Get a life!

30. maí 2008

Starfshættir Alþingis

Flokkað undir Hugarreik, Menning og listir, Stjórnmál, Umræðan — Gunnar J Briem @ 1.16
Forseti stjórnar umræðum og sér um að allt fari fram með góðri reglu. Hann skal sjá til þess að störf þingsins séu í samræmi við lýðræðislega arfleifð grískrar menningar, ákvæði stjórnarskrár, þingskapa og annarra laga.

Svona hljóðar 1. mgr. 8. gr. laga um þingsköp Alþingis ekki.

En vel má vera að siðmenntaðir þingmenn leiðrétti þessi mistök fyrri lagasmiða, sem virðast hafa látið stjórnast af örfáum andlýðræðissinnuðum ofstækismönnum.

17. maí 2008

Dómgreind og lukkufjaðrir

Flokkað undir Alþjóðamál, Stjórnmál — Gunnar J Briem @ 13.19

McCain, forsetaframbjóðandi repúblikana, dregur í efa að Obama hafi nægilega mikla dómgreind til að stjórna Bandaríkjunum.

Samkvæmt Washington Post komst ringulreið á kosningabaráttu McCains þegar hann týndi lukkufjöðrinni sinni. Sem betur fer fann konan hans fjöðrina í jakkafötunum hans. Hann týndi líka lukkukompásnum sínum og setti háttsettum manni í liðinu sínu umsvifalaust fyrir að finna hann. Hann á vonandi ekki eftir að týna lukkuskónum sínum og lukkusmápeningnum, það gæti alveg slegið hann út af laginu.

Knúið með WordPress

Vísir Fréttir Lífið Íþróttir Viðskipti Vefmiðlar
Blogg.Vísir.is Innskráning Nýskráning