 2 ummæli

Og verður þá úti um sólarlandaskituna?

www.visir.is Prófa niðurgangslyf á sólarströndum

Mikill er máttur lyfjafræðinnar! Nú er verið að þróa plástur sem á að koma í veg fyrir drullu! Í fljótheitum dettur manni fyrst í hug að hann sé þá límdur fyrir rassgatið - en svo er ekki, lyfjafræðin er fullkomnari en svo.

Til að gera vísindalegar athuganir á mætti plástursins er hann prófaður á sólarlandaförum - þar fá menn víst helst skitu án þess að hafa til þess unnið sérstaklega. Ekki er ég viss um að allir væru reiðubúnir að taka þátt í þessari tilraun. Þar kemur til að margir hafa þann hátt á í sólarferðum að byrja dag hvern með gúlsopa af koníaki til þess að lækna magann. Oft eru viðkomandi frekar að lækna þynnku en tala um magann. Þekkja þeir sem í hafa komist.

Í annan stað þarf steinsmuga alls ekki að vera fylgifiskur sólarlandaferða, ég er aldrei betri í belgnum en í hitanum og stafar það helst af því að þá geri ég ekki neitt nema éta, ganga, sofa og sóla mig. Þessu venst maginn og lætur sér vel líka og dettur þess vegna ekki í hug að gera uppsteit. Svo lætur maður það líka eftir sér að éta níðþungan morgunverð, brasaðan, annað veifið í svona ferðum og slíkur matur læknar allt!

Ég gef ekkert þetta skituplásturs grúsk.

Fært undir Alþjóðamál, Ferðalög, Fréttir, Heilbrigði, Matur og drykkur, Tækni og vísindi þann 30. desember 2009 af gb | 0 ummæli

Rekin upp úr og beint í dauðann!

www.visir.is Sundlaugarálftin drapst í morgun

Það er nánast alveg sama hvað að manni er: gigtveiki, klemmdar taugar, áfengissýki, tannholdsbólga, þunglyndi, offita, hárlos og júgurbólga eða þorsti. Alltaf jarma læknarnir: Þú ættir að fara í sund! Ellegar þeir spyrja (því læknar vita oft ekkert hvað maður gerir þegar maður er ekki hjá lækni): Hefurðu farið í sund? - Sú spurning er þá ekki sett fram af félagsfræðilegri forvitni né með þeim undirtóni að það sé vont að fara í sund - heldur er verið að ýja að því hvað sund sé bráðhollt og læknisfræðilega fullkomið.

Nú hefur þessi speki sannast - einu sinni enn - álftin sem gerði sig heimakomna í Sundlaug Kópavogs af heilsufarslegum ástæðum en var þaðan fjarlægð af sömu ástæðum, annarra sundlaugaresta, er nú dauð. Álftin sem ætlaði að fá bata í Sundlaug Kópavogs af því að það var eitthvað að henni, eins og fram kemur í fréttinni, en var þaðan fjarlægð og hún flutt í Húsdýragarðinn! Þetta er auðvitað glórulaus ákvörðun frá læknisfræðilegu sjónarmiði. Eða, hvaða læknar ráðleggja manni svo sem að fara í Húsdýragarðinn þegar eitthvað bjátar á?

Fært undir Dýrahald, Fréttir, Heilbrigði, Tækni og vísindi, Umhverfi, Umræðan þann 22. desember 2009 af gb | 4 ummæli

Næsta síða »
gb

Guðmundur Sveinbjörn Brynjólfsson.
Sannkristinn Sósíalisti!

Ég á eina dóttur - sem er nú allnokkuð!
Giftur yndislegri konu og á þrjú stjúpbörn.

Fjölmenntaður 19. aldar maður - ku samt lifa á þeirri 21.
Fullur af margvíslegum þverstæðum!

Hægt er að hafa samband: gummimux@simnet.is


Nýjustu færslur
Leit

Flokkar

Eldri færslur

Tenglar

  • WordPress.com
  • WordPress.org
  • Jens Guð
  • Sverrir Jakobsson
  • Kristján B. Jónasson
  • Bergur Þór Ingólfsson
  • Pétur Tyrfingsson
  • Stefán Pálsson
  • rcg
  • Davíð Þór Jónsson
  • Steindór Gunnar
  • Bestiflokkurinn
  • Stageplays
  • Britannica
  • Leikhús alfræði - Wiki
  • Sædís Ósk
  • TiggerTalk (Michael Eustice)
  • MorningStar
  • CPI
  • Guardian
  • Fylgjast með RSS-veitu
    Vísir Fréttir Lífið Íþróttir Viðskipti Vefmiðlar
    Blogg.Vísir.is Innskráning Nýskráning