Hvað hefði þetta orðið mikið
Kringlan flokkaði hundrað tonn af sorpi
. . . ef að sumt af þessu bölvuðu drasli sem er þarna til sölu hefði líka verið flokkað?
Fært undir Fréttir, Umhverfi þann 24. febrúar 2010 af gb | 0 ummæli
Stjórnmálamenn stýra bankakerfinu
Stjórnmálamenn stýri ekki fjármálakerfinu
Það er alveg sama hvað Jóhanna segir, stjórnmálmenn stýra einmitt bankakerfinu. Þeir gera það - eftir atvikum - með aðgerðum eða aðgerðaleysi.
Þeir velja - og hafna - hvenær þeir skipta sér af og hvenær ekki. Af hverjum þeir skipta sér og af hverjum ekki.
Stjórnmálmenn eru stikkfrí - þegar þeim hentar en foringjar ella (með árherslu á for). Stjórnmálamenn selja vald af höndum sér í prófkjörum og kosningum. Án þess að hafa það vald sem þeir selja. Þetta gera þeir, hafa gert og munu gera af því að þeir komast upp með það.
Þeir tala tungum tveim allt efir því við hverja þeir tala - nú gapir Jóhanna um afskiptaleysi yfir bissnessmönnunum. Á morgun talar hún um afskipti yfir lýðnum, hinn daginn um fullveldi yfir bændunum þann næsta um ESB yfir samflokksmönnum sínum. Viðlögin eru jafn mörg og lagboðarnir.
Stjórnmálamenn stýra því sem þeir ættu ekki að stýra, láta hitt vera sem þeim bera að stjórna. Því er komið sem komið er.
Fært undir Efnahagur, Fréttir, Saga, Samfélag, Spilling, Stjórnmál, Umhverfi, Umræðan þann 17. febrúar 2010 af gb | 0 ummæli
Glæsilegur vitnisburður um SKJALDBORGINA!
Mesti brottflutningur fólks frá landinu í sögunni
Ríkisstjórnin vegur skipulega að fyrirtækjunum og enn skipulegar að heimilunum. Fólk leggur á flótta en fyrirtæki leggja upp laupana. Hér ríkir meðvitað skipulagsleysi og tilbúið atvinnuleysi.
NIÐUR MEÐ ÞESSA VANHÆFU RÍKISSTJÓRN!
ÚT MEÐ VANHÆFA STJÓRNMÁLASTÉTT SKIPAÐA EIGINHAGSMUNASEGGJUM AÐ STÆRSTUM HLUTA!
KREFJUSMT STJÓRNLAGAÞINGSINS SEM LOFAÐ VAR!
Fært undir Efnahagur, Ferðalög, Fjölmiðlar, Fréttir, Heilbrigði, Saga, Samfélag, Spilling, Stjórnmál, Umhverfi, Umræðan þann 16. febrúar 2010 af gb | 4 ummæli
Ég horfði á Kastljósið í gærkvöldi
Sektaður fyrir að smygla inn Rolex úri og silkihálsbindum
Og eftir að hafa horft á svindlhringekjuna (Landsbankinn - IG ehf - Icelandic Group) sem þar var afhjúpuð kom að þeim punkti í öllu þessu kreppukjaftæði og hrun- og eftirhrunsglæpamennsku að ég fékk hið fullkomna ógeð á þessu samfélagi okkar. Áherslunum, fólkinu sem stjórnar, ráðaleysi stjórnvalda, forgangsröðun, misréttinu, öllu þessum skít! Kastljósið í gær var kornið sem fyllti mælinn - þó var það sem þar var greint frá ekkert verra en margt annað sem maður hefur fengið að sjá að undanförnu.
Síðast en ekki síst - og sem afleiðingu alls þessa fann ég til vanmáttar. En af því að ég er þokkalega lífsreyndur maður þá veit ég að það er styrkur að viðurkenna vanmátt sinn.
Fært undir Fjölmiðlar, Fréttir, Samfélag, Spilling, Stjórnmál, Umhverfi, Umræðan þann 11. febrúar 2010 af gb | 0 ummæli
Eins gott að þeir ná ekki Guðmundi Óla!
Sá fengi að finna fyrir því; þá væri fyrst farið að tala um alvöru upphæðir!
Fært undir Dýrahald, Fréttir, Heilbrigði, Umhverfi, Vinir og fjölskylda þann 8. febrúar 2010 af gb | 8 ummæli
Hvernig þróast þeir öðruvísi en annað fólk?
Þróun opinberra starfsmanna hér á landi á sér tæpast hliðstæðu
Hér er greinilega á ferðinni stórkostleg vísindaleg uppgötvun. Búast má við því að þessi frétt tröllríði heimspressunni ekki seinna en eftir tvo eða þrjá klukkutíma.
Opinberir starfsmenn á Íslandi þróast með öðrum hætti en aðrir stofnar mannkyns. Merkilegt!
Fært undir Fréttir, Heilbrigði, Tækni og vísindi, Umhverfi þann 7. febrúar 2010 af gb | 2 ummæli
Tvöþúsundvandinn
Eða var það kannski skrifað 2000 vandinn? Ég man það ekki.
Svo var það Friður 2000 - sem kom reyndar ekki 2000 vandanum beint við. Og fíkniefnalaust Ísland fyrir árið 2000 - sem kom heldur ekki 2000 vandanum við en var bein afleiðing fíkniefnavandans sem hafði ekkert að gera með Frið 2000. Svo var það rifrildið um aldamótin - sem allir beturvitringar höfðu á skoðun og hafa enn og hafa gengið í endurnýjun þvarglífdaganna nú þegar þrátta má um það hvort áratugur sé líðinn af nýrri öld.
Og svo var það tvöþúsundkallinn sem maður sér nánast aldrei. Þessi með Kjarval.
Þetta er tvöþúsundasta blogfærslan mín.
Fært undir Alþjóðamál, Bókmenntir, Dýrahald, Efnahagur, Ekki mín fjölskylda, Ekki mínir vinir, Ferðalög, Fjölmiðlar, Fréttir, Heilbrigði, Heimspeki, Kvikmyndir, Leiklist, Lögfræði, Matur og drykkur, Menning og listir, Minningar, Nám, Rasismi, Saga, Samfélag, Slúður, Spilling, Stjórnmál, Trúarbrögð, Tækni og vísindi, Tíska, Tónlist, Umhverfi, Umræðan, Vinir og fjölskylda, Áróður, Íslenska, Íþróttir þann 7. febrúar 2010 af gb | 2 ummæli
Það er eins gott að launin séu góð hjá borgarfulltrúunum
Eykt vill ekki Höfðatorg við Katrínartún
. . . því að þeir fást við fjölmörg flókin og aðkallandi verkefni.
Það er eins gott að Júlíus Vífill fékk áframhaldandi traust frá Sjálfstæðismönnum í nýafstöðnu prófkjöri. Það eru svo margar götur sem vel þola nafnabreytingar.
Fært undir Samfélag, Stjórnmál, Umhverfi, Umræðan þann 5. febrúar 2010 af gb | 0 ummæli
Það gerir Guðmundur
Aldrei fleiri heimsótt Fjölskyldu- og húsdýragarðinn í janúarmánuði
Fært undir Dýrahald, Fréttir, Samfélag, Umhverfi þann 3. febrúar 2010 af gb | 2 ummæli
Et tu, Brute?
Vill að borgin hætti að greiða laun miðborgarprests
Maður hefur meiri trú á sumum, lengur. En svo …
Fært undir Fréttir, Heilbrigði, Samfélag, Stjórnmál, Trúarbrögð, Umhverfi, Umræðan þann 2. febrúar 2010 af gb | 0 ummæli
Næsta síða »
Guðmundur Sveinbjörn Brynjólfsson.