elvan í útlandinu 6. maí 2012
Á þessu heimili er ferfætt og rauðhærð drottning sem hefur það eins og blómi í eggi. Hún stjórnar öllu því sem henni dettur í hug með því að setja upp stóru kálfsaugun sín og þrátt fyrir að eigendurnir streytist á móti þá stendur hún alltaf uppi sem sigurvegari. Það er lítill skammakrókur í eldhúsinu þar sem hún endar stöku sinnum eftir að hafa farið allsvakalega yfir strikið en áður en hún endar þar, er hún AÐ SJÁLFSÖGÐU BÚIN AÐ FÁ SITT FRAM.
Þegar húsmóðirin á heimilinu kom fram í morgun var sú ferfætta búin að flokka ruslið. Í Noregi er allt rusl flokkað í minnst þrennt. Matarleifar, pappír og rusl. (Fyrir þá sem eru mjög umhverfisvænir höfum við líka plast, gler, blikk og “hættulegt rusl” (rafhlöður, ljósaperur o.fl.)). Sú ferfætta hafði farið í gegnum ruslið og fundið út að við höfðum ekki gert vinnuna okkar almennilega svo hún afgreiddi þá vinnu fyrir okkur. Allt sem hafði haft smá matarleyfar var núna hreint og fínt enda hafði hún sleikt allt ruslið…en líka dreift því um allt eldhúsið… Það verður að viðurkennast að hún endaði ekki í skammakróknum í þetta sinn þrátt fyrir að hún væri mjög skömmustuleg og reyndi að láta sig hverna niður í gólfið. Sú tvífætta var satt að segja ákaflega hrifin af því hvað sú ferfætta hafði náð að sleikja allt skínandi hreint. Spurning hvort ég eigi að “gleyma” að loka uppþvottavélinni í kvöld…
Doxý sæta
Erum komin á fullt við að skrapa, pússa og sparsla Freyjuna. Keyptum 9 lítra af sparsli og bara spurning hvort það sé nóg. Nóg að gera á þessum bæ. Ætlum líka að breyta aðeins skipulaginu inní bátunum svo við getum sofið í honum. Vonumst til að fá Freyjuna á sjóinn í endan sumars eða í haust í smá prufuferð en það fer auðvitað eftir veðri og vindum því við erum að þessu úti.
Freyja
Það verður stór flugsýning á Kjevik um næstu helgi http://forsvaret.no/aktuelt/luftmakt/arrangementene/balchen/Sider/Program.aspx Ætla sko ekki að missa af henni.
Best að koma sér út og halda áfram með Freyjuna. Knúsilús, Elva skipper
Fært undir Óflokkað | 6 ummæli »
elvan í útlandinu 27. apríl 2012
Komin heim aftur. Hálf súrt að fara úr sólinni og hitanum á Íslandi í kuldann og rigninguna í Noregi en ef marka má veðurfræðingana þá er sumarið rétt handans hornsins. Sól og 20°C eftir helgina. Í dag er svo kalt að ég er búin að kveikja upp í ofninum og koma mér fyrir undir teppi í sófanum og narta í íslenska blóðmör til að fá hita í kroppinn. Mætti segja mér að ferfættu frökeninni sé líka kalt því hún liggur við hliðina á ofninum…..þ.e.a.s. á milli þess sem hún kemur til mín og sníkir bita af blóðmörinni…
Nafnarnir Jónas og Jónas jr. og Jóhann og Jóhann jr.
Íslandsferðin var æði. Eldri deildin Fjölnir Máni og Sölvi Freyr voru fermdir og yngri deildin Jóhann Eldór og Jónas Bjartur fengu flottu nöfnin sín loksins opinberuð. Afarnir og nafnarnir Jóhann og Jónas voru að springa úr monti og slepptu varla hendinni af litlu rollingunum. Frétti líka að Jóhann jr. og Jónas jr. ætli að flytja norður í Guðlaugsvík með foreldrunum í haust. Við úttlingarnir erum þegar búin að plana ferð þangað á næsta ári. Ég er meira að segja með staðsetninguna á hreinu svo ég villist ekki 65° 27′ 06”N
021° 16′ 39”W

Sunna færðu þig aðeins, ég er stjarnan hérna
Við gistum hjá Sunnu og Orra og kó og svo eina nótt í sveitinni. Pabbi gamli tók okkur með á sjóinn og sigldi með okkur upp að landi á Bjarteyjarsandi og við Hvammsvík og Hvítanesið svo ég gæti tekið myndir. Ég var samt voða fegin að við vorum ekki nálægt landi þegar glussaslöngurnar í stýrið fóru í sundur og við dugguðum stjórnlaust um Hvalfjörðinn fagra saman með nokkrum múkkum sem virkuðu ánægðir með félagsskapinn. Engin dramatík í þessari ferð og eftir að pabbi gamli hafði tálgað tappa og skrúfað smá þá komum við okkur heilum að bryggju.

Duggað á Guggunni
Helga sæta tók okkur með niður á BSÍ á þriðjudagsmorguninn svo við kæmum okkur nú örugglega úr landi. Þegar við höfðum komið okkur í gegnum tollinn í Leifsstöð var kallað í hátalakerfinu “Farþegi á leið til Oslóar, Elva Jónasardóttir, er beðin um að koma niður í vopnaleit”. Hmmm… Ekki hafði ég nein vopn með í þetta sinn. Var dálítið pirruð þar sem ég var viss um að þetta væri einhver misskilningur því ég var handviss um að ég væri ekki að smygla neinu úr landi. Mér var fylgt niður af ungri konu sem vildi endilega að Roar kæmi með en mér fannst það nú algjör óþarfi þar sem ég vissi að það var nú hvorki fallbyssa né kjarnorkusprengja í farangrinum. Þegar ég kom niður beið mín skælbrosandi “AFAR ungur” maður, greynilega ánægður með sjálfan sig. Og hvað var það sem hann fann?? Jújú það voru hylkin í rjómasprautuna mína. Dööh. Þurfti hann endilega að hirða þau af mér? Ekki nokkur leið að fá svoleiðis keypt í Norge. Strákurinn var greinilega nýr í starfinu þar sem honum var hrósað í hástert af vinnufélögunum og sagt að nú yrði hann hækkaður í tign og fengi hærri laun og what ever. Haha jæja þetta var nú samt dálítið fyndið.

Hittum þessa tvo í Hvalstöðinni
Góða helgi elskurnar mínar, Elva blómarós
Fært undir Lífið og tilveran | 5 ummæli »
elvan í útlandinu 4. mars 2012

..þessa stundina og aumingja krókusarnir sem byrjuðu að blómstra í vikunni eru að snjóa í kaf. Tvífætta frökenin var sko ekki par ánægð þegar hún var vakin upp af þeirri ferfættu fyrir allar aldir í morgun og varð ennþá súrari þegar hún kíkti út um gluggan og sá snjókomuna úti. Skapið varð svo heldur verra þegar hún fór með þá fjórfættu í morgungönguna því um leið og hún steig útfyrir pallinn við innganginn þá kom snjóskriða á fullu niður húsþakið og beint yfir hana. Suma daga á maður bara ekkert að fara framúr. Hvað þá að opna augun. Sú ferfætta er aftur á móti alltaf jafn hamingjusöm með snjóinn og hoppar og skoppar útum allt eins og kálfur að vori og veltir sér um í snjónum.
Það er næstum því ótrúlegt að veturinn skuli vera kominn til baka þar sem það var blíða alla síðustu viku og hitinn fór uppí rétt tæpar 16°C síðasta þriðjudag. Það var yndislegt að losna við allar ullarbrækurnar og bolina sem ég hef pakkað mér inní síðustu mánuðina og spóka sig bara á stuttermabolnum í vinnunni. Ég náði mér að vísu í kvef og hálsbólgu en það var þess virði. En sólin var ekki lengi í paradís og nú er veturinn kominn aftur.
Við granninn skelltum okkur á West Side Story í gærkvöldi í nýju “Hörpunni” okkar, Kilden. Frábær sýninga og það besta var að þótt Roar hafi verið ákveðinn í því að fara ekki á neinar svona leiksýningar og dótarí þá var hann hæstánægður og er kominn með bakteríuna. Kannski maður nýti sér það og dragi hann í íslensku Hörpuna við tækifæri.
Einhver sem sér eitthvað sérstakt við myndina?
Ég mæli með því að þú sláir á linkinn undir mydninni og skoðir hana í fullri stræð.
Fært undir Lífið og tilveran | 3 ummæli »
elvan í útlandinu 5. febrúar 2012
Draumur um sumar og sól
Það er kalt í Norge og í síðustu viku dugði ekkert minna en tvöfalt lag af föðurlandi og ullarbolum í vinnunni. Er ekki búin að redda mér loðfóðruðum brjóstahaldara ennþá en hef án gríns vel því fyrir mér að sauma flísfóður inní eins og eitt eða tvö stykki. Skil bara ekkert í því að enginn hafi framleitt svona græju fram að þessu því ég trúi því ekki að ég sé ein um að frjósa á túttunum á veturna. Tuppan á heimilinu er aftur á móti hæstánægð með vetrarríkið og hoppar og skoppar í snjónum eins og kálfur að vori.
Það hefur snjóað alla helgina og ég verð að viðurkenna að ég hef ekki nennt að vera meira úti en ég þarf, þ.e. fer í gönguferðir með dýrið. Ætlaði á skíði í gær með frökenina en fannst svo ekkert spennandi við það að snjóa í kaf auk þess sem Roar smursérfræðingur er í Svíþjóð. Ágætis afsökun er það ekki
Doxý heldur að það sé hennar verkefni að koma mér úr sporunum í snjónum og dregur mig um eins og tuskudúkku. Hitti gamlan kall í gær sem glotti útí annað og spurði afhverju ég fengi mér ekki sparksleða og léti tíkina draga hann. Verð að viðurkenna að ég varð hugfangin af hugmyndinni og ætla mér að finna einn svona. Ekki slæmt að geta rennt sér niður Slettheia og láta dýrið síðan draga sig heim aftur.
Ég las góða grein í aftenposten.no í gær sem fjallar um fólk með ólæknandi krabbamein.
Roar er búin að vera í Svíþjóð alla helgina. Hann fór með prótótýpur af nýju hátölurunum sínum til eins sem ætlar að sjá um söluna í Svíþjóð og Danmörku. Þeir verða síðan á sýningu í Stokkhólmi um næstu helgi þar sem allir helstu hifi-gúrúarnir verða. Mér skilst að stórt hifi blað ætli líka að taka viðtal við Roar. Hann er búinn að fara með hátalarana til nokkurra hifi kalla hérna í Norge og þeir eru gjörsamlega að míga á sig af hrifningu. Hann er snillingur strákurinn.
Ætla að koma mér í rúmið og dreyma um sumar og sól.
Knúsilús á ykkur krúslurnar mínar, Elva tuskudúkka
Fært undir Heilbrigði, Óflokkað | 2 ummæli »
elvan í útlandinu 29. janúar 2012

Það snjóar og snjóar og allt er að fara í kaf. Það er eins og allur snjór vetrarins ætli að koma í einu lagi. Við höfum verið svo ótrúlega heppin í vetur að vera laus við snjó og frost en nú er gæfan í þeim málum að snúast. Sú eina á þessu heimili sem elskar snjóinn er fröken Doxý sem hoppar og skoppar í snjónum og finnst ekkert skemmtilegra en að velta sér uppúr honum og eltast við snjóbolta. Það er kannski kominn tími á að grafa fram skíðin í geymslunni og láta þá fjórbeintu draga sig um víðan völl.
Erum boðin á Þorrablót hjá vinafólki í næstu viku. Hlakka til að sjá hvernig til tekst hjá þeim. Hann er norskur en bjó á Íslandi í nokkur ár svo hann ætti að vita hvað á að vera á boðstólum.
Knúsilús krúslurnar mínar, Elva snjóálfur
Fært undir Óflokkað | 7 ummæli »
elvan í útlandinu 14. janúar 2012
Sumarhúsabyggðin á Bjarteyjarsandi
Er ennþá að kynnast nýju síðunni. Á eftir að finna útúr því hvernig sumir einfaldir hlutir eru gerðir en það kemur örugglega með tímanum. Sakna þess t.d. að geta ekki sett inn flickr badge og fleira. Smá byrjunarörðugleikar sem ég á örugglega eftir að hrista höfuðið yfir þegar ég finn útúr þeim.
Annars allt í sínum vanagangi. Ég álíka viðutan og venjulega enda ekki skyld honum föður mínum fyrir ekki neitt. Setti t.d. tvo brjóstahaldara á mig í morgun og uppgötvaði það ekki fyrr en ég sá það í speglinum.
Hérna er líka vor í lofti. Fórum beint úr haustinu í vorið. Það er snjólaust og hitagráður og vorlaukarnir mínir eru byrjaðir að stinga sér uppúr moldinni. Vona svo sannarlega að við sleppum við veturinn en við eigum ennþá tvo vetrarmánuði eftir þar til við getum fagnað. Ekki hægt að segja annað en að veðrið hafi leikið við okkur þrátt fyrir að fellibyljirnir Berit, Cato, Dagmar og Emil hafi herjað hérna síðan Helga sæta syss yfirgaf landið í endan nóvember. Það er jafnvel talað um að Frida muni heimsækja okkur innan skamms.
Jólin og áramótin á Íslandi voru æði. Ástarþakkir fyrir okkur Kolla og Sirri. Við vorum í bústað í sveitinni þar sem við áttum yndislegan tíma og gerðum fátt annað en að borða, lesa og bleyta í okkur í heita pottinum. Pabbi var með okkur allan tímann og Dofri var með okkur síðustu dagana. Við héldum okkur að mestu í sveitinni og nutum kyrrðarinnar, snjósins og fegurðarinnar.
Jólatréð okkar var að sjálfsögðu tekið á lóðinni okkar JG en þegar það var búið að saga það niður kom í ljós að það var ansi frjálslega vaxið en var fyrir vikið bara nokkuð sætt.
Roar og jólatréð
Norðmaðurinn er ennþá jafn gáttaður á því að á Íslandi opnum við gluggana ef það verður of heitt en í Norge er hitinn lækkaður á ofnunum. Hann var yfir sig hrifinn af heita pottinum en fannst samt ástæða til að kæla sig aðeins öðru hverju.
Hvað er betra en snjóbað?!?
Góða helgi krúslurnar mínar, Elva viðutan
Fært undir Lífið og tilveran | 3 ummæli »
elvan í útlandinu 18. desember 2011

Hvalur 6 og 7
Þá kom loks að því. Er hætt á blogcentral. Get hvorki sett inn myndir þar eða bloggað þannig að þá er bara að flytja sig aðeins um set.
Annars allt fínt héðan. Doxý nýtur sín og er byrjuð að búa sig undir harðan vetur. Á hverjum morgni stillir hún sér pent upp fyrir framan matdallinn sinn og býður eftir þurrfóðri bragðbættu með lýsi. Þetta finnst henni algjört æði enda slefar hún ekkert smá yfir morgunverðinum.
Roar er á fullu í vinnunni. Hann er nýbúinn að fá prótótýpur af nýju hátölurunum sínum og eyðir núna tímanum í að fínstilla áður en hægt er að panta stærra upplag og senda í búðir í Noregi, Svíþjóð og Danmörku. Nú er allt að gerast á þeim bænum.
Ég dunda mér áfram uppá toppi Aquarama og þakka fyrir hvern dag sem er snjólaus. Dreif líka í því að klára jólagjafirnar ásamt mínum kæra. Búið að pakka inn, skrifa á jólakortin og senda, skreyta íbúðina og baða dýrið. Framundan er því bara að ryðja útúr geymslunni og kasta sem mestu svo það verði pláss fyrir meira drasl.

Göngugarpar
Núna eru dagarnir taldir fram að brottför. Verður æði að eyða jólunum með fjölskyldunni. Ég hlakka ekkert smá til að sýna Roar öll jólaljósin og hvernig við fögnum nýju ári með brennum og alvöru flugeldasýningum.
Fært undir Lífið og tilveran, Óflokkað | 4 ummæli »