Þetta hefur nú verið toppað og gott betur
Ók í öfuga átt á Skólavörðustíg
Á gullaldarárum sínum og Hallærisplansins og Gary Newman fór Binni bróðir upp Laugarveginn og niður Hverfisgötuna eins og drekka vatn. Kveikti í Hallærisplaninu og fékk lögreglufylgd úr bænum en skipti þá um bíl og var mættur aftur á rúntinn áður en löggan gat svo mikið sem sagt nafnið hans.
http://www.youtube.com/watch?v=Ldyx3KHOFXw
Fært undir Fréttir, Vinir og fjölskylda þann 11. mars 2010 af gb | 2 ummæli
Oft hef ég verið nálægt því að elda köttinn
Kattauppskrift kemur sjónvarpskokki í koll
En þó hefur aldrei hvarflað að mér að gera það fyrir framan alþjóð.
Hitt er svo önnur saga að ég hef aldrei verið eins langt frá því að steikja kattarafmánina eins og nú í dag. Það er af því að blessunin veiddi mús sem hafði ákveðið að við hjónin hefðum gert ráð fyrir henni í framtíðaráformum okkar og taldi sig eiga hér kost á fríu húsnæði og öðrum viðurgjörningi. Kötturinn leit í íbúaskrána og sá að þetta var ekki rétt og tók í því framhaldi til sinna ráða.
Fært undir Dýrahald, Vinir og fjölskylda þann 25. febrúar 2010 af gb | 5 ummæli
Kvikmyndagerð í hremmingum!
Kvikmyndagerðarmenn lenda í ýmsu. Þessum finnst hann grátt leikinn:
Fært undir Kvikmyndir, Menning og listir, Umræðan, Vinir og fjölskylda þann 17. febrúar 2010 af gb | 0 ummæli
Eins gott að þeir ná ekki Guðmundi Óla!
Sá fengi að finna fyrir því; þá væri fyrst farið að tala um alvöru upphæðir!
Fært undir Dýrahald, Fréttir, Heilbrigði, Umhverfi, Vinir og fjölskylda þann 8. febrúar 2010 af gb | 8 ummæli
Tvöþúsundvandinn
Eða var það kannski skrifað 2000 vandinn? Ég man það ekki.
Svo var það Friður 2000 - sem kom reyndar ekki 2000 vandanum beint við. Og fíkniefnalaust Ísland fyrir árið 2000 - sem kom heldur ekki 2000 vandanum við en var bein afleiðing fíkniefnavandans sem hafði ekkert að gera með Frið 2000. Svo var það rifrildið um aldamótin - sem allir beturvitringar höfðu á skoðun og hafa enn og hafa gengið í endurnýjun þvarglífdaganna nú þegar þrátta má um það hvort áratugur sé líðinn af nýrri öld.
Og svo var það tvöþúsundkallinn sem maður sér nánast aldrei. Þessi með Kjarval.
Þetta er tvöþúsundasta blogfærslan mín.
Fært undir Alþjóðamál, Bókmenntir, Dýrahald, Efnahagur, Ekki mín fjölskylda, Ekki mínir vinir, Ferðalög, Fjölmiðlar, Fréttir, Heilbrigði, Heimspeki, Kvikmyndir, Leiklist, Lögfræði, Matur og drykkur, Menning og listir, Minningar, Nám, Rasismi, Saga, Samfélag, Slúður, Spilling, Stjórnmál, Trúarbrögð, Tækni og vísindi, Tíska, Tónlist, Umhverfi, Umræðan, Vinir og fjölskylda, Áróður, Íslenska, Íþróttir þann 7. febrúar 2010 af gb | 2 ummæli
Afi slær hafra
Þetta er reyndar nokkru fyrir mitt minni. En þarna er afi einmitt á gráum Ferguson - eins og þeim sem Egill fjallaði um í Kiljunni á miðvikudagkvöldið.
Ég á margar minningar tengdar þessum Ferguson (og afa) - hér er ein: Þannig var að við Óli frændi stóðum í þeim stórræðum við að mála traktorsskúrinn að Minna Knarrarnesi fyrir margt löngu en máluðum sjálfa okkur ( í það minnsta hendurnar ) til jafns við skúrinn. Þá kallaði afi okkur að Fergusoninum og sagði okkur að þvo okkur í bensíninu sem hann hleypti niður af gruggkúlunni.
Þetta var í þá tíð að mannsbragur var á öllu að Minna Knarrarnesi, gestrisni og góðvild annáluð og alltaf gott veður.
Fært undir Heilbrigði, Minningar, Saga, Samfélag, Tækni og vísindi, Umhverfi, Vinir og fjölskylda þann 29. janúar 2010 af gb | 2 ummæli
Brask!
Bankinn seldi eignina á 75 milljónir - nýr eigandi vill selja á 200 milljónir
“Þetta er braskara djöfull,” sagði Grivas alias Gunnar heitinn Björgvinsson þegar honum blöskraði framferði manna í viðskiptum. Eða, kannski höfðu viðkomandi ekki unnið sér annað til saka en að vera “heildsalar í Reykjavík”.
Eitthvað segði Gunnar í dag ef hans nyti enn við í mannheimum við þjóðfélagsgagnrýni og grjótmulning.
Fært undir Fréttir, Minningar, Samfélag, Spilling, Umræðan, Vinir og fjölskylda þann 24. janúar 2010 af gb | 0 ummæli
Happy Hour
Reynt að koma böndum á drykkju Breta
Sjá:
http://www.youtube.com/watch?v=7_TMUJIWwyI
Fært undir Heilbrigði, Tónlist, Umræðan, Vinir og fjölskylda þann 19. janúar 2010 af gb | 0 ummæli
Tvö stórmenni
Fært undir Alþjóðamál, Saga, Stjórnmál, Vinir og fjölskylda þann 12. janúar 2010 af gb | 0 ummæli
Til hamingju með daginn
. . . kæra systir!
Fært undir Vinir og fjölskylda þann 12. janúar 2010 af gb | 0 ummæli
Næsta síða »

Guðmundur Sveinbjörn Brynjólfsson.