Veggir Salómons
Af því að Óli Tynes var að flýta sér þá langar mig til að gera svona:
http://news.yahoo.com/s/ap/ml_israel_ancient_wall
Fært undir Saga, Trúarbrögð þann 23. febrúar 2010 af gb | 0 ummæli
Væri ekki nær að þeir sem þola píslirnar
Ráðherrar lesa úr Passíusálmunum
. . . læsu.
Í stað þess að kalla í kvalarana ár eftir ár!
Og þó? Ég sé að Guðlaugur Þór á að lesa 13. sálminn - Um falsvitnin.
Og í hlut Álfheiðar Ingadóttur kemur sá 24. en þar segir á einum stað:
Hræsnin mun sízt þér sóma.
Fært undir Bókmenntir, Fréttir, Menning og listir, Samfélag, Spilling, Stjórnmál, Trúarbrögð þann 15. febrúar 2010 af gb | 0 ummæli
Tvöþúsundvandinn
Eða var það kannski skrifað 2000 vandinn? Ég man það ekki.
Svo var það Friður 2000 - sem kom reyndar ekki 2000 vandanum beint við. Og fíkniefnalaust Ísland fyrir árið 2000 - sem kom heldur ekki 2000 vandanum við en var bein afleiðing fíkniefnavandans sem hafði ekkert að gera með Frið 2000. Svo var það rifrildið um aldamótin - sem allir beturvitringar höfðu á skoðun og hafa enn og hafa gengið í endurnýjun þvarglífdaganna nú þegar þrátta má um það hvort áratugur sé líðinn af nýrri öld.
Og svo var það tvöþúsundkallinn sem maður sér nánast aldrei. Þessi með Kjarval.
Þetta er tvöþúsundasta blogfærslan mín.
Fært undir Alþjóðamál, Bókmenntir, Dýrahald, Efnahagur, Ekki mín fjölskylda, Ekki mínir vinir, Ferðalög, Fjölmiðlar, Fréttir, Heilbrigði, Heimspeki, Kvikmyndir, Leiklist, Lögfræði, Matur og drykkur, Menning og listir, Minningar, Nám, Rasismi, Saga, Samfélag, Slúður, Spilling, Stjórnmál, Trúarbrögð, Tækni og vísindi, Tíska, Tónlist, Umhverfi, Umræðan, Vinir og fjölskylda, Áróður, Íslenska, Íþróttir þann 7. febrúar 2010 af gb | 2 ummæli
Et tu, Brute?
Vill að borgin hætti að greiða laun miðborgarprests
Maður hefur meiri trú á sumum, lengur. En svo …
Fært undir Fréttir, Heilbrigði, Samfélag, Stjórnmál, Trúarbrögð, Umhverfi, Umræðan þann 2. febrúar 2010 af gb | 0 ummæli
Er syrgjandinn dauður?
Dularfulli aðdáandinn lét ekki sjá sig
Þessi heimsfrægi syrgjandi - en samt óþekkti - er kannski dauður? Það er ekki gott að segja.
Ég trúi því að einhver syrgi það að ekki barst hálf koníaksflaska á leiðið hans Poe þetta árið. Einhver hlýtur að hafa drukkið þetta á endanum? Hver?
Er það ekki bara efni í smásögu? Gotneska smásögu í anda Poe?
Fært undir Bókmenntir, Fréttir, Matur og drykkur, Menning og listir, Saga, Trúarbrögð þann 21. janúar 2010 af gb | 0 ummæli
Ég hef alltaf verið í ruslflokki
Ruslflokkur breytir engu fyrir sveitafélögin
Ekki bara þegar í var í VG heldur líka í lánalegu tilliti. Ég er enn í ruslflokki. Það er ekki svo slæmt þegar maður þekkir ekki annað.
Hinir sem áður voru í hinum ýmsu úrvalsflokkum, lánalega séð, eru núna í ruslflokki. Líklega af því að að úrvalsflokkarnir gerðu það að verkum að þeir gátu fengið eins mikið af lánum og þá listi. Þótt undarlegt megi teljast eru þeir þess vegna í ruslflokki í dag. Samt er ekkert undarlegt við það. Maðurinn lifir ekki af lánum einum saman.
Nú eru sumir dasaðir yfir því að Ísland skuli nú vera komið í ruslflokk, lánalega séð. Það er undarlegt, ég hefði haldið að það væri bara gott að gjaldþrota þjóð væri ekki að slá lán um allar koppa grundir. Hún er reyndar ekki að því - svo þetta er allt í lagi; þetta með ruslflokkinn.
Það eru ekki mörg ár frá því íslendingar fóru að fræðast um matsfyrirtæki og ruslflokka. Við höfðum reyndar búið við ruslflokka í stjórnmálalegum skilningi í áratugi en þessir lánaflokkar voru framandi. Engum sögum fer af því hvernig þjóðin komst af áður en ruslflokka flokkunin á henni varð lýðum ljós, heims um ból.
Samt bjargaðist þetta allt, dag frá degi, ár eftir ár.
Fært undir Efnahagur, Fréttir, Samfélag, Stjórnmál, Trúarbrögð, Umhverfi, Umræðan þann 7. janúar 2010 af gb | 7 ummæli
Ekkert lygilegt við þetta!
Lygilegur sigur Leeds á Man. Utd
Þetta var kærkomið gleðiefni! Tilbreyting frá þusinu um Icesave og forsetann og Guð blessi Ísland Geirs Haarde! (Ég hef oft pælt í því hvernig væri fyrir okkur komið ef Guð hefði ekki blessað Ísland svona ríkulega).
Sædís mín, sem þekkir innviði og málatilbúnað hjá Man Utd betur en flest annað hér á jörð hefur reyndar verið að reyna að telja mér trú um að ósigur liðsins í dag hafi verið góðverk. Man Utd, segir hún, tapar alltaf fyrir einhverjum smælingjum í janúar ár hvert. Þetta segir hún Sædís - ég tek ekkert mark á henni (aldrei þessu vant) - hún er bara að stríða kallinum! Það tekst ekki - ekkert spillir þessum sigri! Svo er það Spurs í næstu umferð!!!
Fært undir Fréttir, Trúarbrögð, Vinir og fjölskylda, Íþróttir þann 3. janúar 2010 af gb | 4 ummæli
Árásir á kirkjubyggingar
Kirkjuvörður í Grensáskirkju: ?Aðkoman var ekki falleg?
Nú ku flest benda til þess að kveikt hafi verið í Krýsuvíkurkirkju. Á nýársnótt var ráðist að Grensáskirkju og rúður brotnar í henni.
Ætli lögregla rannsaki hvort tengsl séu á milli þessra óhæfuverka? Erum við að sjá í þessum níðingsverkum afleiðingar þeirrar öldu árása á trú kristinna manna - og kirkju þeirra - sem hefur fengið að flæða átölulaust yfir samfélagið á undanförnum misserum?
Fært undir Fréttir, Samfélag, Trúarbrögð, Umhverfi, Umræðan þann 2. janúar 2010 af gb | 0 ummæli
Æ æ æ !
Þetta er illt að heyra. Þetta er menningarsögulegt tjón, þessi kirkjubygging lét yfirleitt ekki þann ósnortinn sem þangað kom. Í smæð kirkjunnar var einstök helgi, í látleysi hennar var tign. Í fábreytileika sínum prýddi hún staðinn. Einnig þótti mér enn vænna um þessa kirkju vegna þess að í þessari sveit á ég rætur. Langalang afi minn Einar Einarsson í Stóra-Nýjabæ, en hann var síðasti formaður sem reri frá Selatöngum, átti þarna kirkjusókn. Ég fann mig alltaf á þessum stað.
Fært undir Fjölmiðlar, Fréttir, Menning og listir, Minningar, Saga, Trúarbrögð, Umhverfi, Vinir og fjölskylda þann 2. janúar 2010 af gb | 0 ummæli
Allt hefur þetta verið boðað
Einstök björgun: Fórnaði sér svo tengdasonur gæti lifað
Trúið mér að ég er í föðurnum og faðirinn í mér. Ef þér trúið ekki orðum mínum trúið þá vegna sjálfra verkanna. Sannlega, sannlega segi ég yður: Sá sem trúir á mig mun einnig gera þau verk sem ég geri. Og hann mun gera meiri verk en þau því ég fer til föðurins. (Jóh. 14:11-12)
http://tru.is/postilla/2009/12/brotnir-geislabaugar
Fært undir Fréttir, Heilbrigði, Heimspeki, Saga, Samfélag, Trúarbrögð, Umhverfi, Umræðan þann 27. desember 2009 af gb | 2 ummæli
Næsta síða »
Guðmundur Sveinbjörn Brynjólfsson.